Morgunblaðið - 02.04.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 23
Heiðursviður-
kenning Rótarý
til Jónasar Ing-i-
mundarsonar
RÓTARÝKLÚBBUR Kópavogs hef-
ur veitt Jónasi Ingimundarsyni tón-
listarmanni heiðursviðurkenningu
starfsársins 1996 til 1997. Jónas
hlýtur viðurkenninguna fyrir listræn
störf og margháttaða forgöngu um
tónlistarflutning, bæði í Kópavogi
og á höfuðborgarsvæðinu sem og á
landinu öllu.
í kynningu segir: „Jónas er fædd-
ur á Bergþórshvoli í Austur-Land-
eyjum árið 1944. Hann nam píanó-
leik hjá úrvals kennurum við Tónlist-
arskólann í Reykjavík og síðan í
framhaldsnámi við tónlistarháskól-
ann í Vínarborg. Hann hefur verið
mikilvirkur píanóleikari í öllum meg-
ingreinum þeirra listar: sjálfstæðum
einleik og með sinfóníuhljómsveit og
kammersveitum og meðleik með ein-
söngvurum og kórum. Hefur hann
sem slíkur haldið eða átt hlut að
§ölda tónleika heima og erlendis, í
hljómleikasal, útvarpi og sjónvarpi
og tekið þátt í listahátíðum heima
og víða erlendis. Jafnframt því hefur
hann stundað píanókennslu og stjóm
nokkurra kóra. Þá hefur hann leikið
inn á fjölmargar hljómplötur, bæði
einleik og með söngvurum.
Þessir listrænu verðleikar væru í
sjálfum sér nægt tiiefni til viður-
kenningar. Jónas er hins vegar eng-
inn venjulegur listiðkandi, sem vinn-
ur eftir pöntun, heldur hefur í mikl-
um og vaxandi mæli tekið eigið
frumkvæði að tónlistarflutningi og
fengið listamenn til liðs við sig og
kynnt marga þeirra og komið á
framfæri sem og heiðrað hina eldri
með forgöngu sinni. Þetta hefur
komið skýrast fram með forgöngu
og stjórn hljómleikaraða í lista- og
menningarmiðstöðvum, sem for-
stöðumaður árlegra söngdaga í
Skálholti og skipuleggjandi og
píanóleikari á ljóðatónleikum í
Gerðubergi. Sams konar hlutverki
hefur hann gegnt í tónleikaröðinni
Við slaghörpuna í Listasafni Kópa-
vogs á vegum Fræðslu- og menn-
ingardeildar Kópavogsbæjar og að
auki staðið fyrir öðru tónleikahaldi
í bænum, svo sem Digraneskirkju.
Loks hefur hann staðið fyrir tónlist-
arkynningu undir heitinu Tónlist
fyrir alla í skólunum í Kópavogi og
víðar.
Jóns er Kópavogsbúi, en félagi í
Rótarýklúbbi Reykjavíkur. Á báðum
vettvöngum hefur hann sýnt mikla
ræktarsemi og verkað sameinandi."
Japanskir höf-
undar og
hægrimenn
METAÐSÓKN var að frönsku bóka-
stefnunni í ár og eini skugginn eyði-
legging deildar öfgamanna til hægri.
Skiptar skoðanir eru reyndar um
hvort þetta hafí verið vont eða gott,
stjórnmálamenn segjast margir
harma atganginn en lýsa jafnframt
furðu yfir því að liðsmönnum LePen
hafí verið hleypt inn á bókastefn-
una. Menningarmálaráðherrann
fyrrverandi, Jaques Lang, er meðal
þeirra sem svona tala við blaðamenn.
Japan var land landanna á bóka-
Franska bókastefnan
var eiginlega japönsk í
ár og sterkt lituð póli-
tískt. Þórunn Þórs-
dóttir fór að fletta bók-
um og hlusta á fólk tala
um öfgar ýmist til hægri
eða vinstri.
stefnunni og fjölmargir höfundar
komu þaðan. Brasilía verður í mið-
punkti næsta ár. Þetta var sautjánda
bókastefnan í París, haldin í geysi-
stórum sýningarsölum við Porte de
Versailles, þar sem nautgripir og
annar fénaður trampaði á landbún-
aðarsýningu í febrúar.
Serge Eyrolles, forseti bókaþings-
ins, sagði gesti hafa verið fleiri en
300.000 og það væri fleira en nokkru
sinni. Bókaormar voru 193.000 tals-
ins en hinir sem fylla þriðja hundrað-
ið komu að skoða nýjungar í mynd-
böndum og margmiðlun að ógleymd-
um skólamálum. 100.000 munu hafa
heimsótt skólastefnu og 40.000
skoðað myndbandasal.
Á bókastefnunni kynntu nær öll
frönsk forlög sem nöfnum tjáir að
nefna nýja og gamla höfunda. Alls
voru þeir um 1.500. Glænýjar bækur
voru í öndvegi en eldri gæðabókum
og endurútgáfum teflt fram líka.
Allt gerðist þetta frá 12. til 17.
mars og sérkennilegt var um að lit-
ast í lokin. Verkamenn tróðu bókum
og veggspjöldum í kassa, tóku til í
menningunni. Þeir töluðu um átök
fímmtudagskvöldsins þegar fram-
takssamur hópur gerði hróp að út-
gáfunni sem tengd er Front Nati-
onal og henti til bókum og borðum.
Viðbrögð ýmissa forkólfa í stjórn-
málum voru hin sömu og nýverið
þegar nýjum lögum um innflytjendur
í Frakklandi var mótmælt: Þetta
virkar öfugt, er vatn á myllu öfga-
manna vegna þess að fólk fær sam-
úð með þeim. Sérstaklega var höfðað
til prentfrelsis hvað varðar atburðinn
á bókastefnunni. Alveg sama þótt
fylgismenn LePen sem komist hafa
til valda í nokkrum frönskum bæjum
banni hikstalaust „hættulegar bæk-
ur“ sem minnir á árin fyrir stríð.
^emantaAóáiá
Fermingagjafir, glæsilegt úrval
DEMANTAHÚSIÐ
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
JÓNAS Ingimundarson hlaut heiðursviðurkenningu Rótarýklúbbs Kópavogs fyrir
listræn störf og margháttaða forgöngu um tónlistarflutning.
TILEFNI EITT ÞÚSUND
ÁRA KRISTNITÖKUAFMÆLIS
***. 2000 AUGLÝSIR
KRISTNIHÁTÍÐARN FFND
EFTIRMERKI FYRIR
KRISTNITÖKUHÁTÍÐINA
Kristnhátfðamefnd hefur ákweðið að gangast fyrir opimi samkeppni i
samráði wið FfT, Félag isienskra teiknara og samkwæmt keppnisregken
þess, um hðnnun meriris fyrir Kristnitökuhátfð árið 2000. Öllum er heimii
þátttaka, jafnt félögum kman FÍT sem ððram.
Uerklýsing og hlutverk
1 Merkið skal vera stílhreint og minna á kristnitökuna,
samfylgd kirkju og íslenskrar þjóðar og menningar í 1000 ár.
2 Heimilt er að notast við allt að 4 liti við hönnun merkisins en
jafnframt skal það geta staðið í einum lit í grunni, án þess að
tapa stíl eða táknrænni merkingu. Tillögum skal skilað í
arkarstærð DIN A4 (29,7 x 21,0 sm). Merkið skal vera í tveimur
stærðum, 15 sm og 2 sm í þvermál, bæði í litum og svörtu.
3 Auk þess að vera merki Kristnihátíðar er gert ráð fyrir að það
verði notað til kynningar við hátíðarhöld hérlendis og erlendis
og annað sem tengist hátíðinni.
4 Tillögur má setja í póst eða koma til Kristnihátíðarnefndar merktan
Kristrahátfdamefnd, Sfðumúia 32, 108 Roykjawfk.
Hver tillaga skal merkt dulnefni, en nafn höfundar ásamt
heimilisfangi og símanúmeri viðkomandi, skal fylgja í
ógagnsæju, lokuðu umslagi, merktu dulnefni.
5 Skilafrestur er til 15. apríl 1997.
Dómnefnd og verðlaun
6 Fimm manna dómnefnd hefur verið skipuð en hana skipa: Biskup
íslands hr. Ólafur Skúlason, formaður, Jón Ágúst Pálmason F(T,
Guðmundur Oddur Magnússon FÍT, Ólöf Birna Garðarsdóttir FÍT og
Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur. Dómnefndin velur þærtillögur
sem hljóta verðlaun. Henni er heimilt að hafna ölium tillögum ef
þátttaka og gæði þeirra merkja sem send verða í keppnina
teljast, að mati dómnefndar, vera ófullnægjandi. Trúnaðarmaður
dómnefndarer Júlíus Hafetein, framkvæmdastjóri Kristnihátíðarnefndar
og veitir hann upplýsingar í síma 533 2350.
7 Þegar endanlegt val á merkjum liggur fyrir, verða viðkomandi umslög
opnuð, vinningshöfum tilkynnt úrslit og verðlaun afhent við sérstakt
tækifæri þar sem öll þau merki sem berast i samkeppnina verða
til sýnis.
8 Veitt eru þrenn verðlaun, 1. verðlaun 400.000 kr., 2. og 3. verðlaun
200.000 kr. hvor, ásamt eðlilegri greiðslu höfundar fyrir hönnun og
frágang þess merkis sem notað verður.
9 Kristnihátíðarnefnd áskilur sér ótímabundinn notkunar- og
ráðstöfunarrétt á því merki sem hlýtur verðlaun í samkeppninni og
notað verður án þess að aukagreiðslur komi til umfram það sem
getið er í 8. lið. Kristnihátíðarnefnd mun taka ákvörðun um hvaða
tillaga sem borist hefur verður notuð sem kristnihátíðarmerki.
KRISTN IHATIÐARN EFND