Morgunblaðið - 02.04.1997, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 55
AFMÆLI
Gleðidagarnir eru
hinn ljúfasti timi í land-
inu, því að þá er vorið
í nánd, þegar gyðinga-
tunglið er fullt hina
næstu daga eftir vor-
jafndægur og páskarnir
snemma eins og nú.
Hinir 40 dagar, sem
bera þessa fallegu yfir-
skrift í kirkjuárinu,
anda af sumaryl og ilmi
úr jörðu, þegar upprisu-
hátíðin er síðar í hinu
veturkalda landi. Á
þriðja dag páska 1907,
hinn 2. apríl, fæddist
hjónunum Guðmundi Hróbjartssyni
og Þórunni Helgadóttur hið fimmta
og yngsta barnið. Var það Ingibjörg,
sem í dag er níræð. Hún er fædd í
Áshverfinu í Áskirkjusókn, síðan
1908 Kálfholtssókn. Eftir gamalli
venju gátu vinir og vandamenn Ingi-
bjargar frá Hellatúni efnt til sam-
fagnaðar i gær, en sá siður að halda
til afmælis síns á fæðingardag í viku
en ekki mánuði var algengur fram
um miðja öldina, að ekki sé talað
um, þegar hátíð var til heilla. Það
mun Ingiríður Einarsdóttir í Skál-
holti hafa gert, amma Ingibjargar.
Var hún Árnesingur, dóttir Guðrún-
ar Kolbeinsdóttur prests og skálds
í Miðdal í Laugardal, Þorsteinsson-
ar. Er af honum komið listafólk, þar
sem geta má Einars myndhöggvara
Jónssonar. Eftir mann sinn, Ólaf
Helgason bónda í Skálholti, hafði
Ingiríður lífstíðarábúð í Skálholti,
en eftir hennar dag hlaut fólk henn-
ar að leita annars jarðnæðis. Varð
úr, að flutt var að Drangshlíð undir
Eyjafjöllum 1876. Þá var Þórunn á
9. ári, fædd í Skálholti 1868. Minnt-
ist hún ævilangt náttúrufegurðar-
innar í Drangshlíð, en ekki var þar
sauðganga. Hafði Helgi beðið konu
sína, Valgerði Eyjólfsdóttur, að
flytja aftur út á sveitir, ef sín missti
við, en á varð raunar ekki löng lífs-
stundarbið. Báðir Drangshlíðar-
bændur dóu undireins í yfirgeysandi
fallsótt. Fór Valgerður þá búnaði
| sínum að Laxárdal í Efri-Hrepp og
ólst Þórunn síðan upp
þar og var löngum með
móður sinni, unz hún
réðist til Guðmundar
Hróbjartssonar, sem þá
hafði fengið eitt hinna
gamalkrónu útbýla
stórjarðarinnar í Ási til
ábúðar. Var það 1897
og giftust þau um
haustið, en tengsl og
kunnleikar áður. Mar-
gret hét dóttir Guð-
mundar, sem hann átti
fyrr, og ólst hún að öllu
leyti upp með þeim Þór-
unni.
í fardögum 1908 færðu Guð-
mundur og Þórunn sig um set í
Áshverfinu, er þau fengu Hellatún
til ábúðar. Bjuggu þau þar til 1941,
en þá tók við jörðinni Guðni sonur
þeirra, og varð hann sjálfseignar-
bóndi, en Valgerður Helga systir
hans ráðskona. Voru foreldrar þeirra
um kyrrt í Hellatúni, þótt hætti bú-
skapnum. Þórunn dó 1959 og hafði
einn um áttrætt, Guðmundur 1962,
nær tíræður, en hann var fæddur á
Ásmundarstöðum, sem fyrrum var
hluti hinnar miklu Ásjarðar, 1863.
Var hann því að kalla heimamaður
í Áshverfinu aldarlengi, en í 30 ár
íjallkóngur á Holtamannaafrétti.
Þóktu þau hjón sveitarsómi og Þór-
unn talin fluggáfuð. - Fyrsta barn
sitt misstu þau, Valgerði, en elzt
hinna fjögurra var Guðrún, víðkunn
af líknarstörfum, d. 1967, þá Val-
gerður Helga, sem fyrr getur og nú
dvelur á Lundi á Hellu í 95 ára aldur-
dómi, Guðni bóndi í Hellatúni lézt á
sl. ári, 92 ára. Fósturbróðir þeirra
og frændi, Ólafur Helgi Guðmunds-
son, er einnig látinn fyrir skemmstu,
bóndi í Hellatúni II, en uppeldis-
systkini þeirra Ingibjargar voru 4,
þeirra á meðal Valgerður Helga, nú
84 ára í Reykjavík. Átti Ingibjörg
glaða æsku að útistörfum og innan-
bæjar með foreldrum sínum, systkin-
um og fósturfrændum, en við mikinn
bóklestur, fróðskap og uppfræðslu.
Einnig félagslíf, því að mannmargt
var í Áshverfi þá sem ávallt áður,
samkomuhald í fundarhúsinu á hin-
um gamla þingstað Ásahrepps og
farskóli í Ási.
Ung fór Ingibjörg til Reykjavíkur,
þar sem hún var í vist frá miðjum
morgni yfir nón og svo í kvöldskóla,
en bezti kennarinn hét Árni Guð-
mundsson, læknastúdent úr Norður-
sýslu. Jafnframt fullkomnaði hún sig
í orgelleik, eins og framhaldsnám
góðra organista var kallað. Þar
kenndi hinn þekkti tónlagasmiður
Sigfús Einarsson. Að vori hins fyrsta
Reykjavíkurvetrar var Ingibjörg 19
ára og þegar ráðin til organista-
starfa í Kálfholtskirkju. Stóð sam-
starf þeirra síra Sveins Ögmunds-
sonar í full 3 ár, svo ánægjulegt,
að hún minnist síra Sveins jafnan
síðan af þeirri óbrigðulu vinar-
tryggð, sem henni er borin í merg
og bein. Gaf presturinn hinum unga
organista sjálfdæmi um útgöngu-
sálminn og er það vitnisburður um
færni, mennt og kirkjulega hefð
Ingibjargar. Svo er hún minnug, að
jafnvel enn hefur hún á hraðbergi
númerin í sálmabókinni 1909. Fjölda
sálma lærði hún utanað og söng
hiklaust við eigin organleik. - Þá
stofnaði hún barnakór í Áshverfinu,
og var nýmæli milli Þjórsár og
Eystri-Rangár. Enn gleðjast kórfé-
lagar frá 1926-29 við hin gömlu
minnin.
í hjarta Ingibjargar er musteri
Guðs, eins og skáldið og fyrrum
sýslumaður á Stóra-Hofi orðaði það
svo minnilega, þegar trúin traust er
heil í von og faileg í eilífðarsýn.
Andi síra Matthíasar mun og hafa
svifið yfir vötnunum, þegar hún átti
bernsku- og mótunarár í héraðinu,
þar sem hann sat að þjónustu í fijáls-
lyndri kenningu orðs og spámann-
legs ljóðs í 6 vetur, áður fór að brauði
á Akureyri 1886.
Með vorskipinu 1933 kom
cand.med. Árni Guðmundsson frá
Lóni í Kelduhverfi heim frá Dan-
mörku, þar sem hann hafði stundað
framhaldsnám í 3 greinum læknis-
fræðinnar. Þau höfðu kynnzt í kvöld-
skólanum 1926 og gifzt hinn 12.
maí 1929. Urðu fagnaðarfundir
ungra hjóna og sonar á þriðja ári,
samveran stutt, því að læknisstörf
voru ákveðin á Akureyri og þoldu
ekki bið. Nokkru síðar héldu mæðg-
inin norður til fyrirheitna landsins
við Eyjafjörð, þar sem starfsárin
urðu 21. Var Árni jafnan stofu- og
heimilislæknir, lengi spítalalæknir,
auk þess sem hann var iðulega sett-
ur héraðslæknir, einkum fyrstu árin,
er Steingrímur Matthíasson var að
þreyttur og með annan fótinn erlend-
is. - Ingibjörg var ein þeirra læknis-
kvenna, sem taka allan þátt í starfi
eiginmannsins. Var til þess tekið frá
fyrstu tíð hennar nyrðra, hve gott
var til hennar að leita, holl ráðin,
hetjulund og mannúð hennar í sjúk-
dómum og vanda. Fyrstu árin voru
læknishjónin lengst af í prýðilegri
leiguíbúð á lofti kaupfélagshússins,
en 1938 fluttu þau í eigið húsnæði,
stóra hæð í nýreistu tvíbýlishúsi á
Bjarmastíg 9. Er þar viðbrigða fag-
urt og vítt útsýni, en falleg lóð við
brekkuhallann, þar sem brátt varð
vöxtulegur tijálundur, blóma- og
matjurtagarður, en hvers konar
ræktun var yndi og unaður Árna
læknis. - Og hér áttu börn þeirra
bernsku og æsku og synirnir fram
um tvítugt. Báðir stúdentar frá MA,
Guðmundur Örn skógverkfræðingur
og Haukur yfirlæknir og lector. Þór-
unn ljósmóðir var unglingur, þegar
foreldrarnir kvöddu á Akureyri
1954, er Árni gerðist röntgenlæknh'
á Landspítalanum. Gekk hún í VÍ,
en Svava, sem er þeirra yngst, var
auk skólanáms skiptinemi Þjóðkirkj-
unnar vestanhafs og flugfreyja. Öll
eru þau systkinin íjölskyldufólk og
búsett í Reykjavík og nágranna-
byggðum.
Nýkomin suður, snemma vetrar,
flutti íjölskyldan í glæsilegt timbur-
hús við Barðavog 20. Dafnar einnig
þar fagur tijálundur. Eru tréin nú
sem vænta má 40 árum eftir að
Árni læknir fór hér um gróðurhönd-
um sínum, hávaxnir meiðir. Frú Ingi-
björg býr enn með rausn og reisn í
húsi sínu, ekkja frá haustinu 1971.
Ein hin síðari ár á stundum, en barna-
börnin hafa oft verið hjá ömmu sinni
í ákjósanlegu næði námsmanna.
Urðu þau 18 og niðjarnir nú 40.
Ingibjörg frá Hellatúni er enn svo
minnisheil, að óvenjulegt er, 'þegar
fyllt er nírætt ár. Hún er mjög ætt-
fróð og eflir við þann lestur, sem
gjarna helzt er ógleymdur, og þjóð-
fræði eru einnig vakandi áhugamál
hennar. Margra ára störf í Þjóð-
minjasafni voru mikil Iífsfylling og
elskuleg kynnin, þá sem fyrr, við
dr. Kristján Eldjárn, sem var ná-
frændi Árna læknis. Gott þókti henni
að vita af gripum úr hinni gömlu
Áskirkju á safninu.
Á Akureyri bjuggu tengdaforeldr-
ar Ingibjargar í næsta húsi, Guð-
mundur B. Arnason og Svava Daní-
eisdóttir, bæði úr Kelduhverfi, og
Sigurveig skrifst.m. dóttir þeirra.
Náinn félagsskapur var með Ingi-
björgu og tengda- og mágafólki
hennar nyrðra. - Auk þess sem frú
Agnete, kona Jóhanns Þorkelssonar
héraðslæknis átti Ingibjörgu að
trúnaðarvini, voru mjög nánir vinir
hennar Sunnlendingarnir Guðbjörg
Sveinbjörnsdóttir, nágranni hennar
á Bjarmastíg, Þóra í Fagraskógi og
móðir mín og menn þeirra, og Jór-
unn Bjarnadóttir frá Geitabergi, sem
hóf ljósmóðurstörf á Akureyri litlu
fyrr en Árni læknisferil sinn þar.
Er hér efalaust margra ógetið í firrð
tímans, en svo voru fyrstu kynni
foreldra minna og læknishjónanna
hlý og traustvekjandi, enda með af-
brigðum skemmtileg, að vinátta var
brátt bundin og hélzt órofa til enda-
dægurs þeirra seint á 7. áratugi. -
Þegar bæjarbruninn varð á Möðru-
völlum í vetrarbyijun 1937, kom
Ingibjörg Guðmundsdóttir skjótt á
vettvang til að hjálpa og hugga og
efla kjark, og Árni læknir með slík-
an viðbúnað, er þyrfti, ef slys yrði
á fólki. Hinn yfirvegaði, Ijöllesni
bókamaður og læknir, sem hafði
djúp áhrif með kyrrð sinni og nær-
gætni. Þenna vetur, sem gekk svo
hastarlega í garð, var samfélag
þeirra frú Ingibjargar og móður
minnar og manna þeirra á Akureyri
ómetanlegur styrkur og sú gleði,
sem gaf nýjaða von og bjartsýni.
Lauk vetursetu fjölskyldunnar á
Möðruvöllum þar innfrá á vordögum
á skírn lítils drengs, sem fæðzt hafði
á útmánuðum í Munkaþverárstræti
3, og var athöfnin á heimili og í
boði Ingibjargar organista frá Hella-
túni og Árna læknis frá Lóni.
Heill hinni sunnlenzku höfðings-
konu, sem bætti og fegraði líf ann-
arra norður við Eyjafjörð fyrr á öld-
inni. Hamingjufylgd á fjórða gleði-
daginn í páskaviku til allra bjartra
daga heiðurlegs aldurdóms hins tí-
unda tugar.
59 ára vináttu, drenglund og
manndáð, eins_ í sól og byl, þakkar
Ágúst Sigurðsson
frá Möðruvöllum.
INGIBJÖRG
GUÐMUNDSDÓTTIR
Til sölu veiðileyfi í
i Svalbarðsá, Þistilsfirði
i 26/8-29/8, 29/8-1/9,1/9-4/9, 7/9-10/9 og
i 10/9—13/9. Þrjárstangirog gott veiðihúsfyrir
7 manns. Verð frá kr. 10 til 16. þús.
Upplýsingar gefur Jörundur í hs. 567 4482,
fax 567 4480 og vs. 505 0248.
LISTMUIMAUPPBOS
Málverk
Höfum kaupendur að góðum verkum gömlu
meistaranna. Leitum sérstaklega að verkum
eftir Kjarval, Kristínu Jónsdóttur og Jón Stef-
ánsson. Höfum hafið móttöku á verkum fyrir
næsta málverkauppboð.
Vinsamlegast hafið samband sem fyrst.
Aðalstræti 6,
sími 552 4211.
Opiðfrá kl. 12-18
virká daga.
KEIMIMSLA
Einsöngsnám
í anda Suzuki
fyrir börn og unglinga. Kennt er í gegnum leiki.
Hlustun — einbeiting — líkamsstaða.
Raddæfingar, samsöngur, einsöngur, þjálfun
í að koma fram. Námið byggist á aðferðafræði
finnsku söngkonunnar Páivi Kukkamáki.
Einnig grunnnámskeið í söng- og tónfræði fyrir
fullorðna.
Helga Björk, sími 551 9871.
BOBGr
s M Á A U G L V S 1 IM G A R
FÉLAGSLÍF
I.0.0.F, 18 e= 177428 = 0.8)4
□ Glitnir 5997040219 III 1
Helgafell 5997040219 VI 2 Frl.
□ Hlín 5997040319 VI 2.
I.0.0.F, 7 = 17804028)4 ■
I.O.O.F. 9 = 178248’/2 s
Kynning
REGLA MUSTERISRIDDARA
RM Hekla
2-4-VS-FL-
ATKV
Biblíuskólinn
við Holtaveg
Leiðtogi í mótun
Á námskeiðinu verður fjallað um
hlutverk leiðtoga og forsvars-
fólks í kristilegu starfi. Efni, serr
tekin verða fyrir, eru m.a. köllun
náðargjafir, andlegar viðmiðanii
og hæfileikar, sjálfsmynd, áætl-
anir og tímaráðstöfun, sam-
komu- og fundarstjórn og seta i
stjórn.
Kennt verður mánudagana 7. og
14. apríl kl. 17-22.
Umsjón: Jóhannes Ingibjarts■
son, byggingafræðingur.
Námskeiðsgjald kr. 2.400. Inni
falið er léttur kvöldverður bæð
kvöldin og námsbókin: Leidtogi
í mótun eftir nokkra höfunda.
Innrítun lýkur föstudaginn 4. april.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Samkoma I kvöld kl. 20.
Jódís Konráðsdóttir prédikar. Beðið
fyrir lausn á þínum vandamálum.
Námskeid
- Kristín Þorsteinsdóttir
- hagnýtt námskeið fyrir alla.
★ Tekurðu mikið inn á þig?
★ Gerirðu þér grein fyrir öllum
áreitunum sem við búum við i
nútímaþjóðfélagi og hvaða áhril
þau hafa á okkur?
★ Hefurðu uppiifað það að fram-
koma, hegðan og tal annarsfólks
hefur breytt líðan þinni í einn
svipan?
★ Langar þig til að læra að losna
undan slíku og bera sjálf(ur)
ábyrgð á líðan þinni alla daga?
Ef svo er, komdu þá á námskeið
um helgina þar sem verður farið
í ofangreint efni, kenndar leiðii
til að þú getir sjálf(ur) stjórnað
þinni eigin líðan í samskipturr
þínum við umhverfi þitt.
Námskeiðið verður laugardag og
sunnudag frá kl. 10.00-15.30.
Kennari: Kristín Þorsteinsdóttir
Verð kr. 8.000 (afsl. fyrir hjón)
Innifaldar í verði eru veitingar
hádegi báða dagana.
Allar frekari upplýsingar eru
gefnar í síma 554 1107 frá kl.
9.00-12.00.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00
e* * i
mmmamm
Aðalfundur 2. apríl
Aðalfundur Útivistar verðui
haldinn í Kornhlöðunni, miðviku-
daginn 2. apríl kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Munið eftir félagsskírteinum.
Myndakvöldið 3. apríl.
Árni Johnsen mun sýna myndir.
Sýningin hefst kl. 20.30 í Fóst-
bræðraheimilinu. Hlaðborð kaffi-
nefndar innifalið í aðgangseyri
Aðganseyrir kr. 600.
Netslóð
http://www.centrum.is/utivist
Skógræktar-
félögin
Skógræktarfélag Kópavogs
Aðalfundur verður haldinn mánu
daginn 7. april kl. 20.30 i Félags
heimili Kópavogs, 1. hæð (aðal
dyr).
Á dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Erindi Friðriks Baldurssonar,
garðyrkjustjóra:
,,Trjá- og skógrækt í Kópavogi".
Allir velkomnir.
Þórhallur Guðmundsson
verður með námskeið í Hvera-
gerði helgina 5.-6. apríl um heil
un með litum og tónum.
Skráning í síma 486 6622.
Stjórn Sálarrannsóknarfélags
Suðurlands.
Námskeið um orkustöðvar
manns og jarðar
Erla Stefánsdóttir, sjáandi, verð-
ur með námskeið á Flúðum helg-
ina 5.-6. apríl um orkustöðvai
manns og jarðar.
Skráning í síma 486 6622.
Stjórn Sálarrannsóknarfélags
Suðurlands.
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
Bjarni Kristjáns-
son miðill verður
með umbreyt-
ingafund fimmtu-
daginn 3. apríl kl.
20.30 í Garða-
stræti 8. Fundur-
inn er opinn öll-
um á meðan húsrúm leyfir.
Miðar seldir á skrifstofunni og
við innganginn, kr. 800 fyrir
félagsmenn og kr. 1.000 fyrir
aðra.
SRFÍ.
KENNSLA
Námskeið
Nú hefjast ýmis námskeið i Litla
rauða húsinu, Laugavegi 27. T.d
silkimálun, olíumálun, vatnslita
málun og saumanámskeið.
Upplýsingar í símum 561 1614
og 561 0085.