Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Samningar í höfn um sölu á 51% hlutaffár Skýrr
Tilboði Opinna
kerfa hf. tekið
EIGENDUR Skýrr hf., ríkissjóður,
Reykjavíkurborg og Rafmagns-
veita Reykjavíkur hafa ákveðið að
taka tilboði Opinna kerfa hf. í 51%
hlutafjár í fyrirtækinu. Tilboðið
hljóðaði upp á 161,6 milljónir
króna og miðast við staðgreiðslu,
en aðeins var gefinn kostur á slík-
um tilboðum í hlutafjársölunni.
Nafnverð hlutafjárins er 102
milljónir króna og verða bréfin því
seld á genginu 1,58. Ríkissjóður
selur 50% af hiutnum eða 51 millj-
ón og Reykjavíkurborg og Raf-
magnsveitan hvor sín 25% eða
25,5 milljónir hvor aðili. Um síð-
ustu áramót keyptu starfsmenn
Skýrr 5% hlut í félaginu, þannig
að seljendur halda eftir um 44%.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um sölu á því hlutafé.
Tvö önnur og lægri tilboð bár-
ust í bréfin. Sameiginlegt tilboð
barst frá Kögun hf., Nýherja hf.
og Olíufélaginu að fjárhæð 150,8
milljónir. Þá barst ennfremur tilboð
frá Tölvumyndum hf., Hlutabréfa-
sjóðnum hf. og Vaxtarsjóðnum hf.
að íjárhæð 145 milljónir. Opin kerfi
hf. er umboðsaðili bandaríska
tölvufyrirtækisins Hewlett Pacard
hér á landi. Staða fyrirtækisins
hefur styrkst mjög á undanförnum
árum. A síðasta ári jókst veltan
um 50% og sömuleiðis varð met-
hagnaður af rekstrinum eða að
fjárhæð 86 milljónir. Stærstu hlut-
hafar eru Þróunarfélag íslands
með 36,7%, Frosti Bergsson fram-
kvæmdastjóri með 30,5% og
Pharmaco með 19,5%.
Mörg sóknarfæri hjá Skýrr
„Við teljum að Skýrr sé þekking-
arfyrirtæki,“ sagði Frosti í samtali
við Morgunblaðið. „Annars vegar
er þar mjög stór og öflug hugbún-
aðardeild og hins vegar rekstur á
landskerfum. Við þekkjum nokkuð
til fýrirtækisins, en ætlum að gefa
okkur nokkurn tíma til að yfirfara
áætlanir þess. Við sjáum mjög
mörg sóknarfæri hjá Skýrr og lít-
um svo á að þessi fjárfesting muni
einnig skila hluthöfum í Opnum
kerfum góðri ávöxtun. Skýrr er
Frá undirritun samninga. F.v. eru þau Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarsljóri, Frosti Bergs-
son, framkvæmdastjóri Opinna kerfa hf., Sindri Sindrason, fram-
kvæmdastjóri Pharmaco hf. og Hreinn Jakobsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarfélags íslands hf.
með hefðbunda þjónustu við ríki
og borg. Við vonumst til að geta
boðið enn betri þjónustu í framtíð-
inni og nýjungar í þjónustu."
Aðspurður um hvort vænta
mætti breytinga á starfsmanna-
haldi Skýrr í kjölfarið sagði Frosti
of snemmt að segja nokkuð til um
það. „Við viljum hafa gott samráð
við starfsfólkið. Það á eftir að
halda hluthafafund sem mun kjósa
nýja stjórn. Ég á von á því að fund-
urinn verði haldinn eftir u.þ.b. tíu
daga.“
Ráðinn yfir-
maðurhjá
Norðuráli hf.
• ÞÓRÐUR S. Óskarsson, sem
undanfarin ár hefur verið fram-
kvæmdastjóri KPMG Sinnu ehf.,
mun taka við starfi sem yfirmaður
starfsmanna- og
stjórnunarsviðs
Norðuráls hf. frá
og með 1. júní nk.
Norðurál hf. er ný-
stofnað fyrirtæki í
eigu Columbia
Ventures Corpor-
ation, og hefur
Norðurál þegar
hafið byggingu 60 þúsund tonna
álvers á Grundartanga í Hvalfirði.
Þórður S. Óskarsson lauk M.Sc.-
prófi 1982 í iðnaðar- og skipulags-
sálfræði frá Stevens Institute of
Technology í New Jersey í Banda-
ríkjunum og árið 1984 lauk hann
doktorsprófi (ph.D.) í hagnýtri sál-
fræði og rannsóknum frá Hofstra
University í New York. Þórður starf-
aði sem sérfræðingur í stjórnunar-
og starfsmannamálum, m.a. hjá
Pitney Bowes Corporation, Samein-
uðu þjóðunum, New York-borg og
við ráðgjafarstörf í Bandaríkjunum
frá 1979 til 1988. Hann var starfs-
mannastjóri KPMG Sinnu ehf., ráð-
gjafarfyrirtækis á sviði rekstrar og
stjórnunar, frá árinu 1992.
Þórður er kvæntur Hönnu D.
Birgisdóttur og eiga þau tvö börn.
Félag íslenskra stórkaupmanna víkkar út starfsemina
Smásölum boðin aðild að nýjum
samtökum verslunarinnar
Utanríkisráðherra biður stórkaupmenn afsökunar á bréfi Fríhafnarforstjóra
Morgunblaðið/Þorkell
FJÖLMENNI sat aðalfund Félags íslenskra stórkaupmanna
sem haldinn var í gær.
Metsala á
norskum
eldislaxi
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly.
NORSKAR fiskeldisstöðvar hafa
aldrei selt eins mikið af laxi til út-
landa og nú. Vegna lægra verðs
hefur útflutningsverðmætið þó ekki
aukizt eins mikið og magnið að
sögn Aftenposten.
Aukningin nemur 18,7%
Á tímabilinu janúar til apríl jókst
útflutningur á laxi um 18,7% miðað
við sama tíma í fyrra. Útflutnings-
verðmætið jókst á sama tíma um
12,3 af hundraði.
Alls voru flutt út 75.000 tonn
af laxi á fjórum fyrstu mánuðum
ársins. Verðmætið nam alls 23 millj-
örðum íslenzkra króna samkvæmt
opinberum norskum tölum.
Verður refsitollur
lagður á norskan lax?
Á undanförnum þremur vikum
hefur verð á nýjum laxi hækkað
um þrjá af hundraði. Norskir fram-
leiðendur eru yfirleitt ánægðir með
verðlagsþróunina, en bíða að sjálf-
sögðu spenntir eftir niðurstöðu
stjórnar Efnahagssambandsins í
svokölluðu laxamáli í næstu viku.
í versta falli verður rúmlega 14%
refsitollur lag;ður á útflutning Norð-
manna á laxi.
DAI-ICHI KANGYO Bank Ltd í
Japan hefur tilkynnt að æðsti yfir-
maður bankans og formaður
bankaráðs muni segja af sér til að
taka á sig ábyrgðina á fjárkúg-
unarhneyksli, sem hefur þegar leitt
til þess að tveir yfirmenn stærsta
verðbréfafyrirtækis Japana hafa
orðið að láta af störfum.
DKB, sem er einn fremsti banki
Japans, sagði að Katsuhiko Kondo
aðalbankastjóri mundi víkja fyrir
Ichiro Fujita, núverandi vara-
bankastjóra. Annar varabanka-
stjóri, Yoshiharu Mani, tekur við
af núverandi bankaráðsformanni,
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra hefur beðið stórkaup-
menn afsökunar fyrir hönd ráðu-
neytisins á bréfi, sem Guðmundur
Karl Jónsson, forstjóri Fríhafnar-
innar á Keflavíkurflugvelli, sendi
innflytjendum iimvatns og snyrti-
vöru. Ráðherra sagðist hafa lesið
bréfið og í því kæmi fram skæting-
ur, sem væri óafsakanlegur. Þetta
kom fram á aðalfundi Félags ís-
lenskra stórkaupmanna (FÍS), sem
haldinn var í gær. Á fundinum var
skipulagi félagsins breytt og starf-
semi þess víkkuð út þannig að nú
stendur fyrirtækjum í smásölu til
boða að taka þátt í starfi þess.
Ilmvatnskynningar
afturkallaðar
Með umræddu bréfi forstjór Frí-
hafnarinnar voru allar kynningar
á ilmvatni og snyrtivörum, sem eru
á vegum innflytjenda, afturkallað-
ar og sagt að þær yrðu ekki tekn-
ar upp aftur að óbreyttu. í bréfinu
Tadashi Okuda. Yfirmennirnir
segja af sér til að láta í ljós iðrun
vegna tengsla bankans við svokall-
aðan sokaiya, það er mann sem
er grunaður um að kúga fé út úr
fyrirtækjum og þegið hefur mútur
frá verðbréfafyrirtækinu Nomura
Securities Co Ltd.
Hreinsunarherferð
Hneykslismál þetta kemur upp
á sama tíma og ríkisstjórn Ryutaro
Hashimoto forsætisráðherra hefur
hrint af stað baráttu fyrir því að
hreinsað verði til í fyrirtækjum
áður en höft verða afnumin á fjár-
segir Guðmundur að kynning á
nýjum vörum hafi þróast út í beina
sölumennsku umboðsaðila með
beinum afskiptum af sölukerfi og
stjórnun starfsmanna Fríhafnar-
innar. Það sem innflytjendur kalli
kynningar hafi verið misnotað á
þann hátt sem frekast megi vera
og dæmi hafi verið um að sprautað
hafi verið á konur, sem gengu fram
hjá kynningarborði. Skrifað er að
ágangurinn og vitleysan til að
komast í þessar kynningar hafi
verið með slíkum fádæmum að
varla sé vinnufriður í fyrirtækinu.
Bréfið var lesið upp á aðal-
fundinum í gær en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
það valdið mikilli reiði meðal inn-
flytjenda umræddra vörutegunda.
Útvíkkun starfsemi
Á aðalfundinum var samþykkt
að útvíkka starfsemi FÍS til þess
að fyrirtæki í smásöluverslun gætu
málamörkuðum til að gera þá sam-
keppnishæfari á heimsvísu.
Hashimoto hafði sagt þegar
hann frétti að yfirmenn bankans
mundu segja af sér að afsagnirnar
væru „lævíslegar."
„Afsagnir þeirra leysa ekki
vandann,“ sagði Hashimoto. „Þeir
ættu að viðurkenna sekt sína og
taka á sig ábyrgðina þar til rann-
sókn málsins er komin á rekspöl.“
„Slíkar afsagnir tákna ekki að
bankinn hafi staðið sig í stykk-
inu,“ sagði Hiroshi Mitsuzuka fjár-
málaráðherra.
tekið þátt í starfsemi þess. Taldi
fundurinn þetta nauðsynlegt þar
sem ekki hefði náðst samstaða
milli félagsins og Kaupmannasam-
taka íslands um sameiningu. Rétt
væri því að breyta félaginu í sam-
tök og heita þau nú Samtök versl-
unarinnar - félag íslenskra stór-
kaupmanna. Meginhlutverk hinna
nýju samtaka er samkvæmt sam-
þykktum fundarins að beita sér
fyrir aukinni samvinnu fyrirtækja
á öllum sviðum verslunar, gæta
hagsmuna félagsmanna og beita
sér fyrir umbótum í verslunarlög-
gjöf þannig að tryggt sé að versl-
unin í landinu sé rekin á heilbrigð-
um grundvelli.
Vonbrigði í
sameiningarmálum
Á aðalfundinum lýsti Jón Ás-
björnsson,formaðurFIS, yfir von-
brigðum með að ekki skyldi hafa
tekist að sameina FÍS og Kaup-
mannasamtökin en að því hafði
verið stefnt. Jón benti á mikilvægi
öflugra hagsmunasamtaka at-
vinnugreina og sagði að hin stóru
mál verslunarinnar yrði að ræða í
sterkum heildarsamtökum. Fé-
lagasamtök verslunarinnar væru
hins vegar dreifð og næðu því ekki
því afli sem svo stórri og fjöl-
mennri atvinnugrein væri nauð-
synlegt. „Kannske eigum við eftir
að sjá voldug heildarsamtök okkar
verða til í framtíðinni en eftir þessa
misheppnuðu tilraun eru núverandi
stjórnarmenn FÍS ekki bjartsýnir.
Þess vegna teljum við nauðsynlegt
að samtök okkar víkki út starfsvið
sitt. Við lítum svo á að samtök,
sem hafa innan sinna raða einka-
fyrirtækin í milliríkjaverslun Is-
lendinga, eigi að vera áhrifamikil
um framvindu mála, jafnt dægur-
mála sem og einkum þó pólitískra
mála. Við verðum að bjóða öðrum
greinum verslunarinnar inn í okkar
samtök og vera öflugir málsvarar
íslenskrar verslunar," sagði Jón.
Yfirmennjapansks banka segja
afsér vegna fjárkúgunarhneykslis
Tókýó. Reuter.