Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 38

Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 38
38 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Byggingadagar 1997 Hús skulu standa ÍSLENSKUR bygg- ingariðnaður er um þessar mundir að rétta úr kútnum eftir nokk- urra ára niðursveiflu. Eftirspurnin eftir hús- næði eykst og nýbygg- ingum fer fjölgandi. Vonandi táknar þetta nýtt vaxtarskeið í ís- lenskum húsbygging- um. Slíkt vaxtarskeið þarf að byggjast á traustum grunni og þvi er mikilvægt að treysta rekstrarumhverfið með beinum og óbeinum aðgerðum. Nú um helgina gangast Samtök iðnaðarins fyrir Byggingadögum undir kjörorðinu HUS SKULU STANDA. Markmið Byggingadaga er að gefa almenn- ingi tækifæri til að kynnast því af eigin raun sem helst er á döfinni í þessum iðnaði. Að þessu sinni er annars vegar um að ræða sýningu í Perlunni þar sem ýmis fyrirtæki og félög kynna framleiðslu sína og starfsemi. Hins vegar er um að ræða „opið hús“ þar sem byggingafyrirtæki og framleiðendur bygg- ingahluta sýna fram- leiðslustað. Upplýs- ingar um þá staði er að finna í auglýsingu Samtakanna sem birst hefur í Morgunblaðinu. Tvíefldur byggingariðnaður árið 2005 Byggingarfyrirtæki og meistarafélög innan Samtaka iðnaðarins hafa undanfama mán- uði unnið að því að móta framtíðarsýn byggingariðnað- arins. Starfræktur hefur verið vinnuhópur sem hefur spurt: Hvem- ig viljum við sjá íslenskan bygging- ariðnað árið 2005 og hvað ber að gera til þess framtíðarsýnin verði að veruleika? Hópurinn hefur sam- mælst um að gera íslenskan bygg- ingariðnað samkeppnishæfan á al- þjóðlegan mælikvarða. M.a. skal hann verða í forystu í tækni og íslenzkur byggingaríðn- aður er, að mati Har- aldar Sumarliðasonar, að rétta úr kútnum. hönnun á norðurslóðum og fyrir- tækin vera fær um að taka þátt í öflugu samstarfi innanlands sem utan. Hópurinn vill sjá sterk og arðsöm fyrirtæki verða til með störf sem em eftirsóknarverð vegna góðra launa og aðbúnaðar. Margt þarf að gera til þess að þessi framtíðarsýn verði að veru- leika. Víst þurfa fyrirtækin að taka til í eigin ranni en hins vegar skipta ekki síður máli skilyrði sem grein- inni em sett. Urelt rekstramm- hverfi sem tekur ekki mið af þróun alþjóðlegs samkeppnisiðnaðar er ekki eingöngu dragbítur á viðgang greinarinnar heldur beinlínis stór- hættulegt. Vinnuhópurinn leggur áherslu á að ríki og sveitarfélög hætti að stunda starfsemi á sam- keppnismarkaði og leggi af rekstur ÍSLENSKT MÁL Ekkja er jAon-stofn og beyg- ist eins og kirkja. Bæði orðin fella j-ið, sem stofninn er við kenndur, í eignarfalli fleirtölu: ekkna, kirkna, sbr. ekknasjóð- ur, kirknafé. Síðan langar umsjónarmann að taka upp merkilegan kafla úr Snorra-Eddu og leggja þar út af nokkrum orðum: „Þessi eru kvennaheiti óken- nd í skáldskap: víf, brúður, fljóð heita þær konur, er manni eru gefnar. Sprund og svanni heita þær konur, er mjög fara með dramb og skart. Snótir heita þær, er orðnæfrar eru. Drósir heita þær, er kyrrlátar eru, svarri og svarkur þær, er mikil- látar eru. Ristill er kölluð sú kona, er sköruglynd er. Rýgur heitir sú, er ríkust er. Feima er sú kölluð, sem ófröm er, svo sem ungar meyjar eða þær kon- ur, er ódjarfar eru. Sæta sú, er búandi hennar er af landi far- inn. Hæll er sú kona, er búandi hennar er veginn. Ekkja heitir sú, er búandi hennar varð sótt- dauður. Mær heitir fyrst hver, en kerlingar, er gamlar eru. Eru enn þau kvenna heiti, er til lastmælis eru, og má þau finna í kvæðum, þó það sé ei rit- að. Þær konur heita eljur, er einn mann eiga. Snör heitir son- arkvon. Sværa heitir vers móð- ir. Heitir og móðir, amma, þrið- ja edda. Eiða heitir móðir. Heit- ir og dóttir, barn, jóð. Heitir og systir, dís. Kona er kölluð beðja, rún búanda síns, og er það við- urkenningar." 1) Greinilegt er að drós hef- ur heldur en ekki breytt um merkingu. Góður sveitungi minn horfði eitt sinn á mynd af frelsaranum, þar sem hann var skegglaus uppmálaður og bergði á kaleiknum. Hann gat ekki dulið hneykslun sína og mælti: „Jæja, svo hún er þá að staupa sig, þessi drós.“ Af drós er náttúrlega komið dræsa með i-hljóðvarpi. 2) Ekkja er sú sem er ein <*einkja og þarf varla að stjörnumerkja þá orðmynd, því Umsjónarmaður Gísli Jónsson 902. þáttur að hún hefur lifað óbreytt í Færeyjum. Fjöldi orða í skyld- um málum er þessu til staðfest- ingar, sbr. t.d. sæ. "anka og got. ainakls= aleinn. [Útúrdúr: I latínu er orð af indóevrópskri rót, vidua = sú sem er svipt (eiginmanni): þetta orð eða önnur skyld eru ekki í norrænum málum, en bæði í en- sku widow og þýsku Witwe.] 3) Takið eftir kurteisi Snorra að tilfæra ekki þau heiti „er til lastmælis eru“. 4) Elja keppti við aðra konu um hylli karlmanns, og kannski „áttu“ þær hann báðar (allar). Einhver minnilegustu og sköru- legustu orð Njálu (og er þá mik- ið sagt) eru í 98. kafla; en þá hafði verið veginn Höskuldur sonur Njáls og Hróðnýjar frillu hans: „Hon snarar þegar inn hjá honum ok fer þar til, er hon kemr at hvílu Njáls; hon spurði, hvárt Njáll vekti. Hann kvezk sofit hafa til þessa, en kvezk þá vaka, _ „eða hví ert þú hér kom- in svá snimma?“ Hróðný mælti: „Statt þú upp ór binginum frá elju minni ok gakk út með mér ok svá hon ok synir þínir.“„ 5) Orðnæfur merkir orð- snjall, djarfyrtur. 6) Sonarkvon er tengdadótt- ir, eða snör. 7) Sværa er tengdamóðir, gotn. swaíhrö. 8) Edda er þarna langamma. 9) Beðja manns (sú sem hvíl- ir á sama beði) er kenning (við- urkenning eða viðkenning) fyrir eiginkonu. ★ Jón Isberg, bekkjarbróðir minn, vakti athygli mína á því, að Sveinbjörn Egilsson hefur sögnina að vona ópersónulega í þýðingu sinni á Odysseifskviðu. Frá gamalli tíð, segja bækur, hefur sögnin ýmist verið per- sónuleg eða hið gagnstæða. Menn hafa sagt til skiptis: ég vona/vona ég eða mig von- ar/vonar mig. Hið fyrra virðist alla tíð hafa verið algengara, og nú held ég að við segjum alltaf ég vona/vona ég. Sjá Orðastað Jóns Hilmars Jónssonar. Þá kann Jón Isberg því illa, þegar börn eru sögð „0 ára“, enda er það skýrslugerðartal, en ekki mannamál. Barn er ný- fætt og svo á fyrsta ári, þar til það verður eins árs. Við skulum í lengstu lög halda okkur við mannamálið, og auðvitað kveð- um við að bókstafaheitum að ís- lenskum hætti, en ekki enskum. Við segjum t.d. bé, en ekki „bí“. Þá skal Ríkisútvarpinu þökk- uð viðleitni til að festa fram- burðinn Evróvisjón í stað ensk- unnar „Júróvisjón", enda eigum við ennþá heima í Evrópu, ekki „Júróp“. Bestu kveðjur til Jóns fyrir tryggð hans við þáttinn og móðurmálið. Umsjónarmanni hefur borist í hendur starfsskýrsla Orða- bókar Háskólans um árið 1996. Skemmst er af því að segja, sem flestir sjálfsagt vita, að á þess- um vettvangi er unnið afskap- lega vandað, mikilvægt og margvíslegt starf. Að lestri loknum er maður glaðari en áð- ur og fullur þakklætis, og bjart- sýni um framtíð íslenskrar tun- gu. Hírast (hýrast) þær í Hátúni hjá ‘onum Sigurvini; hefur hann lær úr látúni og leikfangið úr tini. (Einar á Guðrúnarstöðum). [Sumir segja Hraungerði, en rímsins vegna haft hér Hátúni]. Auk þess hefur umsjónar- manni borist til eyrna að til sé á íslensku sögnin að kafa um það sem þrásinnis hefur verið kallað „að framkvæma köfun“. En í fréttum Ríkisútvarpsins þótti umsjónarm. gott að heyra orðið þríæringur um það sem verður á þriggja ára fresti (e. triennial), sbr. tvíæringur og biennial. Seinni hluti orðsins biennial er af lat. annus = ár, og þekkjum við það vel í auka- fallinu anno. á opinberum framkvæmdastofnun- um og húsnæðisstofnun enda al- mennir bankar fullfærir um þá fjár- mögnun sem þarf. Meðal annarra skilyrða fyrir framþróun bygging- ariðnaðarins telur vinnuhópurinn brýnt að þróa útboðsmarkaðinn, efla gæðastjómun og gera rann- sókna- og þróunarstarf skilvirkara. Gæðastj órnunarkerfi fyrir lagnagreinar Samtök iðnaðarins eru stöðugt með verkefni í gangi sem hafa það að markmiði að efla íslenskan bygg- ingariðnað og treysta stöðu hans. Um þessar mundir vinna Samtökin viðamikið verk um gæðastjómunar- kerfi fyrir lagnagreinar sem nýtast mun fyrirtækjum á sviði pípulagna og loftræstikerfa. Fyrstu fyrirtækin munu innleiða þetta kerfi nú í vor. Markmiðið með þessu gæðastjórn- unarkerfí er tvíþætt. Annars vegar skal það tryggja að neytandinn fái þá þjónustu sem honum ber og hins vegar skal það tryggja að fyrirtæk- in fái greitt í samræmi við þá vöm og þjónustu sem þau veita. Húseigandinn í fyrirrúmi Framþróun í byggingariðnaði hef- ur það markmið að bjóða neytendum góða vöm á sanngjömu verði. Það er því ekki af neinni tilviljun að Samtök iðnaðarins leggja ríka áherslu á að verktakar geri verk- samninga og verklýsingar fyrir þau verk sem þeir vinna við. Ótrúlegur fyöldi fyrirspuma kemur inn til Sam- takanna, bæði frá verktökum og verkkaupum þar sem verk, eða upp- gjör verka, em komin í hnút. Slíkt má gjaman rekja til þess að ekki hefur verið gengið frá verklýsingum og verksamningum í upphafi. Oft er um misskilning að ræða sem girða mætti fyrir ef bæði verktakar og verkkaupar gerðu með sér skýran verksamning. í honum ætti að koma fram verklýsing, verktími, efnis- kostnaður og vinnukostnaður. Hér skiptir ekki máli hvort unnið er sam- kvæmt tilboði eða tímagjaldi. Kröfuharður heimamarkaður Frekari þróun íslensks bygging- ariðnaðar er háð þeim skilyrðum sem á undan voru nefnd. En skilyrð- in ein og sér skipta litlu máli ef skilaboð frá markaðinum em ekki virt. Það er því byggingariðnaðinum afar mikilvægt að áfram þróist hér á landi kröfuharður markaður. Hann er forsenda aukinnar sam- keppnishæfni byggingariðnaðarins, bæði heima og heiman. Neytendur á hveijum tíma mega ekki sætta sig við annað en bestu lausnir. Byggingariðnaðurinn þrífst á kröfuhörðum og sanngjörnum heimamarkaði. Höfundur er húsasmíðameistari og formaður Samtaka iðnaðarins. Virðing þeim sem virðing ber ÞEIR sem unnið hafa við sjávarútveg hafa svo sannarlega verið öflugustu fyrir- vinnur íslensku þjóð- arinnar. Rekstur fyrir- tækja í greininni hefur jafnframt verið best kominn í höndum ábyrgra aðila en verst í höndum bæjarút- gerða. Þar var „stopp- að í rekstrargötin" með skattfé almenn- ings. Meginþunginn af rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi hefur jafnan hvílt á herðum sjómanna og fiskverkafólks sem margt er snillingar í sinni grein. Það er líka vitað að meiri nýting er úr físki sé hann flakaður í landi en á sjó. Styrkja þarf útflutn- ingsframleiðslima í heild. Rannveig Tryggvadóttir hvetur ráðamenn til að styðja við íslenskar ijölskyldur í heimabyggð sinni. Mikill munur er nú orðinn á launum þessara tveggja stétta og hef ég ekki þekkingu til að fjalla um það mál en landverkafólkið hefur borið skarðan hlut frá borði og í öfugu hlutfalli við verðmæta- sköpun. Helstu ástæðu þess að lands- byggðarfólk, og helst úr sjávar- plássunum, hefur flykkst til Stór- Reykjavíkursvæðisins tel ég í fyrsta lagi vera þá að það hefur ekki ver- ið sátt við fjárhagslega afkomu sína heima fyrir og í öðru lagi hafa börn þess sótt menntun þar. Því miður fá unglingar oft steina fyrir brauð í menntakerfinu íslenska því snobb- ið fyrir bóknámi er slíkt að einung- is 20% námsframboðs er verknám en 80% bóknám. Hlutfallið í Þýska- landi er 40% á móti 60% sem hlýtur að henta hæfíleikum þorra manna mun betur. Þurfa ekki hugur og hönd að fylgjast að? Reykj avíkursvæðinu má einna helst líkja við gelda kú hvað frísk- leika í atvinnumálum varðar. Vandinn verður ekki leystur með því að flytja inn hópa fólks af framandi þjóðerni og með ærnum til- kostnaði. Slíkt leiðir til þess eins að við missum smám saman eignar- hald á landinu. Viljum við það? Væri ekki nær að styðja við íslenskar fjölskyldur í heima- byggð sinni? Það þarf að styrkja útflutnings- framleiðsluna í heild en hún er mest úti á landi, eins og menn vita. Þetta má gera með margvíslegum hætti, t.d. eins og Danir gerðu. Þeir léttu öllum gjöldum af sam- keppnisgreinum til að styrkja danskan iðnað. Þeir hafa styrkt hann með ráðum og dáð og gert hann vel samkeppnisfæran við iðn- að annarra þjóða. Útflutningsfram- leiðslan sjálf skiptir höfuðmáli í gæfu og gengi þjóðanna. Við ís- lendingar styrkjum best lands- byggðina með því að styrkja út- flutningsframleiðsluna. Sé hún öflug þá er hún í stakk búin til að greiða góð laun. Gætið að því. Menn eru höfðingjar í sinni heimabyggð en verða vansælir í geldu borgarsamfélagi háhýsa, lágra launa og dagvistarstofnana. Þeir verða að þrælum þjóðfélagsins, sjá vart glaðan dag og þekkja varla börnin sín. Fólk þarf að geta snúið heim. Pétur Sigurðsson, formaður Verkalýðsfélags ísafjarðar, hefur rétt fyrir sér í því að fiskverkafólk þarf að vera vel launað til að una við sitt erfiða en þarfa starf. Hins vegar fannst mér misráðið að beita valdi til að koma í veg fyrir uppskip- un úr skipi í Hafnarfjarðarhöfn degi áður en samúðarverkfall átti að skella þar á. Styrkið útflutningsframleiðsl- una, ráðamenn, svo greiða megi góð laun og jafnvægi komist á um byggð í landinu. Höfundur er þýðandi. Rannveig Tryggvadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.