Morgunblaðið - 02.04.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Verkfall hófst á mið-
nætti á Vestfjörðum
Verkalýðsfélögin í Bolungarvík og á
Tálknafirði fresta verkfalli
VERKFALL Alþýðusambands Vest-
fjarða hófst á miðnætti í nótt. Fund-
ur samninganefnda deiluaðila hófst
hjá sáttasemjara kl. 16.30 í gær og
stóð fram yfir miðnætti. Verkalýðs-
félögin í Bolungarvík og Tálknafirði
hafa samþykkt að fresta verkfalli
þar sem þau telja ekki forsendur
fyrir viðræðum fyrr en búið er að
telja atkvæði um samninga Verka-
mannasambandsins við vinnuveit-
endur, en talið verður 15. apríl.
Fyrir helgi lagði samninganefnd
ASV tilboð fyrir Vinnuveitendafélag
Vestfjarða, en það gerði ráð fyrir
að vinnuveitendur kæmu til móts
við kröfuna um 100 þúsund króna
lágmarkslaun. Vinnuveitendur
höfnuðu kröfunni.
Samiðn
samdi við
borg og ríki
SKRIFAÐ var í gær undir kjara-
samning Samiðnar og Reykjavíkur-
borgar og jafnframt var frestað
verkfalli sem hefjast átti í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá
Samiðn eru samningarnir á svipuð-
um nótum og aðrir samningar með
sömu prósentuhækkunum og samn-
ingstíma. Ágreiningur var einkum
um að hve miklu leyti bónusgreiðslur
ættu að koma inn í kauptaxtana til
hækkunar.
Á skírdag var skrifað undir kjara-
samning Samiðnar og ríkisins og
verkfalli sem boðað hafði verið var
jafnframt frestað. Að sögn Gunnars
Björnssonar, formanns samninga-
nefndar ríkisins, var samningurinn
nánast samhljóða samningum sem
Samiðn hafði áður gert fyrir al-
menna vinnumarkaðinn.
DAVÍÐ Gill Jónsson og Hall-
dóra Sif Halldórsdóttir.
Danskeppni í
Blackpool
Islenskur
sigur
Blackpool. Morgunblaðið.
ÍSLENSKUM keppendum í Dans-
keppninni í Blackpooi, óopinberri
heimsmeistarakeppni barna og
unglinga í samkvæmisdönsum,
hefur gengið vel það sem af er
keppni.
Davíð Gili Jónsson og Halldóra
Sif Halldórsdóttir sigruðu í fiokki
11 ára og yngri í cha-cha-cha á
mánudag, í standarddönsum í gær
og annað ísienskt par, Benedikt
Einarsson og Bergiind Ingvars-
dóttir, varð í 4. sæti í fiokki 12-15
ára í samba á mánudag.
Á fundi í stóru samninganefnd
Alþýðusambands Vestfjarða, sem
haldinn var í fyrradag, lýstu fulltrú-
ar Verkalýðs- og sjómannafélags
Bolungai-víkur því yfir að þeir teldu
sig ekki hafa stuðning félagsins til
boðunar verkfalls 2. apríl og óskuðu
eftir að því yrði frestað. Aðrir fund-
armenn skoruðu á Bolvíkingana að
tjúfa ekki samstöðuna, en þeir ósk-
uðu eftir að menn stæðu saman um
nýja dagsetningu. Á fundinum var
upplýst að Tálknfirðingar myndu
fresta verkfalli. Þingeyri tekur ekki
þátt í aðgerðum vegna hins erfiða
FÉLAGAR í unglingadeild
björgunarsveitarinnar Kyndils í
Mosfellsbæ gengu með „sjúkl-
ing“ á börum um sjötíu kíló-
metra leið meðfram bæjarmörk-
um Mosfellsbæjar um helgina.
Tilgangur ferðarinnar var að
safna fé fyrir deildina auk þess
FORSETI og framkvæmdastjóri
ASÍ áttu í gær fund með forsætis-
ráðherra og fjármálaráðherra um
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda og
starfsemi lífeyrissjóða. Engin
niðurstaða varð á fundinum, en
Ari_ Skúlason, framkvæmdastjóri
ASÍ, segir útilokað fyrir verkalýðs-
hreyfinguna að sætta sig við frurn-
varpið eins_ og það lítur út í dag.
ASÍ og VSÍ hafa rætt um sameig-
inlegar aðgerðir til að þrýsta á rík-
isstjórnina um að breyta afstöðu
sinni.
Að mati forystu ASÍ gengur
frumvarpið þvert á yfirlýsingu for-
sætisráðherra frá 24. mars sl. um
atvinnuástands þar. Þá er ágrein-
ingur um lögmæti boðaðra aðgerða
í Súðavík þar sem vinnuveitendur
gera athugasemd við orðalag í verk-
fallsboðuninni.
Verkfall er alvarlegur hlutur
„Verkfall er alvarlegur hlutur og
ef formaður og stjórn hafa ekki
baklandið með sér er illt í efni,“
sagði Daði Guðmundsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Bol-
ungai-víkur. Hann sagði að á fundi
samninganefndar félagsins, sem
haldinn var síðar um kvöldið, hefðu
að æfa flutning slasaðra. Gekk
hvort tveggja vel, að sögn leið-
angursmanna.
Unga fólkið lagði upp frá
bækistöðvum Kyndils um hádegi
á Iaugardag, héít niður í fjöru
og þaðan rangsælis meðfram
bæjarmörkunum. Gengið var
forræði almennu lífeyrissjóðanna á
10% iðgjaldi launþega og atvinnu-
rekenda. Samkvæmt frumvarpinu
verður 10% lífeyrisiðgjaldi skipt í
lágmarksiðgjald og viðbótariðgjald.
LaunamannLer heimilt að ráðstafa
viðbótariðgjaldi, en það er það ið-
gjald sem er umfram 10.000 kr. á
mánuði.
Lagt fram í ríkisstjórn í dag
Frumvarpið verður lagt fram í
ríkisstjórninni í dag og fer þaðan
til umfjöllunar í þingflokkum stjórn-
arinnar.
Ari sagði að á fundinum hefðu
hann og Grétar Þorsteinsson, for-
seti ASI, kynnt fyrir ráðherrunum
allir verið sammála um að fresta
verkfalli til 23. apríl. „Við metum
stöðuna þannig að atvinnurekendur
geti ekkert gert fyrr en búið er að
greiða atkvæði um samninga
Verkamannasambandsins og þess
vegna sé ekki staða til að gera eitt
eða neitt. Við viljum ekki vera með
fólkið okkar í verkfalli í tvær eða
þijár vikur í þessari stöðu."
Verkalýðs- og sjómannafélag
Tálknaflarðar hefur einnig frestað
verkfalli til 18. apríl. Kristín Ólafs-
dóttir, fonuaður félagsins, sagði að
eining hefði verið um þessa niður-
stöðu innan féiagsins. Félagið vildi
ekki fara í verkfall fyiT en ljóst væri
hvaða niðurstaða fengist út úr at-
kvæðagreiðslu um samninga VMSÍ.
fram á kvöld en við Litlu kaffi-
stofuna var sjúklingurinn fluttur
yfir í snjóbíl, sem ók honum yfir
Mosfellsheiði. Um miðja nótttók
göngufólkið aftur við sjúklingn-
um á börunum og kom honum í
hús björgunarsveitarinnar um
hádegi á páskadag.
sjónarmið ASÍ í málinu. Þeir hefðu
lagt áherslu á að með frumvarpinu
væri ríkisstjórnin að svíkja loforð
sem forsætisráðherra gaf við undir-
ritun kjarasamninga 24. mars. Uti-
lokað væri fyrir Alþýðusambandið
að sætta sig við frumvarpið í
óbreyttri mynd. Ari sagði að ráð-
herrarnir hefðu ekki gefið neinar
yfirlýsingar um að þeir myndu
breyta frumvarpinu, en menn
myndu ræða saman áfram.
Viðræður hafa farið fram milli
forystu ASÍ og VSÍ um þetta mál
og er í undirbúningj að þessi sam-
tök þrýsti sameiginlega á ríkis-
stjórnina með það að markmiði að
fá frumvarpinu breytt.
Dag’sbrún/
Framsókn
8.000 eintök
af samningi
sett í póst
ALLIR félagsmenn í Dags-
brún/Framsókn fá nýgerða
kjarasamninga senda heim
fyrir atkvæðagreiðslu um
samningana sem fer fram í
næstu viku.
Að sögn Þráins Hallgríms-
sonar skrifstofustjóra Dags-
brúnar er um að ræða bæði
aðalkjarasamning og sérkjara-
samninga sem gerðir voru við
fyrirtæki og sveitarfélög. Eru
samningarnir sendir út til við-
komandi félagsmanna, ásamt
skýringum þar sem útskýrðar
eru breytingar frá eldri samn-
ingnum.
Þráinn sagði að samning- ,
arnir hefðu verið sendir út til !
um 8.000 félagsmanna Dags-
brúnar og Framsóknar. Þar
af hefðu verið send út um
6.000 eintök af aðalkjara-
samningnum og um 2.000 ein- ’
tök af sérkjarasamningum.
„Nú móta félagsmenn okkar
afstöðu sína til samningsins á
grundvelli þessara upplýs-
inga,“ sagði Þráinn. Atkvæða-
greiðsla um samningana fer
fram í Skipholti 50a í Reykja-
vík dagana 8., 9. og 10. apríl.
Líkamsárás
í Stykkis-
hólmi
UNGUR maður í Stykkishólmi
réðst á móður sína með hnífi
og veitti henni slæman áverka
á hendi þegar hann kom heim
frá drykkju á laugardagsmorg-
un.
Móðirin kallaði til nágranna
síns sem reyndi að róa piltinn
niður. Hann var ekki á því og
hugðist ráðast á grannann en
honum tókst að nota hurð sem
skjöld. Lögregla var kölluð til
og tókst að yfirbuga unga
manninn eftir að hann hafði
reynt að veita lögregluþjóni
áverka.
Árásarmaðurinn var yfir-
bugaður og fluttur á lögreglu-
stöð, þar sem hann var á
sunnudagsmorgun úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til 13. apríi
nk. Hann hefur komið við sögu
lögreglu áður.
Móðirin var flutt á Sjúkra-
hús Reykjavíkur þar sem hún
gekkst undir aðgerð.
Stúlka lést í
bílslysi
SEX ára gömul stúlka lést um
klukkan tíu í gærmorgun þeg-
ar bifreið sem hún var farþegi
í skall á ljósastaur við Borgar-
nes.skammt frá vegamótunum
til Olafsvíkur.
Móðir stúlkunnar ók bifreið-
inni, sem hafnaði á ljósastaur
og vafðist utan um hann af svo
miklum krafti að losa þurfti
bílinn með málmklippum.
Stúlkan var farþegi í aftursæti
bifreiðarinnar.
Ökumaðurinn slapp án telj- ,
andi líkamlegra áverka, sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglu. Tildrög slyssins eru ekki
að fullu ljós.
Ekki er hægt að birta nafn
stúlkunnar að svo stöddu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gengið með „sjúkling“ umhverfis Mosfellsbæ
Ágreiningur er enn um lífeyrisfrumvarpið
ASI og VSI ræða um
sameiginlegar aðgerðir