Morgunblaðið - 24.05.1997, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖN D/KVIKM YN DIR/ÚTVARP-S JÓNV ARP
LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Sjónvarpið ^21.05 - Sjá umfjöll-
un í ramma.
Sjónvarpið ►23.00 Kona nokkur
fer úr öskunni í eldinn í þýsku
spennumyndinni í greipum óttans
(Kreis der Angst, 1995), þegar hún
flýr undan manni sínum inn á æsku-
heimili sitt en þar taka afar slæmar
minningar á móti henni. Umsagnir
finnast ekki en í aðalhlutverkum eru
Katja Flint, Martin Umbach og
Sandra Speichert. Leikstjóri Thomas
Jauch.
Stöð 2 ►15 .00 Leikarinn aulalegi
Daniel Stem (Home Alone) þreytir
frumraun sína sem leikstjóri í fjöl-
skyldumyndinni Nýliði ársins (Ro-
okie OfThe Year, 1993) ogtekst
vel upp. Thomas Ian Nicholas leikur
12 ára strák sem handleggsbrotnar
en fyrir kraftaverk grær handlegg-
urinn svo vel að stráksi verður
hafnaboltahetja. Stem leikur sjálfur
aukahlutverk, sem og Gary Busey
og fleiri. Fyndin og hlýleg skemmt-
un. ★ ★★
Stöð 2 ^21.05 Nýstirnið og
„megabeib“ ailra „megabeiba" Alic-
ia Silverstone slær i gegn í unglinga-
kómedíunni Glórulaus (Ciueless,
1995), sem hvort sem þið trúið því
eða ekki er nútímaútgáfa á sögu
eftir Jane Austen. Amy Heckerling
leikstjóri og handritshöfundur hittir
oft á hláturtaugar í lýsingu á lúxus-
lífí ungmennastóðs í Beverly Hills -
en myndin heldur þó ekki dampi til
enda. ★ ★ 'h
Stöð 2 ►22.45 Feigðarkossinn
(Kiss of Death, 1995) er endurgerð
samnefndrar sakamálamyndar
Henrys Hathaway frá 1947, þar sem
Richard Widmark vakti á sér at-
hygli sem flissandi illmenni. Engin
slík afrek em unnin í endurgerð
Barbets Schroeder; hún er vand-
virknisleg afþreying en skortir ein-
Aftur afturábak
og áfram aftur
EINHVER pottþéttasti smellur
Hollywood á síðasta áratug var hinn
glaðbeitti og hugkvæmi vísinda-
skáldskapur Roberts Zemeckis Aft-
ur til framtíðar (Back To The Fut-
ure, 1985, Sjónvarpið ►21.05).
Handrit Zemeckis og Bobs Gale er
tímaflakksævintýri fyrir táninga þar
sem hinn eilífí táningur Michael J.
Fox flýr dauflega vist í foreldrahús-
um í félagsskap „geggjaðs" vísinda-
manns - Christopher Lloyd í góðu
formi. Sá sendir hann aftur í tímann
þegar foreldrar hans em að draga
sig saman en væntanleg móðir hans
laðast óþægilega mikið að væntan-
legum syni sínum fremur en væntan-
legum föður hans. Þetta er skondin
flækja sem höfundar greiða úr af
mikilli fimi - bæði tæknilega og
efnislega. Sjaldan hefur heimspekin
um tímann, afstæðið og söguna
fengið viðlíka afgreiðslu; hér birtist
Christopher Lloyd á elleftu
stundu í tímaflakki sínu.
hún í liki amerískrar unglingamynd-
ar og verður bráðskemmtileg fyrir
vikið. ★★★'/2
hver fjörefni. David Camso er aðeins
of veikur í hlutverki krimma sem
vill heíja nýtt líf en fær ekki frið
fyrir fortíð sinni. Nicolas Cage nær
að stela myndinni. ★ ★ 'h
Stöð 2 ►0.25 Cheryl Ladd og Ed
Marinaro em fastagestir í tæplega
miðlungsmyndum og eiga því bæri-
lega heima í spennumyndinni
Hættuspil (Dancing With Danger,
1994), hann sem einkaspæjari, hún
sem rannsóknarefni hans. Stuart
Cooper leikstjóra lánast þó að draga
upp skýra umhverfísmynd, þar sem
er leigudansklúbbur. ★ 'h
Sýn ►21.00 Vísindaskáldskapur-
inn sem kenndur er við Apaplánet-
una fann sem betur fer lyktir sínar
en þó ekki fyrr en í fimmta kafla.
í Apaplánetan 5 (Battle For The
Planet Of The Apes, 1973) er Roddy
greyið McDowall enn að svitna í
apagervinu og reynir að bjarga
framtíð mannkyns og apakyns eins
og hún leggur sig. Honum tókst í
það minnsta að bjarga framtíðar-
áhorfendum frá fleiri Apaplánetu-
myndum í bili. Leikstjóri J. Lee
Thompson. ~k'h
Árni Þórarinsson
-T
Bragi Kristjónsson
Sögumaður fer á kostum
Einkavíðtal Mannlífs við
Johnny Depp
dögum
Tíl varnar h
& mjálmið í f
takasaga Stöð-var 2 og hvernig
óti Ólafsson varð einn
'amesti maður landsins
JODIE Foster og Matthhew McConaughey reyna að ná sambandi
við geimverur í „Contact".
Heilmikið
framboð
SPENNA, hasar og ævintýri verða
í miklu framboði frá draumaverk-
smiðjunni amerísku í sumar. Sumar-
myndimar koma á markaðinn í
Bandaríkjunum strax í lok maí og
koma síðan hver á fætur annarri
fram á haust. Hér á íslandi fáum
við að sjá flestar þessar myndir þeg-
ar líða tekur á sumarið.
Kvikmyndaáhugamenn hafa þeg-
ar heyrt um The Lost World: Ju-
rassic Park, Con Air, Speed 2: Cm-
ise Control, Batman and Robin, Tit-
anic, og Men in Black, en hvað fleira
er í boði?
í Addicted to Love reynir Meg
Ryan víst að komast undan því að
vera krúttleg og fyndin. Samkvæmt
leikstjóra myndarinnar, leikararnum
Griffin Dunne, leikur hún sjálfstæða
og frekar ógnvekjandi konu í þess-
ari gamanmynd um vonbrigði í ást-
armálum.
í Ulee’s Gold leikur Peter Fonda
hlutverk sem er eins og það hafi
verið skrifað fyrir föður hans, Henry
Fonda. Peter leikur eldri mann sem
sér um uppeldi barnabarna sinna
vegna þess sonurinn er glæpamaður
og tengdadóttirinn er eiturlyfjaneyt-
andi.
Disney heldur teiknimyndaaðdá-
endum við efnið með Hercules, þrí-
tugustu og fímmtu teiknimynd fé-
lagsins í fullri lengd. Goðsögnin
gríska um Herkúles er sögð á gam-
ansaman hátt og að sjálfsögðu er
sungið líka. Óskarsverðlaunahafínn
Alan Menken samdi tónlistina fyrir
myndina og James Woods talar fyr-
ir illmennið, konung undirheimanna.
í Face Off er Nicholas Cage aft-
ur á ferðinni. í þetta skipti leikur
hann á móti John Travolta í hasar-
mynd leikstýrt af John Woo, en Tra-
volta og Woo unnu síðast saman að
„Broken Arrow“.
Julia Roberts leikur aðalhlutverk-
ið í rómantísku gamanmyndinni My
Síminn er
562 23 62
...ef þig
langar til að
a
IA.KJARGÖTU 4*101 REYKJAVÍK
SÍMI 562 2362 • NETFANG: aupair@slcima.i$.
JULIA Roberts leitar að ást-
inni í „My Best Friend’s
Wedding".
HARRISON Ford í „Air
Force One“.
Best Friends Wedding. Leikstjóri
„Muriel’s Wedding", P.J Hogan,
heldur áfram að hugleiða órannsak-
anlega vegi ástarinnar í myndinni.
Mótleikarar Roberts eru Dermot
Mulroney, Cameron Diaz, og Rupert
Everett.
Contact er einnig um samskipti
við geimverur en á mun alvarlegri
nótum. Jodie Foster og Matthew
McConaughey leika aðalhlutverkin
og Robert Zemezkis leikstýrir.
Nothing to Lose er hasargaman-
mynd með Tim Robbins og Martin
Lawrence. Leikstjóri er Steve Oede-
kerk en hann stýrði seinast „Ave
Ventura: When Nature Calls“.
Grínið heldur áfram í George of
the Jungle. Brendan Fraser leikur
aðalhlutverkið í þessari mynd sem
er byggð á teiknimyndasögum Jay
Ward frá fímmta áratugnum.
Conspiracy Theory hefur Juliu
Roberts og Mel Gibson í aðalhlut-
verkunum. Roberts leikur blaða-
mann sem fellur fyrir leigubílstjór-
anum Gibson sem trúir því að hann
hafi komist að samsæri um að myrða
forseta Bandaríkjanna.
í Air Force One leikur Gary Old-
man illmenni sem rænir forseta
Bandaríkjanna (Harrison Ford).
Glenn Close leikur varaforsetann og
Wolfgang Peterson leikstýrir.
Sylvester Stallone er þéttvaxinn
og heyrnarskertur lögreglustjóri í
Copland. Lýsingin hljómar mjög
ólíkt því sem maður á að venjast
hjá vöðvatröllinu. James Mangold
leikstýrir og Robert De Niro sést í
aukahlutverki.