Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAI 1997 Morgunblaðið/Ásdís LANDSLAGSMYNDIR geta verið uppspretta hugmynda f iðnhönuun. bov MOSAVAXINN drykkjarfontur. Harfði mikið á fnlk Anna Kristín Þorsteinsdóttir er 25 ára og á að baki þriggja ára nám í útstillingahönnun. Anna Kristín vann í vinnustofu fata í vet- ur og segir að hugmyndavinnan beinist aðallega inn á við í fyrstu. „Ég byrjaði á þvi að gera klippi- myndir af etnískum klæðnaði og þjóðbúningum sem ég fann á bóka- söfnum. Ég gramsaði og skoðaði blöð og bækur sem ég fann um föt og búningahönnun. Einnig horfði ég mikið á fólk, hverju það klæddist og velti fyrir mér litum og samsetningu. Þetta víkkar sjóndeildarhring- inn, því maður veltir umhverfinu mikið fyrir sér og skoðar allt.“ Hún segist hafa einbeitt sér að formi og Mtum klippimyndanna. „Þær voru einskonar hugmyndabanki. Maður dregur út það sem kallar á athyglina, eitthvað spennandi eins og til dæmis sérstaka gerð af töl- um, og notar með sínum hugmynd- um. Þegar búið er að púsla saman því sem manni finnst best, kvikn- ar hugmynd að flík. Ég sé fötin ljóslifandi fyrir mér.“ Anna Kristín segist leita í óhefð- bundnar samsetningar og gjarnan setja etníska búninga í annað , og ný- d:. •VL : BÆKUR merktar eiganda. FONTUR út úr hól. tískulegra samhengi eða snið til þess að segja eití> hvað um fortíð og nútíð. „I skóla er auðveldara að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og því hika ég ekki við það,“ segir hún. Föt fyrir sjáifstæða ísiendinga Hugmyndir Önnu Kristínar að fótum byggja mikið á þjóðlegum hefðum (mynd 1) og segir hún þau fyrir sjálfstæða og sterka persónu. Skikkjan er úr marglitu þunnu efni og buxumar eru gerðar úr sauð- skinni. Bolurinn er úr flaueli með dúskum sem minna geirvörtur. „Geirvartan er alltaf falin og ég vildi draga athygli að henni aftur. Einnig minnir þetta á búninga næturklúbbadansara. Skikkjan er ættuð úr fomöld. Buxumar em með leðurborða á skálmum og í mitti og leðurtölum. KjólMnn er líka úr sauðskinni bundinn með leðurólum, fleginn, og á að vera ögrandi og þjóðlegur í senn.“ Sif Arnarsdóttir, 22 ára, fór í Iðnskólann eftir hálfsárs dvöl er- lendis, meðal annars í Afríku. „Ég hafði áhuga á skrautskrift sem barn og vildi læra aðferðina," seg- ir hún um ástæður þess að hún valdi grafíska hönnun. Sif bjó til tvær bækur í vinnustofunni í vet- ur, valdi í þær flott spakmæli og skrifaði með fraktúr-letri (mynd 4). „Kennarinn hvatti okkur til þess að draga stafi með einhverju öðm en hefðbundnum skriffæmm, til dæmis eyrnapinnum, tann- bursta, svampi, balsamviði og þess háttar. Ég fyllti arkir af kartoni með stöfum, skar út það sem mér fannst flottast í litla feminga og límdi á blöðin." Spakmælin vom skrifuð á a4 blöð, ljósrituð, letrið minnkað og síðan límd á síðurnar öðmm meg- in og karton með stöfum hinum megin. Níu opnur era í bókunum báðum en kápurnar mismunandi. A annarri þeirra er ljósrit af hönd- um Sifjar. „Þetta er bókin mín og ég vildi að hún liti út eins og ég héldi á henni,“ segir hún loks.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.