Morgunblaðið - 02.04.1997, Side 60
60 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Háskóli fslands
Dagbók
Háskóla
Islands
DAGBÓK Háskóla íslands 2. til 5.
apríl. Allt áhugafólk er velkomið á
fyrirlestra í boði Háskóla íslands.
Miðvikudagurinn 2. apríl:
Háskólatónleikar verða haldnir í
Norræna húsinu kl. 12.30. Guðrún
Finnbjarnardóttir mezzósópran og
Brynhildur Ásgeirsdóttir píanó
flytja Liederkreis eftir Robert Schu-
mann og sönglög eftir Clöru Schu-
mann. Aðgangur 400 kr. Ókeypis
fyrir handhafa stúdentaskírteinis.
Fimmtudagurinn 3. apríl:
Helga Kress prófessor í almennri
bókmenntafræði og forstöðumaður
Rannsóknastofu í kvennafræðum
flytur fyrirlestur á vegum Rann-
sóknastofu í Kvennafræðum kl. 12
í stofu 101 í Odda og nefnist fyrir-
lesturinn: „En ég er hér ef einhver
til mín spyrði“. Umfiöllun um út-
gáfu á ljóðum eftir íslenskar konur
1876-1995.
Föstudagurinn 4. april:
Rannveig Thoroddsen MS-nemi
í líffræði flytur fyrirlestur á vegum
Líffræðistofnunar kl. 12.20 í stofu
G-6, Grensásvegi 12 og fjallar fyrir-
lestur hennar um „Mynstur og
umhverfi í votlendi".
Laugardaginn 5. apríl:
Kristján Leósson eðlisfræðingur
flytur erindi fyrir almenning í sal 3
í Háskólabíó kl. 14 í fyrirlestraröð
sem nefnist „Undur veraldar" og
er á vegum raunvísindadeildar Há-
skólans og Hollvinafélags hennar.
Erindi sitt nefndir hann: „Frá raf-
eindum til rökrása." Þróun rökrása
í tölvum hefur verið örari en nokk-
urn óraði fyrir, að stórum hluta
vegna þess að sífellt fleiri einingum
er þjappað í smáar kísilflögur. Slíkri
smækkun rafrása eru þó eðlisfræði-
leg takmörk sett og líklegt er að
nútíma rásatækni muni renna sitt
skeið innan 15 ára. Rafeindatæknin
færist þá inn á nýtt svið, inn í heim
skammtafræðinnar.
Handritasýning Ámastofnunar í
Árnagarði verður opin á þriðjudög-
um, miðvikudögum og fimmtudög-
um frá kl. 14 til 16. Tekið er á
móti hópum á öðrum tímum þessa
sömu daga ef pantað er með dags
fyrirvara.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HI vikuna
2.-5. april:
2., 3. og 4. apríl kl. 8.30-12.30.
Uppsetning TCP/IP-tenginga við
alnetið og öryggismál alnetsins.
Kennari: Helgi Þorbergsson, Ph.D.,
tölvunarfræðingur hjá Þróun ehf.
Mið. 2. og 9. apríl kl. 8.15-
12.15., alls 8 st. Lífeðlisfræði önd-
unar og loftskipta. Kennari: Dr. Jón
Ólafur Skarphéðinsson prófessor.
2. -4. apríl kl. 16-19. EES reglur
um samkeppni, ríkisaðstoð og opin-
ber innkaup. Kennarar: Árni Vil-
hjálmsson hrl. og Bjöm Friðfínns-
son ráðuneytisstjóri.
3. apríl kl. 13-17. Greiðslumiðl-
un á alnetinu. Kennarar: Björgvin
Áskelsson, tölvunarfræðingur hjá
íslandsbanka hf., og Ríkharður
Egilsson, kerfisstjóri hjá Skýrr hf.
3., 10. og 17. apríl kl. 17-19.30.
Að skrifa vandaða íslensku. Kenn-
ari: Ari Páll Kristinsson málfræð-
ingur, forstöðumaður íslenskrar
málstöðvar.
Haldið á Egilsstöðum á vegum
Prestafélags Austurlands 3. og 4.
apríl. Sjálfsvígsfræði - með sér-
stöku tilliti til sjálfsvíga ungs fólks.
Kennarar: Wilhelm Norðfjörð og
Hugo Þórisson sálfræðingar.
4. apríl kl. 10-17. Hvernig á að
skrifa grein í vísindatímarit? Krókar
og keldur. Kennarar: Edward
Campion, aðstoðarritstjóri New
England Journal of Medieine, Guð-
mundur Þorgeirsson yfirlæknir og
Magnús Jóhannesson prófessor.
Haldið á Akureyri 4. apríl kl.
10-18. Umbætur og gæðastarf.
Gæðastjórnun í heilbrigðisþjónustu.
Kennarar: Guðrún Högnadóttir for-
stöðumaður gæða- og þróunarsviðs
Ríkisspítala og Jón Freyr Jóhanns-
son rekstrarráðgjafí hjá „Skrefí í
rétta átt“.
Skráning á námskeiðin er hjá
Endurmenntunarstofnun Háskóla
íslands síma 525 4923 eða fax 525
4080. Dagbókin er uppfærð reglu-
lega á heimasíðu Háskólans:
http://www.hi.is
Fundur um
konur og
rektorskjör
FUNDUR með rektorsframbjóð-
endum í Háskóla íslands verður
fimmtudaginn 3. apríl á vegum
Rannsóknastofu í kvennafræðum,
Aþenu og hagsmunafélags kvenna
í Félagi háskólakvenna. Hann fer
fram í stofu 201 í Odda kl. 12-13
og _er öllum opinn.
Á fundinum kynna frambjóðend-
ur viðhorf sín til stöðu kvenna og
kvennafræða í Háskólanum og hvað
þeir hyggjast gera til að bæta þá
stöðu ef þeir næðu kjöri. Gert er
ráð fyrir fimm til sjö mínútna fram-
sögu hvers frambjóðenda auk þess
sem gert er ráð fyrir fyrirspurnum
úr sal.
Vitna leitað
LÖGREGLAN í Kópavogi auglýsir
eftir vitnum að árekstri sem varð
þann 24. febrúar 1997 um kl. 18.45.
Þar var ökumaður bifreiðarinnar
UT-054, sem er hvítur Audi 80
árg. ’89, að koma frá verslun Axis
við Smiðjuveg. Dökkgrárri eða
dökkbrúnni Mazda 626 liftback á
gömlum skráningarnúmerum var
þá ekið utan í framenda bifreiðar-
innar UT-054. Ökumaður Mazda
bifreiðarinnar ók áfram upp
Smiðjuveg án þess að huga að
árekstrinum. Ljóst má vera að
Mazda bifreiðin hefur skemmst all-
nokkuð á hlið við áreksturinn.
Tjón eiganda bifreiðarinnar UT-
054 er verulegt og er þess óskað
að þeir sem geta gefíð upplýsingar
um málið hafí samband við lögregl-
una í Kópavogi í síma 560-3039.
Flugvallar-
hring-urinn
genginn
í MIÐVIKUDAGSKVÖLDGÖNGU
Hafnargönguhópsins 2. apríl verður
farið frá Hafnarhúsinu kl. 20 og
gengið suður með Tjörninni og um
Háskólahverfið yfir á strandstíginn
með Skeijafirði og inn undir Naut-
hólsvík. Þaðan um skógargötur
Öskjuhlíðar og Vatnsmýrina og
Hljómskálagarðinn til baka.
Hægt er að stytta gönguferðina
með því að fara í SVR á ýmsum
stöðum. Allir eru velkomnir í ferð
með Hafnargönguhópnum.
Lýst eftir
bifreið
Á LAUGARDAG hvarf bifreið,
E-3404, rauðbrún Honda Civic árg.
’88, frá húsi við Beykihlíð, en hún
hafði verið skilin þar eftir í gangi
um morguninn.
Þeir sem orðið hafa bifreiðarinn-
ar varir eru beðnir um að láta lög-
regluna vita.
Afhenti
trúnaðarbréf
BENEDIKT Jónsson, sendiherra,
afhenti hinn 24. mars sl. Vladimir
Petrovsky, aðalframkvæmdastjóra
Evrópuskrifstofu Sameinuðu þjóð-
anna, trúnaðarbréf sitt sem fasta-
fulltrúi við stofnunina.
Þriðjudaginn 25. mars gekk hann
á fund Renato Ruggiero, aðalfram-
kvæmdastjóra Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar, og tók til starfa
sem fastafulltrúi Islands þar.
BRIDS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
í opna salnum stönsuðu
liðsmenn Antons, þeir Jónas
P. Erlingsson og Steinar
Jónsson, í þremur hjörtum
í AV, gegn Jóni Baldurssyni
og Sævari Þorbjömssyni:
FVRIR síðasta keppnisdag-
inn á Islandsmótinu hafði
sveit Landsbréfa náð svo
góðri forystu að spekingar
í kaffisal töldu einsýnt að
mótinu væri í raun lokið.
En annað kom á daginn.
Sveit Landsbréfa tapaði illa
gegn Búlka (4-25) og
keppinauturinn, sveit Ant-
ons Haraldssonar, vann
sinn leik 24-6. Anton var
þar með kominn tveimur
vinningsstigum ofar en
Landsbréf. Svo vildi til að
þessar tvær svetir áttu að
spila saman í síðstu umferð.
Antoni dugði jafntefli
(15-15), en minnsti sigur
hefði tryggt Landsbréfum
íslandsmeistaratitilinn.
Leikurinn var hnífjafn og
úrslitin réðust ekki fyrr en
í síðasta spili:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður ♦ KD97 ¥ 983 ♦ G843 ♦ K8
Vestur Austur
♦ Á432 ♦ 85
¥ KG105 llllll y ÁD62
♦ Á6 111111 ♦ KD102
* 742 ♦ 1093
Suður
♦ G105
¥ 74
♦ 975
♦ ÁDG65
Vestur Norður Austur Suður
Steinar Jón Jónas Sævar
1 tígull* Pass 1 hjarta Pass
2 hjörtu Pass 3 hjörtu Pass
Pass Pass
Út kom spaðagosi, sem
Jónas drap strax, tók
trompin og síðan þijá efstu
í tígli. Þegar gosinn datt
ekki, ferigust aðeins níu
slagir. Þetta er rétt spila-
mennska í bút, en ef menn
enda í fjórum hjörtum og
fá ekki út lauf, er betra að
taka tígulás og svína síðan
tíunni. Og það gefur tíu
slagi.
Björn _ Eysteinsson og
Sverrir Ármannsson fóru
alla leið í geimið gegn
Magnúsi Magnússyni og
Pétri Guðjónssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Sverrir Magnús Björn Pétur
1 grand Pass 2 lauf* Dobl
2 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass
Pass Pass
Eftir dobl Péturs á hálita-
spumingunni var vanda-
laust fyrir Magnús að leggja
af stað með laufkóng. Vöm-
in tók þar þijá fyrstu slag-
ina og fékk síðan slag á
spaða: Einn niður og leik
lokið með 16 stigum Antons
gegn 14 stigum Landsbréfa.
Það hefði dugað Landsbréf-
um í 16-14 sigur að vinna
þessi fjögur hjörtu. Titillinn
hefði þá verið þeirra.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opna
mótinu í Cannes í Frakk-
landi í síðasta mánuði. Eng-
lendingurinn A. Sum-
merscale (2.500), hafði
hvítt og átti leik, en gamal-
reyndi bandaríski stór-
meistarinn Edmar Mednis
(2.400) var með svart.
18. Hxg7! - f5 (Eða 18. -
Kxg7 19. Hgl-i—
Bg5 20. Rxg5 -
hxg5 21. Hxg5+ -
Kh6 22. Hh5+! -
Kxh5 23. Dh7+ og
svartur er óveij-
andi mát) 19. Dxf4
- Kxg7 20. Hgl +
- Kh7 21. Dg3 og
svartur gafst upp,
þvl hann á ekki við-
unandi svar við
hótuninni 22. Dg7
mát.
New York
Open hefst i dag.
Meira en 50 stórmeistarar
eru skráðir til leiks, þ. á m.
þeir Jóhann Hjartarson og
Helgi Ólafsson. 20 skák-
menn á mótinu hafa 2.600
skákstig eða meira.
Páskaeggjamót Taflfé-
lags Kópavogs fer fram í
kvöld kl. 20 í félagsheimili
TK, Hamraborg 5, 3. hæð.
Hvað skyldi verða í verð-
laun þar?
Skákæfingar TK eru á
miðvikudögum kl. 20.00 og
á sunnudögum kl. 14.00.
Tefldar eru 5-10 mínútna
skákir.
HVÍTUR leikur og vinnur.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Launamál
lífeyrisþega
KONA hringdi í Velvak-
anda og vill hún koma
því á framfæri að hún er
óhress með að það sé
verið að draga elli-
lífeyrisþega og öryrkja
inn í umræðurnar um
kjarabaráttuna. Það sé
verið að segja að ekki sé
hægt að hækka launin
upp í 70 þúsund vegna
þess að þá þurfí að hækka
hjá ellilífeyrisþegum og
öryrkjum. Henni fínnst
að það þurfí að taka tillit
til þess að það sé enginn
forsvarsmaður fyrir
ellilífeyrisþega og öryrkja
í þessum samninga-
viðræðum. Það ætti að
taka tiilit til þess að það
séu ellilífeyrisþegar sem
byggðu upp það þjóðfélag
sem við lifum nú í og að
það megi gera betur við
þann hóp en gert er.
Henni finnst að það
ætti að láta samninga
gilda lengur en eitt ár
hjá þessum hóp því að
það skapi óöryggi hjá
þeim að ekki sé samið til
lengri tíma.
Þakkir
VELVAKANDA barst
eftirfarandi bréf:
„Mig langar að þakka
Nirði P. Njarðvík fyrir
hans frábæru grein, sem
birtist fyrir nokkru í
Morgunblaðinu og hét
„Riddari ranglætis".
Þessa grein ættu ráðherr-
ar að lesa og ætti hún
raunar að vera skyldu-
lesning á Alþingi. Banka-
stjórar, sægreifar og aðrir
auðmenn svo og atvinnu-
rekendur ættu ennfremur
að lesa hana. Spyija má
hveijir séu náungar þess-
ara manna. Það skyldi þá
aldrei vera láglaunafóík,
sjúklingar, öryrkjar og
aldraðir. Spyr sá sem ekki
veit. Hvar eru „Riddarar
réttlætis?“.
María Skagan."
Fyrirspurn til
borgaryfirvalda
JÓHANN er með fyrir-
spurn til borgaryfirvalda
um það hvers vegna ekki
sé opið fyrir almenning í
lyftingasalinn í Sund-
lauginni í Laugardal.
Sammála
Víkverja um
Frí-kortin
INGVI hringdi og var
hann ánægður að lesa
það sem Víkveiji skrifar
þriðjudaginn 25. mars sl.
um Frí-kortin. Hann er
sammála Víkveija og
þakkar honum fyrir góð
skrif.
mnrnimnm
Svart tauveski
tapaðist
GAMALT, svart tau-
veski með ísaumuðu
munstri og gylltri smellu
tapaðist laugardags-
kvöldið 22. mars á Sóloni
íslandusi eða í
Bankastræti. Skilvfs
finnandi hringi í síma
551-6310.
Giftingarhringur
fannst
Giftingarhringur fannst
við Leirubakka. Uppl. í
síma 557-6535.
Hvað er
klukkan?
ÉG TAPAÐI úrinu mínu
þann 20. mars sl. á leið-
inni frá Túngötu að Há-
skólanum. Það er með
rauðri skífu og gylltri
teygjuól. Skilvís
finnandi hafi samband
við Sigrúnu í síma
551-2206.
Dýrahald
Týnd
læða
BRÖNDÓTT ellefu mán-
aða læða týndist
miðvikudaginn fyrir
páska frá Bústaðavegi
99. Hún er mjög kelin.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 588-8683.
Fundarlaun.
Víkveiji skrifar...
ÁSKARNIR eru ár hvert sá
árstími sem hvað flestir
leggja land undir fót, fara á skíði,
gönguskíði, í hálendisferðir, fjalla-
ferðir eða hreiðra um sig í sumar-
bústöðum og reyna að leggja stund
á útivist þaðan þegar færi gefst.
íbúar suðvesturhornsins voru
sæmilega heppnir þessa páska-
helgi, þótt vissulega hefði verið
ákjósanlegt að fá fleiri góða daga.
Þannig var skínandi veður á skír-
dag og skíðafæri hreint með ágæt-
um, hvort sem um var að ræða
Bláfjallasvæðið, Hengilssvæðið
eða Skálafell. Fjölmargir voru í
fjöllunum þennan dag og hugsuðu
menn gott til glóðarinnar að fá
fleiri svona daga.
xxx
VEÐRIÐ á föstudaginn langa
var á hinn bóginn með þeim
hætti, að vart var hundi út sig-
andi, enda voru skíðasvæðin
hvorki opnuð þann dag né á laug-
ardag. Páskadagur var svo með
allra besta móti, en færið var afar
hart. Raunar virðist það vera
þannig, samkvæmt því sem starfs-
menn í Bláfjöllum upplýstu Vík-
veija um á sunnudag, að þegar
rignt hefur af slíkum krafti, eins
og gerði á föstudag og laugardag,
að tilgangslítið er að reyna að
troða brautir með snjótroðurum,
þar sem snjórinn molnar bara og
snjókögglar hlaðast upp, þannig
að enn erfiðara er að fóta sig í
brekkunum. En þegar líða tók á
páskadag, hafði sólin mýkt snjó-
inn með þeim hætti, að hið besta
færi var komið á nýjan leik. Vík-
verji hefur gjarnan látið móðan
mása við starfsmenn í Bláfjöllum
um að þeir séu ekki nógu dugleg-
ir að troða; hann vilji koma að
brekkunum troðnum og tilbúnum
og hefur Víkverji haldið því fram,
að starfsmennirnir gætu hafið
vinnudaginn miklu fyrr, til þess
að öll aðstaða sé eins og best verð-
ur á kosið, þegar lyfturnar opna,
venjulega kl. 10 á morgnana. Nú
bar svo við um þessa páska, að
Víkverji fékk orð í eyra frá starfs-
mönnunum, fyrir að vita ekki
nógu mikið um, við hvaða aðstæð-
ur gott væri að troða brautir.
Veðrið og rakastig væri lykilatr-
iði, til þess að troðslan ætti að
bæta færið. Ekki er alveg útilokað
að starfsmennirnir viti mun meira
um það en Víkveiji, hvenær það
er árangursríkt að troða brekk-
urnar í Bláfjöllum, en Víkveiji
varð hins vegar hæstánægður,
síðdegis á annan dag páska, þegar
loksins rofaði aðeins til í fjallshlíð-
unum, að þá fóru snjótroðararnir
mikinn í hlíðum Bláfjalla og færið
batnaði til muna.