Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 15
LANDIÐ
Hvítasunnumót Sjóstangveiðifélags Vestmannaeyja
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ÓLAFUR Ólafsson, SJÓR, sem er 73 ára, tók
þátt í Hvítasunnumóti SJÓVE í 18. skipti í röð.
LANDAÐ úr sjóstangveiðibátunum á Binna-
bryggju í Vestmannaeyjum.
Þokkalegnr afli þrátt
fyrir austan brælu
Vestmannaeyjum - Árlegt Hvíta-
sunnumót Sjóstangveiðifélags
Vestmannaeyja, SJÓVE, var hald-
ið í Eyjum um helgina. Mótið var
jafnframt 35 ára afmælismót fé-
lagsins og var því sérstaklega
vandað til undirbúnings og dag-
skrár fyrir mótið. 35 þátttakendur
voru í mótinu, víðsvegar að af
landinu, en fjöldi þátttakenda var
með fæsta móti og olli mótshöld-
urum talsverðum vonbrigðum.
Mótið var sett á föstudagskvöld
en keppnin fór fram á laugardag
og sunnudag. Veðrið setti mark
sitt á mótið en stíf austanátt var
í Eyjum um helgina. Þrátt fyrir
það var afli sæmilegur því heildar-
afli mótsins var 6.339 kíló og
heildarverðmæti aflans nam
363.657 krónum.
í lokahófi sem haldið var á
sunnudagskvöld var afhentur
fjöldi verðlauna fyrir mótið. Afla-
hæstir karla urðu Hafþór Gunn-
arsson, SJÓAK, með 382,35 kíló,
Ólafur Tryggvason, SJÓVE, með
299,35 kíló, og Hörður Þórhalls-
son, SJÓNES, með 298 kíló. Elín-
borg Bernódusdóttir, SJÓVE, varð
aflahæst kvenna með 206,25 kíió.
Katrín Gísladóttir, SJÓVE, varð
næst með 175,60 kíló og þriðja
varð Guðrún Snæbjörnsdóttir,
SJÓVE, með 124,45 kíló. í sveita-
keppni karla sigraði sveit Bjarka
Arngrímssonar, SJÓAK, með
978,50 kíló en í sveitakeppni
kvenna sigraði sveit_ Guðrúnar
Snæbjörnsdóttur, SJÓVE, með
506,30 kíló. Aflahæsti bátur á
hveija stöng varð Gustur með
315,54 kíló á stöng en Pétur
Árnmarsson var skipstjóri á bátn-
um.
Stærsta físk mótsins, 9,25 kílóa
þorsk, dró Geir Björnsson, SJÓVE,
en flesta fiska dró Hafþór Gunn-
arsson, SJÓAK, 224 talsins. Flest-
ar tegundir drógu Sigurður Ein-
arsson, SJÓVE, Árni Karl Inga-
son, SJÓVE, og Sigurður Hlöð-
versson, SJÓVE, sem allir drógu
7 tegundir en Sigurður Einarsson
var með mesta meðalþyngd á afla
sínum 1,93 kíló.
Stærsti þorskurinn
nær 10 kíló
Verðlaun fyrir stærstu fiska af
hverri tegund hlutu Geir Björns-
son, SJÓVE, fyrir 9,25 kílóa þorsk,
Sigurður Hlöðversson, SJÓVE,
fyrir 2,4 kílóa ýsu, Sigurður Gunn-
arsson, SJÓVE, fyrir 5,85 kílóa
ufsa, Magnús Ingólfsson, SJÓAK,
fyrir 2,3 kílóa löngu, Sigurður
Einarsson, SJÓVE, fyrir 7,65 kílóa
keilu, Katrín Gísladóttir, SJÓVE,
fyrir 4,6 kílóa steinbít, Magnús
Ingólfsson, SJÓAK, fyrir 1,45
kílóa karfa, Helgi Magnússon,
SJÓSIGL, fyrir 1,45 kílóa lýsu,
Friðleifur Stefánsson, SJÓR, fyrir
2,9 kílóa lúðu og Einar B. Einars-
son, SJÓVE, fyrir 0,35 kílóa síld.
Þrátt fyrir erfítt veður heppn-
aðist mótið vel og voru þátttakend-
ur og mótshaldarar ánægðir með
vel heppnað Hvítasunnumót
SJÓVE á 35 ára afmælinu.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
YFIR hundrað konur tóku þátt í árleguin reiðtúr rangæskra kvenna.
Hellu - Það er orðinn árviss við-
burður að rangæskar konur fari
í sameiginlegan reiðtúr í sumar-
byijun. Nú sem fyrr var fjöl-
menni og komu konur úr allri
sýslunni til að skemmta sér sam-
an eina kvöldstund.
Lagt var upp frá hesthúsa-
hverfunum á Hellu og Hvolsvelli
og riðið sem leið liggur að golf-
Saman í
reiðtúr
skálanum á Strönd, sem er miðja
vegu milli þorpanna tveggja. Á
annað hundrað konur snæddu
þar kvöldverð og síðan var dans-
að og sungið við harmonikkuleik
fram eftir kvöldi. Margar kvenn-
anna fara ekki á hestbak í annan
tíma en stemmningin er einstök
og að sjálfsögðu ekkert kyn-
slóðabil. Nú sem endranær fór
allt vel fram og það voru kátar
konur sem riðu út í bjart vor-
kvöldið heim á leið.
Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir
FRÁ opnun félagsmiðstöðvar eldri borgara á Vopnafirði.
Félagsmiðstöð aldr-
aðra tekin í notkun
Vopnafirði - Það var margt um
manninn þegar Vopnafjarðarhrepp-
ur tók í notkun félagsmiðstöð aldr-
aðra í Sundabúð á Vopnafirði fyrir
skömmu.
Félagsmiðstöðin er öll hin glæsi-
legasta og mun án efa koma að
góðum notum í framtíðinni. Óhætt
er að segja að með þessu framtaki
er öldruðum veitt svigrúm til tóm-
stundaiðkunar og annarrar afþrey-
ingar sem ekki hefur verið fyrir
hendi fyrr.
Félagsmiðstöðin er um 150 fm
að stærð, þar á meðal fundarsalur
með öflugu hljóðkerfi, sem Félag
aldraðra hefur fjármagnað ásamt
húsgögnum í miðstöðina.
Búðirnar
fjarlægðar
Flateyri - Um þessar mundir
eru staddir hérna á Flateyri
starfsmenn á vegum Lands-
virkjunar við að fjarlægja
búðirnar sem Landsvirkjun
lánaði Flateyringum eftir
snjóflóðið á sínum tíma. Búðir
þessar hefur Fiskvinnslan
Kambur notað undir starfs-
menn frystihússins og hafa
hátt í 30 manns búið þar í einu
þegar mest var. Til stendur að
flytja búðirnar að Kröflu þar
sem Landsvirkjun stendur í
framkvæmdum um þessar
mundir.
TIL SÖLU
Þetta fyrrum glæsilega hús
við Hafnarstræti 29, Akureyri,
er til sölu. Tilboð óskast í
tvær neðri hæðirnar ásamt
eignarlóð.
Húsið þarfnast viðgerðar að
utan, en hæðirnar eru taisvert
endurnýjaðar.
Upplýsingar á:
Fasteignasölunni
Eignakjör,
sími 462 6441,
fax 461 1444.
Sævar Jónatansson.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Sumarið
er komið
Falleg sumarblóm,
matjurtir, skrautrunnar
og rósir, jjölœr blóm og
skógarplöntur, pottablóm
í sólstofur og sólskála.
Opiðfrá kl. 09-20
virka daga,
kl. 10-18 laugard.
og sunnud.
Ver ið velko
rtomtn.
Garöyrkjustsööin
GRÍSARÁ
Eyjafjarðarsveit
Sími 463 1129 Fax 463 1322
Heimasiða: http:www.nett.is/grisar
póstfang: grisara@nett.is