Morgunblaðið - 05.04.1997, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
m
í HEIMSÓKN HJÁ FINNI OQ ÖNNU JÚLÍU í LUNDÚNUH
FINNUR og Anna búa við Sumner
stræti. Fyrir óvanan Lundúnafara tók
það pínulítinn tíma að rata á réttan stað
eftir að stigið var út úr neðanjarðarlestinni en
að lokum fannst blokkin umkringd járngrind-
verki. Gengið er inn í stórt port og Finnur og
Anna auðfundin þaðan. Eftir að íslendingam-
ir höfðu heilsast með virktum var gengið til
stofu. Þau búa í lítilli tveggja herbergja íbúð
með þröngum gangi sem meðal annnars er
brúkaður til að hengja þvott til þerris. Leigu-
skilmálar eru góðir því íbúðinni fylgja ýmis
þægindi, meðal annars örbylgjuofn og þvotta-
vél. „Sjálfsagt gætum við leigt einbýlishús í
einhverju úthverfinu fyrir þann pening sem
við erum að borga fyrir þessa íbúð en við vilj-
um vera nálægt skólanum og það kostar sitt.
Staðsetningin hefur þó þann kost að við getum
gengið í skólann og þurfum því ekki að eyða
miklum peningum í ferðir með lestum eða
strætisvögnum," segja þau Finnur og Anna.
„En þótt okkur þyki leigan himinhá teljum við
okkur frekar heppin með íbúðina," bæta þau
við og segja nú blaðamanni frá frú Stanley
sem kemur og þrífur íbúðina einu sinni í viku
þeim að kostnaðarlausu. „Eigandinn krefst
þess að hún fái að koma. Hún er 70 ára, hálf-
blind og þrífur reyndar frekar illa. Svo strauj-
ar hún allt að tíu skyrtum í hvert skipti sem
hún kemur,“ segja þau og brosa að þessum
aukaþægindum sem fylgja íbúðinni.
Anna dansar í heila
„Við vorum næstum því allt fyrsta árið hér í
London að átta okkur á vegalengdunum í
borginni enda kom það iðulega fyrir að maður
misreiknaði tímann þegar maður átti að mæta
einhvers staðar.“ Blaðamaður gat tekið undir
það, hafði ekki farið varhluta af slíkum mis-
reikningi. Eftir að göróttur fordrykkur hafði
verið borinn á borð var sest við stofuborðið
fyrir framan arininn, eða ofninn sem lítur út
eins og arinn, sem hitar íbúðina. Allt í kring
eru hljómdiskar, óhemju magn af sígildri tón-
list og við gluggann er píanó. Enginn vafi leik-
ur á að hér býr tónlistarmaður og eins fer ekki
á milli mála að myndlistarmaður á þarna
heima því á gólfi og veggjum má líta áhuga-
verðar höggmyndir og lágmyndir. Heili sem
stendur uppi á sjónvarpinu vekur forvitni
blaðamanns en þegar hann er opnaður dansar
sjálfsmynd Önnu við lágværan lagstúf. „Eg
hef verið að vinna mikið með heilann í vetur,“
segir Anna sem kom innan úr eldhúsinu þar
sem hún hafði verið að elda kvöldmat. „Ég
gerði til dæmis verk þar sem heilinn er í búri
og það verk hefur vakið nokkra athygli," segir
hún en eitthvað lífrænt er einnig við annað
verk í stofunni, verk sem liðast úr tveimur
römmum á veggnum og niður í ker.
Finnur kveikir nú á kertum og íbúðin fær á
sig rómantískan blæ. „Borðið þið ekki örugg-
lega breskt nautakjöt?" kallar hann inn í stofu
Frú Stanley strauj-
ar og njksugar
____Finnur Bjarnason söngnemi og Anna Júlía_
Friðbjörnsdóttir myndlistarnemi eru við nám í
Lundúnum. Þóroddur Bjarnason fór í heimsókn
til þeirra og lenti í dýrindis matarboði.
Morgunblaðið/Þóroddur Bjarnason
ANNA Júlía Friðbjömsdóttir og Finnur Bjarnason.
og blaðamaður segist taka áhættuna þrátt fyr-
ir alla kúariðuumræðu síðasta árs.
Finnur segir að þegar á hólminn er komið, í
hringiðu tónlistarlífs heimsins, komist maður •
að því hve tónlistarheimurinn er í raun lítillr
Til dæmis er hann við nám hjá sama kennara
og kenndi einu helsta átrúnaðargoði hans í
söngnum, Bryn Terfel, sem kemur af og til í
tíma til gamla kennarans síns til að halda sér
við. „Ég hef hitt hann. Það góða við að vera
hér er að maður kemst í samband við og kynn-
ist mörgu góðu fólki. Það gengur hér eins og
annars staðar að maður þekkir mann og hann
þekkir annan og þannig fær maður eitthvað að
gera. Ég hef fengið þónokkuð að gera. Ég var
til dæmis að syngja í Bristol nýlega og er að
fara að syngja í Köln í sumar.“
Hlahha til að f/erða
35 ára
Söngurinn á hug Finns allan og aðspurður
leyfir hann blaðamanni að heyra í helstu barít-
onsöngvurum heimsins. Einnig leikur hann
upptöku með eigin söng að ósk blaðamanns
sem hefði allt eins getað trúað að þar væri ein-
hver stórbarítoninn á ferð. „Ég hlakka til að
verða 35 ára, „ segir Finnur, 23 ára, og brosir.
„Röddin er ekki almennilega þroskuð fyrr og
það eru mörg hlutverk sem að maður ræður í
raun ekkert við að syngja fyrr en á þeim aldri.
Kennarinn er stundum að reyna að telja
mér trú um að ég sé í raun tenór en ég vil nú
ekki alveg samþykkja það.“
Anna Júlía er í 3/4 námi í skólanum, þó í
raun sé hún litlu minna við en aðrir stúdentar.
Hún kláraði tvö ár í Myndlista- og handiða-
skólanum en ákvað svo að fylgja Finni út,
fyrst um stundarsakir, en hélt síðan áfram.
Hún segir það skipta öllu máli að vera ekki í
fullu námi þvi þá þurfi hún ekki að borga
nema brot af skólagjöldum en þau eru há fyrir
útlendinga í Englandi.
Finnur segir að framtíðin sé óráðin eftir að
námi lýkur en þó segir hann það eftirsóknar-
vert að komast á samning. „Með þvi móti fær
maður mikla reynslu og lærir mörg hlutverk.
Ef maður er í lausamennsku getur maður haft
mikið að gera einn daginn og síðan ekkert
þann næsta. Ég hef áhuga á að starfa hér í
Englandi eða í Þýskalandi þegar þar að kem-
ur.“ Hann segist hafa fengið góð viðbrögð við
söng sínum og er bjartsýnn á að fá eitthvað að
gera eftir að námi lýkur en hann stefnir á að
útskrifast árið 1998. íslendingar fá að heyra í
honum á næstunni því þann 14. apríl næst-
komandi verða tónleikar í Gerðarsafni með pí-
anóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni og aðr-
ir í ágúst, það er þegar frí gefst frá náminu.
Anna er líka með nokkur járn í eldinum, er að
undirbúa verk á samsýningu sem halda á
bráðlega þar sem heilinn verður að sjálfsögðu
aðalumfjöllunarefnið.
Er hægt að koma í veg fyrir steina
í nýrum og gallblöðru ?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spumlng: Sumu fólki virðist
hættara en öðru við myndun svo-
kallaðra steina í nýrum og gall-
blöðru. Hvað er hægt að ráðleggja
slíku fólki varðandi mataræði eða
e.t.v. fleira?
Svan Nýrnasteinar eru talsvert
algengur sjúkdómur og má gera
ráð fyrir að einn af hverjum 100
fái óþægindi af slíkum steinum
einhvern tíma á ævinni. Nýrna-
steinar eru um fjórum sinnum al-
gengari hjá körlum en konum.
Flestir nýmasteinar innihalda
kalsíum (kalk), oftast sem sölt af
oxalsýru og fosfórsýru en einnig
eru til sjaldgæfari steinar sem
innihalda þvagsýru eða cýstín.
Einnig eru til sérstakir steinar,
með flókna samsetningu, sem
myndast einungis við langvarandi
þvagfærasýkingar. Einstaka sinn-
um er hægt að finna orsök, sem
þá er reynt að meðhöndla eða
lækna, og má þar nefna sem dæmi
ofstarfsemi kalkkirtla sem læknuð
er með skurðaðgerð. Sjaldnast
finnst nokkur orsök og er líklegt
að þar spili saman erfðir, matar-
æði og fleira. Nýrnasteinar mynd-
ast oftast í sjálfum nýrunum,
losna þaðan og berast niður eftir
þvagleiðurunum og niður í þvag-
blöðru. Þegar í þvagblöðruna er
komið er oftast greið leið út með
þvaginu en einstaka sinnum situr
steinninn eftir í blöðrunni og held-
ur áfram að stækka og steinar
geta einnig myndast í sjálfri þvag-
blöðrunni. Steinar sem sitja í
þvagblöðrunni kallast blöðru-
steinar. Þegar steinn er á leiðinni
frá nýra og niður í blöðru getur
hann valdið verkjum sem í versta
falli eru mjög heiftarlegir, þannig
að sjúklingurinn engist um og
kastar upp af kvölum. Þessi verk-
ur er venjulega í síðunni en legg-
ur niður í nára, kynfæri og læri.
Oftast ganga nýmasteinar niður
af sjálfu sér en ef það gerist ekki
verður að hjálpa til, stundum er
hægt að sprengja þá með hljóð-
bylgjum, sækja þá í gegnum
þvagrásina eða með skurðaðgerð.
Sumum hættir til að fá nýma-
steina aftur og aftur og þá er
venjulega ástæða til að grípa til
Gall- og
nýrnasteinar
einhverra ráðstafana. Það eina
sem örugglega gerir gagn er að
drekka nógu mikinn vökva,
minnst 1,5 til 2 lítra á dag, sem
best er að dreifa yfir allan daginn
og kvöldið. Sumir telja gagn að
því að forðast fæðutegundir sem
innihalda mikið af oxalsýru
(rabarbari, spínat, kakó, súkku-
laði, hnetur, te, kaffi) en það er
ekki vitað með vissu. Ef önnur ráð
duga ekki er næstum alltaf hægt
að draga úr steinamyndun með
því að gefa tíazíð-þvagræsilyf sem
auka þvagmyndun og minnka
magn kalsíums í þvaginu.
Gallsteinar eru venjulega
myndaðir úr kólesteróli og lítils-
háttar af kalsíumsöltum. Kólester-
ól er mjög torleyst í vatni og til að
halda því uppleystu þarf mikið af
gallsöltum og fituefninu lecitíni.
Ef einstaklingurinn myndar mikið
kólesteról eða of lítið er af gallsölt-
um og lecitíni í gallinu, getur gallið
yfirmettast af kólesteróli og þá
fara að myndast kólester-
ólkrystallar sem smám saman
verða að gallsteinum. Gallsteinar
eru algengur kvilli og talið er að
um 10% karla og 20% kvenna yfir
65 ára hafi gallsteina. Gallsteinar
eru því mun algengari hjá konum
en körlum og verða algengari með
aldrinum. Ekki er vitað hvers
vegna sumir fá gallsteina en aðrir
ekki en líkurnar aukast með offítu,
mikilli sykumeyslu og lítilli neyslu
trefjaefna. Sum lyf sem notuð eru
til að lækka blóðfitu geta valdið
gallsteinum. Greinilegur erfða-
þáttur er til staðar þannig að
hættan er meiri hjá þeim sem eiga
nána ættingja sem hafa fengið
gallsteina. Gallsteinar finnast oft
fyrir tilviljun og margir ganga
með slíka steina árum saman eða
jafnvel alla ævi án þess að hafa af
því óþægindi. Gallsteinar geta
valdið ýmiss konar óþægindum
sem auðvelt er að rugla saman við
önnur óþægindi frá meltingarfær-
um. Óþægindi sem einna helst eru
einkennandi fyrir gallsteina eru
verkir sem gjaman koma eftir
feita máltíð, em hægra megin í
efri hluta kviðar og leggur aftur í
bak og upp undir hægra herða-
blað. Omskoðun er einföld og ör-
ugg aðferð til að greina gallsteina.
Ekki er endilega ástæða til að
meðhöndla gallsteina sem valda
engum óþægindum en til greina
kemur sérstakt mataræði (sem
minnst af fitu og sykri) eða lyf
(gallsýrur), en slík meðferð getur
á löngum tíma minnkað gallstein-
ana eða jafnvel leyst þá alveg upp.
Einnig má beita skurðaðgerð og
þá er gallblaðran venjulega fjar-
lægð ásamt steinunum. Nú er orð-
ið algengt að gallblaðra sé fjar-
lægð í gegnum kviðsjá, en þá er
nóg að gera þrjú lítil göt á kvið-
inn.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á bjarta.
Tekið er á mótí spurningum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 (síma 569
1100 og bréfum eða sfmbréfum merkt:
Vikulok,Fax 5691222.