Morgunblaðið - 02.04.1997, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 02.04.1997, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sigríður Krist- jana Sigurgísla- dóttir fæddist í Reykjavík 6. júní 1929. Hún Iést á Landspitalanum 18. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurgísli Jónsson, skósmiður, og Hólmfríður Jóns- dóttir, húsmóðir. Sigríður giftist 6. apríl 1952 Ingimari Ingimarssyni, sóknarpresti á Þórs- höfn, f. 24. ágúst 1929. Þau eignuðust fimm börn sem eru: 1) Ingimar, f. 1952, fréttamaður í Brussel, kvæntur Hólmfríði S. Svavars- dóttur, starfsmanni hjá EFTA. Börn þeirra eru: Ingimar, laga- nemi, Brynhildur og Róbert. Unnusta Ingimars er Asta Andr- ésdóttir, laganemi. 2) Þorkell, f. 1953, kennari, búsettur í Reykjavík, kvæntur Gunnþóru ^ H. Ónundardóttur, kennara. Börn þeirra eru: María Heba, bókmenntafræðinemi, og Þor- kell. Unnusti Maríu Hebu er Kristófer D. Pétursson, kvik- myndagerðarmaður. 3) Björn, f. 1954, rekstrarhagfræðingur, búsettur og starfandi í Mexíkó. Sambýliskona hans er Sigrún Jóna Óskarsdóttir, starfandi sem túlkur í Mexikó. Dóttir Björns með Elínu Dóru Bald- ursdóttur, húsmóður í Reykja- vík, er Kristjana Rán. Börn - Björns með fv. sambýliskonu, Helgu Sædísi Rolfsdóttur, fé- Hún elsku mamma mín yfirgaf þennan heim þegar klukkuna vant- aði fimmtán mínútur í sjö að kvöldi 18. mars. Þorkell bróðir minn, hringdi til mín nokkrum mínútum eftir andlát hennar. Þessi tíðindi komu mér ekki á óvart - þar sem dauðastríð hennar var búið að vara í nokkrar vikur. En þótt dauðinn hafi verið henni lausn - kemur hann alltaf eins og reiðarslag fyrir okkur sem eftir sitjum, ég var búin að kvíða þessari stund og gat ekk- ert gert nema grátið. Dánarstund hennar var nákvæmlega eins og hún hefði óskað - mikil ró var á sjúkra- stofunni - pabbi minn sat við rúm- stokk hennar og las í bók, Kristín, mágkona mín, sat við útsaum og Þorkell, bróðir minn, sat einnig við lestur, á meðan vorum við hin, börn- in hennar, að huga að okkar börnum pg búi, bæði hér heima og erlendis. í mínum huga var þetta allt í henn- ar anda, ég sá mömmu fyrir mér sinna börnum og búi, vinna við hannyrðir, lesa bókmenntir og hlusta á fagra tónlist, þess á milli að hlaupa út í garð og vinna þar - því auk þess að unna öllum fögrum listum og fylgjast með öllum nýj- ungum á þeim vígstöðvum, var hún sístarfandi. Einnig var hún alltaf i(i að hjálpa öðrum - það má segja um hana að hún var gefandi, en sjaldnast þiggjandi. Hún hafði vel- ferð okkar fimm barna sinna ætíð á oddinum - hún fylgdist með öllu sem við gerðum og var óspör á ráð- leggingar og aðstoð hvenær sem á þurfti að halda. Sl. sumar, þegar við Bjarni þurft- um að dveljast í London um lengri tíma með son okkar, Sæmund, sem gekkst undir erfiða mergskiptaað- gerð, fóru mamma og pabbi af bæ norðan af Þórshöfn á Langanesi, hann frá sínum preststörfum, hún ' - frá heimili þeirra, til þess að sjá um heimili okkar Bjarna og hugsa um yngri drengina okkar tvo, Sigurgísla og Óskar Björn. Þetta gerðu þau bæði með mikilli gleði og fyrir það verðum við Bjarni þeim ævinlega þakklát. Sem dæmi um kjark hennar og gæsku, lagði hún á sig að fljúga til London til okkar í haust, og hún sem hræddist það mest af öllu að lagsráðgjafa, eru: Hrafnhildur og Ingimar Rolf. 4) Sigurgísli, f. 1956, tannlæknir í Garðabæ, búsettur á Álftanesi, kvænt- ur Kristínu Guð- jónsdóttur, hjúkr- unarfræðingi. Dæt- ur þeirar eru: Sig- ríður, Anna Gyða og Freyja. 5) Hrafn- hildur, f. 1957, leik- skólakennari, bú- sett í Mosfellsbæ, starfandi sem dag- gæsluráðgjafi hjá Dagvist barna í Reykjavík, gift Bjarna Óskarssyni, veitinga- manni. Synir þeirra eru: Sæ- mundur, f. 1979, d. 1996, Sig- urgísli og Óskar Björn. Unnusta Sæmundar var Birta Fróðadótt- ir. Sigríður var prestsfrú á Rauf- arhöfn 1953-1955, á Sauðanesi á Langanesi 1955-1965, I Vík í Mýrdal 1965-1980 og á Þórs- höfn 1980-1997. Jafnframt hús- móðurstörfum var hún verk- stjóri við Pijónastofuna Kötlu í Vík um skeið. í janúar 1985 lauk hún sjúkraliðanámi og vann við hjúkrun fram á mitt ár 1995 að hún lét af störfum vegna veik- inda. Útför Sigríðar fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 1. apríl. Hennar hinsta hvíla verður við hlið dóttursonar síns, Sæ- mundar, í Lágafellskirkjugarði í Mosfellsbæ. stíga uppí flugvél. Þarna var Sæ- mundur okkar orðinn mikið veikur, dauðvona. Mamma og pabbi komu út til okkar og studdu okkur og Sæmund á ómetanlegan hátt ásamt því að hugsa um heimili okkar í London og yngri drengina okkar tvo, þar sem við Bjarni dvöldum öll- um stundum við sjúkrabeð Sæmund- ar okkar. Þegar Sæmundur okkar dó voru báðar ömmur hans og hann afi hans með okkur. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu erfitt þetta var fyrir mömmu og pabba að sjá á eftir barnabarninu sínu, sem þau elskuðu svo heitt og átti allt lífið framundan. í dag erum við öll börnin hennar mömmu ásamt elsku pabba saman að fylgja henni síðasta spölinn. Og er mér hugsað til kvöldsins þegar hún iést. Elskulegar hjúkrunarkonur ásamt Kristínu, mágkonu minni, sáu um að búa um hana mömmu mína og gera umhverfið sem fegurst fyrir okkur öll. Þarna áttum við saman fallega stund. Ég horfði á hana mömmu mína og uppgötvaði það að þarna lá prinsessan eða drottningin í ævintýrunum sem hún sagði mér þegar ég var barn. í næstu andrá horfði ég á hann pabba minn og hugsaði með mér, mikið ósköpin öll er ég heppin að hafa verið fædd af þessu fallega, góða merkisfólki. Pabbi minn talaði þau fallegustu orð til hennar mömmu minnar sem ég á ævi minni hef heyrt og vorum við börnin þeirra þijú ásamt tveim tengdabörnum svo heppin að fá að heyra og sjá og vera með honum pabba mínum þegar hann kvaddi stúlkuna sína fallegu. Ég hugsaði með mér, þarna er hann pabbi minn prinsinn og kóngurinn í ævintýrun- um hennar mömmu. Ég var svo stolt vegna þess að ég áttaði mig á því að þau voru búin að ala af sér fimm börn, sem öll voru búin að eignast sína maka, þar með voru börnin orðin tíu, síðan komu öll barnabörn- in og í dag, elsku pabbi minn, erum við tuttugu og fjögur samtals. Þann- ig að ríkidæmi þitt og mömmu er mjög mikið og get ég lofað þér því að þessi hjörð ykkar kemur alltaf til með að horfa til ykkar með mik- illi ást og virðingu. Elsku mamma mín, þú kenndir mér svo margt og mun það endast mér til æviloka. Eg vil trúa því sem þú trúðir alltaf, að til sé líf eftir þetta líf. Og ég sagði drengjunum mínum litlu, sem eru þó svo stórir og sterkir, Sigurgísla og Óskari Birni, að þú værir núna hjá englun- um og Guði og þú værir að passa hann elsku Sæmund, hetjuna okkar allra. Og veit ég, elsku mamma mín, að þú ert núna að pijóna á hann sokka, elda fyrir hann kjöt í karrí og baka pönnukökur ásamt því að annast hann fyrir okkur Bjarna. Gefðu honum stóran koss frá okkur öllum, sem söknum ykkar beggja svo ósegjanlega mikið. Mamma mín, passaðu að hann fari sér ekki að voða þarna á himnum. Að lokum vil ég minna þig á það þegar við tvær sátum saman og lás- um uppúr ljóðasafni, okkar uppá- halds ljóðskálds, hans Jóhannesar úr Kötlum. Mér er minnisstæðast þegar við lásum „Stjörnufák“, en ég vil kveðja þig, mamma mín, með nokkrum erindum úr ljóði Jóhann- esar „Til mömmu“. Ég man þá vögguvísu, er söngstu mér í sál. Hún býr í bijósti mínu, sem heilagt huldumál; hún er það eina í heimi, sem aldrei reynist tál. Með bamslegt bros á vörum þá hjá þér hvíldi ég. - Ég man, hvað móðurhöndin var næm og notaleg, og brennheit bænarorðin, sem bentu á lífsins veg. „Ó, Jesú, bróðir besti", var aðstoð okkar þá. Og kærleik hans svo hreinan í svip þínum ég sá, er heitan lófann lagðir þú litla vangann á. Ó, mamma, elsku mamma, ég hugsa heim til þín. „ð, Jesú, bróðir besti" þér sendi ljósin sin - Og Guð þig gleðji, þegar þú grætur - vegna mín. Takk, elsku mamma, fyrir allt. Þín elskandi dóttir, Hrafnhildur. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson.) Enn á ný, á svo stuttum tíma, hefur „maðurinn með ljáinn“ heim- sótt fjölskylduna okkar og nú hrifsað burt frá okkur elskulega mömmu, tengdamömmu og ömmu. Eftir sitj- um við dofin með sorg og söknuð sem tæpast er hægt, á þessari stundu, að sjá að muni nokkurn tím- ann jafna sig. Elsku Sísí mín, ekki hefði mig grunað laugardagskvöldið 1. febrúar sl. að ég væri í síðasta sinn að heyra röddina þína hljóma. En nú er það orðin staðreynd sem ekki verður umflúin. Á þessum þungbæru tíma- mótum streyma minningarnar fram og erfitt er að koma þeim á blað, því þú varst alltaf svo lífleg og at- hafnasöm að minningar á blaði virð- ast fölna. Hugurinn reikar 30 ár aftur í tímann en þá fékk ég fyrst að kynnast því hve þér var umhugað um allt og alla. En þessu átti ég eftir að kynnast enn frekar því nokkrum árum síðar varstu orðin tengdamóðir mín og amma dóttur minnar. Framkvæmdagleðin var þér í blóð borin og það var sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, allt varð að lista- verki. Ég gleymi seint þegar þú stóðst við eldhúsgluggann austur í Vík og á skammri stundu var útsýn- ið úr glugganum, lítið fjárhús og melhólar, orðið að fallegu listaverki. Sama má segja um alla garðvinnuna þina, hvert moldarflagið varð að skrúðgarði þegar hendur þínar höfðu leikið um það. Ekki fórum við var- hluta af allri listsköpun þinni því sauma- og pijónaskapurinn var til að gleðja ástvini þína. Nú síðast fyrir jólin í vetur saumaðir þú jóla- rúmföt handa öllum hópnum, því allir skyldu fá eins. Sísí mín, það var ávallt líflegt í kringum þig. Þú hafðir bæði létta og skemmtilega lund, varst sérstak- lega hreinskiptin og réttlætiskennd- in rík, sagðir alltaf skoðanir þínar hvort sem fólki líkaði betur eða verr. Enda var alltaf gott að leita álits og ráða hjá þér. Þú tókst alltaf svo mikinn þátt í gleði og sorgum barna þinna, varst stöðugt vakandi yfir velferð okkar og hvattir okkur til dáða. En á einu augnabliki varstu svipt allri starfsorkunni og lífsgleð- inni sem einkenndu þig. Það tóku við langar og strangar vikur en að lokum sigraði „almættið" og þú fékkst hvíld frá þjáningunum. Ég veit þú trúðir að handan hins jarðneska lífs væri annað líf, því læt ég fylgja þetta fallega ljóð Helga Hálfdanarsonar, sem mér finnst segja það sem ég vildi segja við þig. Aldrei mætzt í síðasta sinni sannir Jesú vinir fá. Hrellda sál, það haf í minni harmakveðju stundum á. Þótt vér sjáumst oftar eigi undir sól, er skín oss hér, á þeim mikla dýrðardegi Drottins aftur finnumst vér. Þótt vér hljótum hér að kveðja hjartans vini kærstu þrátt, indæl von sú oss má gleðja, aftur heilsum vér þeim brátt. Hrellda sál, það haf í minni harmakveðju stundum á: Aldrei mætzt í síðsta sinni sannir Jesú vinir fá. (Helgi Hálfdanarson.) Elsku besta tengdamóðir mín, ég vil af alhug þakka þér hve góð og hjálpsöm þú varst börnunum mínum og mér sjálfri. Við eigum eftir að hittast og tökum þá upp þráðinn og framkvæmum það sem við vorum búnar að tala um en okkur var ekki gefinn tími til að gera í þessari jarð- vist. Elsku Ingimar, við öll höfum misst svo mikið, en þú þó allra mest. Við höldum áfram að minnast elsku stúlkunnar þinnar í bænum okkar og biðjum henni hvíldar og friðar á nýjum stað. Hún vakir og sefur með okkur eins og hún ávallt gerði. Hafðu þúsund þakkir fyrir allt, elsku Sísí mín. Þín tengdadóttir, Þóra. Elsku amma mín. Nú ert þú farin til himna, en ég veit að við hittumst aftur seinna. Þó að þú sért farin, er ég enn með nóg af minningum um þig sem end- ast mér til margra ára. Ég hugsa mikið um þig. Ég gleymi því aldrei þegar þú gerðir samkomulag við mig um að hætta að naga neglurnar eða á jólunum ég opnaði fimmta eða sjöunda pakkann frá ömmu og afa á Þórshöfn. Þótt við höfum rifist eins og köttur og mús náðum við alltaf samkomulagi um allt. Amma mín, ég og Óskar Björn söknum þín mikið, en við vitum að þú ert komin til Sæmundar, bróður okkar. Ég veit að hann þarfnast þín eins mikið og við, en þar sem ég og Óskar Björn eigum mömmu, pabba og afa, er ég mjög glaður yfir því að þú sért núna komin í veröldina þar sem hann Sæmundur, bróðir okkar, er og ég veit, amma mín, að þú passar hann vel fyrir mömmu og pabba og okkur Óskar Björn og Birtu. Guð geymi þig alltaf, elsku besta amma okkar. Þínir ömmustrákar, Sigurgísli og Óskar Björn. Að kveðja hana Sísí frænku okkar fyrir fullt og allt var fjarlægt og óhugsandi fyrir nokkrum vikum. En núna er samt sem áður komið að kveðjustundinni. Við höfum oft heyrt og sjálfar notað þessa setningu: mér er orða vant. Én í fyrsta skipti í dag öðlast hún líf og raunverulega merkingu. Vinurinn okkar góði er horfinn og mun hvorki hringja til þess að láta okkur stilla á ákveðna útvarpsstöð SIGRIÐUR KRISTJANA SIG URGÍSLADÓTTIR og hlusta á ákveðinn útvarpsþátt né mun hún birtast heima hjá okk- ur, biðjast afsökunar á því að hún komi svona óvænt, en erindið var að láta okkur velja á milli munstra á jólasængurfatasetti, sem hún hafði að sjálfsögðu. saumað sjálf. Okkur er raunverulega orða vant en langar svo mikið að þakka henni Sísí frænku okkar fyrir allt það sem hún hefur verið okkur. Sérstaklega langar hana Kristínu að þakka henni það að aldrei lét hún Sísí það aftra sér í samskiptum við hana og hennar fjölskyldu þótt Atl- antshafið skildi að. Og þakka henni að alla tíð átti hún hjá henni heim- ili hér á íslandi. Mun hún sakna sárt frænku sinnar og trúnaðarvin- konu sem hún deildi svo miklu með. Hólmfríður, sem man ekki eftir sér án þess að hún Sísí væri stór partur af tilverunni, getur ekki gert upp á milli minninganna. Þær eru frá Vík þar sem hún var tíður gest- ur um sumur og páska alla sína bernsku. Þær eru úr Kópavoginum þar sem mamma hennar og Sísí bjuggu báðar, en Sísí hélt heimili á tveimur stöðum í allmörg ár. Ef hún hitti ekki á mömmu sína á Fífu- hvammsveginum, gat hún vanalega gengið að því vísu að hún væri uppi á Skólatröð hjá Sísí. Og síðast en ekki síst eigum við sameiginlegar minningar frá Þórshöfn, þar sem við frænkurnar áttum ógleymanlega tíma með þeim Sísí og Ingimari sum- arið 1995. Það er margt fólk og svo ótrúlega breiður og litríkur hópur sem sam- einast í dag í söknuði eftir þessari smávöxnu, broshýru, björtu og fal- legu konu, henni Sísí frænku, sem alltaf átti nógan tíma fyrir okkur öll. Við biðjum þess að allt það sem gott er og fallegt styrki hann Ingi- mar frænda okkar, börnin þeirra, tengdabörn og barnabörn við fráfall hennar og erum jafnframt sannfærð- ar um að ást hennar til þeirra muni fylgja þeim um ókomna tíð. Sjálfar vitum við að óteljandi skemmtilegar minningar sem við eigum um hana frænku okkar munu fylgja okkur alla okkar daga. Hólmfríður og Kristín. Við áttum fremur von á því, við hjónin, að hún Sísí okkar, einsog maður sagði gjarna, kæmi með vor- inu í ár austan frá Þórshöfn, kæmi hingað til okkar með hækkandi sól og yrði komin hér í nágrennið og útí garðinn sinn góða nógu snemma til þess að bjóða blessað sumarið velkomið í bæinn. Hún var hálfgerður farfugl að þessu leyti, hún Sísí okkar, síðustu árin. Hún sótti til æskustöðvanna hér syðra þegar hún gat með góðu móti komið því við, á vit barnanna sinna og barnabarnanna sem hún unni svo vel. Henni var þetta áskap- að: þau áttu hjarta hennar. Því átti hún sér sumarland síðustu árin, móðirin, tengdamóðirin og amman, og sumarlandið var einfaldlega sá skiki jarðkringlunnar heima sem heiman þar sem hún gat verið ná- lægt þessu fólki sínu. Raunar voru það ekki einungis hennar nánustu sem nutu góðs af hinum einlæga og skilyrðislausa vilja hennar til þess að hjálpa þar sem hjálpar var þörf. Hún var ótrauð og óþreytandi hjálparhella vina sinna þá mest lá á, og svo sannarlega þurfti smælinginn ekki langt að leita málsvarans að heldur þegar hún var nálæg. Óþarft er að hafa um það mörg orð hér hve þakklát við hjónin erum fyrir öll vináttuárin sem við áttum með henni Sísí okkar og honum Ingi- mari manninum hennar Ingimars- syni. Ég sé á bak hollum vini og mágkonu, Guðný syrgir góða systur og kæra vinkonu sem hún átti svo ótalmargt sameiginlegt með. Nú vottum við Ingimari og fólkinu hans af öllu hjarta samúð okkar. Ég má til að lokum að segja hér frá viðbrögðum lítillar stúlku þegar hún heyrði að förin hennar frænku hennar suður til æskustöðvanna hefði í þetta skiptið orðið sú hinsta. Sísí var einkar lagin við börn - þau runnu nánast sjálfkrafa í fang henn- ar fannst manni stundum - og litla stúlkan hafði verið í tveimur, þremur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.