Morgunblaðið - 05.04.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.04.1997, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Þorsteinn Bjarnason fæddist í Álfhólum í Vestur-Landeyj- um 7. maí 1926. Hann lést 26. mars síðastliðinn á Land- spítalanum í Reykjavík. Hann er annar í röð fjögurra alsystkina og á einn hálfbróður. Faðir hans var Bjarni Jónsson, bóndi og smiður á Álfhólum, og móðir var Pálína Þorsteinsdóttir frá Hrafntóftum við Ytri Rangá. Pálína missti mann sinn frá fjór- um börnum í lok árs 1928, en bjó áfram á Álfhólum sem ekkja næstu fjögur árin, en þá fluttist hún að Hrafntóftum og bjó þar á 73 hlutum jarðarinnar ásamt síðari manni sinum Guðmundi Þorsteinssyni frá Berustöðum. Árið 1971 gekk Þorsteinn að eiga eftirlifandi eiginkonu sína Jónu Eiríksdóttir frá Helga- stöðum í Biskupstungum. Þau eignuðust tvær dætur: 1) Hrafn- hildur, f. 22.4. 1972, sem gegnir verslunarstörfum í Reykjavík og býr með sambýlismanni sín- um Þór Þorsteinssyni, f. 21.4. 1969 fisktækni. 2) Heiðrún, f. 24.7. 1974, sem gegnir skrif- stofustörfum í Reykjavík og býr með sambýlismanni sínum, Jó- hanni Grétarssyni laganema. Enn er ógetið Hrannar Árna- dóttur, hjúkrunarfræðings, sem Ég vil votta Jónu, dætrum og tengdasonum innilega samúð mína og hluttekningu. Ég á margar in- dælar minningar frá komu minni á ykkar indæla heimili í Hveragerði. Nú hef ég aðeins rakið nokkur atriði úr æviferli bróður míns og langar að lokum til að láta nokkrar hugleiðingar fylgja sem hinstu kveðjuorð í minningu um ágætan bróður og vin. Þegar mér barst fyrir skömmu sú fregn að dauði væri í nánd, fannst mér það miklu fyrr en ég vildi trúa. Það er ekki fyrr en dauðinn er stað- reynd að þeir sem lifa sjá að dauð- inn er hluti af lífínu. í minningunni fá tilfinningar dýpt sem ekki var vitað að þær gætu haft. Bróðir minn, hvemig var það í Jóna átti fyrir. Þor- steinn gekk henni í föðurstað. Þorsteinn ólst upp á Berustöðum ásamt _ systkinum sínum. Árið 1945 fór hann á Héraðsskól- ann á Laugarvatni og lauk þaðan gagn- fræðaprófi 1948. Eftir það vann hann við ýmis störf í Reykjavík m.a. hjá Landsímanum. Árið 1954 kom Þorsteinn að Hrafntóftum og hóf þar búskap, hann ræktaði og endurbætti jörðina af mikl- um dugnaði og myndarskap. Rúmum 10 árum síðar hætti hann búskap og fluttist í Hvera- gerði. Þar kom hann sér vel fyrir sem fyrr af dugnaði og framkvæmdasemi, stóð fyrir byggingu húsa og byggði sér myndarlegt íbúðarhús. I Hvera- gerði tók Þorsteinn að sér gjald- kerastörf og síðar skrifstofu- sijórn fyrir verkalýðsfélögin í Hveragerði, Olfusi og Þorláks- höfn og gegndi þeim störfum þar til fyrir einu ári. Störf hans í þágu verkalýðsfélaganna voru farsæl og gegndi hann þeim af sama dugnaði og myndarskap og öllum öðrum störfum sem hann kom nálægt. Útför Þorsteins verður gerð frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. bernsku á Álfhólum í víðum fjalla- faðmi á ftjósömu láglendi út við haf með Eyjar við sjóndeildarhring? Var ekki gott að vera til? Var ekki gam- an í frelsi og leik? Minningarbrot berast að: Síð- kvöld á sumardegi, við erum ein- hvers staðar úti (ættum að vera komnir heim) að búa til óendanlega langa festi úr hrossapunti á lækjar- bakka, grænum valllendisbakka. Annað, við felum okkur bakvið tað- stafla, iátum ekki finna okkur þó kallað sé. Eða við erum öll háttuð, búið að slökkva og við syngjum sálma, mamma er forsöngvari. Síð- an koma önnur ár, vinna, ábyrgð. Seinna opnast heimurinn: Laugar- vatn, Reykjavík og leiðir taka að skiljast. Margs annars gæti ég minnst, þátta í fari þínu, hjartahlýju, rétt- lætiskenndar, og listfengis en læt nægja það sem komið er. í dymbil- vikunni fæ ég andlátsfréttina. Hæf- ir ekki sorgin þeirri viku, á hvað minnir dauðinn? Minnir hann ekki á harm og alvöru sem gefur gleð- inni sannleiksformerki? Við spurn- ingum þeirra sem eftir eru á landi lifenda geta vart fengist önnur svör en þau sem tilfinning blandin þakk- lætisharmi getur gefið. I dymbilvik- unni markar dauðinn spor, en sigur fórnarinnar er að líf fullkomnast í upprisu. Minning lífsins lýsir inn í dal sorgarinnar og gerir hann að björtum heimkynnum vonarinnar. Bjarni Bjarnason kennari. Ég trúi því varla að faðir minn hafi kvatt þennan heim. „Pabbi minn“, þú sagðir alltaf við mig þegar ég var yngri að það væri bara eitt örugt í þessu lífi að einhvertímann mjmdum við öll deyja. Þessa setningu sagðir þú oft við mig en aldrei vildi maður hugsa neitt nánar út í það. Maður heldur eða vill ekki trúa því að maður geti misst foreldra sína. En sú stund rann upp snemma að morgni hins 26. mars að þú varst kallaður inn í eilífðina. Þjáningar þínar linaðar og þú fórst örugglega í faðm foreldra þinna og hefur feng- ið að kynnast föður þínum sem þú aldrei kynntist. Ég veit, faðir minn, að þú kvelst ekki, grætur ekki, ert ekki einn. Ég veit að þú ert hjá okkur bæði í vöku og svefni. Þú háðir fyrir nokkrum árum hetjulega baráttu við illvígan sjúk- dóm sem þú virtist ætla að sigrast á. Lífskrafturinn var svo mikill, lík- amlegur og andlegur styrkur, þú komst langt áfram á því. Reglusemi og dugnaður eru orð sem hæfa þér, eisku pabbi minn. Þú stóðst ekki einn í þessari baráttu, móðir mín, konan þín Jóna Eiríksdóttir, og við systurnar og tengdasynir þínir vor- um ávallt hjá þér, þessi litla, sam- heldna fjölskyida. Þegar dómurinn um að líf þitt yrði ekki mikið lengra hér á jörðu gafst þú ekki upp held- ur tókst því sem hetja. Þú komst heim í Hveragerði og við fjölskyldan áttum saman fallegar og góðar stundir sem aldrei munu gleymast. Hvernig var hægt að bera sig svona vel, eftir að hafa fengið að vita að þú ættir bara smátíma eftir hér? Þú vissir að annað líf biði þín, þú yrðir sóttur. Þú varst trúaður og ekki hræddur að kveðja þennan heim. Eftir erum við, litla fjölskyld- an, og þykjumst finna að þú sért að fylgjast með okkur. Minningarn- ar streyma í huga mér. Allar þær stundir sem þú gerðir ógleymanleg- ar fyrir mig og fjölskylduna. Eg man þegar ég var 10 ára, þá gáfuð þú og mamma mér hest og hnakk í afmælisgjöf. Ég hef alltaf verið svolítið háð þér, viljað vera lík þér á svo margan hátt. Þið foreldrar mínir eruð fyrirmynd mín, góð fyrir- mynd. Pabbi! Hvorki þér né minningu þinni get ég lýst á svo litlu blaði, þær geymi ég í huga mínum. Ég veit að þú tekur á móti mér þegar Guð kallar á mig. Þú ert hjá mér í hjarta mínu. Nú hugsum við um móður mína og lífsförunaut þinn sem er sterk sem klettur í hafi en syrgir þig jafnsárt og við hin. Nú geri ég það sem þú sagðir að vera sterk og það mun ég reyna. Ég elska þig, pabbi minn, og ég mun aldrei gleyma þér, Guð blessi þig- Þín dóttir, Hrafnhildur. Elsku, besti pabbi. Hvernig líður þér núna? Er þér nokkuð kalt? Ég trúi því ekki að þú sért farinn frá mér, engillinn minn. Ég á svo marg- ar minningar um þig sem enginn getur tekið frá mér og þær mun ég ávallt geyma. Ég man þegar ég kom til ykkar mömmu í heimsókn eftir að þú varst búinn að fá að vita að lokastundin nálgaðist. Ég ætlaði að vera sterk og dugleg en bara gat það ekki og fór að gráta. Þá komst þú til mín, tókst utan um mig og faðmaðir og sagðir mér að reyna að vera sterk og sagðir að allt myndi fara vel. Manstu þegar ég var yngri og við gerðum saman morgunæfing- arnar sem voru í útvarpinu? Manstu þegar þú sóttir mig á leikskólann á hjólinu þínu? Manstu hvað var gam- an í öllum ferðalögunum sem við fjölskyldan fórum saman? Þér þótti svo gaman að taka myndir og ekki síst af fallegu landslagi. Mikið þótti þér gaman að spila á harmonikkuna þína og þegar ég kom úr skólanum heyrðust lög eins og Undir dalanna sól, Undir bláhimni, Spanish eyes og fleiri falleg lög. Ofboðslega er erfitt að skrifa þetta og enn erfiðara að koma heim í Hveragerði og sjá að þú ert ekki lengur þar. Ég leitaði vel inni í stofu, hvort þú værir kannski að lesa blöð- in, í eldhúsinu að hlusta á útvarpið, inni í herbergi eða úti í garði að fá þér frískt loft en ég fann þig ekki. Mér fínnst ég sjái þig alls staðar og ég finn lyktina þína og fer þá að gráta. Ég sakna þín mikið, elsku pabbi minn. Ég skal reyna að vera ÞORSTEINN BJARNASON + Steinunn Sigríð- ur Kristinsdóttir Beck var fædd á Sómastöðum í Reyð- arfirði 1. janúar 1899. Hún lést á dvalarheimilinu Skjóli í Reykjavík 19. mars síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Þuríður Ey- jólfsdóttir, f. 23. desember 1868 á Sléttu í Reyðarfirði, d. 13. nóvember 1962, og Kristinn Hansson Beck, bóndi á Kollaleiru í Reyðar- firði, f. 2. janúar 1866 á Karls- skála við Reyðarfjörð, d. 4. júlí 1945. Steinunn var elst tiu systkina og eru þau öll látin nema Sæbjörg Jóhanna sem nú dvelst á hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði, 95 ára gömul. Hinn 10. ágúst 1920 giftist Steinunn Sigríður Einari Guð- mundssyni, f. 29. febrúar 1888 í Skáleyjum á Breiðafirði, d. 24. janúar 1975. Þau bjuggu alla tíð í Ásbyrgi á Reyðarfirði og eignuðust fimm börn. Þau voru: 1) Óskírður drengur, f. 22. apríl 1922 og lést sama dag. 2) Krist- inn Þórir, f. 22. júlí 1925, kvæntur Ragnheiði Ingi- björgu Einarsdótt- ur, f. 30. janúar 1932 í Reykjavík. Þau eiga sex börn og 14 barnabörn. 3) Már, f. 31.12. 1926, d. 26.7. 1943. 4) Margrét Sig- gerður, f. 4.5. 1929, gift Marinó Ó. Sigurbjörnssyni, f. 3.3. 1923. Þau eiga sex börn, 16 barna- börn og eitt barnabarnabarn. 5) Örn, f. 7.9. 1932, kvæntur Steinunni Önnu Guðmundsdótt- ur, f. 3.8. 1935, d. 22.11. 1986. Þau eiga þijú börn og fjögur barnabörn. Útför Steinunnar Sigríðar Beck fer fram frá Reyðarfjarð- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Háöldruð heiðurskona hefur kvatt þennan heim að loknum löng- um og gifturíkum ævidegi. Steinunn var ein hinna mörgu Kollaleirusystkina, er settu um ára- bil sinn sterka og bjarta svip á byggðarlagið okkar, farsælt at- orkufólk góðra hæfileika og gjöfulla mannkosta. Kristinn bróðir hennar kvaddi í næstliðnum desember og nú lifir Sæbjörg ein þeirra mætu systkina. Þau systkinin á Kollaleiru o g fósturfaðir minn voru systrabörn og frændsemisamband þeirra á milli ávallt hið ágætasta. Kollaleira var næsti bær við Seljateig og ungur drengur fékk ég að kynnast þeim hugþekka blæ sem hið kærleiksríka heimili á Kollaleiru bar með sér, enda foreldrar þeirra systkina at- gervisfólk hið bezta og heiman- fylgja barnanna því heillarík og veitti þeim veganesti traust út í Iíf- ið. Þau systkinin skiluðu enda for- eldraarfi einkar vel á ævigöngu sinni og áttu árangursríkan starfs- dag. Steinunn var þeirra elzt, hún var fríð kona og fönguleg með frísklegt fas og hressandi viðmót, hún var föst fyrir og ekki allra, en trygg og traust þeim sem hún tók, hún var glögg kona og gædd ágætri greind, tilsvörin oft leiftrandi snögg og snörp og hittu í mark. Hún gat verið glöðust allra en alvaran átti hjá henni ríkan sess. Hún var með afbrigðum atorkusöm, gekk að hveiju verki með vongleði þess sem vill vinna hvaðeina sem allra bezt, skila hverju verki heilu í höfn. Samvizkusemin og alúðin mikil að hveiju sem hún lagði sína gjörvu hönd, enda mun allt hafa leikið í hennar höndum. Hennar góðu eiginleikar komu sér vel á hinni löngu lífsgöngu, ekki sízt á yngri árum hennar, þeg- ar Einar maður hennar var langtím- um saman fjarri heimilinu vegna atvinnu sinnar. Heimilið og þar með uppeldi íjögurra barna hvfldu því alfarið á hennar styrku herðum og allra mál að þar hafi hverju einu verið á bezta veg skilað. Steinunn var mikil og góð hús- móðir, dugnaði hennar, útsjónar- semi og reglusemi viðbrugðið, heim- ili hennar jafnan fágað og prýtt án alls prjáls, veglynd sem hún var veitti hún íjarska vel þeim sem að garði hennar bar og lék á als oddi er hún var sótt heim. Þau hjón voru einstaklega skemmtileg heim að sækja, Einar margfróður og víðles- inn, sagnaþulur af sönnu listfengi, hún hlý og einörð í allri orðræðu við gesti sína og gjöful á vermandi viðmót. Hún gat kveðið fast að orði og fáir munu hafa vitað allt um hennar innstu hugrenningar, því dul var hún og virtist oft næsta fálát út í frá. Atorka hennar og eljusemi nutu sín jafnt heima sem að heiman. Kona mín kynntist henni í Síldar- söltun á árum áður og dáðist mjög að dug hennar og úthaldi sem og fumlausum handtökum en ekki síð- ur að því hversu ágætur og skemmtilegur félagi hún var á STEINUNN SIGRÍÐUR BECK sterk og dugleg og hugsa vel um mömmu. Ég ætla að gera eins og ég var búin að segja þér; þú manst. Mér þykir mikið vænt um þá stund þegar ég og Jóhann trúlofuð- um okkur og settum upp hringana hjá þér, elsku pabbi, þó að sorgin væri meiri en gleðin. Þessari stund mun ég aldrei gleyma. Ég veit að þú ætlar alltaf að vtra hjá okkur eins og þú varst búinn að lofa. Takk fyrir að hafa átt þig, takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér, takk fyrir að vera svona góður faðir og takk fyrir að hafa verið til. Ég elska þig og mun alltaf gera eins og ég sagði við þig. Þín dóttir, Heiðrún Þorsteinsdóttir. Nú er hann Steini, eins og við kölluðum hann, horfinn úr veraldar- amstrinu, farinn á eitthvert æðra svið sem okkur er ekki ætlað að skilja að fullu. Ég kynnist Þorsteini 1990 um þær mundir er ég kynnist Hrafnhildi, dóttur hans. Strax tókst mikill vin- skapur á milli okkar. Alltaf var hann áhugasamur um allt sem maður var að bralla. Og ef maður lagði það undir hann hafði hann alltaf skoðun á hlutunum og lét hana óspart í ljós hvort sem hon- um leist eða leist ekki á. Steini var jarðbundinn og rökfastur, hafði ákveðnar lífsreglur sem hann fylgdi alltaf í hvívetna, hann var ungum mönnum gott fordæmi. Oft var glatt er við komum og heimsóttum þau í Hveragerði og gjarnan spiluð vist langt fram eftir nóttu. Þorsteinn var mikill athafna- maður, hann byggði ein 13 hús og byggði myndarlegt hús yfir ijöl- skyldu sína. Það iýsir Steina best eftir að hann varð uppvís um örlög sín með hve mikilli reisn og höfðingsskap hann tók örlögum sínum, þarna var alvöru maður á ferðinni og er enn í hjarta mínu. Þorsteinn steig mikið gæfu- spor er hann giftist Jónu Maríu Ei- ríksdóttir frá Helgastöðum, annan eins lífsförunaut er vart hægt að biðja um. Áð lokum vil ég kveðja Steina og þakka honum allt það göða sem ég lærði af honum. Ég óska þess að ég hefði kynnst þér fyrr, en er jafn- framt þakklátur fyrir þann tíma sem ég fékk með þér. Þú varst og ert sannkallaður höfðingi. Hvíl þú í friði. Þinn tengdasonur og vinur, Þór Þorsteinsson. „Lífið er ekki sjálfgefíð. Það á að þakka fyrir hvern þann dag sem vinnustað. Æviganga Steinunnar einkenndist af hinni hljóðu en sí- felldu önn daganna, en ánægja hennar mest að mega sjá börn sín og bamabörn vaxa úr grasi og ger- ast hinir nýtustu og þekkustu þjóð- félagsþegnar. En áfallalaus varð ævi hennar ekki. Þau hjón, Steinunn og Einar, urðu fyrir þeirri sáru sorg að missa son sinn á unga aldri, ein- stakan efnismann, en þó þau bæru sinn mikla harm í hljóði, hlaut slíkt áfall að marka sín djúpu spor. En að öðru leyti var lífslán Stein- unnar mikið, það fólst í góðum og mikilhæfum eiginmanni og börnum mikilla og góðra eðliskosta og heilsu sinni og hressileika hélt hún alít fram á síðustu ár eða þar til óminnishegrinn sótti hana heim, henni og hennar hin þungbærasta raun. Hvíldin mun því hafa verið kærkomin eftir annaríkt æviskeið. Við Hanna þökkum Steinunni, þessari hreinlyndu höfðingskonu, kynni kær og sendum börnum henn- ar og ástvinum öðrum innilegar samúðarkveðjur. Eftirminnileg verður Steinunn öllum þeim sem áttu með henni samleið. Þar vörð- uðu verkin góð vegferð alla. Hugumhlý er hinzta kveðjan, heið var lífssýn hennar öll og einlæg trúarvissa ætíð með í för. Megi hún öðlast unað ríkan á eilífðar löndum. Blessuð sé minning Steinunnar Beck. Helgi Seljan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.