Morgunblaðið - 05.04.1997, Page 60
—jsSO LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓIMVARP
73»
- V
TILBOÐ DAGSINS: TVEIR ÍSAR í BRAUÐI FYRIR EINN!
I N G Ó I. E STORGI O G H J A R Ð A R H A G A
BÍÓIIM í BORGINIMI
Sæbjörn Valdimarsson / Arnaldur Indriðason
/ Anna Sveinbjarnardóttir
BÍÓBORGIIM 101 Dalmatíu-
hundur -k-k'/1
Kostuleg kvikindi ★★'/2
Málið gegn Larry Flynt kkk'A
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
101 Dalmatíuhundur k k'A
Jerry Maguire kkk
Djöflaeyjan kkk'A
Lausnargjaldið kkk
Innrásin frá Mars kk',A
HÁSKÓLABÍÓ Saga hefðar-
konu kk'h
Stjörnustríð k k k'A
Kolya kkk'h
Fyrstu kynni kkk
Undrið kkk'A
Leyndarmál og lygar kkkk
KRINGLUBÍÓ Jói og rlsa-
ferskjan kkk'A
Metro k k'A
í fjötrum kk'A
Space Jam k k
Kvennaklúbburinn k k'A
LAUGARÁSBÍÓ Evita
kk'A
Koss dauðans kkk'A
REGNBOGINN Rómeó & Júl-
ía kkk
Englendingurinn kkk'A
Múgsefjun kkk
STJÖRNUBÍÓ Jerry Maguire
kk k
Gaman og spenna
CHARLIE Sheen berst fyrir lífi sínu í „The ELISABETH Shue og Val Kilmer hrífast hvort
Shadow Conspiracy". af öðru í hasarmyndinni „The Saint“.
Væntanlegar myndir
í Laugarásbíó
Leifturmyndir frá Kaupmannahöfn
JIM Carrey og Justin Cooper í „Liar, Liar“.
Lendum á tón-
leikum hjá Bazaar
► GAMANLEIKKONAN Janeane Garofalo hefur
tekið að sér hlutverk á móti Joaquin Phoneix og
Vince Vaughan í spennumyndinni „In Too Deep“.
Tökur eiga að hefjast í Salt Lake City eftir miðjan
apríl.
„In Too Deep“ segir frá Earl sem kemst að því
að eiginkonan heldur við besta vin hans. Earl ákveð-
ur að sviðsetja sitt eigið morð og koma sökinni á
vininn. Sagan flækjast enn frekar þegar raðmorð-
ingi blandast í málin.
Garofalo leikur rannsakanda frá FBI. David
Dobkin leikstýrir og Matt Healy skrifaði handritið.
í APRÍL er væntanleg
í Laugarásbíó hin
umdeiida mynd
Davids Cronenberg
Crash. Myndin, sem
fjallar um fólk sem
fær kynferðislega út-
rás í tengslum við bíl-
slys, hefur komið við
kaunin á mörgum og
komið af stað heitum
umræðum í Bretlandi
og víðar. Með aðal-
hlutverkið í Crash
fara James Spader,
Holly Hunter,
Rosanna Arquette,
Deborah Unger og
Elias Koteas.
Jackie Chan er
einnig væntanlegur í apríl í hasar-
myndinni First Strike. Stanley Tong
leikstýrir myndinni sem gengur einn-
ig undir titlunum Jakie Chan’s First
Strike, Police Story 4: First Strike,
Police Story 4: Piece of Cake og
Police Story 4: Story of the CIA.
Um mánaðamótin apríl-maí er
nýjasta mynd Jim Carrey Liar, Liar
væntanleg. í henni leikur Carrey lyg-
ara og lögfræðing sem vanrækir son
sinn, Max. Max óskar sér þess á
afmælisdaginn að faðirinn verði að
segja sannleikann í sólarhring og
óskin rætist. Justin Cooper leikur
Max, Maura Tierney leikur eiginkonu
Carrey, en í öðrum hlutverkum eru
Cary Elwes, Jennifer Tilly og
Amanda Donahoe. Tom Shadyac leik-
stýrir.
I mai verður mynd Bob Rafelson
Blood and Wine sýnd. Rafelson
segir að myndin sé lokamyndin í
óformlegri trílógíu sem hann hefur
unnið með Jack Nicholson. Hinar
myndirnar eru „Five Easy Pieces"
og „The King of Marvin Gardens".
í Blood and Wine er Nicholson
kvennabósi sem vanrækir fjölskyldu
sína. Þegar hann stelur verðmætri
hálsfesti fer flókin atburðarás af
stað. Michael Caine, Judy Davis og
Stephen Dorff eru í öðrum hlutverk-
um.
í lok maí kemur nýjasta mynd
Davids Lynchs Lost Highway.
Myndin hefst á því að tónlistarmað-
ur er ásakaður um morðið á eigin-
konu sinni en síðan tekur við væg-
ast sagt óvenjulegur söguþráður.
Það eru Bill Pullman, Patricia Arqu-
ette og Balthazar Getty sem fara
með aðalhlutverkin.
Um mánaðamótin maí-júní sýnir
Laugarásbíó spennumyndina The
Shadow Conspiracy með Charlie
Sheen í aðalhlutverki. Sheen fer með
hlutverk Bobby Bishop, ráðgjafa
Bandaríkjaforseta, sem fær óvænt
vísbendingu um að landráðamaður
sé að störfum meðal valdamanna í
Washington. Með aðstoð fyrrverandi
kærustu, blaðakonu sem er leikin
af Lindu Hamilton, reynir hann að
fletta ofan af svikaranum án þess
að tapa lífi og limum.
The Saint með Val Kilmer verður
sýnd í júní, og Steven Spielberg
myndin The Lost World: Jurassic
Park um mánaða-
mótin júlí-ágúst.
Báðar þessar myndir
verða jafnframt
sýndar í Sambíóun-
um.
I júlí kemur róm-
antíska gaman-
myndin One Night
Stand. Myndin ger-
ist í Chicago og seg-
ir frá sambandi ljós-
myndara og rithöf-
undar. Það eru Nia
Long og Larenz Tate
sem eru í aðalhlut-
verkunum en mynd-
inni er leikstýrt af
Theodore Witcher.
Kvikmynd Ric-
hards Attenboroughs In Love and
War er væntanleg í ágúst. Sögusvið-
ið er Ítalía í fyrri heimsstyrjöldinni
og aðalpersónurnar eru sjúklingur
og hjúkrunarkona. Þetta er ekki
„The English Patient 2“ heldur er
myndin byggð á ævi Ernest Hem-
ingway. Það er Cris O’Donnell sem
leikur rithöfundinn og ástina hans,
Agnesi von Kurowsky, leikur Sandra
Bullock.
í ágúst verða. einnig sýndar
Spawn og Mortal Kombat: Anni-
hilation. Spawn er byggð á sam-
nefndri teiknimyndasögu. Aðalper-
sónan er Al Simmons (Michael Jai
White) sem snýr aftur frá ríki dauðra
til þess að gera upp við erkióvin sinn,
Clown (John Leguizamo).
Mortal Kombat: Annihilation
eða Mortal Kombat 2 er leikstýrt
af John R. Leonetti en hann var
kvikmyndatökumaður fyrstu „Mor-
tal Kombat“ myndarinnar. í Anni-
hilation snúa Cristopher Lambert
og Robin Shou aftur í hlutverkum
Rayden og Liu Kang til þess að
beijast við ill öfl.
Með haustinu eru síðan væntan-
legar Navy Cross og The Truman
Show. Vinnuheiti Navy Cross var
„G.I. Jane“ en eins og nöfnin gefa
til kynna er þetta hermynd. Demi
Moore fer með aðalhlutverkið og
Ridley Scott leikstýrir.
The Truman Show er nýjasta
mynd Peter Weir. í aðalhlutverkum
eru Jim Carrey, Laura Linney og
Dennis Hopper.
SONGVARINN
Sverrir Guðjónsson
heldur áfram á ferð-
lagi sínu um heim-
inn í útvarpsþáttun-
um Á sjö mílna
skónum - mósaík-
leifturmyndir, á rás
1 í dag klukkan 15.
Þetta er fimmti
þáttur Sverris sem
nú er staddur í
Kaupmannahöfn
eftir að hafa dvalist
í Japan síðastliðna
fjóra þætti. Síðar
liggur svo leiðin til
Lundúna.
í þáttunum má
heyra leifturmyndir frá löndum
sem Sverrir hefur verið á söng-
ferðalagi í. Sverrir sagðist, í sam-
tali við Morgunblaðið, alltaf bera
á sér hljóðupptökutæki þegar
hann væri á ferðalagi erlendis
og tæki með því upp stemmning-
ar og hljóðmyndir. „Ef ég rekst
á óvenjulega hluti reyni ég að
ná þeim á band og ef ég hitti
áhugavert fólk reyni ég að ná
smá viðtali við það. Þegar ég kem
heim safna ég upptökunum sam-
an og skoða þær. Það fer alltaf
eitthvert ævintýri af stað þegar
Sverrir
Guðjónsson.
ég byija síðan að
vinna úr þeim,“ sagði
Sverrir.
Hann sagðist hafa
mikinn áhuga á út-
varpinu sem miðli því
það hefur þann eig-
inleika að ýta undir
ímyndunarafl fólks.
Honum finnst of lítið
gert af því að nýta
útvarpið til að tengja
hljóð og texta. „Fyrir
mér er hljóðmynd
sterkari en ljósmynd
og þar skiptir áferð
og tilfinning miklu
máli.
Ég byggi þættina
upp eins og púsluspil sem klárast
í þáttarlok. Síðan reyni ég að
velja tónlist við hæfi og ekkert
lag heyrist í þættinum án þess
að hafa ákveðinn tilgang. Tón-
listin bætir við og útskýrir það
sem ekki verður sagt.“
Sverrir sagðist hafa fengið
mjög ánægjuleg viðbrögð við
þessum þáttum sínum en í þætt-
inum í dag fer hann á tónleika.
„Við lendum inni á tónleikum hjá
hinni sérkennilegu hljómsveit
Bazaar auk þess sem ég litast
um í fríríkinu Kristjaníu."
Janeane
Garofalo