Morgunblaðið - 24.05.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.05.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Óformlegur leiðtogafundur ESB í Noordwijk Evrópusambandið búið undir kröfur nýrrar aldar Noordwyk. Reuter. LEIÐTOGAR Evrópusambandsins, ESB, komu saman í hollenzka bæn- um Noordwijk í gær til að undirbúa jarðveginn fyrir leiðtogafund ESB í Amsterdam 16.-17. júní næstkom- andi, þar sem til stendur að ljúka ríkjaráðstefnunni svokölluðu og ganga frá endurbótum á stofnsátt- mála sambandsins. Þessar endur- bætur eru nauðsynlegar ekki sízt til að hægt verði að taka ný aðildarríki í hópinn og tryggja að Evrópusam- bandið verði í stakk búið til að tak- ast á við verkefni 21. aldarinnar. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, þreytti á fundinum frum- raun sína á vettvangi ráðherraráðs ESB. Örugg framkoma hans og skýr boðskapur tryggði honum óskipta athygli annarra fundargesta, sem sögðu Blair bera nýtt andrúmsloft að samningaborði leiðtoganna. Á hinum óformlega fundi leiðtoga og utanríkisráðherra Evrópusam- bandsríkjanna fimmtán bar í gær mest á deilum vegna mismunandi hugmynda um breytingar á at- kvæðavægi aðildarríkjanna og á Ijölda meðlima í framkvæmdastjórn ESB þegar að stækkun sambandsins kemur. Engar ákvarðanir voru teknar á fundinum, sem stóð aðeins í hálfan dag. Hollenzka ríkisstjórnin, sem gegnir nú forsæti í ráðherraráði ESB, kallaði til fundarins til að leið- Reuter WIM Kok, forsætisráðherra Hollands (t.v.), hollenzki utanríkisráð- herrann Hans van Mierloo (í miðju) og Jean-Claude Juncker, forsæt- isráðherra Lúxemborgar, hlýða af athygli á boðskap Tonys Blair, sem í gær mætti í fyrsta sinn á leiðtogafund ESB eftir að hann tók við embætti. togarnir gætu skipzt óformlega á skoðunum svo að hægara væri að meta möguleikana á að ná farsælli niðurstöðu á Amsterdam-fundinum eftir þijár vikur. Endurbæturnar á stofnsáttmál- anum miða að því að gera Evrópu- sambandinu fært að hleypa ríkjum eins og Póllandi, Ungveijalandi og Tékklandi inn í raðir sínar á næstu 10 árum og með tímanum alls 10 fyrrverandi kommúnistaríkjum Mið- og Austur-Evrópu auk Möltu, Kýpur og fleiri ríkja sem sótt hafa um að- ild að sambandinu eða munu gera það á næstu árum. Deilt um hugmyndir um breytt valdahlutföll Frakkar og Þjóðverjar viðruðu í gær hugmyndir um að auka at- kvæðavægi stóru ríkjanna innan sambandsins á kostnað hinna smærri. Jacques Chirac Frakklands- HEIMSKYNNING Forbo kynnír nýja linoleum línu sem gildir næstu 5 árin, til ársins 2002. Laugardaginn 24.maí n.k. kl. 14.00 að Síðumúla 14. VERIÐ VELKOMIN! KJARAN GÓLFBÚNAÐUR SlÐUMÚLt 14,108 REYKJAVlK, SlMI 5813022 Umhverfisvæn byggingarlist“ Sydney Taltinn Tokyo Toronto Vancouver ber '97 97 Tseptember '97 12. september '97 30. september '97 2. október '97 5. september '97 10. september '97 4. september '97 Jón Kristinsson, Arkitekt og prófessor flytur erindi um umhverfisvæna byggingariist. ífedb© KROMMENIE http ://w\a w. marmoleum.com forseti hvatti ennfremur til þess að tala meðlima í framkvæmdastjórn- inni yrði minnkuð um helming - úr 20 í 10. Hlutu þessar hugmyndir dræmar viðtökur hjá fulltrúum smærri ríkjanna, sem óttast um áhrif sín ef slíkar hugmyndir næðu fram að ganga. „Við munum tryggja að Evrópa breyti um áherzlur, að Evrópa beini sjónum að þeim hlutum sem skipta mestu máli, eins og atvinna, sam- keppnishæfni, umhverfíð, réttindi neytenda, grundvallaratriði sem al- menning varðar mest um,“ sagði Tony Blair við komu sína til No- ordwijk. Þeim jákvæðu orðum sem hann lét falla um evrópsku samrunaþró- unina var vel tekið af öðrum leiðtog- um á fundinum, en hann tók einnig skýrt fram að það væri ekki á dag- skrá að gefa neitt eftir af yfirráðum Breta yfir landamærum eyríkisins. Ný stjórn Verkamannaflokksins undir forsæti Blairs hefur lýst yfir breyttri stefnu gagnvart samstarfí Bretlands innan Evrópusambands- ins, sem á að vera uppbyggilegri en sú stefna sem stjórn Ihaldsflokksins fylgdi og mörgum samstarfslöndum þótti spilla fyrir þróun sambandsins. Á þetta mun sannarlega reyna þegar að því kemur að semja endanlega um endurbæturnar á stofnsáttmá- lanum. Reuter Átök á síðasta degi kosninga- baráttu Réttarhöldin vegna sprengju- tilræðisins í Oklahoma Komið að máls- vörn McVeighs Denver. Reuter SAKSÓKNARI hefur nú lokið málflutningi sínum við réttar- höldin í Denver í Bandaríkjunum vegna sprengingarinnar í alrík- isbyggingunni í Oklahoma City árið 1995. Eini sakbomingur réttarhaldanna er Timothy McVeigh, hægri öfgamaður sem saksóknari segir hafa skipulagt og framkvæmt tilræðið í hefnd- arskyni gegn alríkislögreglunni. Samkvæmt vitnisburði systur McVeighs var hann æfur vegna framgangs lögreglunnar, er 80 manns létust eftir umsátur um sértrúarsöfnuð í Waco í Texas árið 1993. ásökun sína um alþjóðlegt sam- særi heldur lagt áherslu á léleg vinnubrögð rannsóknaraðila svo og það að ákæruvaldinu hafi mistekist að sanna að McVeigh hafí verið í Oklahoma umrædd- an dag. Þannig treystir t.d. kon- an, sem afhenti bifreiðina, sér ekki til að segja til um hvort McVeigh sé umræddur Kling. Óvissa um sendiferðabílinn Neitar sakargiftum McVeigh, sem er 29 ára og fyrrum hermaður úr Persaflóa- stríðinu, hefur neitað sakargift- um en verði hann fundinn sekur eru mestar líkur á að hann hljóti dauðadóm. Sprengjunni var komið fyrir í sendibifreið sem lagt var í Alfred P. Murrah alríkisbygg- ingunni í Oklahoma 19. apríl 1995. Kenning ákæruvaldsins er sú að tvéimur dögum fyrir tilræðið hafí McVeigh, sem nefndi sig Robert Kling, tekið sendiferðabifreið á leigu ásamt öðrum manni. Hann hafi síðan skilið hana eftir hlaðna sprengi- efni í byggingunni og þannig orsakað sprenginguna sem varð 168 manns að bana. Veijendur McVeighs hófu málsvörn sína á fimmtudag. Þeir hafa ekki endurtekið fyrri Sendill, sem kom á hótelher- bergið þar sem saksóknari segir McVeigh hafa dvalið, segir að- eins einn mann hafa verið í her- berginu ogjþað hafi ekki verið McVeigh. Önnur vitni segjast hafa séð sendiferðabíl, eins og þann sem McVeigh á að hafa tekið á leigu, utan við hótelið þremur dögum fyrir sprenging- unna, þ.e. áður en McVeigh á að hafa leigt bílinn. Veijendur hafa einnig lagt áherslu á vinstri fót, sem ekki hafa verið borin kennsl á og fannst í rústum byggingarinnar. Leiða þeir rök að því að hann hafí verið af óþekktum tilræðis- manni. Verjendur í vanda? Sérfræðingar segja vörnina ótrúverðuga. „Það er nú að koma í ljós hversu sterkt mál saksóknara er og það er ljóst eftir fyrsta dag varnarinnar að henni muni reynast mjög erfitt að sannfæra kviðdóminn um nokkurn hlut,“ sagði David Japha réttarsérfræðingur. UNGUR stuðningsmaður Samein- aða Framfaraflokksins (PPP) í Indónesíu veifar flokksfánanum á hlaupum fram hjá brennandi hjólbörðum í miðborg höfuðborg- arinnar Djakarta í gær. Hópum stuðningsmanna andstæðra stjórnmálafylkinga lenti saman í ofbeldisfullum óeirðum á síðasta degi kosningabaráttunnar í land- inu, en þingkosningar fara þar fram hinn 29. þessa mánaðar. Samkvæmt indónesískum kosn- ingalögum lýkur kosningabar- áttu fimm dögum fyrir kosningar og er sá tími ætlaður til að „kæla kjósendur niður“ áður en þeir ganga að kjörborðinu. f b L § » I r f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.