Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 29
AÐSENDAR GREINAR
Hugsar Reykjavík óvart
illa um bömin sín?
STÉTTARFÉLAG sálfræðinga á
Islandi hefur óskað eftir birtingu á
eftirfarandi athugasemd:
Það fer varla fram hjá þeim for-
eldrum sem eiga börn á skólaaldri
og leita eftir sálfræðiaðstoð fyrir
þau að biðin getur orðið löng. A
sama tíma og fólk gerist meðvit-
aðra um mikilvægi þess að grípa
fljótt inn í náms-, tilfinninga- eða
hegðunarvanda barna sinna lengj-
ast biðlistar hjá þeim aðilum sem
veita viðeigandi aðstoð. Eftirspurn
eftir aðstoð sálfræðinga við skólana
hér á höfuðborgarsvæðinu hefur
aukist jafnt og þétt síðastliðin ár
en á sama tíma hefur sálfræðingum
við skólana fækkað. Dæmi eru um
að bíða þurfi mánuðum saman eftir
aðstoð hjá stærstu sálfræðideild
skóla á Islandi - Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur. Ef fram heldur sem
horfir munu æ fleiri skólabörn í
Reykjavík fara varhluta af þeirri
aðstoð sem Lög um Grunnskóla
kveða á um.
Nú er öllum ljóst að skólasálfræð-
ingar einir og sér leysa ekki vanda
skólabarna í Reykjavík. Það var því
kærkomið innlegg í þessa umræðu
þegar Gerður G. Óskarsdóttir,
Fræðslustjóri Reykjavíkur, gerði
grein fyrir auknu mikilvægi á sam-
vinnu námsráðgjafa og skólasál-
fræðinga í grein sem birtist hér í
Morgunblaðinu þriðjudaginn 4.
mars sl. Þessir tveir faghópar hafa
unnið vel saman innan skóla borg-
arinnar undanfarin ár og sú sam-
vinna fer vaxandi. Faghópar úr
röðum kennara og heilbrigðisstétta
eru ómissandi þáttur í þessari sam-
vinnu og hlutverk skólasálfræðinga
felst því einnig í að halda utanum
samvinnu ólíkra aðila _sem sinna
skólabörnum í vanda. í greininni
segir Gerður að erfitt sé að fá sál-
fræðinga til starfa við Fræðslumið-
stöð og segir ástæðurnar vera lág
laun sem rekja megi til slæmra
kjarasamninga sálfræðinga á Is-
landi. Gerður óskar þess jafnframt
að sálfræðingum takist að semja
um betri laun í komandi kjarasamn-
ingum svo þeir fáist til að starfa
við Fræðslumiðstöð.
Það er öllum kunnugt að sálfræð-
ingar hér á landi eru mjög illa laun-
aðir og margir hugsa sig tvisvar
um áður en þeir hefja störf á ís-
landi eftir langt og dýrt háskólanám
erlendis. En það vita kannski færri
að engir sálfræðingar eru jafn iila
launaðir og þeir sem starfa við
ákveðnar stofnanir Reykjavíkur-
borgar. Og einmitt í þessu efni
verða útskýringar Gerðar á sál-
fræðingaskorti ótrúverðugar. Gerð-
ur kennir slæmum kjarasamningum
um lág laun og hefur þar vissulega
rétt fyrir sér. En hún gleymir að
geta þess að kjarasamningar eru
einungis samningar um lágmarks-
laun og að borgarstofnun eins og
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur er í
raun í sjálfsvald sett að bjóða sál-
fræðingum mannsæmandi laun og
gera starf við stofnunina eftirsókn-
arvert.
Eftir yfirfærslu Grunnskólans til
sveitarfélaganna hlutu stofnanir
eins og hin nýstofnaða Fræðslu-
Vantar þig
VIN
að tala við?
Til að deila með
sorg og gleði?
VINALÍNAN
561 6464*800 6464
í*)!) öll kvöld 20-23
miðstöð sjálfstæðan fjárhag og
forgangsraða því fé sínu eftir eigin
mati á þjónustuþörf skólanna. Mat
á þjónustuþörf fer fram í samvinnu
við skólastjórnendur sem ávallt
hafa kunnað að meta þjónustu sál-
fræðideildar skóla. Sálfræðingar
sem sinna þjónustu við skóla borg-
arinnar hafa á undanförnum árum
gert ítrekaðar tilraunir til að fá
kjör sín bætt, en án árangurs:
Bæði á tímum Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis og nú eftir
Stéttarfélag sálfræð-
inga segir, að Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur sé
frj álst að gera vel við
starfsfólk sitt.
að Fræðslumiðstöð tók til starfa
hafa starfsmenn þessara stofnana
tekið ábyrgð á þjónustu við skóla-
börn borgarinnar. En bersýnilega
hafa þáverandi og núverandi
vinnuveitendur ekki kunnað að
meta þessa starfskrafta sem
skyldi. Afleiðingarnar eru kunnar:
sáífræðingum við Reykjavíkur-
skóla fækkar og nýir fást ekki til
starfa.
í yfirstandandi kjaraviðræðum
við Stéttarfélag sálfræðinga hafa
ríki og borg ekki sýnt nein merki
um samningsvilja heldur dregið við-
ræður á langinn með fálæti og und-
anfærslum. Það er því gott að
Fræðslustjóri Reykjavíkur skuli
vekja athygli á afleiðingum slæmra
launakjara og styðja þar með við
bakið á sálfræðiþjónustu við skóla
borgarinnar. En að sama skapi er
slæmt að Fræðsiustjóri skuli fara
með rangfærslur og heimfæra skort
á sálfræðingum við skólana einfarið
uppá slæma kjarasamninga;
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur er eins
og áður sagði frjálst að gera vel
við starfsfólk sitt. Þessu til árétting-
ar má geta þess að þau sveitarfélög
úti á landi sem vildu á annað borð
leggja áherslu á góða sálfræðiþjón-
ustu, eftir yfirfærslu Grunnskólans,
buðu sálfræðingum launakjör sem
eru 40-80% betri en þau sem miða
við lægstu taxta kjarasamninga,
þá taxta sem látnir eru gilda við
ýmsar ríkis- og borgarstofnanir eins
og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
Með þessu áframhaldi og undir
þessum launakjörum sálfræðinga -
hjá Fræðslumiðstöð sem ætlar sér
forystuhlutverk á sviði skólamála á
íslandi - er hætta á að sálfræði-
þjónusta við börn í vanda versni
hér í höfuðborginni umfram það
sem komið er.
Vantar þig mjólk?
Líttu þá við í Griffli um helgina. Kaupir þú fyrir 1.500.- kr. eða meira
átt þú kost á 2 lítrum af mjólk í kaupbæti, á meðan birgðir endast.
Þú getur notað tækifærið og nýtt þér eitthvert af þeim
50 fermingartilboðum sem nú eru í gangi í Griffli.
Og það er ekki allt, því í ofanálag fylgir áletrun
hverjum keyptum PARKER penna.
SJÁUMST í GRIFFLI UM HELGINA.
Opið laugardag 10-16 & sunnudag 12-16.
Síðumúli 35 *.SÍmi 533 1010
Sér u.m sírie