Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 29
MENIMTUIM
Eigendur Barnasmiðjunnar koma nýju námsefni
í eðlisfræði á framfæri
„Kennsluefni í eðlis-
fræði fyrir yngstu
börnin ekki viðunandi“
FYRIR tæpum tveimur árum fengu
eigendur fyrirtækisins Barnasmiðj-
unnar, sem framleiðir m.a. leiktæki,
umboð fyrir Lego Daeta, sem er
m.a. heiti á eins konar skólalínu frá
framleiðendum Lego kubbanna í
Danmörku. Skólalínan samanstend-
ur af námsefni úr lego kubbum og
kennsluleiðbeiningum í eðlisfræði
fyrir grunnskólanemendur á aldrin-
um 8 til 15 ára, og felst í því að
raða kubbum saman eftir sérstökum
leiðbeiningum og sýna á þann hátt
hvaða hlutverki til dæmis vogar-
stangir, talíur, tannhjól, hjól og öxl-
ar gegna í vélum og tækjum.
Elín segir að danskur kennari
hafi upphaflega bent sér á þessi
kennslugögn og þegar hún hafi far-
ið að kanna málið hjá framleiðendum
Lego hafi henni strax litist vel á
þau. Meðal annars vegna þess
hversu aðgengileg þau eru og hve
skemmtileg leið þau eru til að kenna
börnum eðlisfræði. „Þessi námsgögn
byggjast á því að börnin geri tilraun-
ir en læri ekki eingöngu eitthvað
utanbókar," segir Elín.
Kennararnir þurfa ekki að
hafa sérþekkingu
Eftir að Barnasmiðjan fékk um-
boð fyrir Lego Dacta var hafist
handa við að þýða fjórar gerðir leið-
beiningabæklinga, úr dönsku yfir á
íslensku, á fyrsta stigi leikskólalín-
unnar, en það stig er ætlað bömum
á aldrinum átta til tíu ára. Hin stigin
tvö era annars vegar ætluð börnum
frá 10 til 12 ára og hins vegar ungl-
ingum frá 12 til 15 ára, en kennslu-
gögnin fyrir síðarnefndu stigin era
aðeins flóknari, að sögn Elínar.
Jónína Ágústsdóttir kennari sem
kennt hefur stærðfræði og raun-
greinar í grunnskóla var fengin til
að þýða og kynna fyrir kennuram
námsefnið, auk þess að sjá um nám-
Eigendur Barnasmiðj-
unnar ehf., hjónin Elín
Ágústsdóttir og Hrafn
Ingimundarson, hafa
varið hálfri annarri
milljón króna til þess
að þýða nýjar kennslu-
leiðbeiningar í eðlis-
fræði fýrir nemendur
í grunnskóla. Arna
Schram ræddi
viðElínu.
skeið fyrir kennara sem verður hald-
ið í ágúst nk. „Með hveiju kubba-
setti fylgir leiðbeiningabæklingur
sem sýnir hvaða leiðir hægt er að
fara til að nálgast viðfangsefnið og
hvernig setja eigi kubbana saman.
Auk þess eru ýmis verkefni og
þrautalausnir í leiðbeiningunum sem
nemendurnir eiga að leysa.“
Elín tekur sem dæmi kennsluleið-
beiningarnar og kubbana sem eiga
að sýna hvernig tannhjól virka. Þar
eiga nemendurnir m.a. að komast
að því, með því að búa til líkan, að
þegar tennur tannhjóls tengjast
tönnum á öðru jafnstóru tannhjóli
snúast tannhjólin tvö, sitt í hvora
áttina og á sama hraða. Þá eru gerð-
ar fleiri tilraunir með mismunandi
stórum tannhjólum þar sem m.a. er
komist að því, með tilraunum, að
lítið tannhjól þarf að snúast fleiri
en einn hring til þess að snúa einu
stóru tannhjóli einn hring.
KÁRI Logason sýnir hvemig
veltiskilti virka.
Jónína leggur áherslu á að
kennslugögnin séu hönnuð af fag-
fólki fyrir kennara sem eru ekki
endilega með sérþekkingu í eðlis-
fræði og að gert sé ráð fyrir því að
það taki um sex til tíu kennslustund-
ir að fara í gegnum einn leiðbein-
ingabækling með nemendunum.
Kennslugögnin hafa fengið
góðar undirtektir
Elín segir að kennslugögnin hafi
fengið góðar undirtektir hjá kennur-
um og öðrum aðilum innan skóla-
kerfisins, sem hafi kynnt sér þau.
Hún nefnir sem dæmi að forsvars-
mönnum Námsgagnastofnunar hafi
litist mjög vel á þessi kennslugögn
og fundist Barnasmiðjan hafa unnið
gott og þarft verk með þýðingu leið-
beininganna. Hins vegar hafi þeir
gefíð þau svör að erfitt væri að setja
þessi námsgögn inn á kennsluskrá
sem kennslugögn í eðlisfræði þar
sem ekki væru til neinir peningar
til þess að hjálpa skólunum að fjár-
Morgunblaðið/Ásdís
JÓNÍNA og Elín Ágústsdætur sýna kubbasettin.
magna kaup á slíkum námsgögnum.
Að sögn Elínar kostar ein askja
með kubbum 2.090 krónur með vsk.,
og einar kennsluleiðbeiningar 998
krónur. Þá kostar bekkjarsett fyrir
24 nemendur, sem samanstendur af
12 kubbasettum, 23.500 krónur, en
gert er ráð fyrir að tveir nemendur
vinni saman með hveija öskju.
Elín segir að það hafi kostað um
eina og hálfa milljón króna að þýða
leiðbeiningabæklingana fjóra en til
þess að mæta þeim kostnaði hafí
Bamasmiðjan sótt um styrki til ýmissa
aðila. Nýlega sýndi menntamáiaráðu-
neytið, Þróunarsjóður grannskóla,
stuðning í verki og veitti Bamasmiðj-
unni styrk til þessa verkefnis.
Námsgögnum í eðlisfræði
ábótavant
Elín segir að í samtölum við fulltrúa
Námsgagnastofnunar og nokkra
eðlisfræðikennara í grunnskólum
landsins hafi komið í ljós að ekki sé
til nægjanlega mikið úrval af náms-
gögnum í eðlisfræði fyrir yngstu
börnin. Jónína Ágústsdóttir kennari
tekur undir það og segir að eðlis-
fræðikennslan á yngsta stigi hafi
oft gengið út á það að vinna með
vatnið sem sé gott út af fyrir sig
en ekki eingöngu. Elín segir jafn-
framt að það væri mikill kostur fyr-
ir eðlisfræðikennsluna ef börn gætu
gert tilraunir á svona einfaldan og
skemmtilegan hátt eins og Lego
Dacta settið bjóði upp á. Hún ítrek-
ar að þessi kennslugögn séu bæði
notuð í Danmörku og Skotlandi og
hafi gefið góða raun í báðum þessum
löndum.
„Þeir kennarar sem hafa notað
þetta námsefni hér á landi hafa gef-
ið því góða einkunn og kennari á
Eyrarbakka sem hefur prófað náms-
gögnin fyrir nemendur á efsta stigi
sagði að ekki hefði liðið á löngu þar
til nemendurnir hefðu lagst á gólfið
og farið að keppast um að hanna
hraðskreiðustu bílana," sagði hún
að lokum.
Hún valdi
skartgrípi
frá Silfurbúöinni
fin) SILFURBtJÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þar fœrðu gjöfina -
★
inrmuiiomi
i u r o i d s r s i ( m $
• Tölvutengt timaskráningar- og
aðgangskerfi.
• Þægilegt og einfalt í meðförum
• Fjárfesting sem borgar sig
J. ÁSTVBLDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavík. sími 533 3535
ALDREIMEIRA ÚRVAL
BLOMSTRANDI
TILBOÐ ALASKAVÍÐIR GRÆNN RUNNAR OG RÓSIR
BIRKI I PK. 40-60 cm
KR. 225-
STJUPUR
KR. 45-
ÞYRNIROS
KR. 620-
FOSSVOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opið kl. 8 -19. helgar kl. 9 - 18. Sími 564 1777
Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG