Morgunblaðið - 24.05.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.05.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 21 Ned Gillette HÆTTURNAR á Everest-fjalli eru margar eins og sést á þessari mynd, sem tekin er rétt við tind- inn og sýnir fjallgöngumenn klifra eftir mjóum hrygg með snarbrattar hlíðar á báða bóga. þar af nokkrir reyndustu fjallgöngu- menn heims, fórust. í suðurhlíðum Everest eru sjö hópar og norðan megin tólf. Uppgangan norðanmegin er talin hættulegri, en kostnaður við að fara þá leið er minni. Vegna þess hve veðrið hefur verið slæmt í efstu hlíðum Everest, hefur för fjallgöngumannanna upp seinkað mjög, og séð var fram á örtröð við tindinn, ef veðrinu slotaði. í gær komust 22 á tindinn en flestir voru þeir fjörutíu á einum degi árið 1993. Lík nokkurra fjallgöngumanna, sem fórust í fyrra og í ár, eru við tindinn, og þurftu t.d. indónesísku fjallgöngumennimir sem fyrstir komust á tindinn í ár, að klífa fram- hjá líki eins þeirra. Illmögulegt er að koma þeim niður af tindinum, vegna þess hve máttfamir fjall- göngumennirnir eru í svo mikilli hæð. Metfjöldi hyggur á uppgöngu og ekki eru allir þeirra þrautþjálfaðir fjallamenn. Bandaríkjamaðurinn Jon Krakauer, sem skrifaði bókina „Into Thin Air“, um atburðina á síðasta ári, sagði að sér hefði hreinlega „orð- ið illt“ þegar hann frétti af láti sjö fjallgöngumannanna nú. Flestir hefðu verið sammála um að ástæða harmleiksins í fyrra hefði verið vont veður, óvenjumikill fjöldi fjallgöngu- manna og óvant fólk sem var í fylgd atvinnuflallamanna. Menn hefðu ekki látið sér þetta að kenningu verða, síður en svo. „Í kjölfarið hellt- ust fyrirspumir yfir leiðsögumenn: „Jeminn, ég vissi ekki að maður gæti fengið leiðsögn upp á Everest! Hvenær kemst ég?“ spurði fólk,“ segir Krakauer. „En Everest fer ekki í manngreinarálit, hann drepur hina sterku rétt eins og hina veikbyggð- ari og vanmáttugri." Fyrir að kom- ast upp á Everest greiða hinir auð- ugu og óvönu um 65.000 dali, um 4,6 milljónir ísl.kr. Óvanir fari ekki á tindinn Krakauer er þeirrar skoðunar að ekki eigi að aðstoða óvant fólk til að klífa hæsta fjall heims, því að það geti kostað allt of mörg mannslíf. í fyrra hafi t.d. vanir ijallamenn farist vegna þess að þeir vom að reyna að bjarga lífi viðskiptavina sinna. Enginn gerir sig líklegan til að stöðva ferðir fólks upp, þeir sem greiða nepölskum stjómvöldum 10.000 dali, rúmar 700.000 kr., í leyfi, geta farið upp. Todd Burleson, einn leiðangursstjóranna, kvaðst fyrr í vikunni óttast að tilraunir manna til að komast á tindinn kynnu að snúast upp í björgunaraðgerðir, vegna þess hversu margir óvanir væm á ferð. Þá væri ástæða til að óttast örtröð efst uppi, þar sem menn gætu ef til vill ekki komið sér saman um í hvaða röð ætti að fara, eins og gerst hefði í fyrra, við svokallað Hillary-þrep, rétt fyrir neðan tindinn, þar sem myndast hefði teppa. Ljóst er að menn era mjög misjafn- lega undirbúnir til að fara á tindinn, ekki er langt síðan einn hópurinn auglýsti á alnetinu eftir veðurfræð- ingi til að lesa af veðurkortum úr gervitunglum. Annar hefur stært sig af því að ætla að koma 68 ára göml- um manni á tindinn og sá þriðji, hópur Japana, gafst upp eftir að for- stjóri fyrirtækisins sem styrkti þá, komst ekki upp Kumbu-ísfallið. „Everest lagði Ííf mitt í rúst“ Bók Krakauers um Everest er afar umdeild, enda fer hann hörðum orð- um um það hvemig staðið var að atlögunum á fjallið og gagmýnir m.a. leiðsögumennina harðlega. Sjálfur var Krakauer í hlíðum Ever- est í fyrra. „Fjölskyldum sumra leið- sögumannanna sem fómst fannst ég sparka í þá, ekki aðeins liggjandi, heldur látna,“ segir Krakauer. Hann segist hins vegar furðu lostinn yfir því að hörð gagnrýni hans skuli ekki hafa hrætt fólk frá því að ganga á fjallið. „Ég ætla aldrei aftur þangað upp,“ segir Krakauer, en hann hefur einu sinni komist á tindinn. „Ég tel að það hafi lagt líf mitt í rúst að klífa Everest. Tilfinningalega, and- lega ... ég er enn miður mín.“ Bandaríkjaher Rekín vegna ástarsam- bands Minot, Washington. Reuter. The Daily Telegraph. FYRSTA konan, sem flogið hefur B-52 sprengjuflugvélum, hefur enn ekki tekið ákvörðun um viðbrögð sín við úrskurði herdómstóls í Bandaríkjunum, sem vék henni úr hemum en þó ekki með vansæmd, í stað þess að rétta í máli hennar. Konan, hin 26 ára gamla Kelly Flinn, var sökuð um að eiga í ástarsambandi við kvæntan mann, fyrir að ljúga um það við yfirheyrslur og óhlýðnast skipun- um. Mál Flinn hefur verið mikið hitamál í Bandaríkjunum en mörg- um þótti herinn taka of hart á henni þar eð fjöldi karlkyns hermanna hefði fengið að komast upp með svipaðar sakir. Flinn óskaði eftir því að fá að segja sig úr hernum með sæmd, en þá hefði hún átt kost á því að fljúga fyrir bandaríska þjóðvarðliðið og varalið hersins. Brottvikningin kemur í veg fyrir það, nema Flinn óski eftir niðurfellingu fyrir dómi. Hefði verið dæmt í máli hennar hefði hún átt yfir höfði sér fanga- vist og brottrekstur með vansæmd, sem hefði dregið enn frekar úr vinnumöguleikum að afplánun lok- inni. Flinn má fljúga þotum og flug- vélum í farþegaflugi og hafa henni þegar borist atvinnutilboð. SUNNUDAGINN 25. MAI KL10-17. ALLIR LANDSMENN VELKOMNIR í STRAUMSVÍK Svæðiö opnar kl. 10 með leik Lúðrasveitar Hafnarfjarðar. Allan daginn eru skipulagðar sýningarferöir um álverið. Möguleikhúsið sýnir barnaleikþáttinn Áslákur í Álveri nokkrum sinnum yfir daginn. Kl. 11 og 15 þreyta 7-13 ára krakkar ISAL-míluhlaupið eftir endilöngum kerskála 3, skráning á staðnum. Tónlistaratriði verða fjölmörg, auk Lúðrasveitar Hafnarfjarðar syngur Karlakórinn Stefnir, Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur og Kammerkór Grensáskirkju. Landsmenn eru hvattir til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að koma og skoða atvinnufyrirtæki á borð við álverið, sem alla jafna er ekki opið almenningi. ISAL i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.