Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ PÉTUR ÓLAFUR MAGNÚSSON + Pétur Ólafur Magnússon var fæddur á ísafirði 19. apríl 1920. Hann Iést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 15. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Magn- ús Vagnsson skip- sljóri, síðar síldar- *''í matsstjóri rikisins, f. á Leiru í Grunna- víkurhreppi 3. maí 1890, d. á Siglufirði 12. febr. 1951, og k. h. Valgerður Ól- afsdóttir, f. í Rvík 19. des. 1899, d. 5. mars 1978. Pétur var næstelstur sjö systkina, en þau voru Bragi, f. 1917, lögreglu- þjónn og síðar gjaldkeri á Siglufirði, sonur Magnúsar og Jóhönnu Jónsdóttur; Pétur, sem hér er kvaddur f. 1920, lengst til heimilis á Siglufirði en síðast búsettur í Grinda- vík; Hólmfríður, f. 1922, lengst búsett á Siglufirði en síð- ustu árin á Akra- nesi; Sigríður, f. 1925, d. sama ár; Vigdís, f. 1927, bú- sett í Grindavík, Magnús, f. 1930, d. 1946, og Guðrún, f. 1937, d. 1990, bjó alla ævi á Siglu- firði. Tormóna Ebenesersdóttir, móðir Magnúsar og fóstra Braga sonar hans, dvaldist allt- af á heimilinu þar til hún and- aðist 1946. Pétur var ókvæntur og barnlaus. Útför Péturs fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. í hópi systkina, foreldra og ömmu ólst Pétur upp á ísafirði, í ^ Reykjavík, á Akureyri og á Siglu- firði, en þangað fluttist fjölskyldan 1934. Hann naut alla ævi sambýl- is eða nábýlis við vandamenn sína; var heimilisfastur á Siglufirði hjá móður sinni fram á áttunda ára- tuginn, jafnvel þó hann væri mest- an hluta ársins í vinnu annars stað- ar, oftast í Grindavík en þar var hann alltaf að meira eða minna leyti í heimili hjá Vigdísi systur sinni og manni hennar Ingólfi Karlssyni, og bjó alveg hjá þeim, .eftir að þau byggðu einbýlishús *" 'um 1960. Eftir fráfall Ingólfs 1982 bjó hann áfram hjá Vigdísi allt til æviloka, og er ekki ofsagt að hann hafi átt henni og Ingólfi mest að þakka næst foreldrum sínum. Hann kom þó til Siglufjarðar og dvaldist þar hjá vandafólki í fríum sínum á sumrin. Ekki ganga allir jafn vel búnir til lífsbaráttunnar. Þegar í bernsku kom í ljós að Pétur hafði ekki á öllum sviðum þroska til jafns við önnur börn á sama reki, svo sem málþroska og viðbragðshæfni. Þá sannaðist sem oftar hve miklu gott uppeldi og umhyggja geta komið til leiðar. Þrátt fyrir hömlunina tókst honum með hjálp fjölskyld- + Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓSEF SIGURBJÖRNSSON, Hrafnistu, Reykjavfk, lést sunnudaginn 11. maí sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Helga Jósefsdóttir, Heiðar Reykdalsson, Hörður Jósefsson, Þórey Ásmundsdóttir, Gunnar Hersir, Björg Hersir, barnabörn og barnabamabörn. + Móðir mín og tengdamóðir, LÁRA MAGNÚSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 56, Reykjavík, lést í Portúgal fimmtudaginn 15. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 26. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta SÍBS njóta þess. Georgía M. Kristmundsdóttir, Einar Sigurþórsson. + Eiginmaður minn, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON bifreiðastjóri, Dynskógum 26, Hveragerði, verður jarðsettur frá Hveragerðiskirkju í dag, laugardaginn 24. maí, kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Helga Baldursdóttir. unnar, einkum móður sinnar, að læra nauðsynlegustu undirstöðu- greinar almennrar þekkingar, svo sem lestur og skrift. Mestu máli hefur þó líklega skipt að hann fékk á heimilinu uppeldi sem hæfði vel meðfæddum mann- kostum hans; hann reyndist alla ævi gegnvandaður maður til orðs og æðis, kurteis og sanngjarn, og hreinlátur og snyrtilegur í háttum. Hinsvegar undi hann illa samneyti við þá sem honum þótti ekki gæta réttra mannasiða, eða sýndu af sér frekju og jarðvöðulshátt í um- gengni. Hann var alla ævi hófsmað- ur, þótti að vísu gott að bragða vín, en sóttist ekki eftir því og neytti ekki tóbaks. Skemmtanir sótti hann aldrei að ráði, nema hvað honum þótti mjög gaman að horfa á kvikmyndir, fór oft í kvik- myndahús, einkum á yngri árum, og horfði á sjónvarp. í líkamlegu tilliti náði hann full- um þroska, varð stór og sterkur og þótti betra en ekki að njóta sannmælis fyrir atgervi sitt í afl- raunum, til dæmis að lyfta þungum hlutum eða hringbeygja fjögra eða fimm tomma nagla með fingrunum. Pétur tók bflpróf milli tvítugs og þrítugs og næstu ár ók hann oft bfl sem Síldarmatið átti og faðir hans hafði til afnota. Var það ein besta skemmtun hans. Bíllinn fylgdi embættinu eftir fráfall Magnúsar. Þar sem Pétur var aldr- ei tekjuhár og hafði ekki fjárráð nema til brýnna nauðsynja hafði hann ekki efni á að kaupa sér bif- reið. Það var honum því nánast eins og himnasending þegar hann vann góðan fólksbíl í happdrætti á sjötta áratugnum Eftir það átti hann alltaf bíl. Hann hirti bfla sina vel og hafði af þeim mikla ánægju. Ekki töldu allir hann mikinn öku- garp enda ók hann yfirleitt hægt og rasaði hann ekki að neinu í umferðinni. Samt vegnaði honum betur á vegum landsins en mörgum snillingnum, því í þau 40 ár eða svo sem hann ók bíl varð honum ekki á eitt einasta alvarlegt um- ferðaróhapp. Það kom að vísu fyrir að bílar hans urðu fyrir minni hátt- ar skemmdum, en þá áttu aðrir hlut að máli í flest eða öll skiptin. Þrátt fyrir það að Pétur gekk ekki jafnheill til lífsglímunnar og flestir aðrir hafði hann til að bera verðleika sem ollu því að vanda- mönnum hans þótti betra en ekki að geta verið honum að liði, og hann eignaðist enga óvildarmenn en marga vini og góðkunningja. Móður sinni reyndist hann afburða vel eftir að hún varð ekkja; var í reynd fyrirvinna heimilis hennar um árabil og stóð undir kostnaði af húsi sem foreldrar hans byggðu og fluttu í tveim árum áður en Magnús lést. Hann var fjölskyldu- og frændrækinn, bamgóður og vin- sæll af börnum og barnabörnum systkina sinna, og kunni ýmislegt til að skemmta þeim. Hann tróð aldrei neinum um tær, var háttvís og tillitssamur í umgengni, laus við tilætlunarsemi og mat að verðleik- um það sem honum var gert til þægðar. Pétur vann venjulega verka- mannavinnu alla starfsævi sína, fram að sjötugu, var m. a. í vega- vinnu við lagningu vegarins yfir Siglufjarðarskarð, á söltunarstöðv- um og í síldarverksmiðjum á Siglu- firði og í byggingarvinnu. Þegar atvinna dróst saman á Siglufirði um miðja öldina fór hann eins og áður er nefnt að sækja vinnu til Suðvesturlands, fyrst aðallega á veturna en síðan allt árið. Hann vann m.a. á Keflavíkurflugvelli, en einna lengst mun hann hafa unnið í fiskimjölsverksmiðjunni í Grinda- vík. Þó ævistarf Péturs væri lágt launuð erfiðisvinna og hann kæm- ist ekki til mannvirðinga var hann á margan hátt farsæll í lífinu og naut velvildar þeirra sem kynntust honum. Hann er því kvaddur með þeirri virðingu sem hverjum góðum manni ber að leiðarlokum og þökk vina sinna og kunni'ngja fyrir sam- fylgdina. Benedikt Sigurðsson. í dag kveðjum við frænda okkar og vin, Pétur Ólaf Magnússon. Börnin hændust að Pétri og hann hafði alltaf nægan tíma fyrir þau. Oft stoppaði hann til að fylgjast með þeim leika sér og virtist hafa gaman af. Ingólfur litli segir að Pétur hafi alltaf veifað öllum og segir það mikið um persónuleika hans. Pétur brosti fallega og var góður vinur. Á sumrin fór hann til Siglufjarðar og var þá hjá Fríðu systur sinni. Sl. tvö sumur heim- sóttum við ættingjana þangað. Það var gaman að sjá hvað Pétur var fljótur að setja á sig gönguskóna og koma til okkar. A Siglufirði sáum við best hvað hann var stolt- ur af æskustöðvum sínum og ekki þreyttist hann á því að segja okkur hvað hann hafði brallað í gamla daga. Það var eins og allt hefði gerst í gær, svo ljóslifandi voru minningarnar. Það verður skrítið að sjá hann ekki lengur ganga fram hjá húsinu okkar og stoppa til að fylgjast með bömunum leika sér. Við eigum líka eftir að sakna þess að hafa hann ekki hjá okkur á hátíðisdögum. Elsku amma Vigga, megi góður Guð styrkja þig á þessum erfiðu stundum. Systkinum Péturs vottum við samúð okkar. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Fyrir hönd fjölskyldunnar í Efstahrauni 30, Kristín E. Pálsdóttir. + Sigurður Guð- mundsson fæddist í Litla- Saurbæ, Ölfusi, 30. ágúst 1918. Hann lést á Landspitalan- um 19. maí síðast- liðinn. Hann var sonur hjónanna Guðmundar Gísla- sonar, f. 22.10. 1878, d. 5.10. 1956, og Guðrúnar Sig- urðardóttur, f. 21.9. 1892, d. 1.2. 1974. Kona I: Jóhanna Björg Pálsdóttir, f. 14.7. 1914, d. 28.1. 1948, sonur þeirra Halldór Már Sigurðsson, f. 26.5. 1942, d. 14.10. 1993. Kona II: Helga Baldursdóttir, Pabbi lést 19. maí á Landspítal- anum eftir langvarandi veikindi. Ef ég hefði komið tíu mínútum fyrr í heimsókn þann dag hefði ég getað kvatt hann og verið hjá honum þeg- ar þessi þráláti sjúkdómur bar hann ofurliði. Langar mig með þessum fátæklegu orðum að minnast hans. Pabbi ólst upp að Króki í Arnar- bælishverfi, Ölfusi, hjá ömmu sinni og afa og byijaði ungur að sinna búskap hjá þeim, fer síðan í kaupa- mennsku ungur að árum til að sjá fyrir sér sjálfur og seinna meir með akstri vörubifreiða sem hann stund- aði í um 50 ár, m.a. hjá Kaupfélagi Árnesinga, Bjarna í Túni og Vig- fúsi Guðmundssyni svo eitthvað sé nefnt; síðar hóf hann eigin útgerð vörubifreiða og jarðvinnslutækja. í æsku man ég ekki annað en hann hafi verið farinn til vinnu áður en við krakkarnir vorum vökn- uð og komið heim eftir að við vorum farin að sofa. Fyrir þær sakir tel ég að á þeim árum hafi ég kynnst föður mínum minna en skyldi, ekki nema að því leyti að hann hugsaði ætíð um að ekkert skorti til heimilis- f. 6.8. 1937. Börn þeirra: 1) Margrét Björg, f. 14.2. 1958, maki Ingvar Geir Guðbjörnsson. 2) Baldur, f. 10.2. 1959, maki Vigdís Heiða Guðnadóttir. 3) Guðrún, f. 14.12. 1961, maki Jón Ög- mundsson. 4) Guð- mundur, f. 18.1. 1963, maki Sigríður Björk Sigurðar- dóttir. 5) Hulda Sig- urðardóttir, f. 26.8. 1974. Barnabörnin eru orðin 13 og eitt barnabarn. Útför Sigurðar verður gerð frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ins en nærvera hans hefði mátt vera meiri. Skapgerð hans var með þeim hætti að við krakkarnir töldum að það væri vænni kostur að láta hann ekki þurfa að segja okkur hlutina nema einu sinni en þar er ég ekki að segja að við hefðum hlot- ið verra af heldur var hann fáskipt- inn maður heima fyrir og orð hans voru lög. Hann var barn síns tíma, ólst upp í gamla tímanum, ósérhlíf- inn til vinnu og ég held að það sem hann lofaði hafi ekki verið svikið. Þessar kröfur gerði hann til sjálfs sín og vænti þess sama af öðrum. Ungur fór ég að heiman og juk- ust kynni okkar á þeim tíma ekki nægilega mikið þar sem ég flyst í annað byggðarlag töluverðan tíma. Það má segja að þegar ég flyst í nálægð við foreldra mína á nýjan leik er pabbi farinn að draga veru- lega úr vinnu og undanfarin ár far- inn að glíma við veikindi. Um það leyti fór ég að kynnast mannkostum þessa góða manns með allt öðrum hætti en áður þar sem hann var meira heima við vegna aldurs og veikinda. Þá fórum við að gefa okk- ur tíma til að ræða um heima og geima þegar ég leit inn hjá honum. Það átti ekki við hann að bera líðan sína eða kvalir á torg en þar kom að hann gat ekki leynt sínu stríði við þann þráláta sjúkdóm er á hann heijaði sökum þess hvað af honum dró en aðspurður var hann alltaf betri en í gær. Ekki er annað hægt en dást að þeirri hetjulegu baráttu hans við sín veikindi, hörku og vilja til að bera sig mannalega, frekar hafði hann áhyggjur af hvernig öðrum farnaðist og liði og skynjaði ætíð hvort hans fólk ætti við erfið- leika að stríða og hvort hann gæti ekki orðið að liði. Það sem í stuttu máli má segja að einkennt hafi þig, pabbi minn, er tryggð við fjölskyldu þína og vini, heiðarleiki og óbilandi trú, að þér batnaði og að þú kæmir aftur heim á meðal okkar. En nú ertu horfinn sjónum okkar en í hjarta okkar ertu til staðar. Ég og fjölskylda mín viljum þakka þér, mamma mín, fyrir alla þá alúð, tryggð og umhyggju sem þú ávallt sýndir pabba. Megi góður Guð gefa þér og okkur öllum styrk á erfiðri stundu til að standa sterk eftir fráfall góðs manns. Pabbi er horfinn af sjónar- sviðinu en við skulum minnast hinna fomu Hávamála: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi, hveijum sér góðan getur. Þinn sonur. Baldur Sigurðsson. Kveðja til afa. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofí rótt. Elsku amma og aðrir aðstand- endur, megi Guð styrkja okkur öll. Blessuð__sé minning afa okkar. Ösp, Leó, Þorgils Óttar og Guðni Vilberg. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.