Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 51

Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 51 BRÉF TIL BLAÐSINS MESSUR Á MORGUN Opið svarbréf til Jóns Egils Unndórssonar Frá Þóroddi Helgasyni: ÁGÆTI glímufélagi, Jón Egill Unndórsson! Þú sendir mér og öðrum Aust- firðingum línur í Morgunblaðinu fyrir nokkru og baðst okkur svara hvers vegna við hefðum nýtt okkur þann rétt að senda fulltrúa á nýaf- staðið glímuþing. í grein þinni seg- ir þú okkur hafa svikið samkomu- lag og loforð, telur okkur hafa sýnt ódrenglyndi, talar um óvirkt félag sem eigi ekki að skipta sér af því sem fullorðnir glímumenn eru að fást við og þar fram eftir götunum. Um það síðasttalda hirði ég ekki að svara þar veist þú bet- ur en hvers vegna fulltrúa UIA komu á glímuþingið og hver var aðdragandi þess, því skal ég svara. Við eigum rétt á fjórum fulltrú- um á glímuþing, en þar sem við búum langt frá þingstað höfum við oftar en ekki sleppt því að mæta til þings, einfaldlega vegna þess hve dýrt það er. Það er hins vegar ekki rétt Jón að ég hafi gert eitt- hvert samkomulag við þá fulltrúa sem vildu skipta um forystu í Glímusambandinu. Hið sanna er að miðvikudaginn fyrir glímuþing- ið hringdi ágætur glímufélagi, 01- afur Haukur Ólafsson, í mig. Hann sagðist ásamt fleiri mönnum vilja skipta um forystu í Glímusam- bandinu og spurði mig hvort full- trúar kæmu frá okkur Austfirðing- um. Ég sagði að svo væri ekki, enda gerði ég þá ekki ráð fyrir að senda fulltrúa á þingið en sagðist jafnframt styðja núverandi for- ystu. Öll mín kynni af Jóni M. Ivarssyni og Hjálmi Sigurðssyni væru góð. Tveimur dögum síðar hringir Jón M. ívarsson í mig og bað mig að styðja núverandi stjórn. Ég sagðist ekki gera ráð fyrir því að senda fulltrúa en hins vegar væri ég ánægður með þeirra for- ystu. Laugardagskvöldið, kvöldið fyrir umrætt þing, hringdu þeir síðan í mig Hjálmur og Jón og Frá Soffíu Gísladóttur: UNDANFARIN ár hefur verð- skulduð athygli verið vakin á hörmulegum afleiðingum af áfeng- is- og fíkniefnaneyslu ungs fólks. Umræðan hefur beinst að nauðsyn forvarna, án þess þó að þeir sem tala viti endilega hvernig á að annast þessar forvarnir. Foreldrar, kennarar, lögregla, heilbrigðisstarfsfólk og aðrir sem koma að málefnum unglinga hafa oft á tíðum staðið ráðþrota. Þetta fullorðna fólk hefur verið ósam- stíga í afstöðu sinni og aðgerðum, á. meðan unglingarnir fara sínu fram. Þessar aðstæður hafa kallað á fræðslu um það hvernig best sé að standa að forvörnum. Af því tilefni stofnaði SÁÁ sérstaka for- varnadeild, sem sér um að miðla þekkingu í þessum efnum. Það eru forvarnir í verki. ,Nú þegar starfar forvarnadeild SÁÁ af miklum krafti. Starfsmenn hennar eru þrír, sálfræðingar og ráðgjafar. Undanfarin misseri hafa þeir verið að miðla þekkingu sinni til starfsfólks í grunnskólum, til þjálfara og forráðamanna íþrótta- báðu mig að útvega fulltrúa því annars gæti þeim verið vikið úr stjórn sambandsins. Lítið gagn væri að stuðningsmanni sem sæti heima. Ég ákvað þá að leggja þeim lið og útvegaði fulltrúa. Ég sagði það við Ólaf Hauk eft- ir þingið er hann hringdi og spurði hvers vegna við hefðum sent full- trúa, að félagar mínir Jón og Hjálmur hefðu beðið mig að sýna stuðning í verki. Ég tók hins vegar undir með Ólafi að rétt hefði verið að hringja í hann umrætt laugar- dagskvöld og segja honum frá því að fulltrúar kæmu að austan og bað hann velvirðingar á því. Þannig æxluðust málin Jón og mér þykir það leitt að hafa ekki hringt í Ólaf. Það er alltaf gott að vera vitur eftir á. Við Austfirð- ingar gerðum hins vegar ekkert samkomulag við einhvern hóp eða gáfum loforð og afstaða okkar til forystu Glímusambandsins er óbreytt. Að lokum vil ég segja að mér þykir leitt að óeining ríki innan Glímusambandsins og vona að menn geti þar náð sáttum. Við eigum svo miklu fleira sameigin- legt en það sem sundrar okkur. Það uppbyggingarstarf meðal barna og unglinga sem nú er stundað víða um land og ekki síst í Reykjavík er mikið fagnaðarefni fyrir okkur glímumenn og ég er sammála þér Jón að glíman á nú vaxandi fylgi að fagna. Karp okkar á milli dregur bara úr okkur mátt, sem við annars nýtum í starf fyrir okkar ágætu glímudrengi og -stúlkur. Að lokum vona ég að ég geti áfram átt góðar ánægjustund- ir með glímumönnum hvar sem er á landinu þó ég sé ekki að biðja um eins innilegt samband og þið Hjálmur áttuð í veislunni hjá Ingi- bergi. Með glímukveðju, ÞÓRODDUR HELGASON, þjálfari UÍA. félaga og beint til foreldra. Einnig hefur staðið yfir metnaðarfullt verkefni með fimm sveitarfélögum, sem eru Akranes, Egilsstaðir, Húsavík, Mosfellsbær og Vest- mannaeyjar. Þar taka þátt allir sem koma að málefnum unglinga í viðkomandi sveitarfélagi. Starfsemi forvarnadeildar SÁÁ byggist á fjáröflunum meðal ís- lensku þjóðarinnar. Þar eru tekj- urnar af Álfasölu SÁÁ mikilvæg- astar. Álfasalan stendur yfir þessa helgi. Ég vona að sem flest- ir sjái sér fært að styðja forvarna- starfið með því að kaupa Álfinn góða. SOFFÍA GÍSLADÓTTIR, félagsmálastjóri á Húsavík. Guðspjall dagsins: Kristur og Nikódemus (Jóh. 3.) ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14 með þátttöku Átthagafélags Sléttuhrepps. Ræðumaður Odd- ur Þ. Hermannsson. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BUSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Guðný Hallgrímsdóttir. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Organleikari Kjartan Sigurjóns- son. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Kjartan Jónsson. Organisti Árni Arin- bjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Barnakór Hallgrímskirkju syngur, stjórnandi Bjarney Ingi- björg Gunnlaugsdóttir. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Ensk messa kl. 14. Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Pavel Manasek. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Gylfi Jónsson. Ein- söngur Björn Jónsson. Organisti Steingrímur Þórhallsson. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Síðasta guðsþjónusta frá sumarleyfi. Félagar úr Kór Laugarneskirkju syngja. Organ- isti Gunnar Gunnarsson. Guðs- þjónusta kl. 14 í Sjálfsbjargarhús- inu, Hátúni 12. Olafur Jóhanns- son. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Frank M. Halldórsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Næsta guðsþjónusta verður gönguguðs- þjónusta á Akrafjall sunnudaginn 8. júní kl. 10. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organleikari Kristín G. Jónsdóttir. Léttur málsverður í hádeginu. Aðalfundur Árbæjar- safnaðar í safnaðarheimili kirkj- unnar kl. 12.30. BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Aðalsafnaðarfundur Breiðholtssafnaðar verður hald- inn að loknum léttum málsverði kl. 12.30. Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónas- son. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Lenka Mátéová. Prestarnir. GRAF ARVOGSKIRKJ A: Guðs- þjónusta kl. 11. Kór Grafarvogs- kirkju syngur undir stjórn Harðar Bragasonar organista. Aðalsafn- aðarfundur verður haldinn að loknum léttum málsverði. Arki- tektar sýna kirkjuteikningar. Júl- íus Hafstein, framkvæmdastjóri Kristnitökuhátíðarnefndar, flytur ávarp. Sýning llluga Eysteinsson- ar er opin á efri hæð kirkjunnar. Sóknarnefnd. HJALLAKIRKJA: Hátíðarmessa kl. 11 í tilefni af tíu ára afmæli safnaðarins. Guðrún S. Birgis- dóttir og Martial Nardeau leika á flautur. Kór Hjallaskóla flytur stól- vers. Kór kirkjunnar syngur. Org- anisti Oddný J. Þorsteinsdóttir. Afmæliskaffi strax að messu lok- inni. Poppmessa kl. 16. Pylsu- veisla að lokinni poppmessu. All- ir hjartanlega velkomnir. Prest- arnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyj- ólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa- vogskirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Sr. Ágúst Ein- arsson predikar. Organisti Kjart- an Sigurjónsson. Sóknarprestar. FRÍKIRKJAN, Rvík: Alþjóðlegur Tekiðá alvarlegn máli SELTJARNARNESKIRKJA. minningardagur um þá, sem lát- ist hafa af völdum alnæmis. Guðsþjónusta kl. 11. Ath. breytt- an tíma. Félagar úr alnæmissam- tökunum annast ritningarlestra. Andrea Gylfadóttir syngur ein- söng. Kór kirkjunnar syngur. Org- anisti Pavel Smid. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: KRISTSKIRKJA, Landakoti: í dag, laugardag: Bænahald í tilefni 100 ára afmæli Landakotsskóla. Sunnudag: Messur kl. 10.30, kl. 14, kl. 20 (á ensku). Laugardaga og virka daga messur kl. 8 og 18. MARIUKIRKJA, Raufarseli 8: Messa sunnudag kl. 11. Messa laugardag og virka daga kl. 18.30. GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa sunnudag kl. 10 á þýsku. Laugardag og virka daga messa kl. 7.15 á þýsku. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa sunnudag kl. 10.30. Messa virka daga og laugardaga kl. 18. KARMELKLAUSTUR, Hafnar- firði: Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa laugardaga og virka daga kl. 8. BARBÖRUKAPELLA, Keflavík: Messa sunnudag kl. 14. STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7: Messa sunnudag kl. 10. Messa laugardag og virka daga kl. 18.30. HVITASUNNUKIRKJAN Fíladelf- fa: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu- maður Ólafur Jóhannsson. Al- menn samkoma kl. 16.30. Ræðu- maður Hinrik Þorsteinsson. Allir hjartanlega velkomnir. KFUM og KFUK: Samkoma í Frið- rikskapellu sunnudagskvöld kl. 20. Fæðingardagur séra Friðriks. Lok Kristniboðsþings. Sr. Helgi Hróbjartsson talar. KLETTURINN: Kristið samfélag, Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sam- koma sunnudag kl. 20. Ath. breyttan samkomutíma. Jón Þór Eyjólfsson prédikar. Allir vel- komnir. MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár- stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl. 20. Altarisganga öll sunnu- dagskvöld. Prestur sr. Guðmund- ur Örn Ragnarsson. ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Almenn samkoma kl. 11. Ræðu- maður Ásmundur Magnússon. FyrirPænaþjónusta/bænaklútar. Allir hjartanlega velkomnir. FÆREYSKA Sjómannaheimilið: Samkoma á morgun kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæna- stund kl. 19.30. Hjálpræðissam- koma kl. 20. Elsabet Daníelsdótt- ir talar. LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Bjarni Þór Bjarnason. Jón Þorsteinsson. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Örn Bárður Jónsson, umsækjandi um Garðaprestakall messar. Einleikur á gítar: Örn B. Arnarson. Einsöngur: Anna Júl- íana Sveinsdóttir. Kór Vídalíns- kirkju syngur. Organisti Bjarni Jónatansson. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Öldutúnsskóla syngur. Stjórnandi: Egill Friðleifsson. Organisti: Guðmundur Sigurðs- son. Vorkaffi Siglfirðingafélags- ins að athöfn lokinni. BESSASTAÐAKIRKJA: Kvöld- guðsþjónusta kl. 20.30. Sr. Bragi Friðriksson kveður söfnuðinn. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur og organisti verður Hall- dór Óskarsson. Sigurður Helgi Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Fimm ára Pörnum boðið sérstaklega í kirkju ásamt fjölskyldum sínum. Barna- kórinn syngur. Stjórnandi og org- anleikari Hrönn Helgadóttir. Prestar sr. Þórhildur Ólafs og sr. Þórhallur Heimisson. Tónleikar Kórs Hafnarfjarðarkirkju kl. 16. Stjórnandi Natalía Chow. Píanó- leikari Helgi Pétursson. Tvísöng- ur: Valdimar Másson og Natalía Chow. Aðgangur er ókeypis. Prestarnir. KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Örn Bárður Jónsson, umsækjandi um Garða- prestalcall, messar. Einleikur á gítar: Örn B. Arnarsson. Organ- isti Frank Herlufsen. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 10.30. Aðalsafnaðarfundur að lokinni messu. Sóknarnefnd. ODDASÓKN: Guðsþjónusta á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu kl. 11. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Almenn safnaðarguðsþjónusta kl. 14. Prófasturinn í Árnesprófasts- dæmi, sr. Guðmundur Óli Ólafs- son, setur sr. Heimi Steinsson inn í embætti sóknarprests á Þingvöllum. Organleikari Ingunn Hildur Hauksdóttir. Sóknarnefnd. AKRANESKIRKJA: Messa í dag, laugardag, kl. 17 á vegum Kvennakirkjunnar. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Messa sunnudag kl. 14. Fimmtíu og sex- tíu ára fermingarbörn koma í heimsókn og taka þátt í mess- unni. Björn Jónsson. Frikirkjan i Reykjavík Aiþjóðlegur minningardagur um þá, sem látist hafa af völdum alnæmis. Guðsþjónusta kl. 11.00 ATH. breyttan tíma. Félagar úr alnæmis- samtökunum annast ritningarlestra. Andrea Gylfadóttir syngur einsöng. Kór kirkjunnar syngur. Organisti Pavel Smid. Prestur Bryndís Malla Elídóttir. ii

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.