Morgunblaðið - 05.04.1997, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.04.1997, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Tommi og Jenni Smáfólk YOU WEKE DEPRE55ED 50 I LENT M'OU MY BLANKET.. AND NOL) VOU SM M'OU DON'T KNOW WHERE IT 15?!! Þú varst niðurdreginn, svo að ég lánaði þér tepp- ið mitt... Og nú segirðu að þú vitir ekki hvar það er?!! Hvernig gastu gert mér þetta?! Vesalings sætakrúttið mitt... Ég er ekkert sætakrúttið þitt! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Spaugstofumenn gengn of langt Frá Lilju S. Kristjánsdóttur: EINS og margir aðrir, sem heima eru um páskana, hef ég fylgst all- vel með dagskrá fjölmiðlanna út- varps og sjónvarps. Nú síðast í kvöld, laugardagskvöldið 29. mars, horfði ég á nokkurn hluta dag- skrár ríkissjónvarpsins. Hjá kristnu fólki eru þessir dag- ar, skírdagur, föstudagurinn langi og páskadagur helgasti tími árs- ins. Þjáningarganga frelsarans, fórnardauði hans á krossinum og síðan upprisan er grundvöllur þeirrar trúar, sem ég og margir aðrir lifa á og stærsti hluti þjóðar- innar játast undir eða hefur fram að þessu borið virðingu fyrir. Þetta virðist vera að breytast á síðustu árum. Skemmti- og veit- ingastaðir eru opnir. Að eyrum og augum fólksins berst frá fjölmiðl- um guðlast, sem særir marga. Ég hef oft haft ánægju af að fylgjast með Spaugstofumönnum í sjónvarpi. Hæfileikar sumra þeirra til að líkja eftir málrómi og hreyfingum manna, sem við höfum fyrir augum á skjánum, er furðu- legur. Hugmyndaauðgin hefur vakið kæti og fljótir eru þeir að tileinka sér það, sem telst bita- stætt í fréttum fjölmiðla. En í þætti sínum í kvöld gengu þeir alltof langt og særðu helgustu til- finningar margra, er þeir gerðu grín að boðskap Biblíunnar, m.a. boðorðunum, sem mér virtust hafa fækkað mikið í meðferð þeirra. Auk þess, sem hægt var að breyta þeim eftir geðþótta. Ennfremur hæddust þeir að síðustu kvöldmál- tíð Jesú með lærisveinum sínum, kvöldmáltíðinni á skírdagskvöld. Á Golgata á föstudaginn langa hæddust þeir sem krossfestu Jesú að honum í þjáningum hans. Það gerði annar ræninginn líka. Á liðn- um árum og öldum hafa margir fyllt þann flokk og nú síðast Spaugstofumenn. Því miður er þar enginn þeirra undanskilinn, þó að hlutverkin væru misstór. I Dagsljósi ríkissjónvarpsins rétt fyrir jól þóttust leikarar bregða sér í gervi Guðs. Síðan hættu þeir að koma þar fram. I fávisku minni taldi ég þá, að ráðamönnum Sjón- varpsins hefði oboðið guðlast þeirra. Þegar ég verð nú vitni að því, að næsta stórhátíð kristinna manna, páskarnir, er notuð til að gera grín að fagnaðarerindinu um Jesúm Krist og honum sjálfum, þykist ég sjá, að ástæðan hljóti að hafa verið önnur. Þess vegna vil ég biðja dag- skrárstjórn og aðra ráðamenn Sjónvarpsins að gefa Spaugstofu- mönnum frí um tíma til að sýna bæði þeim og öðrum, í kristnu landi er árásum fólks á Drottin takmörk sett. Við erum mörg, sem sættum okkur ekki við að sitja framan við skjáinn særð og hrygg vegna þess, að trúarsannfæringu okkar er mis- boðið í þeim fjölmiðli, sem við styrkjum með afnotagjaldi okkar. Einhver kann að segja, að ég geti slökkt á tæki mínu. Það er rétt en breytir því ekki, að aðrir horfa á það, sem fram fer, því að Spaug- stofan er mjög vinsæl. Þess vegna eru uppeldisáhrif hennar á æsku landsins líka mikil. Nú standa yfir fermingar í kirkjunum. Mér kom því í hug, hvort boðskapur þessa þáttar ætti ef til vill að vera eins konar mótvægi gegn fermingar- fræðslunni, sem prestar kirkjunnar annast. Það var fleira á dagskrá Sjón- varpsins í kvöld. Á eftir Spaugstof- unni kom þáttur Hemma Gunn. Kærar þakkir, Hemmi, fyrir þá dagskrá, sem þú bauðst upp á. Þar var ekki hæðst að boðskap Bibl- íunnar né Jesú sjálfum, heldur sungið fallega um krossinn á Gol- gata og fórnardauða frelsarans. Sálminn, sem sunginn var, þekki ég vel og kann tvær aðrar þýðing- ar á textanum. Önnur þeirra er éftir Pétur Sigurðsspn og hin eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Þýðing Davíðs hefst svona (skráð eftir minni): „Upp á hæðinni miklu stóð heilagur kross, sem er hæddur af þúsundum enn. En ég elska þann kross, þar sem fómin var færð, sem frelsaði synduga menn.“ ,,Ég vil taka á mig krossberans kvöl. Eg vil kijúpa og biðja um grið, svo ég hljóti hinn eilífa auð, svo ég öðlist hinn himneska frið.“ Þennan auð og frið virtist sá maður eiga, sem Hemmi ræddi mest við í þætti sínum. Hann er einn þeirra, sem á síðustu vikum hefur tekist að bjarga 39 mannslíf- um. Þegar talað var um unnin af- rek, dró hann hógværlega enga dul á samband sitt við Guð og þær bænir, sem hann sendi til himins. Er þessum þætti lauk, var ég ekki særð heldur glöð. Þar hafði ekki verið hæðst að heilögum Guði né þeim grundvelli, sem trú mín byggist á, Jesú Kristi frelsara mín- um. Við kross Jesú á Golgata voru tvær ólíkar manngerðir. Annars vegar fáeinir vinir hans og hins vegar þeir, sem hæddu hann í orði og verki. í þjáningu sinni bar hann umhyggju fyrir þeim öllum. Ræn- inginn við hlið hans fékk að heyra fyrirheitið: í dag skaltu vera með mér í Paradís. Jóhannes, læri- sveinn hans og vinur, fékk það hlutskipti að annast Maríu, hina sorgbitnu móður. Með óvinina í huga bað hann: Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki hvað þeir gera. Ritað aðfaranótt páskadags. LILJA S. KRISTJÁNSDÓTTIR, Sóleyjargötu 15, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.