Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Þorvaldur V. Guðmundsson, lækningaforstjóri Hjálp fyrir börn með geðræn vandamál of lítil ÞORVALDUR Veigar Guðmunds- son, lækningaforstjóri Landspítal- ans, segir upplýsingar aðstoðar- manns heilbrigðisráðherra þess efn- is að óánægja ríki hjá yfirmönnum sjúkrahússins með afköst Barna- og unglingageðdeildar ekki vera frá þeim komnar. Hann segir hjálp fyr- ir börn með geðræn vandamál vera of litla í þjóðfélaginu. Að sögn Þorvaldar hafa ýmiss konar vandamál verið á deildinni í nokkum tíma. „Fyrir 2 árum komu hingað tveir sænskir sérfræðingar og gerðu úttekt á starfsemi deildar- innar. Það er byijað að vinna eftir ábendingum þeirra, sumt hefur komist til framkvæmdar en annað ekki og kannski hefur það gengið hægar en við vonuðumst til,“ segir Þorvaldur. „Það er ljóst að vanda- mál geðveilla barna hafa verið mik- il og ráðuneytið hefur lagt til aukið fjármagn svo auka megi starfsemi deildarinnar." Hann segir aukningu hafa orðið á viðtölum göngudeildarinnar milli áranna 1995 og ’96. „Vandamálin eru mikil og hafa verið mikil og ég hef haldið því fram að það sé ekki síður vegna of lítillar hjálpar við geðveil börn úti í þjóðfélaginu og vegna mála sem hægt ætti að vera að leysa utan sjúkradeildar en hefur verið vísað heilmikið til okkar,“ seg- ir Þorvaldur. „Það gætir einhvers misskilnings í orðum aðstoðarmanns ráðherra. Við höfum verið að fara yfir mál- efni Barna- og unglingageðdeildar með yfirlækni og sviðsstjóra deild- arinnar og leitað að því sem helst mætti gera til að bæta deildina frek- ar. Af samtölum er ljóst að það verður að auka geð- og sálfræði- hjálp,“ segir Þorvaldur. Landakotsskóli 100 ára Afmælisdagskrá um helgina ÞESS verður minnst með hátíðar- dagskrá í dag og á morgun að 100 ár eru liðin frá stofnun Landakots- skóla í Reykjavík. Dagskráin hefst með athöfn í Kristskirkju klukkan 15 í dag. Þar verður tónlistarflutningur, ritninga- lestur, bæn og ávörp verða flutt. Klukkan 15:45 hefst dagskrá í sam- komutjaldi. Að því búnu verður gestum boðið að ganga í skólann og skoða sýningar um starf hans. Á sunnudag hefst dagskráin kl. 15:30 með skrúðgöngu úr skóla í kirkju, ef veður leyfir. Þar verður stutt bænastund og að henni lok- inni hefst dagskrá í samkomutjald- inu. Heiðarbær - einbýli Vorum að fá í sölu í Árbæjahverfi, 144 fm einbýlishús ásamt 40 fm bílskúr. Húsið skiptist í 2 stofur, ágætt eldhús m. þvottahúsi og búri innaf. 3 svefnherb. á sérgangi ásamt baðherb. Einnig 20 fm vinnuherb. Stór lóð m. suðurverönd. Friðsælt hverfi. Verð 13,5 millj. jm Opið í dag kl. 12.00-14.00 Séreign - fasteignasala, Skólavörðustíg 38A, sími 552 9077. Til sýnis og sölu m.a. eigna: Úrvalsíbúð - lyftuhús - Garðabær Eign í sérflokki 4ra herb. 110 fm á 6. hæö í lyftuh. Suðuríbúð með tvennum svölum. Húsvörður. Frábært útsýni. Vinsæll staður. Tilboð óskast. Gott einbýlishús í Kópavogi Vel byggt steinh. hæð 141,2 fm nettó auk geymslu m.m. Góður bílskúr 33,6 fm. Ræktuð lóð. Sólverönd. Heitur pottur. Tilboð óskast. Reykjavík - Hafnarfj. - hagkvæm skipti Glæsilegt nýlegt einbýlishús á útsýnisstað í noröurbænum í Hafnarfirði. Stór bílskúr. Skipti mögul. á 4ra herb. hæð með bílskúr í gamla austurbænum eða í Hlíðunum. Fleira kemur til greina. Útborgun aðeins kr. 500 þús. Ný endurbyggð 2ja herb. risíb. skammt frá Sundhöll Reykjavíkur. Nýtt eldhús. Nýtt sturtubað með sérþvottaaðst. Leiðslur og lagnir í húsinu eru nýjar. Viltu skipti? Leitum að góðri 3ja herb. íbúð. Skipti möguleg á stórri og góðri 4ra herb. íbúð á vinsælum stað í Árbæjarhverfi. Mikil og góð lán fylgja. • • • Opið í dag kl. 10-14. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Margskonar hagkvæm eignaskipti. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370 FRÉTTIR Mor^unblaðið/Þorkell REYKJAVÍKURBORG hefur kynnt stefnumótun sína í ferðaþjónustu til ársins 2002. A myndinni eru Helga Jónsdóttir borgarritari, Helgi Pétursson varaformaður atvinnu- og ferðamálanefndar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Þórólfur Árnason formaður verkefnisstjórnar, Anna Margrét Guðjónsdóttir ferðamálafulltrúi Reykjavíkurborgar og verkefnissfjóri, og Sævar Kristins- son ráðgjafi frá Iðntæknistofnun. Stefnumótun Reykjavíkurborgar í ferðaþjónustu Serstaðan felst í ná- lægð við náttúruna INGIBJORG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri kynnti í gær stefnu- mótun Reykjavíkurborgar í ferða- þjónustu til næstu fimm ára. Stefnt er að því að árið 2002 verði Reykja- vík þekkt sem hreinasta höfuðborg Evrópu með stórbrotna náttúru og útivistarmöguleika á næsta leiti og sem áhugaverður áfangastaður innlendra og erlendra ferðamanna allt árið um kring. í niðurstöðum verkefnisstjómar kemur fram að kynningar- og markaðsstarf þurfi að efla með því að sameina krafta borgarkerfisins og aðila í ferðaþjónustu. Áhersla er lögð á að sérstaða Reykjavíkur meðal höfuðborga felist í nálægð við útivistarsvæði og óspilltrar náttúru og í ijósi þess verður slag- orðið „Reykjavík - next door to nature“ notað til kynningar á ensku. Lagt er til að komið verði á fót miðstöð til kynningar á náttúruleg- um orkugjöfum ogjarðfræði lands- ins og að ferðamannaverslun verði efld, m.a. með lengingu afgreiðslu- tíma að sumarlagi og markvissri þjálfun verslunarfólks. Þá er stefnt að því að tekjur af ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu aukist um 10% á ári næstu fimm ár, úr 10,7 milljörðum kr. árið 1996 í 17,3 milljarða kr. árið 2002. Verð á bjór og léttvínum þarf að lækka Markaðssetning og uppbygging Reykjavíkur og nágrennis skal mið- ast við að auka afþreyingarmögu- leika fyrir ferðamenn og að styðja listsköpun og menningarstarf. Menningarnóttina í Reykjavík og fleiri slíka atburði á að efla og nota sem aðdráttarafl á ferðamenn. Fram kemur að miklir möguleikar séu á að kynna fjölbreytt skemmt- analíf í miðborg Reykjavíkur utan háannatíma, en bent er á að verð á bjór og léttvínum á veitingahús- um þurfí að lækka verulega, enda hiki skipuleggjendur ráðstefna og hópferða við að stefna viðskiptavin- um sínum á staði þar sem slíkar neysluvörur séu dýrar. Verkefnisstjórn var skipuð fag- fólki í ferðaþjónustu og á öðrum sviðum þjóðfélagsins, auk rekstrar- aðila innan borgarkerfisins. Þórólf- ur Ámason, framkvæmdastjóri markaðssviðs Olíufélagsins hf. ESSO, var formaður verkefnis- stjórnar, en verkefnisstjóri var Anna Margrét Guðjónsdóttir, ferðamálafulltrúi Reykjavíkurborg- ar. Iðntæknistofnun sá um faglega ráðgjöf og sinntu Óskar B. Hauks- son og Sævar Kristinsson því starfi. Sniglar og lögregla funda SNIGLARNIR, Bifhjólasamtök lýðveldisins, héldu sinn árlega vorfund í vikunni. Meðlimir fjöl- menntu á fundinn, en á honum voru samskipti bifhjólamanna og lögreglu, umferðarslys á mótorhjólum, tryggingamál og átaksverkefni samtakanna til umræðu. Á fundinum var m.a. rætt um aksturslag og þau áhrif sem bif- hjólafólk getur haft á viðhorf almennings gagnvart því, nauð- syn þess að virða reglur um ökuhraða, hávaðamengun að kvöld- og næturlagi, akstur fram með röð kyrrstæðra öku- tækja við gatnamót, stöður bif- hjóla og nauðsyn góðs sam- starfs. Siglamir samþykktu að leggja sitt af mörkum svo um- ferðin mánudaginn 26. maí næstkomandi megi hvarvetna verða innan leyfilegra hámarks- hraðamarka, auk þess sem sam- tökunum var hrósað fyrir áhuga þeirra, frumkvæði og fram- göngu í umferðarslysavörnum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki síst fyrir til- stuðlan Snigla að alvarlegri umferðarslysum þar sem bif- hjólafólk kemur við sögu hafi fækkað um helming á nokkrum árum. Morgunblaðið/Þorkell FULLTRUAR lögreglunnar, Ómar Smári Armannsson og Hjálm- ar Björgvinsson, ræddu við nokkra meðlimi Sniglanna á fund- inum og skoðuðu m.a. Harley Davidson-vélhjól, árgerð '67, fyrr- verandi lögreglubifhjól, sem nú er í einkaeign. Ökuskóli Audi á Reykjavíkurflugvelli ÖKUSKÓLl þýska bílaframleiðand- ans Audi kemur til íslands með námskeið fyrir ökumenn. Ökuskól- inn er starfræktur m.a. í Sviss, Austurríki og Finnlandi og verður hluti af stærra námskeiði sett upp á Reykjavíkurflugvelli. Audi kemur með fimm bíla til þessara nota til landsins, þ.e. tvo Audi A4, tvo Audi 8 og einn Audi A6. Fjórir kennarar koma að utan. Námskeiðið byrjar 26. maí næst- komandi. Hekia hf., umboðsaðili Audi, hefur fengið athafnasvæði á einu horni flugvallarsvæðisins næst Landspítalanum. Stiklað verður á helstu þáttum námskeiðsins, sem getur tekið nokkra daga að ljúka, en hér verður hvert námskeið í hálfan dag. Námskeiðið stendur út alla næstu viku og taka tíu hópar þátt í því, tveir á dag. Þátttakendur verða að hluta til viðskiptavinir Heklu hf. en einnig sjúkraflutningamenn og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.