Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ Island hefur ekki staðfest fjögurra ára alþjóðlegan efnavopnasáttmála Gæti haft áhrif á íslenzkan efnaiðnað ÍSLAND hefur enn ekki staðfest alþjóðlegan sáttmála um bann við framleiðslu, geymslu og notkun efnavopna, sem gengur í gildi 29. aprfl næstkomandi. Morgunblað- inu er kunnugt um að málið hefur verið til meðferðar í utanríkisráðu- neytinu um tveggja ára skeið, en ekki eru horfur á að það fái þing- lega meðferð á yfirstandandi Al- þingi og verður það því væntan- lega að bíða næsta þings. Ríki, sem ekki hafa staðfest efnavopnasáttmálann, geta orðið fyrir því að aðildarríki hans leggi hömlur á viðskipti með efni, sem hægt er að nota til framleiðslu efnavopna. Mörg þessara efna eru jafnframt notuð í venjulegum efnaiðnaði og gætu hömlur á sölu þeirra til íslands því haft áhrif á hann. Samkvæmt upplýsingum frá Hollustuvemd ríkisins er sennilegt að einhver þeirra efna, sem til- greind eru í viðaukum við efna- vopnasáttmálann, séu notuð hér á landi, ýmist í efnaiðnaði eða í t.d. skordýraeitri og öðrum innfluttum efnum. Morgunblaðið hefur fengið staðfest að a.m.k. tvö efni, sem eru á listanum, eru notuð við fram- leiðslu í íslenzkum efnaverksmiðj- um. Undirritun fyrir rúmum fjórum árum ísland undirritaði efnavopna- sáttmálann 13. janúar 1993, sama dag og hann var lagður fram til undirritunar. Síðan hafa 70 ríki bæði undirritað og staðfest sátt- málann, þar á meðal mörg smá- ríki. Fiji-eyjar voru þannig fyrsta ríkið, sem staðfesti hann. Öll ríki Atlantshafsbandalagsins nema Tyrkland, Lúxemborg, ísland og Bandaríkin hafa staðfest samning- inn og öll ríki Evrópska efnahags- svæðisins nema Island og Lúxem- borg. Bandaríkin hafa verið undir miklum alþjóðlegum þrýstingi að staðfesta sáttmálann og hafa sam- tök efnaiðnaðarins þar í landi (CMA) jafnframt hvatt til staðfest- ingar hans. Talið er að meirihluti sé fyrir staðfestingu sáttmálans á Bandaríkjaþingi. Jón Egill Egilsson, skrifstofu- stjóri alþjóðaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins, segir að undanfarið hafí verið reynt að hraða undir- búningi fyrir þinglega meðferð efnavopnasáttmálans. Þó sé ekki víst að hægt verði að staðfesta hann fyrr en á næsta Alþingi. Fyrsta ráðstefna aðildarríkja Stofnunarinnar um bann við efna- vopnum (OPCW), sem sett verður á fót um leið og efnavopnasáttmál- inn tekur gildi, verður haldin í Haag í Hollandi 6. maí næstkom- andi og munu utanríkisráðherrar margra aðildarríkja sitja hana. Jón Egill segir að ísland muni eiga fulltrúa á ráðstefnunni, sem sé einnig opin þeim ríkjum, sem að- eins hafi undirritað sáttmálann. Þá hafi ísland þegar greitt gjald fyrir aðild að stofnuninni. Morgunblaðið/Golli Handteknir eftir mikinn eltingarleik TVEIR menn um þrítugt voru handteknir síðdegis í gær eftir að hafa neitað tilmælum lög- reglu um að stöðva ökutæki sitt og vegna glæfraaksturs í kjölfarið. Þeir liggja undir grun um meðhöndlun fíkni- efna. Upphaf málsins var með þeim hætti að árvökulir lög- reglumenn urðu varir við öku- mann sem þeir töldu víst að væri án ökuréttinda og ætluðu að hafa tal af honum. Maðurinn stöðvaði ekki för sína og upp- hófst mikill eltingarleikur, sem barst frá Hverfisgötu upp á Laugaveg, gegnum Þingholt og eftir Snorrabraut og vestur á Hringbraut, þar sem náðist loks að stöðva för mannanna. Neituðu að koma út Lögreglan hafði áður komið upp vegartálma, en öku- manninum tókst að smeygja bifreiðinni á milli lögreglubíla þegar lögreglumenn ætluðu að hafa tal af honum, upp á gang- stétt og áfram. Þegar búið var að króa bílinn af á móts við Landspítala, eftir um tuttugu mínútna langa eftirför, neitaði ökumaðurinn að ræða við lög- reglu og læsti að sér, þannig að nauðsynlegt reyndist að bijóta rúðu í bifreiðinni til að ná honum og farþega út. Mennirnir liggja undir grun um fíkniefnamisferli og var efnt til húsleitar í kjölfarið í gærkvöldi, en nokkuð er síðan heimild fyrir húsleitinni barst. Annar maðurinn er ekki búsett- ur í Reykjavík, en hefur komið við sögu lögreglu fyrir að flytja fíkniefni til Vestfjarða. Talið er að mennirnir hafi verið að koma frá húsi þar sem fíkni- efni hafa verið notuð og þeim dreift þaðan. Ökumaðurinn neitaði að veita leyfi fyrir leit í bifreið- inni, og var ætlunin að fá dóms- úrskurð um leitarheimild hið fyrsta, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, enda grunur um að þar sé fíkniefni að finna. Skylduaðild að lífeyrissjóðum Kært til mannrétt- indanefndar MÁL sem varðar skylduaðild að líf- eyrissjóðum hefur verið kært til mannréttindanefndar Evrópu. Nefndin metur hvort mál er tækt til meðferðar fyrir mannréttindadóm- stólnum og talsverður tími getur lið- ið þar til niðurstaða varðandi það liggur fyrir. Málið varðar starfsmenn trésmiðju sem voru skyldaðir til að greiða til lífeyrissjóðs síns stéttarfélags, sem er Sameinaði lífeyrissjóðurinn. Þeir vildu greiða til Fijálsa lífeyrissjóðs- ins, en töpuðu málinu bæði í héraði og fyrir Hæstarétti sl. haust. í Hæstarétti féllu atkvæði þijú gegn tveimur. í sératkvæðum var visað til þess að skylduaðild að lffeyrissjóðum fæli í sér skerðingu á félagafrelsi. Biðlistar í heiibrigðiskerfinu Leyfilegt að leita lækninga í EES-ríkjum? HUGSANLEGT er að samkvæmt reglum EES sé íslenskum sjúklingum heimilt að leita sér lækninga í öðrum ríkjum Efnahagssvæðisins, verði bið eftir aðgerð óbærilega löng hér á landi. Þetta kom fram í máli Rann- veigar Guðmundsdóttur, Þingflokki jafnaðarmanna, í umræðum um bið- lista í heilbrigðiskerfinu á Alþingi í gær. I samtali við Morgunblaðið segir Rannveig að þessi möguleiki hafi komið til umræðu í nefndum og stofnunum sem fjalla um heilbrigð- ismál. „Ég er ekki að mæla með því að þetta sé gert, en ef svarið er já- kvætt, er komin enn meiri pressa á að stytta biðlistana í heilbrigðiskerf- inu.“ Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra segir að ekki sé útilokað að þessi réttur sé til staðar, en að málið verði kannað á næstu dögum. Hún benti þó á að í nágrannalönd- unum væru biðlistar víða lengri en hér. „Við gerum allar þær aðgerðir sem við getum hér á landi. Það hef- ur ekki verið eftirspurn eftir því að fara til útlanda í aðgerðir, enda vill fólk yfírleitt bíða eftir sínum lækni.“ Við umræðumar á Alþingi í gær gagnrýndu stjómarandstæðingar ráðherrann fyrir að gera of lítið úr því vandamáli sem biðlistamir væm. Bent var á að vafasamt væri að nokk- ur sparnaður væri í því að láta fólk bíða, meðal annars vegna þess að þá bættist við lyfjakostnaður og að- gerðimar yrðu erfiðari þegar loks kæmi að þeim. Heilbrigðisráðherra sagði að vandamálið væri flóknara en svo að það dygði að veita aukið fjármagn til ákveðinna málaflokka. Hún sagði að mikið hefði verið gert til að kanna biðlistana og leita lausna. Vandað um við eld- spýtnaþjófa MÓÐIR kom með tvo syni sína og vin þeirra á fund lögreglu í Breiðholtsstöð á fímmtudag, en upp hafði komist að dreng- irnir höfðu hnuplað nokkrum pökkum af eldspýtnastokkum í Hagkaupi nokkru áður. Eldfærin höfðu þeir notað til að kveikja eld í mannlausri vöruskemmu sem þeir höfðu komist inn í. Drengirnir fengu föðurlega umvöndun lögreglu þess efnis að hvorki mætti taka þá hluti sem aðrir eiga né leika með eldspýtur, og voru að henni lokinni að sögn harðákveðnir í að endurtaka ekki slíka óknytti. Eldspýtnaþjófarnir eru 4 ára og 6 ára gamlir og gera menn sér vonir um að afbrotaferii þeirra sé þar með lokið, sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglu. 13 árabraust 8 sinnum inn ÁTTA innbrot og skemmdar- verk í Breiðholtsskóla eru upp- lýst og hefur stór hluti þýfísins komist til skila, í kjölfar þess að lögreglan hafði hendur í hári tveggja unglinga á fjór- tánda aldúrsári í gær. Piltarnir voru með tölvu í farteskinu þegar lögreglan hafði afskipti af þeim og færði á lögreglustöð til skýrslutöku. í kjölfarið var gerð húsleit þar sem tvær tölvur til viðbótar fundust, myndbandstökuvél og fleiri stolnir munir. Annar piltanna hafði brotist átta sinnum inn í skólann, en hinn var nýliði á þessu sviði, samkvæmt uppiýsingum frá lögreglu. Þeir gengust við inn- brotunum og voru að skýrslu- töku lokinni sóttir af foreldrum sínum. Munum úr sögu lögreglu skilað MAÐUR kom á fund lögreglu- manna í Breiðholtsstöð á fímmtudag og skilaði þýfí frá innbroti í Árbæjarsafn í ágúst á seinasta ári, en þá var stolið ýmsum munum úr minjasafni lögreglu. Viðkomandi aðili mun hafa verið viðriðinn innbrotið og skil- aði hann hluta þýfísins, þar á meðal gömlum handjámum, en meira mun vera að finna hjá sökunaut hans sem búsettur er erlendis, samkvæmt upplýsing- um frá lögreglu. Vita menn um hvem er að ræða, og gera sér vonir um að hægt sé að endurheimta allt það sem var stolið á sínum tíma. Kærðir fyrir að nota ekki belti UM 30 ökumenn í Reykjavík vom kærðir á seinasta sólar- hring fyrir að nota ekki bílbelti, og hafa hlutfallslega jafnmargir ökumenn verið kærðir fyrir sömu vanrækslu í næstu sveit- arfélögum, samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu. Lögreglan fylgist nú sérstak- lega með bflbeltanotkun öku- manna og farþega, og mun það átak standa yfír fram yfír páska. Þeir ökumenn og farþeg- ar, sem ekki nota bflbelti, eins og lögboðið er, sæta kæm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.