Morgunblaðið - 24.05.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. MAÍ1997 31
AÐSENDAR GREINAR
Vitlausir
gagnrýnendur
ÉG VERÐ að gera nokkrar athug-
asaemdir við gagnrýni sem birst
hefur um Tunglskinseyjuna, óperu
mína og Sigurðar Pálssonar, sem
fram kom í fjölmiðlum 22. maí sl.
Ragnar Bjömsson skrifar mjög
lofsamlegan dóm í Morgunblaðið, en
misskilur samt veiga-
mikil atriði. Hann segir
m.a.: „... Það sem olli
mér helst vonbrigðum
var texti óperunnar.
Efni textans er í sjáifu
sér ekki afar merkilegt,
þótt fallega ortir hlutir
séu fyrir hendi. En miki-
ar endurtekningar á
stundum óskáldlegum
hendingum geta virkað
dálítið væmnar og gera
allavega tónskáldinu
erfitt fyrir...“ Endur-
tekningar em allar mín-
ar, og menntaður mað-
ur sem Ragnar ætti að
vita að það em tón-
skáldin sem endurtaka
orð og hendingar, taka sér það
skáldaleyfi eins og ég gerði í þetta
sinn, raunar með fullu samþykki Sig-
urðar. Ég er Ragnari aígjörlega
ósammála um að texti Sigurðar sé
óskáldlegur eða væminn. Þvert á
móti er hann bæði fagur og gagnorð-
ur, fellur vel að söng. Efni óperunnar
er að mínu mati merkilegt, einföld
og falleg saga er sögð með nýjum
og gömlum miðlum ópemleikhússins.
Sigfríður Bjömsdóttir skrifar dellu-
greiníDV. Þarsegirm.a.: „... Texta-
höfundurinn, Sigurður Pálsson, fæst
við hina hefðbundnu örlagasögu elsk-
enda en sögusviðið er við upphaf
landnáms á Islandi. Þessi staðsetning
atburðanna í tíma reynist þó vera
einhvers konar tímaskekkja, því meg-
inviðfangsefni verksins er einmitt
lausn frá tíma okkar inn í „tímann
á bak við tímann “ svo vitiiað sé í lí-
brettóið... Hlutverk sögumannsins
er umdeilanlegt. Hann stríðir í texta
sínum við að koma mælitækjum
tímans við í framvindunni: Þetta var
í árdaga..." „í þá daga“, „liðu svo
árin“, „og sumarið leið og haustið“,
svo einhver dæmi séu nefnd. Þessir
töluðu annálar vinna eins og áður
var ýjað að gegn eðli verksins sem
felst eftir því sem tónskáldið segir í
innhverfri ígrundan við sálarkviku
persónanna. Ferðalög sögumannsins
um sviðið eru auk þessa ósannfær-
andi og óþægilegt brot á hinum ýkta
stíl uppsetningarinnar..."
Allt er þetta rangt. Það er engin
tímaskekkja í textanum og engir
talaðir annálar. Sigríður er ólæs á
ljóð og líbrettó. Tíminn á bak við
tímann er augljós metafóra um end-
urminninguna, dauðann og eilífðina.
I verkinu er sögð ævi persónanna,
og þannig líður tíminn. Sigfríður
þyrfti að skólast árum saman í bók-
menntum. Svo er stíll uppsetningar-
innar ekkert ýktur. Þvert á móti.
Allar staðsetningar sögumanns er
réttar og yfirvegaðar.
Hún segir ennfremur:.....Þó var
eins og tónlistin vildi gleymast í
þessum mót- og líkingjaleikjum,
jafnvel líka í löngum millispilum.
Röð hljóða verður ekki tónlist nema
þau tengist á einhvern hátt, myndi
heild. Að framvinda eigi sér stað og
form heyrist. ..“ Þetta er bull,
merkingarlausir orðaleppar, að hætti
hálfmenntaðra manna. Auðvitað
tengjast hljóðin, þau mynda heild,
framvinda á sér stað og form heyr-
ast. En allt gerist þetta á annan
hátt en Sigfríður er vön. Og þar
stendur hnífurinn í kúnni. Hún gagn-
rýnir flest nýtt með andúð. Hið
gamla, þekkta, útjaskaða hefur hún
oftast meðtekið gagnrýnislaust. Sig-
fríður er þröngsýn, og þess vegna
vondur gagnrýnandi.
Hún lýkur grein sinni svona:
„... Eftir hina hægferðugu nánd við
sálarkviku ólánsfólks Tunglskinseyj-
unnar stigu menn léttfættir út í sitt
eigið daglega líf. Líf sem nú í nýju
Ijósi virðist þrátt fyrir allt bæði
spennandi og skemmtilegt. Tíminn
bak við tímann verður að bíða enn
um sinn!..."
Sigfríður virðist skopast að óperu
minni. Það snertir mig ekki. Tungl-
skinseyjan fjallar ekki um ólánsfólk.
Þvert á móti.
Þegar ég var ungur
skrifaði einhver kona í
Tímann um tónverka-
flutning eftir mig. Sagði
að hún hefði verið glöð
að komast að því að
Esjan væri enn á sínum
stað eftir þau ósköp. Og
svipað virðist Sigfríði
vera innanbijósts nú.
Afturhaldið er enn á sín-
um stað og ekki er and-
ríkinu fyrir að fara.
Ævar Kjartansson,
þulur, fjallaði um óper-
una sama dag á Rás 1
í Víðsjá Ríkisútvarps-
ins. Hann las upp það
neikvæðasta úr skrifum
Ragnars og Sigfríðar,
tók þó fram að eitthvað jákvætt
hefði fylgt með líka og er það allt
í lagi. En hann sagði verkið vera
Efni óperunnar er að
mínu mati merkilegt,
segir Atli Heimir
Sveinsson, einföld og
falleg saga er sögð með
nýjum og gömlum miðl-
um óperuleikhússins.
langdregið og drungalegt, fimbulf-
ambar að ég geti kannski sett sam-
an lítil lög, en það sé annað en 120
mínútna ópera. Hann eiginlega var-
aði þjóðina við þessu verki. Sleggju-
dómar Ævars snerta mig ekki. En
mér finnst það lítilsvirðing við þjóð-
ina, listamenn alla, þegar RÚV læt-
ur ekki hæfa menn fjalla um flóknar
og fagmannlegar óperusýningar.
Þess í stað er þjóðinni ætlað að hlýða
á ruglaða meinfýsni atvinnufúskara.
Nýlega las ég í Morgunblaðinu
að söngkonan okkar góða Rannveig
Fríða Bragadóttir hefði full „aftur-
stæðan framburð“ að mati Ríkarðs
Arnar Pálssonar tónlistargagnrýn-
anda. Rannveig leggur þetta vænt-
anlega á minnið og reynir að fara
eftir ábendingum Rikka þegar hún
syngur í Frankfurtaróperunni næst.
í gamla daga sagði einn gagnrýn-
andi að „endatónar" Guðrúnar Á.
Símonar væru ekki nógu góðir.
Svona er margt bullað, kannski
meinlaust, stundum skondið, en oft-
ast fremur hvimleitt. Á þessu stigi
er tónlistargagnrýni hér.
Ríkarður veit ekkert hvað orða-
leppar hans merkja. Sama er að
segja um Ævar og Sigfríði. En þjóð-
in tekur ekkert mark á þessum gagn-
rýnendum. Hún lætur ekki illa ritfær
merkikerti plata sig.
Höfundur er tónskáld.
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónustajyrir
brúðkaupið
SILFURBÚÐIN
'-X-/ Kringlunni 8-12-Sími 568 9066
- Þar fceröu gjöfina -
Atli Heimir
Sveinsson
Practical 3ja dyra Hatcback. verð kr. 1.249.ooo
Kynntu þér einnig hinar 3 gerðirnar
í MAZDA 323 fjölskyldunni!
ítarlegar upplýsingar um
MA2DA eru á heimasíðu
okkar: www.raesir.is
Umboðsmenn: Akranes: Bílás sf. * ísafjörður: Bílatangi ehf. * Akureyri: BSA hf RXE^SIR MF
Egilsstaðir: Bílasalan Fell • Selfoss: Betri bflasalan • Vestmannaeyjar: Bifreiðaverkstæði Muggs skúlagötu 59, s(mi 561 9550
I dqh opnum vtð mjög ovenjulegt fyrirt
-----J—------------- Aögangur að tölvum og fylgibúnaöi - aðeins 40
TÖLVUSTÚDÍÓ Úrval hugbúnaðar á hverri nettengdri tölvu. 0
TOLVUSKOLI
I
INTERNETÞJONUSTA
VEITINGAR
Aðgangur að tölvum og fylgibúnaði - aðeins 400 krónur tíminn
Úrvai hugbúnaðar á hverri nettengdri töivu. Office 97, Internetið,
tölvuleikir, Hæstaréttardómarnir teikniforrit, tónlistarforrit og
ótal margt fleira... Tölvuprentarar, skannar - texti, Ijósmyndir,
teikningar. CD ritarar - búðu til eigin geisladiska með gögnum
og tónlist, og auðvitað Ijósritun - A4 og A3.
Tveggja tima námskeið - aðeins 1400 krónur
Yfir 30 námskeið í boði i hverri viku
Xnet grunnnámskeið, Windows, Word, Excel, Internetið, ircið,
E-mail og ótal margt fleira...
Ótakmarkaður aðgangur að Internetinu um 128k link
Netfang með E-mail hólfi - aðeins 500 kr. á mánuði
Heimasíðuvistun - 2mb fyrir einstaklinga aðeins 500 kr. á mánuði
Intemetsími - hringdu hvert sem er í heiminum alveg hræódýrt
Ircið, Netscape, Reai Player, 0Z virtual o.fl. o.fl. o.fl.
Kaffi, Pepsi og léttar veitingar
Gluggaðu i tölvublöðin, Internetblöðin, tónlistarblöðin o.fl.
±.
UTVARPSSTOÐ
SJONVARPSSTOÐ
Beint útvarp allan daginn - vertu með eigin útvarpsþátt.
Beint sjónvarp allan daginn - vertu með eigin sjónvarpsþátt.
NETLEIKIR
MIDI HLJOÐSTUDIO
og keppnismót í hverri viku í frábærri þrívídd -
Red Alert, Diablo, Quake, Duke Nukem 3D, NFR o.fl. o.fl.
Auglýsingagerð, leiga á stúdíói,
tónlist fyrir kvikmyndir, útvarpsþættir og önnur hljóðvinnsla.
Námskeiðahald: Kennsla á notkun MIDI tóla og tækja.
Útleiga skrifstofu og tundarherbergis í klukkutíma, dag, viku....
Vönduð húsgögn, tæknibúnaður, ritaraþjónusta ef óskað er
Video conferencing um allan heim
Netfang, póstfang, símsvörun - þú þarft ekki aðra skrifstofu...
Kíktu við - sjón er sögu ríkari! Opið allo daga fró kl. 10-01
Nóatúni 17 - sími 562 9030 - netfang www.xnet.is
ISKRIFST0FUÞJ0NUSTA