Morgunblaðið - 05.04.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 49
Atvinnumiðlun
námsmanna 20 ára
„ATVINNUMIÐLUN námsmanna
stendur nú á tímamótum þar sem
20. starfsár miðlunarinnar er nú að
hefjast. Forsögu miðlunarinnar má
rekja allt til ársins 1951 er Baldvin
Tryggvason, þá laganemi, setti síðla
árs frarn tillögu í Stúdentaráði Há-
skóla íslands um að vinnumiðlun
yrði stofnsett fyrir stúdenta. Vinnu-
miðlunin hefur starfað síðan af
mismiklum krafti en Atvinnumiðlun
námsmanna var stofnuð árið 1977
með formlegum hætti. Þá höfðu
menntaskólar, framhaldsskólar,
Bandalag íslenskra sérskólanema
og Stúdentaráð Háskóla Islands tek-
ið höndum saman um rekstur at-
vinnumiðlunar sem starfrækt var
yfir sumarmánuðina," segir í frétta-
tilkynningu frá atvinnumiðlun stúd-
enta.
Starfsemi Atvinnumiðlunar
námsmanna er í dag orðin mjög
umfangsmikil en um 1.500 náms-
menn leita að jafnaði til miðlunar-
innar á hverju starfsári. Á síðasta
ári gekk Iðnnemasamband íslands
til samstarfs við Atvinnumiðlun
námsmanna og því standa fimm
námsmannasamtök að miðluninni í
dag. Þau námsmannasmtök sem
aðild eiga að Atvinnumiðiun náms-
manna eru fimm, Bandaiag ís-
lenskra sérskólanema, Félag fram-
haldsskólanema, Iðnnemasamband
Islands, Samband íslenskra náms-
manna erlendis og Stúdentaráð
Háskóla íslands.
Skráning hjá Atvinnumiðlun
námsmanna hófst þann 1. apríl og
þegar hafa um tvö hundruð og
fimmtíu námsmenn skráð sig hjá
miðluninni. „Námsfólk það sem nýt-
ir sér þjónustu Atvinnumiðlunar
námsmanna hefur víðtæka starfs-
reynsiu á flestum sviðum atvinnu-
lífsins og býr yfir íjölbreyttri þekk-
ingu úr námi sínu. Það er von þeirra
aðila sem standa að Atvinnumiðlun
námsmanna að hún komi þeim nem-
um sem eru í atvinnuleit fyrir sum-
arið 1997 til góða, sem og þeim
atvinnurekendum sem ieita til miðl-
unarinnar við að finna hæfan starfs-
kraft á fræðilegum og faglegum
vettvangi," segir ennfremur.
Morgunblaðið/Þorkell
Tillaga að
Aðalskipu-
lagi Reykja-
víkur til sýnis
TILLAGA að Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996 til 2016 er nú
almenningi til sýnis í Tjarnarsal
Ráðhússins. Þar má einnig sjá
greinargerðir, þemakort og aðra
uppdrætti er tengjast aðalskipu-
laginu.
Sýningin í Ráðhúsinu stendur
yfir til 9. apríl nk. og er opin
alla virka daga frá kl. 8.20 til 19,
en um helgar frá kl. 12 til 18.
Þann 10. apríl verður sýningin
hins vegar flutt í sal Borgarskipu-
lags og Byggingarfulltrúa að
Borgartúni 3 og verður þar til
30. maí nk.
Fulltrúar Borgarskipulags
munu verða viðstaddir alla sýn-
ingardaga og svara fyrirspurnum
varðandi skipulagstillöguna. At-
hugasemdum eða ábendingum
skal skila skriflega til Borgar-
skipulags eigi síðar en kl. 16 þann
30. maí næstkomandi.
Þeir sem ekki gera athuga-
semdir innan tilskilins frests, telj-
ast samþykkir tillögunni.
Chevrolet
Suburban sýnd-
ur um helgina
BÍLHEIMAR, sem hafa umboð fyrir
bíla frá General Motors, sýna um
helgina Chevrolet Suburban, 9
manna aldrifsbíla sem fáanlegir eru
bæði með bensín- og dísilvélum.
Chevrolet Suburban með 5,7 lítra,
átta strokka og 234 hestafla bensín-
vél kostar rúmar 4,5 milljónir króna.
Bíllinn með 6,5 lítra, átta strokka
og 190 hestafla dísilvél kostar 5,1
milljón. Báðir eru þeir með sjálfskipt-
ingu, 9 manna og með tveimur líknar-
belgjum. Sýningin er opin milli kl.
14 og 17 laugardag og sunnudag.
Námskeið um
vímuefnavarnir
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands gengst fyrir nám-
skeiði dagana 10. og 11. apríl um
vímuefnavarnir. Námskeiðið er ætlað
fólki sem vinnur með og fyrir ungt
fólk, s.s. starfsfólki félagsmiðstöðva,
íþróttaþjálfurum, skólahjúkrunar-
fræðingum, námsráðgjöfum, skóla-
stjórum og kennurum.
Kennarar verða þau Snjólaug Stef-
ánsdóttir, verkefnisstjóri vímuvarna-
nefndar Reykjavíkurborgar og áætl-
unarinnar Island án eiturlyfja 2002,
Gísli Árni Eggertsson, tómstundafull-
trúi íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar, Árni Einarsson,
framkvæmdastjóri fræðslumiðstöðv-
ar i fíknivömum, Einar Gylfi Jóns-
son, deildarstjóri forvamadeildar
SÁÁ, og Áskell Örn Kárason, for-
stöðumaður Stuðla- og meðferða-
stöðvar fyrir unglinga.
Meðal þess sem verður ijallað um
er stefnumótun í vímuefnavörnum
hjá ríki og Reykjavíkurborg. Um
fyrsta og annars stigs forvamir:
Skipulag frítímans, stuðningsaðgerð-
ir og skipulagt starf fyrir unglinga í
áhættuhópum, mikilvægi þess að
nýta það jákvæða í umhverfínu og
hæfileika einstaklingsins sem afl í
forvarnastarfi og um lifandi starf og
fræðslu. Einnig um forsendur for-
varna: Viðhorf og þekkingu, skýring-
ar á neyslu, áhrifaþætti á neyslu o.fl.
Loks verður fjallað um neyslu ungl-
inga og þeirra sem leita sér meðferð-
ar og þau úrræði og meðferð sem
standa til boða fyrir unga vímuefna-
neytendur.
Skráning og nánari upplýsingar
eru veittar hjá Endurmenntunar-
stofnun Háskóíans íslands.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
VALGERÐUR og KK í nýjum húsakynnum Litlu flugunnar.
Mokveiði í Skaftá
GÓÐ sjóbirtingsveiði hefur verið
í Skaftá þessa fyrstu daga veiði-
tímabilsins og „nóg af fiski“ eins
og Þorsteinn Gíslason bóndi í
Nýjabæ sagði í samtali við Morg-
unblaðið í vikulokin.
Veiði hófst fyrir landi Nýja-
bæjar 1. apríl. Þar er aðeins veitt
á eina stöng og er fimm fiska
kvóti fyrir daginn. „Við erum
með kvóta á þessum árstíma og
menn hafa ekki lent í erfiðleikum
með að ná þeim kvóta, enda er
nóg af fiski. Kuldinn hefur þó
sett þannig strik í reikninginn
að stundum hefur varla verið
veiðandi fyrr en seinni part dags.
Þeir sem veiddu tvo fyrstu dag-
ana veiddu alla sína fiska á flugu.
Mest er þetta 4 til 7 punda fisk-
ur sem veiðist og nánast ein-
göngu sjóbirtingur," sagði Jón í
Nýjabæ.
Þá hefur aðeins verið rennt
fyrir landi Hæðargarðs og sagði
Magnús Þorfinnsson bóndi að
menn hefðu verið að fá’ann þó
ekki væri hann viss um í hve
miklu magni. „Það virðist vera
nóg af físki og menn voru
ánægðir,“ sagði Magnús. Jón í
Nýjabæ sagði það mjög háð veðri
hvernig gengi með veiðiskap í
Skaftá, áin væri tær í kuldanum
og þá væri vel veiðanlegt.
„Um leið og hlýnar og rignir
verður áin erfiðari, þó að hún
jafni sig yfirleitt fljótt. Síðustu
árin hefur þó ekkert þýtt að
reyna hér veiði fram á haust,
hlaupin hafa verið stórfengleg
og gert nánast óveiðandi. Varla
að maður hafi komið út neti,
hvað þá meira,“ sagði Jón.
Auglýstu nýja leigutaka
Landeigendur við Laxá í Kjós
gripu til þess á dögunum, að
setja auglýsingu í tímaritið „Atl-
antic Salmon“ þar sem greint
var frá því að skipt hefði verið
um leigutaka. Þetta er harla
óvenjulegt, en á sér þá skýringu
að Veiðifélag Laxár og Bugðu
sagði upp leigusamningi við
Nýja verslunarfélagið og samdi
þess í stað við Ásgeir Heiðar sem
bauð í ána fyrir hönd hóps er-
lendra veiðimanna.
Út frá því spannst löng röð
deilumála sem enn hafa ekki
verið til lykta leidd. Um tíma
voru því jafnvel gerðir skórnir
að veiðimenn á vegum beggja
leigutaka yrðu í baráttu um
bakkaplássið á komandi sumri,
en að sögn Jóns Gíslasonar, for-
manns veiðifélagsins, verða eng-
ar slíkar uppákomur. „Þessi mál
eru í höndum lögfræðinga og
við bíðum átekta. Ég vona að
þetta leysist allt friðsamlega,"
sagði Jón.
Litla flugan flutt
Litla flugan, eina sérverslun
fluguhnýtingarmanna hér á
landi og ein elsta veiðivöruversl-
un landsins, hefur verið flutt í
nýtt húsnæði, auk þess sem
vöruval hefur verið aukið veru-
lega. Verslunin var áður í Laug-
arnesinu, beinlínis heima hjá
stofnandanum, Kristjáni Kristj-
ánssyni, KK, en er nú til húsa
í Ármúla 19, 2. hæð. Nýir rekstr-
araðilar hafa komið til liðs við
KK og framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins nú er Valgerður Bald-
ursdóttir.
MAGNÚS Óli Ólafsson, sölu-
stjóri Innnesja afhendir Hall-
fríði Reynisdóttur lykilinn að
vinningsbílnum.
Vinningur Risa-
poppleiks af-
hentur
AÐALVINNINGUR í Risa-poppleik
Orville Redenbacher’s hefur verið
afhentur en dráttur fór fram í beinni
útsendingu á Bylgjunni og kom upp
nafn Hallfríðar Reynisdóttur.
Risa-poppleik Orville Redenbach-
er’s og Bylgjunnar lauk þann 1.
mars sl. með því að dregið var úr
innsendum seðlum um aðalvinning-
inn sem var Volkswagen Polo frá
Heklu. Fleiri vinningar voru með í
leiknum sem hófst þann 20. janúar
og dregið um Panasonic GSM-síma,
Hot Point örbylgjuofna og Risa-
poppkassa dagana 20. og 30. janúar
og 6. og 13. febrúar.
Valfrelsi í líf-
eyrismálum eru
mannréttindi
STJÓRN Sambands ungra sjálf-
stæðismanna hvetur ríkisstjórnina
til að auka frelsi á sviði lífeyrissparn-
aðar. Það eru sjálfsögð mannréttindi
að fólkið í landinu fái að ákveða
hvar það ráðstafar sínum lífeyris-
sparnaði í stað þess að vera neytt
til að greiða iðgjöld í sjóði sem at-
vinnu- og verkalýðsrekendur hafa
valið fyrir þá, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ennfremur segir: „Núverandi
kerfi byggir á því að þeir sem yngri
eru greiða fyrir réttindi þeirra sem
byrja að borga seint í sjóðina. Slíkt
kerfi er ekkert annað en skipulögð
aðför að sparnaði ungs fólks. Marg-
ir skyldusjóðir standa mjög illa og
dæmi eru um að slíkir sjóðir hafa
orðið gjaldþrota með ómældu tjóni
fyrir þá launþega sem hafa greitt í
þá.
Fyrir dyrum stendur einkavæðing
ríkisfyrirtækja. í dag hafa lífeyris-
sjóðirnir mun meira íjármagn um-
leikis en bankakerfið. í framtíðinni
munu eignir lífeyrissjóðanna aukast
gríðarlega. Skyldulífeyrissjóðir sem
stjórnað er af sjálfskipuðum atvinnu-
og verkalýðsrekendum eru ekkert
annað er opinberar stofnanir og því
til lítils að selja opinber fyrirtæki
ef langstærstu kaupendurnir eru
opinberir lífeyrissjóðir. Þannig nást
markmið einkavæðingar ekki.“
Tilbrigði við
húsagerð
SÆNSKI arkitektinn Janne Ahlin
heldur fyrirlestur um Sigurd Lewer-
entz arkitekt og verk hans mánudag-
inn 7. apríl. Fyrirlesturinn verður
haldinn í Norræna húsinu og hefst
kl. 20.00.
Janne Ahlin er prófessor í arki-
tektúr og hefur meðal annars kennt
við háskólann í Lundi og við Texas-
háskóla. Hann er manna fróðastur
um verk sænska arkitektsins Sigurd
Lewerentz (18851975), sem óum- v
deilanlega er einn af merkustu arki-
tektum Norðurlanda á þessari öld.
Verk Lewerentz spanna allt frá ný-
klassíska tímabilinu í byggingarlist
til fúnksjónalismans. Verk hans eru
þó fyrst og fremst þekkt fyrir per-
sónulega nálgun höfundar við við-
fangsefni sín og hæfni hans til að
sjá hið ljóðræna í hversdagsleik-
anum, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrir-
lestraröð, sem ber heitið Tilbrigði
við húsagerð og er samvinnuverkefni
Arkitektafélags íslands, Listasafns f
Reykjavíkur og Norræna hússins.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
LEIÐRÉTTING
Rangt starfsheiti
í FRÉTT á baksíðu Mbl. í gær var
fjallað um nýja tegund hjartaskurð-
aðgerðar, sem gerð var á Landspít-
alanum. Þar var Bjami Torfason titl-
aður yfirlæknir á hjarta- og lungna-
deild. Hið rétta er að Grétar Ólafsson
ber þennan titil en Bjami er yfirlækn-
ir skurðdeildar Landspítalans og sér-
fræðingur á hjarta- og lungnadeild.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Samþykkt á aðalskipulagi
í FRÉTT Mbl. í gær um samþykkt
á aðalskipulagi Snæfellsbæjar var
sagt að þætta væri í fyrsta sinn sem
sameinað sveitarfélag samþykkti að-
alskipulag. Þetta mun ekki vera rétt
heldur samþykkti Reykjanesbær að-
alskipulag sitt 7. maí 1995 og fékk
það staðfest hjá umhverfisráðuneyt-
inu 28. mars 1996.
APOTEK
OPlEíOLL KVOLD
VIKUNNARTIL KL 21.00
HRINGBRAUT i 19, -VIÐ JL HÚSIÐ.
Opió alia
daga vikunnar
LYFJA
Lágmúla 5 <
Sfmi 533 2300 -í