Morgunblaðið - 24.05.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. MAÍ1997 39 ^
AÐSENDAR GREINAR
Valdníðsla eða vanþekking?
MARKAÐUR hönn-
unar, eftirlits og ráð-
gjafar hjá teiknistofum
á íslandi í dag ber svo
sannarlega ekki ein-
kenni harðrar fjöl-
keppni og því full
ástæða til þess að
Samkeppnisstofnun
beini nú þegar arnar-
augum sinum í átt til
þessa geira atvinnu-
lífsins á sama hátt og
hún gerði nú nýverið
með mjög svo lofsverð-
um hætti á sviði flug-
og ferðamála. Frum-
varpið á Alþingi um
ný skipulags- og bygg-
ingarlög inniheldur einmitt nútíma-
vanda íslenska teiknistofumarkað-
arins í hnotskum og er spegilmynd
þess er hefur verið að gerast í þjóð-
félaginu; hvemig markaðsráðandi
öfl geta nýtt sér yfirburðaaðstöðu
sína til þess að koma skipulega á
viðskiptahindmnum gagnvart til-
tekinni stétt eða einstaklingum með
aðstoð löggjafans, ef ekki er gripið
í taumana. Með samkeppnislögin
og atvinnuleysisástand ijölda arki-
tekta í huga er varla nema um
tvennt að ræða hvað varðar áður-
nefnt fmmvarp - valdníðslu stjóm-
valda gagnvart arkitektum á frjáls-
um markaði eða almenna vanþekk-
ingu stjórnvalda á menntun í húsa-
gerðarlist og fyrirtækjarekstri í
þessum geira í dag.
Upplýsingalögin
Upplýsingalögin em einkar hent-
ugt verkfæri til rannsókna á því
hver séu lögmál mannvirkjamark-
aðarins hjá hinu opinbera hérlendis:
Með vísan til þeirra vom sömu
spurningar lagðar fyrir 11 ráðu-
neyti ríkisins á sama degi: Til hvaða
verktaka í arkitekta- og verkfræð-
ingastétt ráðuneytin hefðu leitað
sl. 5 ár og hvaða upphæðir hefðu
verið greiddar. Svörin bámst mis-
jafnlega fljótt og vom ýmist frávís-
andi eða upplýsandi. Þensluþol lag-
anna reyndist að sjálfsögðu yfír-
völdum í vil, og var afgreiðsla ráðu-
neytanna kærð sameiginlega til
úrskurðamefndar: Dómsmála- og
umhverfísráðuneyti svömðu t.d.
fyrst eftir ítrekun. Umhverfísráðu-
neytið gaf í svari sínu upp nöfn 14
teiknistofa sem það hafði verslað
við ásamt greiddum upphæðum.
Dómsmálaráðuneytið sem hafði
haft spurnir af sameiginlegri kæm
til úrskurðamefndar notfærði sér
dómsúrskurð nefndarinnar í málinu
til að neita að gefa umbeðnar upp-
lýsingar. Samgönguráðuneytið
svaraði að um of rúma fyrirspum
væri að ræða og að fyrirspumin
varðaði ekki gögn í tilteknu máli,
og það tæki þvLekki málið til athug-
unar að svo komnu.
Sjávarútvegsráðuneytið sagði
fyrirspumina ekki beinast að til-
teknu máli og synjaði því umbeðn-
um upplýsingum. Landbúnaðrráðu-
neytið gaf upp nafn einnar verk-
fræðistofu og greidda upphæð. Við-
skiptaráðuneytið synjaði vegna þess
að ekki væri tilgreint hvaða gögn
væri óskað eftir að kynna sér, taldi
sér ekki skylt að afla sérstaklega
Páll
Björgvinsson
gagna um erindið, og
ekki væri nægilega til-
greint að hvaða máli
erindið lyti. Mennta-
málaráðuneytið synjaði
aðgangi að upplýsing-
unum vegna þess að
ekki væm tilgreind þau
gögn eða mál sem
beiðnin beindist að;
ekki væri hægt að biðja
um gögn í öllum málum
af ákveðinni tegund
eða frá tilteknu tíma-
bili. Heilbrigðisráðu-
neytið sagðist ekki
haf a tekið saman yfírlit
yfír nöfn verktaka sem
hefðu unnið fyrir ráðu-
neytið sl. 5 ár. Sagði vanta að til-
greina gögn málsins, og vegna 10.
gr. væri ekki hægt að biðja um
gögn í öllum málum af ákveðinni
tegund eða frá tilteknu tímabili.
Taldi rétt til aðgangs á upplýsing-
unum ekki byggðan á upplýsinga-
lögum, og ráðuneytinu því ekki
fært að verða við beiðninni.
Utanríkisráðuneytið svaraði, að
þar sem fyrirspurnin gæti snert
hagsmuni hlutaðeigandi aðila hefði
þeim verið gefinn kostur á að tjá
sig um hana og veittur til þess 4
vikna frestur. Síðan kom listi með
nöfnun 11 teiknistofa og upphæð-
um greiddum til þeirra. Fjármála-
ráðuneytið sendi lista með nöfnum
17 arkitekta, verkfræðinga og
tæknifræðinga með skráða 1 upp í
27 reikninga hver, en sagðist ekki
veita upplýsingar um greiðslur
nema tölvunefnd gæfí sitt sam-
þykki. Synjaði svo upplýsingunum
um greiðslur vegna niðurstöðu
Tölvunefndar, sem taldi óhætt að
veita upplýsingar um með hvaða
kjörum viðkomandi verktakar voru
ráðnir, en óheimilt að gefa upp
heildarlaunagreiðslur þeirra. Samt
var ekkert gefið upp um ráðningar-
kjörin! Framkvæmdasýslan gaf upp
lista með 108 teiknistofum með
verkfræðingum í meirihluta. Fé-
Mest kom á óvart, segir
Páll Björgvinsson
í þessari fyrstu grein
af þremur, hvemig
úrskurðamefnd um
upplýsingalög úrskurð-
aði um málið.
lagsmálaráðuneytið sendi lista með
33 teiknistofunöfnum með verk-
fræðinga í meirihluta, beitti sams
konar synjun og fjármálaráðuneyti
er varðaði upplýsingar um greiðslur
með sömu útkomu, og sem fyrr var
engar tölur um ráðningarkjör að
finna! Úrskurðarnefnd felldi dóm í
kærumálinu áður en svör allra ráðu-
neytanna höfðu borist, þrátt fyrir
að kærandi hefði tilkynnt að svörin
sem á vantaði yrðu send nefndinni
um leið og þau bærust. Kæran, sem
hljóðað hafði upp á túlkunarmis-
ræmi ráðuneytanna á lögunum,
virtist algjörlega misskilin af nefnd-
inni og niðurstaðan bar greinileg
merki þess að helst hefði nefndin
óskað að ekkert ráðuneytanna hefði
gefið neinar upplýsingar við þessari
fyrirspum um verktaka!
Ársskýrslur í
ríkisrekstri
Hvers vegna ættu svo stjómvöld
að vera andsnúin því að kortleggja
hvaða teiknistofur hefðu fengið
vinnu og verkefni hjá þeim yfír
ákveðið tímabil og gefa upp kostn-
aðinn sem hefði fylgt þessum mála-
flokki ár frá ári? Hvers vegna ætti
það að vera viðkvæmt mál að bera
saman útgjöld hins opinbera til arki-
tekta og verkfræðinga eða gefa upp
nöfn fyrirtækjanna sem hafa fengið
verkefni á meðan aðrir fengu lítið
eða ekkert? Einkageiranum í fyrir-
tækjarekstri þætti um sjálfsagt eft-
irlit að ræða og rétta leið til að-
halds, sparnaðar og betri afkomu
fyrirtækja, að slíkar upplýsingar
lægju tiltækar hvenær sem væri og
öllum aðgengilegar. Enda árs-
skýrslur einkafyrirtækja óspart not-
aðar til þess að sýna með stolti
vaxandi, góða afkomu í rekstri. Þá
þætti mörgum það bera vott um
valdníðslu stjómvalda að þrátt fyrir
yfírlýsta útboðsstefnu ríkisins og
opinberar upplýsingar um tilboðs-
upphæðir í verk sem boðin hafa
verið út, að veita ekki upplýsingar
um aðra verktaka á sama markaði
vegna þess að vitað væri að þær
upplýsingar gætu komið upp um
fákeppnina og e.t.v. misnotkunina
á yfirburðaaðstöðu sem álitið væri
að kynni að vera stunduð innan rík-
isins. Það skyldi þó ekki vera tilfell-
ið að spamaðarhnífurinn og aðhald-
ið væri einungis við lýði í málefnum
sjúklinga í heilbrigðisráðuneytinu?
Alla vega benda viðbrögð þeirra
ráðuneyta, sem gáfu alls engar
upplýsingar og beittu jafnvel Tölvu-
nefnd fyrir sig til að koma sér hjá
því að svara umræddri fyrirspurn
um verktaka, ótvírætt til þess að
eitthvað óþægilegt sé um að ræða.
Mest kom þó á óvart hvernig úr-
skurðamefnd um upplýsingalög af-
greiddi málið og eftir það er varla
hægt að sjá þá nefnd virka hvetj-
andi á fjölkeppni í atvinnulífinu eða
stuðla að því að hið opinbera virði
samkeppnislögin í viðskiptum sín-
um við sjálfstæða verktaka. Hér er
því augsýnilega að fínna kvikuna á
samskiptum einkageirans í teikni-
stofurekstri og hins opinbera, og
hér er þá einnig að fínna skýring-
una á atvinnuleysi arkitekta. Ljóst
er að aðhald samkeppnisyfírvalda í
íslensku viðskiptalífi getur haft úr-
slitaáhrif í því að uppræta fákeppni
og markaðsráðandi stöðu einstakra
fyrirtækja, tryggja hlutleysi hins
opinbera og sjá til þess að sam-
keppnissjónarmið séu í heiðri höfð
í samfélaginu.
Höfundur er arkitekt.
ritsárifiarsfjarn an
Falleg 14k stjarna til útskriftargjafa.
3 stærðir. Verð aðeins
Kr. 3.200, 3.500, og 3.800.
allar með dublefesti.
Fæst einnig sem prjónn.
Laugavegi 49,
símar 551 7742
in og 561 7740.
TELEFUNKEN
sjónvarpstækin eru
ódýrari en þig grunar...
Telefunken DG-2865H er 28"
sjónvarpstæki með Black Matrix-
myndlampa, 20W Nicam Stereo
Surround-magnara, textavarpi,
sjálfvirkri stöSvaleit, fjarslýringu o.m.fl.
Telefunken DS-2865H er 28"
sjónvarpstæki meS Black FST-
myndlampa, 20W Nicam Stereo
Surround-magnara, textavarpi,
sjálfvirkri stöðvaleit, fjarstýringu o.m.í
Við eigum örugglego
tæki hondo þér!
Skipholfi 19
Sími: 552 9800
mmsssm
3ja sæta sófi og tveir stólar
í fyrsta flokks leðri
Fáanlegt í dinamica og
alcantara áklæðum
Amerískar fléttimottur
Lokað á laugardögum í júní
VIRKA
Mörkinni 3, s. 568 7477
Opið í dag, laugardag
kl. 10-16
Síðumúla 20 • Sími 568 8799
■
<.