Morgunblaðið - 24.05.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 11
IIAND.
kK\M
Hudosií hjúkrar húðinni
Ótúlegurdrang^
«- á* iHwfo*
HUD
. -- SALVA
Notað daglega á spítölum. Útsölustaðir: Apótek Ausmrbæjar, Garðabæjar,
Viðurkennt af húðlæknum. Laugavegs, Borgamess, Egilsstaða og Lyfju, Ingólfeapótek,
Frábeert verð. Apótek Skeifunni og psoriasis-samtökin.
Dreifing: T.H. Arason sf. Fax/sími 554 5748.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
LJÓSMYNDIN Vorkvöld við
Skagafjörð er á sýningu
fréttaritara.
Myndir
fréttaritara
á Selfossi
SÝNING með ljósmyndum frétta-
ritara Morgunblaðsins verður
opnuð í verslunarmiðstöðinni
Kjarnanum á Selfossi í dag.
Fyrr á þessu ári var efnt til
samkeppni um bestu ljósmyndir
fréttaritara Morgunblaðsins frá
árunum 1995 og 1996.26 bestu
myndimar að mati dómnefndar
voru verðlaunaðar og hafa verið
þennan mánuð hafðar til sýnis í
anddyri Morgunblaðshússins í
Kringlunni 1.
Ákveðið hefur verið að hengja
myndirnar upp á nokkrum stöð-
um á landsbyggðinni 1 sumar og
er verslunarmiðstöðin Kjarninn
á Selfossi fyrsti viðkomustaður-
inn. Sýningin verður á Selfossi
til 7. júní en verður þá flutt í
Víkurskála í Mýrdal. Á báðum
stöðum er myndasýningin í sam-
vinnu við KÁ á Suðurlandi.
------♦.♦■■■«---
Afmælis-
dagskrá á
Egilsstöðum
FIMMTÍU ár eru í dag liðin frá
því að lög um stofnun Egilsstaða-
kauptúns voru samþykkt á Alþingi
og tíu ár frá því Egilsstaðabær
fékk bæjarréttindi. Þessara at-
burða verður minnst á Egilsstöðum
í dag og á morgun.
Egilsstaðabúa minnast afmælis
sveitarfélagsins með ýmsum hætti
allt afmælisárið og ná hátíðahöldin
hámarki í lok næsta mánaðar þeg-
ar raunverulegur afmælisdagur
nálgast.
Dagskráin í dag verður í Hótel
Valaskjálf og hefst klukkan 14.
Við athöfnina afhendir sögunefnd
sögu Egilsstaða sem Björn Vigfús-
son hefur ritað og kemur bókin út
í dag. Á morgun verður opnuð
sýning í Safnahúsinu kl. 14; ljós-
myndasýning á Bókasafni Hér-
aðsbúa, sýning á 50 ára gömlum
skjölum í Héraðsskjalasafni og
sýning á tækjum og áhöldum Þor-
steins Sigurðssonar, héraðslæknis
á Minjasafninu.
------» ♦ ♦-----
Óká 171
km hraða
ÖKUMANNI sem var á ferð á
Eyrarbakkavegi seint í fyrrakvöld
virðist hafa legið mikið á, því hann
ók á 171 km hraða.
Ökuferðin fékk þó snöggan endi,
þar sem lögreglan í Árnessýslu
stöðvaði manninn og færði hann á
lögreglustöð, þar sem hann var
sviptur ökuleyfi.
fimmtudag til sunnudags
Blandaðir litir