Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 30.04.1997, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR íslensk lög um lífeyrissjóði koma hugsanlega til kasta Mannréttindadómstólsins Skylduaðild kærð til Strassborg-ar Skylduaðild íslenskra launþega að stéttbundnum lífeyris- sjóðum hefur verið kærð til Mannréttindanefndar Evr- ópu og kemur hugsanlega til kasta Mannréttindadóm- stólsins í Strassborg. Ragnhildur Sverrisdóttir kynnti sér dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og Hæstaréttar í þessu máli. Meirihluti Hæstaréttar taldi ekki hafa verið sýnt fram á að takmörkun á valfrelsi um lífeyrissjóð samrýmdist ekki ákvæði stjómarskrár um félagafrelsi. SKYLDUAÐILD að stéttbundnum lífeyrissjóðum gæti komið til kasta Mannréttinda- dómstólsins, sem hefur aðsetur í þessari byggingu í Strassborg. ETTA mál, sem nú hefur verið kært til Mannréttindanefndarinn- ar, snýst um þrjá starfsmenn tré- smiðju, sem jafnframt voru hlut- hafar og stjórnarmenn í fyrirtækinu. Tré- smiðjan K-14 hf. greiddi lífeyrissjóðsiðgjöld til Lífeyrissjóðs byggingamanna, en í árslok 1988 tóku eigendurnir þá ákvörðun að segja sig úr lífeyrissjóðnum og greiða iðgjöld í séreignarsjóð, Frjálsa lífeyrissjóðinn. Líf- eyrissjóður byggingamanna sætti sig ekki við þá ákvörðun og vísaði til ákvæðis laga 55/1980 um skylduaðild manna að lífeyris- sjóði viðkomandi starfsstéttar. Síðar tók Sameinaði lífeyrissjóðurinn við réttindum og skyldum Lífeyrissjóðs byggingamanna og hélt innheimtuaðgerðum áfram. Með vísan til reglugerðar sjóðsins var trésmiðj- unni gefinn kostur á að sýna fram á að greitt væri til annars sambærilegs sam- tryggingarlífeyrissjóðs. Hins vegar var tek- ið fram að ekki nægði að greiða til svo- nefndra „ftjálsra" lífeyrissjóða. Reglan ekki án undantekninga Svo fór að Sameinaði lífeyrissjóðurinn stefndi trésmiðjunni, til að fá iðgjöldin greidd. Fyrir dómi var því haldið fram af hálfu trésmiðjunnar, að tilgangur laga 55/1980 hafi fyrst og fremst verið sá, að tryggja að öllum starfandi mönnum væri skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði og spara þannig til elliáranna, en áherslan hafi ekki verið á því að greitt væri í tiltekinn sjóð. Þá ættu ekki allir sjálfsagða aðild að líf- eyrissjóðum. Það ætti til dæmis við um atvinnurekendur og ýmsa sem stunduðu sjálfstæða atvinnustarfsemi og gerðu lögin ráð fyrir að unnt væri að velja um til hvaða sjóðs skuli greitt, eftir því sem reglur ein- stakra sjóða um aðild leyfi. Trésmiðjan hélt því fram, að ekkert í reglugerðum Lífeyrissjóðs byggingamanna og síðar Sameinaða lífeyrissjóðsins leiddi til þess að sjóðimir teldust lífeyrissjóðir starfsstéttar eða starfshóps mannanna þriggja. Mennirnir væru allir hluthafar í trésmiðjunni, sætu í stjórn fyrirtækisins og tækju ekki laun samkvæmt kjarasamning- um neinna stéttarfélaga, heldur í samræmi við afkomu fyrirtækisins. Trésmiðjan hélt því einnig fram, að teld- ist aðild mannanna að lífeyrissjóðnum skylda samkvæmt lögum 55/1980, þá brytu lögin gegn ákvæði stjómarskrár um félaga- frelsi. í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu og nýlegum dómum íslenskum væri litið svo á, að grein stjómarskrárinnar og samsvar- andi grein mannréttindasáttmála Evrópu tryggði ekki eingöngu frelsi til að stofna félög, heldur einnig til að standa utan þeirra. Þar að auki brytu ákvæði laga 55/1980 gegn eignarréttarákvæðum stjórn- arskrár. Sá hluti launa, sem starfandi mönnum væri gert að greiða til lífeyris- sjóðs, væri eign sem ekki væri heimilt að svipta þá nema fullt verð kæmi fyrir. Skerðing lífeyris var óumflýjanleg Máli sínu til stuðnings lagði trésmiðjan fram upplýsingar um stöðu lífeyrissjóða. Þar kom m.a. fram, að við árslok 1990 hafi vantað 260% upp á eignir Lífeyris- sjóðs byggingamanna svo hann gæti stað- ið undir heildarskuldbindingum sínum, að teknu tilliti til framtíðariðgjalda. Sambæri- leg tala fyrir Lífeyrissjóð málm- og skipa- smiða hafi verið 185%. Með tilliti til stöð- unnar í árslok 1990 virtist óumflýjanlegt að skerða lífeyrisgreiðslur Sam- einaða lífeyrissjóðsins og „menn- irnir þrír geti ekki vænst þess að iðgjaldaframlög þeirra til [Sam- einaða lífeyrissjóðsins] muni færa þeim lífeyrisréttindi, sem svara til andvirðis framlaganna". Þetta sagði trésmiðjan ólögmæta skerðingu á eignum. Þegar dómur féll í Héraðsdómi Reykja- víkur 3. mars 1995 var niðurstaða dómar- ans, Eggerts Óskarssonar, að trésmiðjan skyldi greiða iðgjöldin til Sameinaða lífeyr- issjóðsins. Rökin voru þau, að lög 55/1980 kvæðu á um skyldu til greiðslu í lífeyris- sjóði og mennirnir þrír væru launamenn í skilningi ákvæðisins, þeir hefðu áður átt aðild að Lífeyrissjóði byggingamanna í samræmi við iðn sína og aðild þeirra hefði ekki breyst þegar Sameinaði lífeyrissjóður- inn tók við réttindum og skyldum Lífeyris- sjóðs byggingamanna. Takmörkun umráða en ekki eignarnám Um vísan trésmiðjunnar til ákvæða stjórnarskrár og mannréttindasáttmála sagði, að sú skylda, sem lögð væri á laun- þega og þá sem hefðu með höndum sjálf- stæða starfsemi til að afla sér lífeyrisrétt- inda með hluta launa sinna, fæli í sér almenna takmörkun á eignarumráðum, en ekki eign- arnám. Takmörkunin væri lög- bundin og legðist jafnt á þá sem hún tæki til og eins væri ástatt um og menn áynnu sér jafnfrámt sérstök réttindi. Lagaákvæðin samrýmdust því grundvallarreglum um friðhelgi eignarrétt- arins og brytu ekki í bága við stjórnar- skrá, þótt hún væri skýrð í samræmi við mannréttindasáttmálann. Þá yrði ekki á það fallist að óvissa um getu lífeyrissjóðs til að greiða lífeyri í samræmi við framlög sjóðsfélaga leiddi tii þess að um ólögmæta skerðingu á eignum væri að ræða, sem bryti í bága við stjórnarskrá. Um þá röksemd, að brotið væri gegn félagafrelsi með skylduaðild að lífeyrissjóð- um sagði héraðsdómur, að í greinargerð með frumvarpi til laga 55/1980 hafi kom- ið fram að við setningu laga um eftirlaun aldraðra hafi verið gert ráð fyrir að nauð- synlegt væri að setja í lög ákvæði um skylduaðild að lífeyrissjóðum. Tilgangur lagasetningarinnar hefði verið að tryggja að allir starfandi menn bæru á sama hátt kostnað af lífeyristryggingum. Héraðsdómur sagði að þegar þessi til- gangur laganna væri virtur og þeir al- mannahagsmunir, sem að baki væru, þá yrði ekki talið að lög- bundin skylduaðild að lífeyris- sjóðum væri andstæð ákvæði stjórnarskrár um félagafrelsi og það þrátt fyrir að greinin væri skýrð til samræmis við mannréttindasátt- málann. Dómarar Hæstaréttar ekki á eitt sáttir Trésmiðjan áfrýjaði til Hæstaréttar, þar sem dómur féll í september í fyrra, en dómararnir voru ekki á eitt sáttir. Harald- ur Henrysson, Guðrún Erlendsdóttir og Hrafn Bragason mynduðu meirihluta dómsins, en bæði Pétur Kr. Hafstein og Hjörtur Torfason skiluðu sératkvæðum. í dómi Hæstaréttar var vitnað til laga 55/1980 og sagði að tilgangur laganna hafi verið að tryggja að allir vinnandi menn bæru á sama hátt kostnað af lífeyris- tryggingum. Skylduaðild að lífeyrissjóði væri ótvíræð. Tilgangur löggjafarinnar væri m.a. sá að réttur til lífeyristrygginga yrði byggður á sem jöfnustum forsendum og slíkar almennar takmarkanir að lögum væru ekki andstæðar mannréttindaákvæð- um stjórnarskrárinnar. Af hálfu trésmiðjunnar var bent á, að starfsmennirnir þrír hafi mátt greiða til hvaða lífeyrissjóðs sem væri, hefði fjár- málaráðuneytið staðfest reglugerð hans. Hæstiréttur sagði, að skylduaðild að líf- eyrissjóði hamlaði því ekki að keypt væru viðbótarréttindi hjá öðrum sjóði. „Eins og hér hagar til þykir áfrýjandi [trésmiðjan] ekki hafa sýnt fram á að sú takmörkun á valfrelsi starfsmanna um lífeyrissjóð, sem fólgin er í skylduaðild launþega hans að stefnda [Sameinaða lífeyrissjóðnum] sam- kvæmt lögum nr. 55/1980, verði ekki sam- ræmd áðurgildandi ákvæði stjórnarskrár um félagafrelsi, sbr. núgildandi ákvæði 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar. Niðurstaða máls þessa verður sam- kvæmt framansögðu sú að áfrýjanda beri að greiða lífeyristillag launþega sinna til stefnda svo sem krafist er,“ segir í dómi Hæstaréttar. Ekki meiri skerðing en nauðsyn krefur Pétur Kr. Hafstein sagði í sératkvæði sínu að skylduaðild að lífeyrissjóðum fæli í sér skerðingu á sjálfsákvörðunarrétti, sem væri almenn og réttlættist af ríkum al- mannahagsmunum og bryti ekki í bága við stjórnarskrá. Það kynni að vera, að hagsmunum ákveðinna sjóða yrði teflt í tvísýnu, ef sjóðsfélagar mættu ganga úr þeim að vild og velja sér aðra. Á hitt væri að líta, að skerðing á félagafrelsi mætti ekki vera meiri en brýnasta nauðsyn krefði. „Þess vegna er ekki unnt að fallast á, að nauðsyn beri til þess í lýðræðislegu þjóðfé- lagi að takmarka rétt manna til að velja milli lífeyrissjóða, sem eru löghæfir til að ná markmiðum laga nr. 55/1980 um starfskjör og skyldutryggingu lífeyrisrétt- inda,“ sagði Pétur og vildi sýkna trésmiðj- una af kröfum lífeyrissjóðsins. Atvinnurekendur fremur en launþegar Hjörtur Torfason skilaði einnig sérat- kvæði. Hann sagði nær að líta á starfsmenn trésmiðjunnar sem atvinnurekendur en eig- inlega launþega. Hjörtur benti á, að í lögum 55/1980 hafi verið að finna viðurkenningu þess, að ekki yrði öllum skipað sjálfkrafa í sjóði af umræddu tagi. Nokkuð hafi losn- að um starfsgreinatengsl lífeyrissjóða frá því lögin voru sett, sjóðir verið sameinaðir og í reglugerðum sumra gert ráð fyrir að menn gætu hafnað aðild að einum, væru þeir í öðrum sambærilegum. Samkvæmt viðhorfi Sameinaða lífeyrissjóðsins hefðu mennirnir þrír getað nýtt sér slíkt ákvæði, en innganga þeirra í frjálsan séreignarsjóð væri ekki lögmætt tilefni viðskilnaðar. Hjörtur sagði ekki hægt að fallast á þessi sjónarmið, þegar litið væri til stöðu mann- anna og hagsmuna lífeyrissjóðsins og félaga hans. Hann benti á að Frjálsi lífeyrissjóður- inn nyti einnig viðurkenningar að lögum og vildi að þessu gefnu, og með vísan til forsendna í atkvæði Péturs, sýkna trésmiðj- una af kröfu lífeyrissjóðsins. Kært til Strassborgar Trésmiðjan K-14 var ósátt við niðurstöðu meirihluta Hæstaréttar og lög- maður hennar, Erla S. Árnadóttir hæstaréttarlögmaður, kærði nið- urstöðuna til Mannréttindanefndar Evrópu hinn 17. mars sl. Nefndin ákveður hvort málið verður tekið til efnislegrar meðferðar hjá Mannréttinda- dómstólnum í Strassborg. Afgreiðsla nefnd- arinnar getur tekið allt að tvö ár og fari málið til dómstólsins getur þurft að bíða í nokkra mánuði til viðbótar eftir úrskurði hans. Ekki er tímabært að velta um of vöngum yfir hugsanlegri niðurstöðu nefndarinnar og dómstólsins. Þó er ljóst, að hafni Mann- réttindadómstóllinn túlkun íslenskra dóm- ara og telji að skylduaðild að einstökum lífeyrissjóðum gangi gegn ákvæðum mann- réttindasáttmála Evrópu hefur það í för með sér að launþegar hér á landi geta val- ið til hvaða lífeyrissjóðs þeir greiða lögbund- in iðgjöld sín. Félagafrelsi og friðhelgi eignarréttar Takmarkanir eru ekki gegn stjórnarskrá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.