Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristján KÓRINN er samsettur úr fimm kórum í Eyjafirði, samtals um 150 manns, en hljómsveitina skipa um 60 hljóðfæraleikarar. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og kór flytja Carmina Burana Spennandi og skemmtilegt verkefni SINFÓNÍUHUÓMSVEIT Norður- lands flytur Carmina Burana eftir Carl Orff ásamt um 150 manna kór og einsöngvurum í íþróttaskemm- unni á Akureyri næstkomandi mið- vikudagskvöld. Einsöngvarar verða þau Amdís Halla Ásgeirsdóttir, sópr- an, og Michael Jón Clarke, sem syng- ur tenór og baritón. Stjómandi _ á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Að þessu sinni er hljómsveitin skipuð um 60 hljóðfæraleikurum. Fimm kórar í einn Hinn fjölmenni kór, sem tekur þátt í tónleikunum, er samsettur úr fimm kórum af Eyjafjarðarsvæðinu, Fjölskyldudag- ur vélsleðafólks á Súlumýrum FÉLAG vélsleðamanna í Eyjafirði í samvinnu við Hjálparsveit skáta á Akureyri efnir á morgun, sunnu- daginn 23. mars til fjölskyldudags fyrir vélsleðafólk á Súlumýrum ofan Ákureyrar. Safnast verður saman eftir há- degið og þeir sem vilja fá far á sleða eða láta draga sig á skíðum geta mætt sunnan við öskuhaugana milli kl. 13 og 14. Meistarakokkar Greif- ans grilla pylsur frá kl. 14 til 15. Skorað er á allt vélsleðafólk að mæta með alla fjölskylduna og eiga saman skemmtilegan dag. GISTIÐ A BÖKKUM LAXÁRí SUÐUR ÞINGEYJA RSÝSLIJ I þinghúsinu Hraunbæ, Aöaldal ? S-Þingryjarsýslu er boðiö upp á gistingu allt árib. Húsiö stendur í skógar- lundi á bakka laxár í Aöaldal. - Rúmgóö 2ja manna herbergi m/handlaug. - Góö snyrtiaöstaöa. - Rúmgóö setu-/boröstofa. - Veilingar et pantaö er íyrirfram. - Cldunaraöslaöa. - leiktæki lyrir börn. - Sala veiöilcyfa í Vestmannsvatn, Kringluvatn og Langavatní og efsta hluta Uxár neöan stíllu. Vlö erum miösvreöis á Noröausturfandi Akureyri 1 klst. Húsavík 20 mín. Mývatn 30 rnín. Ásbyrgi Lklst. Dettifoss 2 klst. Vaglaskóg 30 min. Gctum sótt gcsli aö gotnamólum vit> Tjöm í veg fyrir áu’tlun (sérteyli) Akureyrí • Húsavík. Þingliúsié HrauiJjæ Aðaklol • 641 Húsavik Srmi: 464-3695 • Fax: 464-3S95 en þeir eru Kirkjukór Grenivíkur- kirkju, stjómandi Björg Sigurbjöms- dóttir, Kór Dalvíkurkirkju, stjómandi Hlín Torfadóttir, Kór Laufáss- og Svalbarðssókna, stjórnandi Hjörtur Steinbergsson, Kór Tónlistarskólans á Akureyri, stjómandi Michael Jón Clarke, og Samkór Svarfdæla, stjómandi Rósa Kristín Baldursdótt- ir. Um frumraun margra kórfélaga á þessu sviði er að ræða, en æfingar hafa gengið mjög vel og kórfélagar staðið sig með prýði að sögn Micha- els Jóns Clarke. Arndís Halla Ásgeirsdóttir hóf söngnám við Tónlistarskóla FÍH árið 1989 en færði sig yfír í Söngskólann árið 1991 og lauk þaðan 8. stigi þrem- ur árum síðar. Hún stundaði fram- haldsnám við Listaháskólann í Berlín og hefur lokið fyrrihlutaprófi með hæstu mögulega einkunn. Amdís Halla hélt tónleika hér á landi um jólin ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara og hlaut lof gagnrýn- enda. Hún hefur tekið þátt í uppfærsl- um bæði hér heima og í Berlín. Michael Jón Clarke hefur starfað við tónlistarkennslu á Akureyri, bæði sem söng- og fiðlukennari. Hann hef- ur einnig stjórnað hljómsveitum og kórum og er stofnandi og stjómandi Kórs Tónlistarskólans á Akureyri sem er einn af kórunum sem fram koma á tónleikunum. Michael Jón Clarke hefur víða komið fram sem einsöngv- ari, m.a. í uppfærslu íslensku óper- unnar á Carmina Burana. Verk sem allir þekkja „Þetta er verk sem nánast allir þekkja, brot úr verkinu eru gjaman notuð í kvikmyndum og auglýsingum. Ég er ekki frá því að Carmina Bur- ana sé eitt vinsælasta verk nútímans fyrir kór og hljómsveit," sagði Micha- el Jón. „Það er óskaplega mikil gleði kringum þetta verk, mikið spaug, það er gert grín að fjölmörgu, prestastétt- inni, fylliríum og ástamálum svo eitt- hvað sé nefnt.“ Michael Jón sagði Carmina Burana mjög spennandi og skemmtilegt verk- efni að fást við. Hann syngur tvö ein- söngshlutverk sem bæði spanna vítt raddsvið. „Þetta er töluvert átak, krefjandi hlutverk en það á einnig við um einsöngskvenhlutverkið." Carl Orff lauk við að semja Carm- ina Burana árið 1936 og var verkið frumflutt í Frankfurt ári síðar við mikinn fögnuð áheyrenda. Verkið er samið við veraldleg ljóð sem fundust í handriti frá 13. öld. Ljóðin eru á iatínu og miðaldaþýsku og lýsir text- inn hugleiðingum og upplifunum munka og flökkustúdenta á helstu áhugamálum sínum, dansi, drykkju og fögrum konum, en einnig bregður fyrir hástemmdum ljóðrænum tilþrif- um og gamanvísum inn á milli. Rússnesk stemmning Á tónleikunum á miðvikudaginn verða einnig flutt kröftug rússnesk stemmningsstykki, tónleikamir hefj- ast á Hátíðarforleik eftir Shost- akovich, þáttur úr svítunni Rómeó og Júlíu eftir Prokofiev, þáttur úr Eldfuglinum eftir Stravinsky og Sverðdansinn eftir Khachaturian. Tónleikarnir verða sem fyrr segir í íþróttaskemmunni næstkomandi miðvikudag, þeir hefjast kl. 20.30. Forsala aðgöngumiða er í Bókabúð Jónasar. Hlutafjárútboð Samheija hófst í gær Margir hafa hug á hlutabréfunum HLUTAFJÁRÚTBOÐ Samheija hf. hófst í gær. Að sögn Sigurðar Sigurgeirssonar forstöðumanns Landsbréfa á Akureyri, hafa við- tökur verið mjög góðar um allt Iand. Til sölu eru hlutabréf að nafn- virði 45 milljónir króna á genginu 9,0. „Við höfum verið að taka við áskriftarblöðum frá útibúunum en þar sem úrvinnsla er ekki hafin, get ég ekki sagt til um á þessari stundu hversu margir hafa skráð sig fyrir hlutabréfum né fyrir hve hárri upphæð. Við erum hins vegar mjög ánægðir með viðtökumar," sagði Sigurður. Allir eiga sömu möguleika Hlutaijárútboðið stendur fram til kl. 16 nk. miðvikudag og allir þeir sem skrá sig fyrir hlut á þeim tíma eiga sömu möguleika. Hver og einn hefur rétt til að skrá sig fyrir hluta- fé að hámarki 100 þúsund krónur að nafnverði en lágmarksupphæð er 1.000 krónur að nafnverði. Verði eftirspum meiri en sem nemur heild- arfjárhæð þess hlutafjár sem í boði er skerðist hlutur hvers og eins. Löggæsluyfirvöld á Akureyri Auka þarf viðbún- að vegna útihátíðar LÖGGÆSLUYFIRVÖLD á Akureyri munu hafa mun meiri viðbúnað en áður verði hátíðin „Halló Akureyri" haldin um næstu verslunarmanna- helgi. Þetta kom fram í máli Bjöms Jósefs Arnviðarsonar sýslumanns í erindi sem hann hélt á ráðstefnu um áfengis- og vímuefnanotkun ungl- inga á Akureyri í vikunni. Ráðstefn- an var haldin að fmmkvæði bæjaryf- irvalda á Akureyri í samstarfi við SÁÁ, heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri og heilbrigðisráðuneytisins. Kveikjan að henni var sú umræða sem varð í kjölfar útihátíða um síð- ustu verslunarmannahelgi og þá einkum „Halló Akureyri". Meiri kröfur Bjöm Jósef sagði að framvegis yrði litið svo á að um útihátíð væri að ræða, en það hefði í för með sér að strangari kröfur verða gerðar til mótshaldara varðandi skipulagningu. „Það hefur ekki verið litið á þessa samkomu sem útihátíð, það er mein- ið,“ sagði Bjöm Jósef. Mun fleiri löggæslumenn munu verða að störfum og þeir sem að hátíðinni standa verða krafðir um þann auknakostnað sem því fylgir. Aukin löggæsla yfir liðna verslunar- mannahelgi kostaði um 1,5 milljónir króna. Sætti mótshaldarar sig ekki við það verður leyfi ekki gefið fyrir hátíðinni. Þá mun unglingum yngri en 16 ára sem ekki eru í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum ekki verða leyft að tjalda á tjaldstæðum bæjarins. Einnig verður gerð sú krafa til mótshaldara að takmarkan- ir og skilmálar lögreglu komi fram í auglýsingum vegna hátíðarinnar. Þarf viðhorfsbreytingu Sýslumaður sagði það umhugsun- arefni að fjöldi 14-15 ára unglinga hefði sótt samkomuna „Halló Akur- eyri“ um síðustu verslunarmanna- helgi án fylgdar foreldra. Það væri umhugsunarefni að foreldrar hleyptu bömum sínum á slíkar samkomur, fólk ætti að vita að þeim hefði fylgt mikil áfengisneysla. „Það þarf að koma til viðhorfsbreyting hjá foreldr- um, en hennar er ekki að vænta þegar börn á þessum aldri eru send á svona samkomur." SKIPULAGSUPPDRÁTTUR af svæðinu norðan Torfunefs- bryggju. Nýi grjótgarðurinn gengur í átt að gömlu bryggjunni og flotbryggjan verður þar innan við. Vestan við skýli Slysavarna- félagsins er svo gert ráð fyrir bílaumferð að flotbryggjunni. Farþegabryg’gja við Torfunef tilbúin í vor HAFNASAMLAG Norðurlands hef- ur boðið út dýpkun, byggingu gijót- garðs og landveggs fyrir farþega- bryggju við Torfunef á Akureyri. Efnismagn í garðinn, sem verður 40 metra langur, er áætlað 1.900 rúmmetrar. Þá verður dýpkað innan garðsins niður á þriggja metra dýpi. Samkvæmt útboðsgögnum skal verkinu lokið fyrir 10. maí nk. Einnig koma gatna- og umhverf- isdeildir bæjarins að framkvæmdum á svæðinu, varðandi gatnagerð og gerð göngustíga og gróðursetningar. Stjórn Hafnasamlags Norður- lands samþykkti fyrir skömmu að taka tilboði Króla ehf. í Kópavogi í flotbryggju. Bryggjan er 5x20 metrar að stærð og er m.a. hugsuð fyrir farþegabáta skemmtiferða- skipa. Kostnaður við kaupin á bryggj- unni og vegna framkvæmda á svæð- inu er áætlaður um 9 milljónir króna. Stefnt er að því að fram- kvæmdum verði lokið fyrir 10. júní nk. en fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins er væntanlegt 11. júní. Messur AKUREYRARKIRKJA: Ferm- ingarguðsþjónustur kl. 10.30 og 13.30 á Pálmasunnudag. Altaris- ganga kl. 19.30 mánudaginn 24. mars. Mömmumorgunn í safnað- arheimili frá kl. 10 til 12. GLERÁRKIRKJA: Ferming- armessur kl. 10.30 og 13.30 á morgun, pálmasunnudag. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun, almenn samkoma kl. 20. Heim- ilasamband kl. 16 á mánudag. Allir hjartanlega velkomnir. HVITASUNNUIRKJAN: Al- menn samkoma, Stella Sverris- dóttir prédikar. Samkomustjóri Bjami Hjaltason. Mikill og fjöl- breyttur söngur. Bænastund á mánudags-, miðvikudags-, og föstudagsmorgnum kl. 6-7. Vonarlínan, sími 462 1210, sím- svari allan sólarhringinn með orð úr ritningunni sem gefa huggun og von. SJÓNARHÆÐ: Sunnudaga- skóli í Lundarskóla kl. 13.30. á morgun. Almenn samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Ástjarnar- fundur kl. 18 á mánudag á Sjónarhæð. HÚSAVÍKURKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14 á morgun, pálmasunnudag. Fermingarbörn aðstoða, börn borin til skírnar. Foreldrar fermingarbarna eru hvattir til þátttöku ásamt börn- um sínum. Helgistund í Mið- hvammi kl. 16. Lesið úr Passíu- sálmunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.