Morgunblaðið - 02.04.1997, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 29
LISTIR
Hljómsveit sem vert
er að taka eftir
TONLIST
Iþróttaskcmman
á Akurcyri
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands, Amdís Halla Asgeirsdóttir
sópran, Michael Jón Clarke tenór og
barítón og 150 manna kór (Kirkjukór
Grenivíkurkirlqu, Kór Dalvíkur-
kirkju, Kórar Laufáss- og Svalbarðs-
sókna, Kór Tónlistarskólans á Akur-
eyri, Samkór Svarfdæla). Stjómandi:
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Efnisskrá: Verk fjögurra rússneskra
tónskálda og Carmina Burana
eftir Carl Orff. 26. mars 1997.
MIÐVIKUDAGSKVöLDIÐ 26.
mars hélt Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands þriðju tónleika starfsársins
í troðfullri íþróttaskemmunni á
Akureyri.
Rússnesk tónlist
Á fyrri hluta efnisskrárinnar
voru hljómsveitarverk eftir fjögur
rússnesk tónskáld. Hófust tónleik-
arnir á glæsilegum hátíðarforleik
eftir Dmitri Shostakovich þar sem
blásarar byijuðu af miklum krafti.
Hljómsveitin lék verkið af miklu
öryggi og um miðbikið, þar sem
strengir spiluðu pizzicato, og einnig
í unisono-kafla þar á eftir kom fram
hve hljómsveitin var samstæð.
Næst var fluttur 2. þáttur úr
Eldfuglinum eftir Igor Stravinsky.
Þetta verk er ólíkt hinu fyrsta því
þetta verk er mjög ljúft og þýtt,
allt að því angurvært. Mikið er um
einleikshluta bæði hjá strengjum
og blásurum og skiluðu allir sínu
mjög vel.
Þriðja verkið var Montagues et
Capulet úr Rómeó og Júlíu eftir
Sergei Prokofíev. í byijun verksins
eru skarpar andstæður milli blás-
ara, sem leika sterka og ómstríða
hljóma, og strengja, sem svara með
mildum hljómum sem sitja eftir er
blásararnir hætta. Eftir það taka
við léttari hlutar, fyrst mars og síð-
an vals. Var þetta verk mjög
skemmtilegt áheyrnar og vel flutt.
Síðast fyrir hlé flutti hljómsveitin
Sverðdansinn eftir Aram Khachat-
urian. Þetta er eflaust best þekkta
verkið af þeim fjórum sem flutt
voru í fyrri hlutanum. í byrjun var
hraðinn eitthvað á reiki og virtist
sem ekki væru allir hljóðfæraleikar-
arnir vissir á tempóinu. Þetta lagað-
ist _þó fljótt.
Á fyrri hluta tónleikanna lék
hljómsveitin alla jafna mjög vel
saman og var greinilegt að vel hafði
verið unnið.
Islensk list
falleg gjöf og vinsæl
kMIÐARgt
5SKAUT
Skólavörðustíg 16 a
Sími 561 4090
Carmina Burana
Eftir hlé var flutt hið þekkta
Carmina Burana eftir Carl Orff.
Nú bættist við hljómsveitina um
150 manna blandaður kór skipaður
kórfólki úr kirkjukórum báðum
megin Eyjafjarðar auk Kórs Tón-
listarskólans á Akureyri. Kórarnir
æfðu hver í sínu lagi í vetur en
saman síðustu vikur.
Strax með upphafstónunum var
tónninn greinilega gefinn því fyrsti
kaflinn, 0 Fortuna, var bæði kröft-
ugur og mjög skýr. Þó svo að kór-
inn væri svona stór og langt væri
milli jaðarraddanna fylgdi hann
stjórnandanum mjög vel. Kórinn
stóð sig mjög vel en ekki hefði sak-
að að karlaraddir væru fjölmenn-
ari. Þrátt fyrir að sópran- og tenór-
raddir liggi oft mjög hátt hljómuðu
þær vel og bar lítið á þvinguðum
tóni.
í nokkrum köflum söng aðeins
hluti kórsins, Coro piccolo, og var
þeim söngvurum stillt upp aftast.
Yfirleitt náðu raddirnar vel saman
en í 3. kaflanum, Veris leta facies,
kom fram lítils háttar misræmi
milli sóprans og tenórs. í 7. kaflan-
um, Floret Silva, fá kvennaraddirn-
ar tvisvar erfiðan hljóm sem syngja
á örveikt. í fyrra skiptið tókst ekki
vel til en í það seinna gekk mun
betur.
19. kaflinn, Si puer cum puellula,
hefur svolitla sérstöðu. Hann syngja
sex karlaraddir, 3 tenórar og 3
bassar, án undirleiks. Bassarnir
stóðu sig mjög vel, sérstaklega
efsta röddin sem er í raun sólórödd
sem krefst mikils raddsviðs. Seinni
hluti kaflans var mjög skemmtilega
fluttur. Tenórarnir voru ekki eins
öruggir og áttu í nokkrum erfiðleik-
um.
Michael Jón Clarke söng bæði
tenór- og barítónhlutverkin í Carm-
ina Burana. Flutningur Michaels
var hreint frábær í báðum hlutverk-
um. í 12. kaflanum, Olim lacus
couleram, sem er lýsing svans sem
verið er að steikja yfir eldi, beitti
Michael leikaralegum tilburðum í
raddbeitingu. í inngangi þess kafla
er fagottsóló sem var mjög vel út-
fært og gaf til kynna hvað í vænd-
um var. Þegar tveim af þremur
erindum svansins var lokið virðist
sem loftræstibúnaði hússins hafi
þótt nóg um því hann fór í gang
með miklum hávaða og höggum svo
stöðva varð tónleikana um stund.
Þetta kom ekki mikið að sök því
sá staður í verkinu þar sem þetta
gerðist var eins og kjörinn fyrir
óvænta uppákomu sem þessa.
Arndís Halla Ásgeirsdóttir söng
sópran. Hún stóð sig frábærlega
vel, sérstaklega í 21. kafla, In trut-
ina. Rödd hennar er geysilega há
og tær og túlkun góð. Verður mjög
áhugavert að fylgjast með henni í
framtíðinni.
Það verður að teljast mikið þrek-
virki hjá kirkjukór að ráðast í að
taka þátt í jafn erfiðu verki og
Carmina Burana. Á hinn bóginn
hlýtur það að vera mikil og dýrmæt
reynsla að fá að taka þátt í flutn-
ingi sem þessum.
Hér á undan hef ég einungis
getað lýst hluta af því sem fyrir
eyru bar á þessum tónleikum. Loka-
niðurstaðan er sú að þessir tónleik-
ar voru frábærir. Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands hefur enn á ný
sannað að hún er komin til að vera,
ekki bara einhver hljómsveit heldur
hljómsveit sem vert er að taka eft-
ir. Fastur liður í starfsemi hljóm-
sveitarinnar frá upphafi er að fá
kóra til samstarfs og er það af hinu
góða. Verður vonandi framhald á
því þar sem áheyrendum gefst kost-
ur á að heyra stór kórverk með
fullskipaðri hljómsveit.
Hlutur stjórnandans í uppgangi
hljómsveitarinnar er hreint ekki svo
lítill. Guðmundur ÓIi Gunnarsson
hefur svo sannarlega sýnt að hann
er vel starfi sínu vaxinn. Það að
ná saman og æfa fimm ólíka kóra
á nokkrum vikum og samæfa síðan
með hljómsveit á nokkrum dögum,
sýnir að vel hefur verið staðið að
undirbúningi. Vonandi nýtur hljóm-
sveitin krafta hans sem allra lengst.
Jóhann Baldvinsson
Uthlutun til atvinnuleikhópa
Hermóður og Háðvör
fær 8 milljónir í
starfsstyrk
I UTHLUTUN menntamálaráðu-
neytisins til starfsemi atvinnuleik-
hópa 1997 hlýtur Hafnarfjarðarleik-
húsið Hermóður og Háðvör 8 millj-
óna króna starfsstyrk í ár sám-
kvæmt tveggja ára samningi, en
úthlutað er að fengnum tillögum frá
framkvæmdastjórn Leiklistarráðs.
Fimm leikhús hljóta styrk til
nýrra verkefna. Islenska leikhúsið
fær 1,2 milljónir til uppsetningar
leikverks að vali hópsins af verk-
efnalista leikhússins. Frú Emilía fær
sömuleiðis 1,2 milljónir til uppsetn-
ingar leikverks að vali hópsins af
verkefnalista leikhússins. Tungl-
skinseyjan fræ einnig 1,2 milljónir
til uppsetningar óperunnar Tungl-
OTRULEGT
skinseyjunnar. Gallerí Njála fær 750
þúsund til uppsetningar leikritsins
Gallerí Njála og Leikhús kirkjunnar
fær 750 þúsund til uppsetningar
leikritsins Heilagir syndarar.
Furðuleikhúsið hlýtur 400 þúsund
króna undirbúningsstyrk vegna
uppsetningar á bamaleikritinu
Ávaxtakarfan.
Þrír viðbótarstyrkir voru veittir.
Flugfélagið Loftur fær 1 milljón til
uppsetningar leikritsins Bein út-
sending. Augnablik fær 750 þúsund
til uppsetningar á leikverkinu
Tristran og ísold og Hvunndagsleik-
húsið fær 750 þúsund til nýrrar
sýningar á Trójudætrum og Jötnin-
Þegar húsgagnin
skipta máíi
TILBOO
á sófasettum og
hornsófum
3 einföld dæmi
Leðursófasett 3+1+1
Verð áður kr. 239.000,-
Verð nú aðeins kr. 189.000.-
Full búð af nýjum
vörum
frá heimsþekktum
framleiðendum.
Hjá okkur eru
Visa- og
Euroraðsamningar
ávísun á staðgreiðslu
þ&ttc /löiiujtt v-ið sporncð í (cy,
Val húsqöqn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Leðursófasett 3+1+1 _
Verðáðurkr. 229.000.- W
Verð nú aðeins kr. 179.000.-
Þú sparar kr. 50.000.-
Homsófasett 2+H+2
Verðáðurkr. 219.000.-
Verð nú aðeins kr. 169.000.-
Þú sparar kr. 50.000,-
Húsgögnin eru alklædd gæðaleðri
Litir: Koníak, grænt, blátt, svart, rautt
í Teppabúðinni
GEGIVIIEILT PARKET!
dir af fyrsta flokks parkeli!
20-30%
alsláítnr
GEGNHEILT TILBOÐ
stu 10 daga
i Verðfirá
i
pr. m2