Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 25

Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ VIKU IM LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 25 Morgunblaðið/Golli ÞORMAR Þorbergsson og Tine Bure Hansen. Kanditar á danska t/ísu Á Suðurlandsbraut er lítill staður sem er blanda af veislueldhúsi og köku- gerðarhúsi. Jóhann Gunnar Arnars- son leit í heimsókn til eigendanna, Þormars Porbergssonar og Tine Buur Hansen og komst að því að það ríkir danskt andrúmsloft á staðnum. AÐ var árið 1992 sem Þormar Þorbergsson fann að hann vildi læra eitthvað annað en það sem bauðst hér á landi. Hann hélt ut- an til Danmerkur og hóf nám í Tekniske fagskolen í Ringsted, þar sem hann lærði konditor eða kökuskreytingar. Þar kynntist hann unnustu sinni, Danmerkur- og Norðurlandameistara í köku- skreytingum í flokki unglinga, Tine Buur Hansen. Nú eru þau flutt hingað heim og hafa opnað Cafe Konditor Copenhagen að Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík. Það er svo sannarlega danskt andrúmsloft sem ríkir á staðn- um, tréskápar á veggjum, Dannebrog og reyndar íslenzki fáninn uppá einum skápnum, ýmsir gamlir munir sem tengj- ast konditorfaginu og síðast en ekki síst bakkelsi eins og bezt gerist í Danaveldi; vinarbrauð, kókoskúlur, napóleonshattar, rúnstykki, brauð og heimagert konfekt og svo mætti lengi telja. Uppi við vegg stendur stór og virðuleg vél sem greinilega er komin til ára sinna, en virðist þó lítið notuð. Þormar sá hvað mér varð starsýnt á vélina; „Þetta er gömul kaffikvöm sem við tókum með okkur frá Danmörku. Hún er orðin meira en hundrað ára gömul þessi, en virkar enn og við stefnum á að mala í henni okkar eigið kaffí og selja!“ Heimsins stærsta ísterta Þormar og Tine kynntust á meðan á náminu stóð en því lauk árið 1995. A námsárunum tóku þau þátt í fjölmörgum fagkeppn- um og einatt með góðum ár- angri. Sú fyrsta var árið 1993 í Bella Center, þar sem þau tóku þátt í að skreyta heimsins stærstu ístertu sem var 40 fm og hefur metið verið skráð í heims- metabók Guinness. Þormar fékk þar einnig fyrstu verðlaun í hópi nema fyrir sérskreytingu og uppstillingu. Þormar tók einnig þátt í ár- legri þrjátíu staða keppni, þar sem keppa fulltrúar 30 konditora, meistarar, sveinar eða nemar. Hann lenti í fjórða sæti og vakti það mikla athygli að nemi skyldi ná svo góðum ár- angri. í beinu framhaldi af keppninni komu fulltrúar hins heimsþekkta súkkulaðifyrirtæk- is Tom’s að máli við hann og fengu leyfí til að birta uppskrift og mynd af verkinu hans í blaði sínu. Þormar var einnig fyrstur Is- lendinga til að taka þátt í sam- evrópsku kökugerðarkeppninni í Bella Center. Þar vann hann til 7. verðlauna í flokki nema og til 8. verðlauna í ísgerðarkeppni þar sem hann fékk sérstök verð- laun fyrir frumlegt efnisval, en ísútfærsla hans var með sérís- lenzku yfirbragði. Tine hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum keppnum og varð meðal annars Danmerkurmeist- ari í flokki unglinga árið 1994. Sama haust varð hún Norður- landameistari í sömu grein. Þá varð hún einnig í fyrsta sæti á 25 ára afmælismóti Konditorskól- ans í Ringsted. Og áfram mætti telja, það er greinilegt að hér er á ferðinni mikið fagfólk. Ekhi venjulegt kaffíhús Aðspurð um hvað væri á boðstólnum á Cafe Konditor Copenhagen svöruðu Þormar og Tine því að Konditorið væri blanda af veislueldhúsi og köku- gerðarhúsi, með örlítilli aðstöðu fyrir gesti til að smakka á fram- leiðslunni. Þetta er þó ekki kaffi- hús í eiginlegri merkingu þess orðs heldur sögðust Þormar og Tine hafa viljað tryggja sér nafnið ef um kaffihús yrði að ræða í framtíðinni. Aðaláherzlan er lögð á gæði vörunnar og per- sónulega þjónustu, með danskt bros á vör. „Við notum til dæm- is egg í allar okkar kökur og brauð, ekki eggjaduft. Við vinn- um nær allt í höndunum, gerum þetta allt sjálf, allt niður í minnstu súkkulaðiskreytingar á kransakökur og tertur. Og við erum ekkert dýrari en hinir!“ En hversvegna Cafe Konditor Copenhagen? „Jú, við lærðum bæði í Kaupmannahöfn og eigum yndislegar minningar þaðan, eins og margir íslendingar, og tileinkuðum því Kaupmannahöfn nafnið á fyrirtækinu okkar. Eins ætlum við okkur að hafa á boðstólum það bezta sem til er í brauðum og kökum og það er jú danskt, ekki satt?“ FÁÐU ÞÉR MIÐA FYRIR KL. 20.20 I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.