Morgunblaðið - 24.05.1997, Blaðsíða 47
I
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. MAÍ1997 47
MYNDIN er tekin á síðasta ári þegar nokkrir meðlimir úr stjórn
félagsins afhentu yfirmönnum deildarinnar vönduð hljómflutn-
ingstæki. F.v. Páll Asmundsson, yfirlæknir blóðskilunardeildar,
Jón Sveinsson ritari, Dagfríður Halldórsdóttir formaður og
Regína Aðalsteinsdóttir, gjaldkeri í stjórn Félags nýrnasjúkra.
Lengst til hægri er Björk Finnbogadóttir, deildarstjóri blóðskil-
unardeildar Landspítala.
Opið hús
1 íStraums-
vík
ISAL og starfsfólk þess býður
landsmönnum í heimsókn í álverið
í Straumsvík sunnudaginn 25. maí
| kl. 10-17.
Undanfarið ár hefur verið mjög
I' annasamt hjá ISAL. Ber þar hæst
stækkun verksmiðjunnar sem kom-
in er á lokastig. Stefnt er að gang-
setningu fyrstu keranna í nýjum
kerskála í júlíbyrjun. Þar sem ekki
er búið að gangsetja nýja kerskál-
ann býðst einstakt tækifæri til að
skoða skálann og fræðast um það
starf sem unnið er í álverinu. Þess
vegna hefur verið ákveðið að halda
upp á þessi tímamót með því að
bjóða til veislu sem er kölluð: Opið
i hús í Straumsvík, segir í fréttatil-
* kynningu.
Margt verður í boði fyrir gesti.
Verksmiðjusvæðið fær hátíðarbrag.
Tívolíleiktæki, leiksýning gerð af
Möguleikhúsinu fyrir börn verður
sýnd margoft yfir daginn, Léttsveit
Kvennakórs Reykjavíkur, Kammer-
kór Grensáskirkju og Karlakórinn
I Stefnir syngja í nýja kerskálanum
og Lúðrahljómsveit Hafnarfjarðar
! spilar.
^ Míluhlaup fyrir börn og unglinga
7-13 ára verður hlaupið tvisvar
yfir daginn ki. 11 og 15 en þá verð-
ur hlaupið fram og til baka eftir
kjallara nýja kerskálans. Gestum
verður boðið á sýningu um ál og
álframleiðslu og að þiggja veiting-
ar. Sérstök kynnisferð verður í
gangi allan daginn um álverið. Þá
! verður ekið í strætisvögnum í gegn-
um kersmiðju, skautsmiðju og
I steypuskála. Gengið verður inn í
j nýja kerskálann og horft inn í ker-
skála í vinnslu. Leiðsögumenn úr
röðum starfsmanna fylgja öllum
hópum.
Álverið í Straumsvík er heill heim-
ur út af fyrir sig sem e.t.v. hefur
verið hulinn fyrir of mörgum hingað
til. Þó gestkvæmt hafi verið í álver-
inu í gegnum árin hefur slíkt tæki-
| færi til þess að skoða innviði álvers-
ins ekki boðist almenningi, þá sér-
* staklega bömum, áður.
Þess má einnig geta að nýverið
staðfesti svissneska vottunarfyrir-
tækið SQS að umhverfisstjómun hjá
ISAL er að öllu leyti í samræmi við
kröfur alþjóðastaðals um umhverfis-
stjórnunarmat, ISO 14001. ISAL er
fyrst íslenskra fyrirtækja til að ná
þessum árangri hér á landi og er
þannig í fararbroddi á vettvangi
| umhverfismála á íslandi. Má því
| mað sanni segja að hér sé komin
enn ein ástæðan til þess að gera sér
’ glaðan dag, segir í fréttatilkynningu.
Gjafir Félags
nýrnasjúkra
FÉLAG nýrnasjúkra fagnaði 10
ára afmæli sínu þann 30. október
á liðnu ári. Félagið er öllum opið
en félagsmenn eru einkum nýrna-
sjúklingar, aðstandendur þeirra
og fólk úr heilbrigðisstéttum sem
hefur áhuga á málefnum nýrna-
sjúkra.
Meðal markmiða félagsins er
að safna fé til styrktar fræðslu-
starfi og bættri þjónustu við
nýrnasjúka og eru helstu tekju-
lindir félagsins sala minningar-
og jólakorta félagsins.
Félagið hefur verið ötull
styrktaraðili blóðskiiunardeild
Landspítalans og gefið deildinni
margar gjafir svo sem blóðskil-
unarvél, meðferðarstóla, mynd-
bandstækki, hljómflutningstæki
og margt fleira auk þess að
styrkja útgáfu fræðslubæklinga
fyrir deildina og viðhaldsmennt-
un starfsfólks. I fréttatilkynningu
þakkar starfsfólk og sjúklingar
blóðskilunardeildar félaginu góða
gjafir á liðnum árum.
Vordagar í
Hafnarfjarðar-
sókn
EFNT verður til Vordaga í Hafnar-
fjarðarsókn fyrir átta ára börn (fædd
1989) frá þriðjudeginum 27. maí til
sunnudagsins 1. júní nk. Vordagamir
eru kristilegt leikjanámskeið þar sem
fram fer kristnidómsfræðsla, föndur,
íþróttir og leikir. Vordagamir em
nánast eins og leikjanámskeið eða
sumarbúðir í þéttbýli, segir í fréttatil-
kynningu.
Vordagamir fara fram í Hafnar-
fjarðarkirkju, safnaðarheimili
Strandbergi og umhverfis það. Að-
standendur Vordaganna em Hafnar-
íjarðarkirkja, Handknattleiksdeild
Hauka og Æskulýðs- og tómstunda-
ráð Hafnarfjarðarbæjar. Ekkert þátt-
tökugjaid er á Vordögunum en for-
eldrar þurfa að nesta bömin fyrir
hvern dag.
Sérstök Vordagarúta mun sjá til
þess að bömin í Setbergs- og Hval-
eyrarhverfum og einnig Öldutúns-
skólahverfi komist til og frá heimili
sínu þessa daga. Hún mun aka frá
Hvaleyrarskóla kl. 8.45, Öldutúns-
skóla kl. 8.50 og Setbergsskóla kl.
8.55 og til skólanna aftur eftir hvern
Vordagsmorgun. En reiknað er með
því að böm í Lækjarskólahverfi þurfi
síður á rútuferð að halda til að kom-
ast í kirkju vegna þess hve þau em
nærri kirkjunni.
Meginefni Vordaganna nú verður
kærleikur og vinátta. Á vordögunum
em börnin til skiptis inni í safnaðar-
heimilinu í kristilegri fræðslu og verk-
efnavinnu og úti í leikjum og íþrótt-
um. Einn daginn verður farið í ferða-
lag. Vordögunum lýkur sunnudaginn
1. júní, sjómannadag, með Guðsþjón-
ustu þar sem Vordagabörnin taka
virkan þátt með söng, lestri texta og
leikrænni tjáningu. Sýning á teikn-
ingum og verkefnum þeirra verður í
Strandbergi og eftir guðsþjónustuna
verður efnt til grillveislu á kirkjuhlað-
inu sem er lokapunktur Vordaganna.
Safna fé til að
styrkja mæðg-
urnar í Neðsta-
leiti 1
FORMAÐUR Hundaræktarfélags
íslands, Guðmundur Helgi Guð-
mundsson, hefur stofnað reikning
í íslandsbanka við Hlemm til styrkt-
ar þeim mæðgum, Kristínu og Dag-
björtu Ingu Olsen, svo þær geti
staðið straum af lögfræðikostnaði
vegna atviksins í Neðstaleiti 1.
Málarekstur þeirra mæðgna hef-
ur nú þegar höggvið stórt skarð í
fjárhag fjölskyldunnar og þessi
reikningur mun aðstoða þær við að
ná fram rétti sínum, segir í fréttatil-
kynningu.
Númer reikningsins er 517-26-
680 og heitir hann HRFÍ vegna
söfnunar. Fjárgæsluaðili söfnunar-
innar er Hundaræktarfélag Islands.
Stuðningur við
vestfirskt
verkafólk
MORGUNBLAÐINU hafa borist eft-
irfarandi ályktanir stjórnar BSRB
og Verkalýðsfélags Húsavíkur:
„Stjórn BSRB sendir launafólki á
Vestfjörðum, sem á í verkfalli, bar-
áttukveðjur og lýsir áhyggjum yfir
því ástandi sem hefur skapast hjá
einstaklingum og fjölskyldum. Það
er löngu tímabært að hækka veru-
lega lægstu laun og með ólíkindum
hve íslenskir atvinnurekendur hafa
staðið gegn réttmætum kröfum iág-
launafólks. Þegar til lengri tíma er
litið er það öllu samfélaginu til tjóns
að bjóða upp á laun sem fólk getur
ekki framfleytt sér á.“
„Fundur haldinn í Verkalýðsfélagi
Húsavíkur, fimmtudaginn 22. maí,
skorar á verkafólk um land allt að
ganga ekki í störf félaga sinna á
Vestíjörðum sem eiga í vinnudeilum
við viðsemjendur sína.
Verkalýðsfélag Húsavíkur mun
ekki líða að landað verði úr vestfirsk-
um togurum á Húsavík, meðan
verkafólk á Vestfjörðum á í vinnu-
deilum.
Þingeyskir verkamenn munu ekki
ganga í störf vestfirskra verka-
manna.“
Fjölskyldukaffi
Siglfirðinga-
félagsins
ÁRLEGT „fjölskyldukaffi“ Siglfirð-
ingafélagsins í Reykjavík og ná-
grenni verður haldið að Kirkjuhvoli
i Garðabæ [safnaðarheimili Vída-
línskirkju] á morgun, sunnudag 25.
maíj og hefst klukkan þijú miðdeg-
is. Á undan kaffisamsætinu verður
guðsþjónunusta í kirkjunni, sem
hefst klukkan tvö. Sr. Bragi Frið-
riksson predikar.
Fræðslufundur
um gróður-
kortagerð
SÍÐASTI fræðslufundur Hins ís-
lenska náttúrufræðifélags á þessari
vorönn verður haldinn mánudaginn
26. maí kl. 20.30. Fundurinn verður
að venju haldinn í stofu 101 í Lög-
bergi, lagadeildarhúsi Háskólans. Á
fundinum flytur Guðmundur Guð-
jónsson, landfræðingur á Náttúru-
fræðistofnun íslands, erindi sem
hann nefnir Gróðurkortagerð.
Kortlagning gróðurs á Islandi
hófst að marki upp úr 1960 á vegum
Rannsóknarstofnunar landbúnaðar-
ins, þá Búnaðardeildar Atvinnudeild-
ar Háskóla íslands. Upphaflegur til-
gangur með gróðurkortagerðinni var
að afla upplýsinga er verða mættu
grunnur að ákvörðun um beitarþol
og nýtingu þeirrar auðlindar sem
gróður og jarðvegur landsins er.
Gróðurkortin sýna fyrst og fremst
gróið land, hvar gróðurinn er, hvern-
ig gróður er um að ræða miðað við
ríkjandi tegundir og hversu mikil
gróðurþekjan er.
Við flutning gróðurkortagerðar-
innar frá RALA til Náttúrufræði-
stofnunar 1995 og vistunar undir
Umhverfisráðuneytinu hafa opnast
ný sóknarfæri í gerð gróðurkorta
af íslandi. Þótt þörfin fyrir gróður-
kort við mat á beitarþoli sé nú minni
en áður vegna minni fjárfjölda og
minnkandi beitarálags sauðfjár, þá
hefur þörfin fyrir gróðurkort líklega
aldrei verið meiri en nú. Gróðurkort
eru nú snar þáttur í gerð skipulagsá-
ætlana og þykja einnig nauðsynleg
við mat á áhrifum mannvirkjagerðar
og annarrar landnotkunar á náttúr-
una. Ofbeitin er enn til staðar, ekki
hvað síst á láglendi vegna hrossabeit-
ar og samkvæmt lögum ber að styðj-
ast við gróðurkort þegar gerð er ít-
ala í beitiland, segir í fréttatilkynn-
ingu. Fræðslufundir félagsins eru öll-
um opnir og aðgangur ókeypis.
Bíóborgin
10 ára
FORTÍÐARSTEMMNINGIN verð-
ur ríkjandi í Sambíóunum á Snorra-
( braut laugardaginn 24. maí. Þá
, verða liðin tíu ár frá því að Sambíó-
in opnuðu þar kvikmyndahúsið Bíó-
borgina, eftir gagngerar endurbæt-
ur og breytingar á hinu sögufræga
Austurbæjarbíói.
I fréttatilkynningu segir: „Bíó-
borgin féll strax í kramið hjá ís-
lenskum kvikmyndahúsagestum
enda voru þar kynntar til sögunnar
ýmsar þær nýjungar sem sjálfsagð-
ar þykja í dag. Nægir þar að nefna
l hið heimsþekkta THX hljóðkerfi
sem nýtur sín svo vel í stóra sal
Bíóborgarinnar, að sérfræðingar
THX fyrirtækisins útnefndu hann
sem einn af bestu kvikmyndasölum
Evrópu. Að auki má svo geta þess
til gamans að það var í Bíóborginni
sem fyrst var boðið upp á heitt og
nýlagað popp í íslensku kvikmynda-
húsi en áður hafði lengi tíðkast að
selja popp í plastpokum."
I tilefni afmælisins verður allar
kvikmyndasýningar þennan dag á
því verði sem gilti á opnunardeginum
fyrir tíu árum. Þá kostaði 250 kr. í
bíó og mun það verð gilda á laugar-
daginn í alla sali á allar sýningar.
Æskulýðssamband kirkjunnar og Reiðskólinn Þyrill kynna
Sutnarúúðir í borq
oq reiðnámskeið
Sumarbúðir í borg
Spennandi og uppbyggjandi námskeið í Árbæjarkirkju
fyrir börn fædd 1988 1989-
Ævintýra- og rannsóknarferðir, söngur, sund o.fl.
1. flokkur 2. júní-13.júní
2. flokkur 16. júní-27. júní
3. flokkur 30. júní—1. júlí
4. flokkur l4.júlí—25. júlí.
Allur dagurinn (kl. 9-16) kostar 5.509.-
Hdlfur dagurinn (kl. 9-13 eða 13-16) kostar 3.000.
Reiðskólinn Þyrill.
Reiðskólinn Þyrill er starfræktur í Reiðhöllinni í
Víðidal á sama tíma og Sumarbúðir í borg. Börnunum
verður fylgt frá Reiðhöllinni að Árbæjarkirkju (og öfugt).
Reiðskólinn er einnig starfræktur
28. júlí-8. ágúst og
11. ágúst—22. ágúst.
Reiðnámskeiðið kostar kr. 13-000,-
Skráning fer fram x Reiðhöllinni í Víðidal í dag kl. 13-18 og
í Hallgrímskirkju dagana 26.-30. maí kl. 10-17 (eða í síma 510-1033).
Sumarbúðirnar í Ölveri
Sumarbúðirnar í Ölveri í Borgarflrði eru fyrir drengi og stúlkur frá sjö ára
aldri. Börnunum er boðið upp á fjöibreyrta útiveru, leiki, íþróttir og
gönguferðir.
Daglega er fræðsla úr Biblíunni og hver dagur endar með kvöldvöku.
1. fl. 2. júní-9. júní drengir kr. 14.600.
2. fl. 9- júnf-13.júnf drengir kr. 10.500.
3. fl. 13.júní-19-júní stúlkur kr. 12.800
4. fl. 19.júní-27.júní stúlkur kr. 16.700
5. fl. 2. júlí-9-júlí stúlkur kr. 14.600
6. fl. 9.júlí-l6.júlx stúlkur kr. 14.600.
7. fl. 16. júlí-23-júlí drengir kr. 14.600.
8. fl. 23-júlí-31.jxilí stúlkur kr. 16.700
9-fl- 6.ágúst-13.ágúst stúlkur kr. 14.600.
Skráning fer fram á skrifstofu KFUM og K í síma 588 8899.
Æskulýðssamband kirkjunar
í Reykjavíkurprófastdæmum.