Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 2

Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 2
2 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Slagsmál milli verkfallsvarða og löndunarmanna í Grundarfirði Hörðustu átök sem orðið Laxinn farinn að sýna sig LAXVEIÐI á stöng hefst í morgunsárið 1. júní næstkom- andi er veiðimenn ganga til veiða í Norðurá og Þverá í Borgarfirði. Fyrstu laxarnir eru gengnir í árnar, fímm sáust í Haffjarð- ará á sunnudag og í gær- morgun komu menn auga á þijá væna í Kvíslafossi í Laxá í Kjós. Þeir fyrstu í Haffjarðará „Ég var ekkert að flækjast þarna sérstaklega til að líta eftir laxi, en þegar við ókum þarna fram hjá á sunnudaginn sagði ég við mitt fólk að gam- an væri að kíkja fram af Gömlu brú og sjá hvort eitt- hvert líf væri að sjá, bara svona til að fá úr sér hrollinn. Eftir að hafa horft um stund komum við allt í einu auga á þrjá stóra laxa undir brúnni og síðan komu tveir smærri til viðbótar", sagði Guðlaugur Bergmann, sem sá fyrstu laxa sumarsins í Haffjarðará á sunnudaginn. Spegilfagrir og spikfeitir fiskar „Þetta voru engir niður- göngulaxar, atferli þeirra var allt eins og hjá nýrunnum físki, þeir veltu sér eins og nýir laxar gera til að losa lús- ina og þá mátti sjá að þetta voru spegilfagrir og spikfeitir fiskar. Þetta er óvenjusnemmt og lofar að sjálfsögðu góðu, því ef lax er við Gömlu brú er hann örugglega einnig kominn í Kvörnina og öruggt má telja að lax sé kominn bæði í Norðurá og Þverá,“ sagði Guðlaugur. ■ Fækka stangadögum/8 Lögreglumenn stóðu vörð hafa frá upphafi verkfalls Morgunblaðid. Grundarflrði. _____________ ÁTOK brutust út milli verkfallsvarða Verkalýðsfélagsins Baldurs á ísafirði og löndunarmanna í Grund- arfirði í gærmorgun þegar reynt var að afferma togarann Bessa. Um tíu verkfallsverðir komu frá Vestfjörð- um í fyrrinótt til að stöðva löndunina úr skipinu, sem þangað kom frá Hafnarfirði þar sem tilraunir til lönd- unar höfðu reynst árangurslausar. Löndunarmennirnir voru að eigin sögn ófélagsbundnir verktakar fyrir Frosta í Súðavík, sem gerir út togar- ann, og átti að setja aflann, um 200 tonn af frosinni rækju, í gáma og flytja til Súðavíkur til vinnslu. Verkfallsverðir lögðu bílum sínum þannig að erfítt var að beita löndun- artækjum. Skipið kom til hafnar um sjöleytið í gærmorgun og var opnað- ur hliðarhleri á togaranum og byijað að landa frosinni rækju. Var hún hífð í brettum yfir bílana og niður á bryggju. Verkið gekk hægt fyrir sig og töldu heimamenn að tvo til þijá sólarhringa tæki að landa úr skipinu með þessum hætti. Nokkru síðar, eða um klukkan 11, skarst í odda milli manna. Þá var búið að koma um 20 tonnum af rækju frá borði. „Við tókum til bragðs að standa undir löndunarbrettinu þannig að ekki var hægt að slaka því niður á bryggju. Löndunarmennirnir, á milli 5 og 10 talsins, gengu þá í skrokk á verkfallsvörðum. Við reyndum að stilla til friðar en það gekk ekki og þá snerumst við til varnar,“ segir Trausti Ágústsson, einn verkfalls- varða. Hann segir menn hafa verið gripna hálstaki og slegna hnefa- höggum og sjáist á sumum, meðal annars skarti margir marblettum eftir átökin. Verkfallsvörðum tókst að stöðva löndunina og fóru löndun- armenn af bryggjunni. „Þetta eru Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson VERKFALLSVERÐIR komu sér fyrir undir brettum sem verið var að hífa úr togaranum og komu þannig í veg fyrir löndun. hörðustu verkfallsátök sem við höf- um lent í frá því verkfallið hófst, og mun harðara en þegar við stöðv- uðum löndun úr Páli Pálssyni í Reykjavík. Löndunarmenn voru staðráðnir í að ná rækjunni úr skip- inu og á ég von á að þeir hafi feng- ið tilmæli frá sínum verkkaupum,“ segir Trausti. Handalögmálin stóðu yfir í um 20 mínútur en síðan tókst að stilla til friðar og var orðið kyrrt um há- degi. Um tugur lögreglumanna frá Snæfellsnesi hafði afskipti af átök- unum og hélt vakt við bryggjuna fram eftir degi. Löndunarmenn reyndu að króa af einn bíl verkfalls- varða með því að hlaða brettum umhverfis hann, og varð bifreiðin fyrir lítilsháttar skemmdum. Þá fauk upp hurð á gámaflutningabíl á svæð- inu og varð ennfremur Iítilsháttar tjón á hónum. Hvasst var og rigning í Grundarfirði þegar í brýnu sló með mönnum. Fengu liðsauka að vestan Upp úr hádegi bættist verkfalls- vörðum liðsauki frá meðal annars Súðavík og Hólmavík og stóðu á milli 20 og 30 verkfallsverðir vakt við skipið síðdegis í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. „Eftir hádegi hefur verið tíðindalítið, en þær hnippingar sem voru áður leyst- ust þokkalega að okkar mati. Við reyndum að halda þessu í jafnvægi eftir því sem hægt var, en það var mikill æsingur í mönnum. Löndunar- menn hafa ekkert reynt frekar að losa skipið, enda ógjörlegt undir þessum kringumstæðum," segir Eð- varð Árnason yfirlögregluþjónn. Um klukkan tvö var komið með fjóra gáma af stærstu gerð til Grundarfjarðar og kvisaðist út með- al verkfallsvarða að löndunarmenn hefðu í hyggju að stafla utan við bíla verkfallsvarða og landa síðan ofan á þá, yfir bifreiðarnar. Þá röð- uðu verkfallsverðir bifreiðum sínum upp þannig að ógjörningur var að komast að bryggjuendanum þar sem togarinn lá, nema fótgangandi. Ný björgun- arskip til hafnar TVÖ ný björgnnarskip Slysa- varnafélags Islands komu til hafnar í Reykjavík í gær og verða sýnd almenningi í Reykjavíkurhöfn í dag. Um næstu helgi verður þeim veitt viðtaka í nýjum heimahöfnum á ísafirði og Siglufirði. SVFÍ festi kaup á skipunum tveimur frá Þýskalandi þar sem þau hafa verið í rekstri. Þau eru smíðuð 1969,18,9 metra löng, 4,3 metra breið og 45 brúttótonn. Að sögn Valgerðar Sig- urðardóttur, kynningar- og fræðslufulltrúa SVFI, hefur fengist góð reynsla af rekstri skipanna í Þýskalandi og hafa þau reynst öflug, traust og örugg; þau eru grunnrist og þykja hafa mikla sjóhæfni en hönnun þeirra gerir kleift að komast á sjó við erfiðar að- stæður og gerir auk þess ráð fyrir að skipið rétti sig af ef því hvolfir. Slysavamafélagið hefur auk þessara skipa fest kaup á þrem- ur öðrum björgunarskipum frá Ilollandi. Hið fyrsta þeirra kom í desember og fór til Neskaup- staðar en hin eru væntanleg í júlí og desember nk. Morgunblaðið/RAX FLOTI Slysavarnafélagsins sigldi á móti björgunarskipunum tveimur við komu þeirra til Reykjavíkurhafnar í gær. Tveggja ára fangelsi fyrir berserksgang l undir stýri lyftara * HÉRAÐSDÓMUR Austurlands dæmdi í gær 22 ára gamlan mann á Akureyri í tveggja ára fangelsi fyrir að stofna lífi og velferð fólks í augljósan háska, raska umferðarör- yggi, og fyrir stórfelld eignarspjöll, líkamsárás, árás á lögreglumann í starfi, ölvunarakstur og fleiri brot. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa þann 15. febrúar síðastliðinn ekið öflugum gaffallyftara á lög- reglubíl og jeppa á Eskifirði. Tveir lögregiumenn voru í lögreglubílnum og slasaðist annar þeirra. Þijú ung- menni sluppu ómeidd úr jeppa sem maðurinn stórskemmdi. Einnig olli maðurinn miklum öðrum eignaspjöll- um og skemmdust þijú hús og fimm bílar af völdum aksturs hans á lyft- L aranum. Er eignatjón metið á um | það bil 5 milljónir króna. Einnig var |' maðurinn dæmdur fyrir líkamsárás i sem framin var á Akureyri. Hefur samið um bótagreiðslur Maðurinn var sakfelldur fyrir þá verknaði sem honum voru gefnir að sök og dæmdur í tveggja ára óskil- orðsbundið fangelsi en 97 daga gæsluvarðhald sem hann sætti kem- , ur til frádráttar. Þar sem maðurinn | hefur greitt eða samið um bóta- | greiðsiur vegna þess tjóns sem hann | olli á Eskifirði, var hann ekki dæmd- 9 ur til greiðslu skaðabóta. Fram kemur í dóminum að verkn- j aðinn hafi maðurinn framið mjög ölvaður og einnig er vísað til þess ■ að þótt hann þyki sakhæfur gangi hann ekki heill til skógar. Ingibjörg Benediktsdóttir héraðs- dómari í Reykjavík dæmdi í málinu á Akureyri í gær en héraðsdómarinn 1 á Austurlandi hafði úrskurðað sig | vanhæfan til að dæma í málinu fej vegna afskipta dómarafulltrúa af ■ málinu á rannsóknarstigi. MORGUNBLAÐINU fylgir í dag átta síðna auglýsingablað frá Samtökum iðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.