Morgunblaðið - 30.04.1997, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
f
LAIMDIÐ
Framkvæmdir á
bryggjtmni á Rifi
Ólafsvík - Nýlega hóf fyrirtækið
Lava hf., sem er dótturfyrirtæki
Aðalverktaka hf., framkvæmdir á
bryggjunni á Rifi. Lava hf. keypti
sl. haust fyrirtækið Nesvíkur hf.
°g hyggst hefja útflutning á vikri
úr vikurnámum Snæfellsjökuls.
Framkvæmdir á Rifi er liður í því.
Er verið að steypa 2.500 fm plan
ætlað sem útflutningsaðstaða fyrir
fyrirtækið.
Fyrirtækið hyggur á meiri fram-
kvæmdir, t.a.m. ætlar það að
byggja upp aðstöðu_ á svokallaðri
Breið sem er á milli Ólafsvíkurenn-
is og Rifs. Einnig er fyrirhuguð
vegalagning sem tengir veginn frá
fyrrverandi aðstöðu Nesvíkur, sem
er við Gufunesmóðulækinn. Er
þetta liður í umhverfismati og
kemur vegurinn til með liggja
sunnan við Búrfellið og tengjast
við hafnarsvæðið á Rifi. Styttist
vegalengdin frá því sem var um
20 km og ekki verður lengur ekið
á aðalvegum með vikurinn.
Morgunblaðið/Guðlaugur Wíum
FRA framkvæmdum við bryggjuna á Rifi.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
KARL Aspelund kennir grunnskólabörnum úr Súðavík sund í sundlauginni á Flateyri.
Sundkennari í 4 6 ár
Flateyri - Hann heitir Karl Aspelund og er sund-
kennari. Undanfarið hefur hann fengist við að
kenna 7-11 ára börnum úr Grunnskóla Súðavíkur
sund í sundlauginni á Flateyri. I Súðavík er engin
sundlaug, og á Isafirði komst skólinn ekki að með
sundkennslu sína. Því lá beinast við að sækja sund-
kennsluna til Flateyrar.
Karl hefur fengist við sundkennslu í 46 ár og
hóf fyrst kennslu á Flateyri í gömlu sundlauginni
sem var þá. Meðal nemenda hans þá var Einar
Oddur Kristjánsson alþingismaður. Karl kenndi
síðan sund á Isafirði um langt skeið og sagðist
eiginlega hafa verið hættur að kenna þegar hann
var beðinn að kenna sund við Grunnskólann í Súða-
vík. Hann gat ekki vikist undan þeirri áskorun,
þar sem sundkennsia barna er hans ær og kýr.
Karl segist njóta þess að kenna börnum því að
þau séu áræðnari og allsendis óhrædd. Þó segir
hann mun á því að kenna börnum i dag miðað við
fyrir 46 árum þegar hann hóf kennslu. Þá ríkti
agi en í dag virðist ríkja agaleysi í uppeldi barna
á öllum sviðum. Karl segist ætla að halda áfram
að kenna sund, því að það gefi sér mikið að vera
innan um börn.
A
AU ÐLIND H F.
Almennt hlutafjárútboð
Útgefandi:
Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf.
Sölutímabil:
Nafnverð hlutabréfanna:
Sölugengi:
30. apríl 1997 til 30. október 1997
200.000.000
2,46
Söluaðilar:
Kaupþing hf., Kaupþing Norðurlands hf og afgreiðslur
sparisjóðanna.
Skráning: Eldri hlutabréf Auðlindar hf. eru skráð á Verðbréfaþingi
Islands og hefur félagið einnig óskað eftir skráningu á
hlutabréfunum sem verða gefin út í þessu útboði.
Umsjónaraðili útboðs: Kaupþing hf.
Útboðs- og skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda.
KAUPÞING HF
LöM’ilt veriibréfufyrirtœki
Armúla 13 A, 108 Reykjavík
Sími 515-1500, telefax 515-1509
Morgunblaðið/Gunnar
NEMENDUR úr Lýðskóla Reykjavíkur ásamt Oddi Albertssyni
skólastjóra og Soffíu Vagnsdóttur kennara.
Lýðskólanemendur í
heimsókn á Vestfjörðum
Bolungarvík - 18 nemendur úr Lýð-
skólanum í Reykjavík voru í heim-
sókn á Vestfjörðum í síðustu viku
en heimsóknin er liður í skólastarf-
inu sem byggir á vali nemenda á
viðfangsefnum. Með ferð sinni til
Vestfjarða vildu nemendur kynna
sér lífið í byggðum Vestfjarða og
athuga hvort byggð þar sé í raun
að fjafa út.
Lýðskólar eru mjög frábrugðnir
öðrum skólum því þar þreyta nem-
endur ekki próf heldur vinna þeir
sameiginlega að verkefnum sem
þeir velja sjálfír. Lýðskólar eru val
fyrir þá sem ekki finna sig í hefð-
bundnu skólakerfi. Að sögn Odds
Albertssonar, skólastjóra Lýðskói-
ans, er þetta þriðja önnin sem skól-
inn er starfræktur en hann er til
húsa í húsnæði Reykjavíkurborgar
við Bústaðaveg. Oddur sagði skólann
í húsnæðisbasli en það kæmi ekki
niður á reglubundnu starfi. „Við
vorum að líta á húsakostinn á Núpi
og kannski við kaupum Núpsskóla
fyrir lítið, mér er sagt að þar sé
gott að vera,“ sagði Oddur.
Fallegt en ógnvekjandi
Fréttaritari átti stutt spjall við fjórar
frískar stúlkur úr hópnum, þær
Brynhildi, Jónu, Guðbjörgu og Berg-
lindi, um heimsókn þeirra til Vest-
fjarða. Þær sögðu að það væri búið
að vera meiriháttar gaman og að
móttökurnar hefðu verið frábærar.
Þær sögðust hafa farið víða og rætt
við fjölmarga.
Þær stöllur sögðu þetta lands-
svæði ekki mega fara í eyði því hér
væri svo friðsælt og fallegt þótt fjöll-
in þættu ógnvekjandi með tilliti til
snjóflóðahættu en um leið veittu þau
vissa vernd.
Guðbjörg sagðist hafa komið til
Bolungarvíkur fyrir nokkrum árum
en þá var hún á kafi í vímuefna-
neyslu og á þvælingi. „Mér fannst
staðurinn og umhverfið lítt aðlað-
andi þá en nú horfir allt annað við
og upplifi ég staðinn og ekki síður
umhverfið á allt annan og jákvæðari
hátt.“
Þær stöllur sögðu að sú neikvæða
umræða um birtist í fjölmiðlum um
að Vestfirðir væru landssvæði sem
ekki væri byggilegt gefa mjög
skakka mynd af mannlífinu á þess-
um landshluta. Hér væri heilmikið
að gera og fólkið mjög viðkunnan-
legt. Þær sögðust hafa verið að
skoða frystihúsið hjá Bakka í Bol-
ungarvík og það væri eins og að
koma í höfuðstöðvar NASA, allt svo
hreint og fágað, og sögðust þær vel
geta hugsað sér að vinna á slíkum
vinnustað.
í
í
L
(
I
t
I
t
í
-
t
C
c
I
í
í
í
í.
<
í
i
(
<