Morgunblaðið - 02.04.1997, Síða 37

Morgunblaðið - 02.04.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 37 ahæð Meðalaldur flósa á Suðurlandi er 32 ár Allt þvegiö í höndunum Göturnar eru þröngar, flestar aðeins moldarstígar en nokkrar með ein- hverskonar steinhleðslu. Hér er mjög sérkennileg blanda af frumstæðum einfaldleika og nútíma tækni. Allt vatn er borið í brúsum frá lindinni sem er neðst í þorpinu. Þegar hæðarmun- urinn er 100 m er enginn hægðarleik- ur að burðast með 25-30 lítra brúsa heim. Samt eru það oft börnin sem eru send eftir vatninu og það er vissu- lega skrítið að sjá 6-7 ára börn með byrðar sem eru ekki ijarri þeirra eig- in líkamsþyngd. Hér er líka allt þvegið í höndunum við steinsteypta laug neðan við vatns- bólin. Sum húsin eru mjög frumstæð, hituð með brennslu á timbri og þurrk- uðum jakuxaskít. Á húsunum er eng- inn reykháfur heldur sér maður reykinn liðast út með þakskegginu. Hér eru hins vegar margir nokkuð vel stæðir eftir velgengni í ferða- mannabransanum, eða iangan og góð- an feril sem aðstoðarmenn í fjall- gönguleiðöngrum. Hér gægjast því nokkrir gervihnattadiskar upp úr görðunum og efnuðustu háfjalla- sherparnir eru í fokdýrum flallafötum frá Vesturlöndum. Hér er líka raf- magn. Austurríkismenn byggðu litla vatnsorkuvirkjun í dal hér fyrir neðan árið 1983. Rafmagn er því í stærstu húsunum, en bara á milli kl. 18 og 24. Við njótum þess því að geta hlað- ið allt rafmagnsdótið úr innstungu í síðasta sinn í tvo mánuði. Lýsingin er eingöngu frá 20 W flúorscent per- um. Philips fyrirtækið gaf sérstakar sparperur árið 1983, en þær eru allar löngu sprungnar og allt of dýrar til þess að unnt sé að endurnýja þær. Tóm perustæðin eru til vitnis um góð- vild og gjafmildi sem ekki hafði verið hugsuð til fulis. Sem betur fer eru allar raflagnir lagðar í jörð, því loft- línur hefðu farið illa með ásýnd þorps- ins. Nótt á gistiheimili frá 30 krónum Götulífið hér er litríkt. Götusalar bjóða fallegan varning frá Nepal og Tíbet, afgangsbúnað frá fjallaleið- öngrum, matvöru og fleira, allt í ein- um hrærigraut. Hér er meira og minna allt til og það er ótrúlegt að hugsa til þess að það er allt borið hingað upp eftir. Verðlagið er ekki hátt á íslenskan mælikvarða. Nótt á gistiheimili kostar frá 30 kr. nóttin fyrir tveggja manna herbergi upp í 300 kr. Kvöldverður er á 30-150 kr. Hinsvegar er gos og vestrænt sæl- gæti dýrt enda er um langan veg að fara. Þannig kostar kókflaska það sama og tveggja rétta kvöldverður. í grunnskóla staðarins eru þrír bekkir með börnum á aldrinum 3-11 ára, stofurnar eru þijár og hver að- eins um 3x2 m og átta til 10 börn í hverri. Þegar við heimsóttum skólann var kennarinn aðeins einn og hafði hann því í nógu að snúast. Taflan er gerð úr svartmáluðum viðarfjölum. I skólanum var mikið sungið og í frí- mínútum safnast öll börnin út á litla flöt utan við skólann og syngja þjóð- sönginn og fara í leikfimi. Klukkustundar gang fyrir ofan bæinn er svo einkennilegt stílbrot. Þar var byggt fyrir nokkrum árum hlaðið hótei með útsýni yfir Everest. Þar ganga þjónar um í jakkafötum og það er hægt að fá súrefni og loftþrýst herbergi. Herlegheitin kosta hinsveg- ar 200 dollara nóttin eða 1.000 falt það ódýrasta í bænum. Hótelið var byggt fyrir efnameiri ferðalanga sem ekki gáfu sér tíma til að labba upp að fjallinu en vildu njóta útsýnis yfir Everest. Það er ótrúlega stutt flug- braut rétt hjá hótelinu. Þar lenda aðeins flugvélar af Pilatus gerð svo og þyrlur. Okkur leist svo á að rekst- ur hótelsins gangi ekki vel og heldur var staðurinn í niðurníðslu. Við snæddum þar stjarnfræðilega dýran hádegisverð og virtum fyrir okkur viðfangsefni næstu vikna og stórbrotna fegurð fjallanna. Vissulega má deila um þau áhrif sem svona stofnun hefur á menningu og þjóðfé- lag sherpanna en áhrifin eru í raun ekki svo mikil því meginþorri ferða- manna og fjallaleiðangra sneiðir hjá þessu hóteli og kýs meiri nálægð við innfædda og menningu þeirra. Byggingarár fjósa á Suðurlandi 52% 7% 14% Fyrir 1950- 1966- 1976- 1986- 1950 1965 1975 1985 1996 MAGNÚS H. Sigurðsson bóndi í Birtingaholti. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Óeðlilegt ástand MÉR kom mest á óvart hvað ástandið er víða slæmt hjá bændum. Þeir eru greinilega í kreppu hvað varðar viðhald íjósa. Þar hefur mynd- ast óeðlilegt ástand. Það ætti að vera hægt að nota þessa skoðun til að bæta stöðuna. Ef það verður ekki gert er hrun framundan," segir Magnús H. Sigurðsson, bóndi í Birtingaholti í Hrunamannahreppi, um úttekt á ijós- um á Suðurlandi sem hann vann að. Fyrir nokkrum árum voru nokkrar stofnanir með áform um að gera út- tekt á byggingarmálum í landbúnaði. Þegar ekki varð af því ákváðu Búnað- arsamband Suðurlands og Mjólkurbú Flóamanna að gera slíka úttekt á fjós- um á Suðurlandi en hafa hana víðtæk- ari með því að kanna viðhorf bænda til ýmissa þátta búrekstrarins. Magn- ús í Birtingaholti og Sævar Bjarnhéð- insson í Gýgjarhólskoti tóku að sér verkið. Skoðuðu þeir öll Qós á Suður- landi, alls 453, á síðari hluta ársins 1995. Síðan hefur verið unnið úr upp- lýsingunum og nýlega kom út skýrsla með helstu niðurstöðum. Meðalaldur 32 ár Fjós á Suðurlandi reyndust 32ja ára gömul að meðaltali. Elstu fjósin eru í Rangárvallasýslu, meðalbygg- ingarár þeirra er árið 1963. Athyglis- vert er að sjá að í Rangárvallasýslu eru 69% fjósa byggð fyrir ái'ið 1966. Þetta hlutfall er mun lægra í Árnes- sýslu og Vestur-Skaftafellssýslu, en í báðum tilvikum eru þó um 55% fjós- anna frá þessum tíma. Búnaður fjós- anna er einnig gamall. Þannig eru mjaltakerfi orðin sextán ára í 63% allra sunnlenskra fjósa. Þegar á þetta er litið kemur ekki á óvart að 45% bænda sem afstöðu tóku töldu að þörf væri á nýbygging- um vegna mjólkurframleiðslu. Þörfin reyndist mest í Rangárvallasýslu. Hins vegar sá enginn þeirra fram á að hafa örugga fjárhagslega getu til framkvæmda á næstu fimm árum og tiltölulega fáir töldu að þeir hefðu lík- lega möguleika til þess. í könnuninni kom fram að allvíða er ónýtt framleiðsiuaðstaða, að með- altali um 20%. Tæplega þriðjungur mjólkurframleiðenda taldi stækkun búsins líklega á næstunni. Flestir vildu bæta við sig innan við 30 þúsund lítr- um. í heiidina töldu menn þörf á aukn- ingu upp á 3,8 milljónir lítra en það eru liðlega 10% núverandi greiðslu- marks á búnaðarsambandssvæðinu. Magnús Sigurðsson segir að marg- ir bændur horfí með kvíða tii kyn- slóðaskipta, sjái ekki fram á að neinn taki við. Telur hann að þetta eigi sér- staklega við um fólk með 50-80 þús- und lítra kvóta og gömul fjós. Þar sé þörf á að byggja upp og kaupa jafn- framt kvóta. í úttekt Magnúsar og Sævars kem- ur í ljós að gerð búnaðar í fjósum hefur mikil áhrif á gæði framleiðsl- Fjós á Suðurlandi eru orðin gömul og viðhaldi ábótavant. Bændur telja sig hins vegar ekki hafa efni á því að bæta aðstöðuna. Menn sem gert hafa úttekt á fjósunum telja að hrun sé framundan ef ekki verði gert átak til að bæta stöðuna. Helgi Bjarnason kynnti sér málið. unnar, sérstaklega gerlafjölda. Sést það til dæmis á mjaltabúnaði en þar koma gömlu fötukerfin áberandi illa út. Einnig sést að það er á allan hátt jákvætt að vera með mjaltabás. Þá sést að mjólk frá bæjum sem eru með máluð gólf eða flísar í mjólkurhúsum er mun betri en frá bæjum þar sem stéypan er ber en það er enn algeng- ast á Suðurlandi. Mjaltabásar bæta framleiðsluna Magnús segir að hægt sé að bæta framleiðsluna með ýmsum aðgerðum. Nefnir hann sem dæmi að víða sé hægt að byggja við mjaltabása. Vinnu- aðstaða lagist, bæði fyrir fólk og kýr, og mjólkin verði í öllum tilvikum betri. Þetta sé hins vegar nokkuð dýr fram- kvæmd sem ekki hafi allir efni á. I heimasveit Magnúsar, Hruna- mannahreppi, hafa mjaltabásar verið byggðir við sjö fjós á síðustu árum og þeir voru fyrir í nokkrum eldri bygg- ingum. Þetta hefur til dæmis verið gert við bæði fjósin í Birtingaholti en þar hafa ungir menn tekið við búskapn- um. Ragnar sonur Magnúsar er að mestu tekinn við mjólkurframleiðslunni og á hinum bænum hefur Sigurður Ágústsson, bróðursonur Magnúsar, tekið við búi af föður sínum. Ættliða- skiptin virðast því ætla að ganga eðli- lega fyrir sig á þeim bænum. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson FJÓLA Kjartansdóttir og Sigurður Ágústsson sýna nágrönnum sínum notkun tölvutækninnar við mjalt- ir. Á milli þeirra eru Magnús Gunnlaugsson í Miðfelli og Þórir Ágúst Þórðarson í Syðra-Langholti. TÖLVUVÆPDUR MJALTABÁS Auðveldar okkur vinnuna „MAÐUR er ekki fljótari að mjóika en það er miklu þægilegi’a því allt er í vinnuhæð. Svo fá kýmar ágæta hreyfingu tvisvar á dag,“ segir Sig- urður Ágústsson, bóndi í Birtinga- holti. Hann hefur byggt mjaltabás við gamiilt fjós og náð að bæta með því vinnuaðstöðuna. Mjaltatækin eru með tölvuskráningu og segir Sigurð- ur að það sé til mikilla þæginda. Sigurður byggði 220 fermetra hús við fjósið og auk mjaltaaðstöðunnar er þar nýtt mjólkurhús og aðstaða til uppeldis geldneyta. Hann segir að áður hafi verið búið að end- urnýja fjósið töluvert og nú sé orðin ágæt aðstaða til mjólkurframleiðslu. í fjósinu eru 32 básar en Sigurður segist ætla að auka framleiðsluna og er byrjaður að kaupa kvóta í þeim tilgangi. „Nauðsynlegt er að stækka einingarnar og bæta vinnu- aðstöðuna," segir hann. Sigurður keypti nýjustu gerð af nyaltatækjum fyrir mjaltabása, svo- kallað undirliggjandi kútakerfi, af gerðinni SAC. Bætti hann við tölvu til að auðvelda skráningu og eru þetta fyrstu tækin sinnar gerðar hér á landi. Tölvan skráir dagsnyt og frávik frá ineðaltali síðustu mælinga, heildarnyt og dagafjölda frá burði. Sigurður skráir síðan fitu- og prót- eininnihald mjólkurinnar sam- kvæmt yfirlit frá mjólkurbúinu og þá reiknar tölvan út magn fitu og próteins frá hverri kú. Inn í tölvuna er skráður aldur kúnna, fjöldi burða, hvenær þær bára og daga- fjöldi siðan, fyrsta beiðsli og hve- nær þær eru sæddar. Hún reiknar síðan út hvenær kýrnar eiga að bera og sendir skilaboð um það í mjaltabás hvenær kýr á að fara í geldstöðu, hvenær þurfi að láta skoða fang og hvenær tímabært sé að sæða aftur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.