Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 40

Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 40
J 40 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Nokkrar athuga- semdir við stóriðjustefnu í UMRÆÐUNNI um álverksmiðju á Grund- artanga síðustu vikur hefur verið varpað fram þeirri röksemd að lítið sé að marka skoðana- kannanir um stóriðju ef almenningur hefur ekki fengið nægar upplýs- ingar til að geta myndað sér skoðun. Þó að mönn- um liggi mikið á er það siðferðileg skylda þeirra sem þessu vilja ráða að veita fólkinu sem ná- kvæmastar upplýsingar um atriði eins og meng- un, hagsmunaárekstra og áhrif á þjóðarímynd. Skortur á nákvæmum upplýsingum gerir skoð- anakannanir ótrúverðugar og hefur leitt til þess að einstaklingum, sem hafa kynnt sér þessi mál, hefur ofboð- ^ ið og þeir fundið sig knúna til að láta í té upplýsingar í blaðagreinum. Upp- lýsingar um afmörkuð svið skortir alltaf yfirsýn. Það vantar aðgengileg- an pakka upplýsinga sem er unninn af óháðum aðila og veitir heildaiyfir- sýn og sem allir geta skilið. Mér finnst ástæða til að benda á fáein atriði sem varða þá gróðurhúsameng- un sem berst frá álverksmiðjum. Staðbundin kólnun Gróðurhúsaáhrif eru alvarleg tíð- indi fýrir íslendinga. Ekki bara ein- ~ ' hver kvóti sem við höfum skuldbund- ið okkur til að uppfylla. Vísindamenn sem mæla hafstrauma á N-Atlants- hafi óttast mjög að samfara hlýnun á jörðinni dragi úr niðurstreymi yfir- borðssjávar (djúpsjávarmyndun) fyrir norðan ísland. Ymislegt bendir til að þess að dregið hafi úr streymi Golf- straumsins norður fyrir ísland frá þvi sem var fyrr á öldinni. E.t.v. hafa þessar breytingar valdið staðbundinni kólnun á N-Atlantshafi. Þessi þróun getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyr- ir lífríkið í hafinu norðan íslands. Flúor Frá sólinni berst varmageislun að lofthjúpnum. Hluti hennar, einkum V- sýnilegt ljós, nær að verma yfirborð jarðar. Frá yfirborði jarðar berst var- mageislun, innrautt Ijós, sem hefur lengri öldu- lengd en sólargeislunin. í andrúmsloftinu eru gróðurhúsalofttegundir sem taka til sín varma frá ljósi m.t.t. öldu- lengdar þess. í gegnum tíðina hefur ríkt jafn- vægi milli þess varma sem berst inn í lofthjúp- inn og út úr honum. Gróðurhúsaáhrifin raska þessu flókna jafn- vægi þannig að minni varmi berst út úr en inn í lofthjúpinn þar til nýju jafnvægi er náð við hærra hitastig. Frá álverksmiðjum berast einkum 3 gróðurhúsalofttegundir, koltvísýr- ingur (C02), og tvær flúorlofttegund- ir, perflúormetan (CF4) og perflúor- etan (C2F6). Álverksmiðjur eru nán- ast eina uppspretta þessarar flúor- mengunar (1 bls. 95). Hvað lofthjúp- Sum okkar brýnustu hagsmunamál, segir Arni Sigurðsson, tengjast náttúruvemd. inn snertir er verulegur munur á kolt- vísýringi og flúorlofttegundunum. Andrúmsloftið er nálægt mettun af koltvísýringi m.t.t. gróðurhúsaáhrifa af hans völdum. Perflúormetan og perflúoretan voru ekki til í andrúms- loftinu fyrir tíma áliðnaðar og ljósið sem þær taka til sín gat borist hindr- unarlaust í gegn. Þar sem lofthjúpur- inn er svo langt frá mettun hafa flúor- lofttegundimar margfalda gróður- húsavirkni miðað við sama massa af koltvísýringi (1 bls. 80 og 222). Varanleg gróðurhúsaáhrif Samhliða hringrás kolefnis í nátt- úrunni berst koltvisýringur úr loft- hjúpnum í hafdjúpin með djúpsjávar- myndun og með lífverum. Eyða má koltvísýringi úr andrúmslofti með aukinni skógrækt. Flúorlofttegund- irnar berast hvorki í haf né lífríki. Árni Sigurðsson Líftími koltvísýrings í andrúmslofti er um 120 ár, líftími perflúoretans er um 10 þúsund ár og perflúormet- ans um 50 þúsund ár (1 bls. 95). Búast má við að fyrir hvert tonn sem framleitt er af áli berist út í andtúmsloftið um 1,8 tonn af koltví- sýringi, um 0,6 kg af perflúormetan og um 0,06 kg af perflúoretan (3). Reiknað til ígildis gróðurhúsaáhrifa koltvísýrings samsvara þessir skammtar af perflúormetan 2,5 tonnum af koltvísyringi og perflúor- etan 0,5 tonnum af koltvísýringi (1 bls. 95). Einungis um 40% af heildar- gróðurhúsaáhrifunum eru vegna koltvísýrings. Hafa ber í huga að mengunin getur verið mjög breyti- leg. I álverksmiðjunni í Straumsvík hefur tekist að ná þessari flúormeng- un verulega níður síðastliðin 3 ár, perflúormetan í u.þ.b. 0,08 kg/tonn Al. Þennan góða árangur má einkum þakka þrautþjálfuðu starfsfólki. Það má búast við því að það taki nýtt álver á Grundartanga nokkur ár að ná slíkum árangri (5). Við upphafi nýrrar aldar Veðurfarsathuganir undanfarinna ára gefa tilefni til að óttast að for- spár um gróðurhúsaáhrif og hlýnun á jörðinni beri að taka mjög alvar- lega (2). Það er fyrirsjáanlegt að mikilvægustu viðfangsefni næstu aldar tengjast mengun umhverfísins. Af alvarlegustum toga er sú um- hverfísmengun sem virðir engin landamæri og þjóðir heimsins verða að ráða bót á í sameiningu. í tilefni 5 ára afmælis umhverfis- ráðstefnunnar í Rio verður nú í sum- ar haldin umhverfisráðstefna í New York. Þá er ætlunin að líta yfir far- inn veg og setja sér ný markmið í ljósi stöðugt vaxandi mengunar. Það er ljóst að þjóðir sem ekki standa við skuldbindingar sínar verða nú beittar auknum þrýstingi. Hvað varðar losun á gróðurhúsalofttegundum árið 2000 gera Evrópubandalagsþjóðimar sér góðar vonir um að standa við sameig- inlegar skuldbindingar sínar sem eru óbreytt ástand síðan 1992. Nú setja þær sér það markmið að hafa minnk- að losun á gróðurhúsalofttegundum um 15% árið 2010 (4). Sum af okkar brýnustu hagsmuna- málum tengjast náttúruvemd s.s. los- un á þrávirkum eiturefnum í hafið. Getum við gert kröfur til annarra þjóða á sama tíma og við virðum ekki óskir þeirra? Á þessari öld hafa fáar þjóðir notið gestrisni náttúrunn- ar í jafnríkum mæli og við íslending- ar. Því er mjög viðeigandi að við öxlum ábyrgð og berum hag hennar fyrir bijósti á alþjóða vettvangi. Höfundur er jarðeðlisfræðingur. Fræðsla og framtíð MORGUNBLAÐIð birti þann 9. mars sl. athyglisverða grein Birgis Einarssonar, kennara í Réttarholts- skóla, þar sem hann fjallar m.a. um starfs- fræðslu í skólum. Sem framhald af þeirri um- ræðu langar mig til þess að riefna nokkur atriði. Árið 1989 hófst 5 ára átak menntamálaráðu- neytisins til þess að efla námsráðgjöf og starfs- fræðslu í skólum. Tveimur árum síðar skilaði nefnd á vegum ráðuneytisins af sér skýrslu þar sem lagðar eru línur um markmið og leiðir í þessu efni. Hér verður fjallað um fjór- ar af tillögum nefndarinnar og hver staðan er í dag - sex árum síðar. 1. Stefnt verði að því að umfang námsráðgjafar verði eitt stöðu- gildi námsráðgjafa á hveija 300 nemendur í framhaldsskólum og eitt stöðugildi á hveija 500 nem- endur í grunnskólum og háskól- um. Námsráðgjafar eru starfandi í öll- um framhaldsskólum landsins, en á bak við hvert stöðugildi eru 600 - 900 nemendur í stað þeirra 300 sem nefndin taldi æskilegt. Það gefur auga leið að ekki er hægt að veita svo stórum hópi þá þjónustu sem hann þarfnast. í örfáum grunnskól- um eru starfandi námsráðgjafar en Reykjavíkurborg hyggst ráða náms- ráðgjafa í sjö grunnskóla í haust, hálft stöðugildi í hvern skóla. Þar með verða allir grunnskólar í Reykjavík, sem eru með unglinga- deildir, með námsráðgjafa í hluta- starfi. Á Seltjarnarnesi, í Garðabæ og Vestmannaeyjum munu verða námsráðgjafar á grunnskólastigi næsta haust. Allt eru þetta skref í rétta átt, þó langt sé í land miðað við tillögu nefndarinnar um fjölda nemenda á hvern ráðgjafa. 2. Lagt er til að nemendum verði fylgt eftir í tvö ár (til 18 ára ald- urs) að loknum grunnskóla og veitt aðstoð ef þörf krefur. Framhaldsskólinn veitir ekki öli- um nemendum nám við hæfi. Ein- hver hluti nemenda hættir eftir grunnskólann og brottfall úr fram- haldsskólum er mikið (30% skv. rannsókn Jóns Torfa Jónassonar á nemendum fæddum 1969). Sárlega vantar rannsóknir á ástæðum þessa brottfalls og fjöl- breyttari náms- og starfstilboð til þeirra sem af einhveijum ástæðum heltast úr lestinni. í dag er enginn einn aðili sem fylgir eftir ungmennum á aldrinum 16-18 ára. 3. Lagt er til að starfs- fræðsla verði með markvissum hætti fléttuð inn í hinar margvíslegu náms- greinar í 1.-7. bekk og að í 8.-10. bekk verði alls 80-100 kennslu- stundum í hverri bekkjardeild var- ið til náms- og starfsfræðslu. Lagt er til að gefið verði út námsefni og önnur námsgögn um íslenskt Með því að efla náms- og starfsfræðslu, segir Þórdís Guðmunds- dóttir, auðveldum við ungu fólki ákvörðun um framtíð sína. atvinnulíf og stofnaður gagna- banki með upplýsingum um at- vinnulíf og námsleiðir. Ég þekki lítið til náms- og starfs- fræðslu í grunnskólum, en veit þó að hún er mun minni en nefndin gerði ráð fyrir i tillögum sínum. Flestir 10. bekkingar fá einhvers konar náms- og starfsfræðslu. Námsefni eftir Guðbjörgu Vilhjálms- dóttur, kennslustjóra í Námsráðgjöf við Háskóla íslands, er víða notað í 10. bekkjum. í framhaldsskólum er lítið um formlega starfsfræðslu nema þar sem svokallaður SAM- áfangi er kenndur. Þá hafa í nokkur ár verið opnir dagar í skólum á fram- halds- og háskólastigi, þar sem nem- endur og foreldrar þeirra geta kynnt sér hvað í boði er. í Tæknigarði (Háskóla íslands) er verið að byggja Þórdís Guðmundsdóttir Hlutur búvara í vísitölu neyslu- verðs frá nóv. 1992 til mars 1997 BÆNDUR þessa lands hafa lagt mikið af mörkum til að stuðla að kjarabótum almenn- ings á síðustu árum. Á meðan flestar vörur og , þjónusta hafa hækkað í verði er ekki nóg með að verð á búvörum hafi ekki hækkað neitt, held- ur hefur það lækkað í þokkabót. Framlag bænda verður enn merkilegra í ljósi þess að á sama tíma og þeir hafa fengið lægra verð fyrir afurðir sínar hefur verð á mörgum aðföng- um þeirra hækkað, sumt umtalsvert. Frá nóvember 1992 til mars 1997 hækkaði vísitala neysluverðs um 10,5%, eins og sjá má á mynd 1. Vísitala þeirra búvara, sem háðar eru verðlagsgrundvelli, lækkaði hins vegar um 0,2% á sama tíma. Með öðrum orðum var verð búvara sem háðar eru verðlagsgrundvelli 0,2% lægra í mars 1997 en í nóvember 1992. Það hefur því dregið verulega ■*’ í sundur með vísitölu búvara sem háðar eru verðlagsgrundvelli og vísi- tölu neysluverðs eins og glögglega má sjá á myndinni. Smásöluverð búvara hefur þannig lækkað að raungildi og hlutur búvara í útgjöld- um heimilanna því minnkað (úr 5,2% í 4,7%). Hlutur annarra neysluvara hefur hins vegar aukist og vegur þar þyngst kostnaður vegna einkabíla og ýmiss konar þjónustu. Búvörurnar, sem háðar voru verðlagsgrund- velli á umræddu tíma- bili, voru kindakjöt, hrossakjöt, nautakjöt, mjólkurvörur, egg og kjúklingar. Á mynd 2 sést síðan hvernig umrædd 10,5% hækkun á vísitölu neysluverðs frá nóvember 1992 til mars 1997 skiptist, eftir að tekið hefur verið tillit til vægis einstakra útgjaldaliða í samsetningu hennar. Hér sést að hlutur búvara sem háð- ar eru verðlagsgrundvelli er -0,1%. Þróun búvöruverðs á tímabilinu leið- ir þannig til lækkunar á vísitölu neysluverðs, á meðan allir aðrir út- Bændur hafa, segir Erla Bjarnadóttir, átt þátt í bættum almenn- um lífskjörum. gjaldaliðir valda hækkun hennar í þeim hlutföllum sem koma fram á myndinni. Hlutdeild innfluttra vara, nýrra bíla, bensíns og varahluta í hækkun vísitölu neysluverðs er 30,3% og hlutdeild annarrar þjón- ustu 19,9%. Af ofansögðu má ljóst vera að bændur hafa átt umtalsverðan þátt í að bæta lífskjör almennings í land- inu á seinustu árum. Þetta á raunar ekki aðeins við um verð á matvælum heldur um þróun verðlags almennt, þar sem vísitala neysluverðs er mælikvarði á verðbólgu. Framlag bænda felur því einnig í sér að hald- ið hefur verið aftur af hækkun lán- skjaravísitölunnar og þannig stuðlað að bættri greiðslustöðu heimilanna í landinu. Höfundur er deildarsijóri hjá Framleiðslumati iandbúnaðarins. Erla Bjarnadóttir Þróun vísitölu neysluverðs og vísitölu búvöru háðum verðlagsgrundvelli nóv. 1992 til mars 1997 - Vísitala 180 170 160 150 140 130 161,4 neysluverðs 145,9 O- 145,6 Vísitala búvöru —O háðum verðlags- grundvelli Nóv.1992 Mars 1997 Hlutfallsleg skipting hækkunar vísitölu neysluverðs eftir uppruna, nóv. 1992 til mars 1997 2. Aðrar innl. mat- og drykkjarvörur 3. Innfluttar mat- og drykkjarvörur 4. Innlendarvörur aðrar en 11. og 2. 5. Innfluttar vömr. Nýr bíll, bensín og varahlutir 6. Innfluttar vömr aörar en i 3. og 5. 7. Áfengi og tóbak 8. Húsnæðiskostnaður 9. Vömr og þjónusta háð opinbemm verðákvörðunum 10. Önnur þjónusta -0,1 % | 1. Búvörur háðar verðlagsgrundvelli | 3,2% | 7,3% I 6,5% [30,3% 8,7% 3,6% 7,8% 12,6% 19,9%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.