Morgunblaðið - 24.05.1997, Side 52

Morgunblaðið - 24.05.1997, Side 52
52 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MAÐKURINN- skelfir garðeigandans. MAÐKAR í MYSUNNI TRÉ og runnar hafa ýmsum hlut- verkum að gegna í umhverfi okkar. Þau veita skjól gegn veðri og vind- um og Iífga upp á sumarmánuðina með laufskrúði sínu og blómum. Mann- fólkið er þó ekki eitt um það að njóta trjágróðursins. Ýmiss konar smá- dýr gera sér mat úr honum í bókstaf- legri merkingu og má þar fremsta í flokki telja ttjá- maðkana svokölluðu. Tijámaðk- ar eru, eins og flestum er kunn- ugt, fiðrildalirfur af ýmsum teg- undum. Algengustu tegundunum er gjarnan skipt í tvo flokka eft- ir vaxtarlagi: feta (sbr. víðifeta og haustfeta) sem feta sig áfram með nokkurs konar gripörmum fremst og aftast á búknum og vefara (sbr. skógarvefara) sem skríða áfram á litlum vörtufótum sem raðast eftir endilöngum búk lirfanna. í fljótu bragði finnst manni tijámaðkur og fiðrildi eiga fátt sameiginlegt. Það er alltaf spennandi að sjá fyrstu fiðrildin á vorin en sennilega bíða þess ekki margir með eftirvæntingu að sjá fyrstu tijámaðkana í tijá- gróðrinum sínum. Maðurinn og maðkurinn eru í eilífri samkeppni um gróðurinn og má stundum vart á milli sjá hvor hefur betur. Til þess að ná yfirhöndinni yfir maðkinum þarf maðurinn að þekkja lífsferil fiðrildanna. Full- orðin fiðrildi verpa eggjum sínum við brum tijáa og runna. Það er ekki að spytja að móðureðlinu; mæður, hverrar tegundar sem þær eru, leggja mikið á sig til þess að börnin þeirra hafi nóg að borða. Sumar tijátegundir eru greinilega betri matur en aðrar og má þar nefna ýmsar víðiteg- undir, birki, mispil og reynitijáa- tegundir. Þegar vorar og hlýnar í veðri eykst safastreymi í plönt- unum, brumin þrútna og búa sig undir það að springa út. Á sama tíma fara egg fiðrildanna að klekjast út. og litlu lirfumar bora sig inn í brumin og setjast að snæðingi. Talið er að flest eggin klekist á tímabilinu frá miðjum maí og fram í byijun júní. Nýju brumin eru mjúk undir tönn og ljúffeng á bragðið og eru lirfumar því fljótar að fitna. Um það bil tveimur vik- um eftir að eggin klekjast út (þ.e. í byijun júní) era lirf- urnar orðnar það stórar að þær sjást auðveldlega með berum augum og þá tölum við um það að maðkurinn sé kominn í trén. Fram yfir miðjan júní kjamsa lirfum- ar á laufblöðunum. Ef ekkert er að gert lætur tijágróðurinn stórlega á sjá á þessum tíma. Upp úr miðjum júní hefst hins vegar næsta þroskastig hjá lirf- unum en þá láta þær sig síga á silkiþráðum sem þær spinna nið- ur í moldina og þar púpa þær sig. Púpustigið tekur u.þ.b. mán- uð og þegar því lýkur verða til fullsköpuð fiðrildi. Þau fljúga um, fínna sér heppilega maka og kvenfiðrildin verpa svo eggj- um sínum við brum heppilegra tijátegunda. Það eru áraskipti að því hversu illa tijámaðkurinn leikur trén. Eftir milda vetur er mikið af eggjum lifandi og margar lirfur komast á legg. Garðeigendur þurfa að vera vakandi fyrir þessu vandamáli og grípa til aðgerða um leið og þeir sjá maðk á tiján- um hjá sér. Hægt er að drepa egg fiðrildanna með vetrarúðun en hún verður að eiga sér stað á meðan trén era í dvala eða í síðasta lagi fyrir miðjan apríl. Sumarúðun verður hins vegar að eiga sér stað þegar lirfurnar sjást í tijánum eða frá því í lok maí fram yfír miðjan júní. Flest eitur- efni sem notuð era gegn tijá- maðki verka einungis við snert- ingu við maðkinn og gera því lít- ið gagn ef ekki sést maðkur í tijánum. Á tímum umhverfis- vænnar hugsunar hlýtur það að vera mikilvægt að sprauta ekki eiturefnum í umhverfíð að ástæðulausu. Því miður eru fáar aðgerðir eins árangursríkar gegn fíðrildalirfum og eiturúðun en hún verður að framkvæmast á réttum tíma eigi hún að bera árangur. Annars sitjum við, eftir sem áður, uppi með maðka í mysunni okkar og laufblaðalaus tré. Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur. BLOM VIKUNNAR 355. þáttur Umsjón Ágústa Björnsdóttir I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Til lesenda Velvakanda AÐ GEFNU tilefni vill Velvakandi beina þeim til- mælum til þeirra sem senda honum bréf að bréf- inu fylgi fullt nafn, heimil- isfang og sími. Kaupum Álfinn NÚ UM helgina mun SÁÁ hefja sína árlegu álfasölu. Afrakstur sölunnar mun renna til forvarna áfengis- og vímuefna. Ég tel að þeir SÁA-menn hafi bestu þekkingu og reynslu í áfengisvörnum. Ég vil hvetja alla lands- menn að styðja við bakið á SÁÁ-mönnum og kaupa Álfínn. Við eigum glæsi- legt ungt fólk sem okkur ber skylda að hlúa að. Styðjum SÁÁ og kaup- um Álfinn og eflum þar með forvamir fyrir bömin okkar. Guðjón Sigurðsson. Ábending til kattar eigenda JÓNÍNA hringdi í Velvak- anda og viil hún koma þeirri ábendingu til kattar- eigenda á Seltjarnarnesi að þeir loki kettina inni á meðan fuglarnir em með unga í hreiðri. Hún segist horfa upp á harmleik dag- lega þar sem ungarnir séu ekki fleygir og kettir sitji um þá, bjöllur hafi ekkeit að segja því ungamir geti enga björg sér veitt. Langspil óskast TRYGGVI og Vala höfðu samband við Velvakanda og þurfa þau að komast í samband við einhvern sem getur lánað þeim langspil. Þau segja að þau séu að taka upp tónlist með göml- um lögum og vanti undir- leik með langspili. Þeir sem gætu liðsinnt þeim era vin- samlega beðnir að hafa samband við þau í síma 562-9232. Endurvinnslan í Mjódd MIG langar að gera at- hugasemd við skipan mála við endurvinnsluna í Mjódd. Borgaðar era 7 krónur fyrir glerið þar en yfirleitt 15 krónur annars staðar. Einnig er ég ósátt- ur við að fá þetta ekki greitt í peningum heldur þarf ég að taka út vörar fyrir andvirði glersins. Ég er sammála því að ekki megi reykja í yfirbygging- unni í Mjódd. Mér fínnst að eigi að banna reykingar í veitingahúsunum í Mjódd- inni, þ.e. banna allar reykingar alls staðar. Björgvin. Þakkir til þula Ríkisútvarpsins FYRIR lestur tilkynninga gefst þulum Ríkisútvarps- ins stundum tækifæri til að setja plötu á fóninn. Ég vil sérstaklega þakka kvenþulunum fyrir gott og fjölbreytt lagaval. Sigurður. Tapað/fundið Gallajakki fannst GALLAJAKKI fannst í Fossvoginum. Uppl. í síma 553-6948. Vasadiskó tapaðist VASADISKÓ tapaðist miðvikudaginn 21. maí í Laugameshverfi. Skilvís finnandi hafi samband í síma 588-9695. Bindisnæla tapaðist SÉRSMÍÐUÐ bindisnæla (spöng) tapaðist í Búðar- kletti í Borgamesi föstu- daginn 9. maí. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 437-2333 eða 437-2027 eftir kl. 19. Ur og armband töpuðust KARLMANNSÚR tapaðist miðvikudaginn 21. maí á Miklatúni. Einnig tapaðist í byijun maí armband merkt: Andri Valur, líklega á Húsavík eða á leiðinni Húsavík-Reykjavík. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 588-9928. Ungbarnasokkur fannst UNGBARNASOKKUR fannst á Skólvörðustíg miðvikudaginn 21. maí. Uppl. í síma 554-0268. Dýrahald Kjölturakki týndist SVARTUR og hrokkin- hærður kjölturakki týndist er hann var í heimsókn í Frostafold, Grafarvogi, á hvítasunnudag. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 561-2270 eða 567-4124. Kettlingar fást gefins FJÓRIR kettlingar óska eftir góðu heimili. Uppl. í síma 567-2168. SKAK llm.sjön Margcir l’étursson HVÍTUR leikur og vinnur. STAÐAN kom upp á alþjóð- legu móti í Sánkti Péturs- borg í Rússlandi í vor. Rúss- inn Alexander Khalifman (2.650) hafði hvítt og átti leik gegn Gena Sosonko (2.515), Hollandi. 26. Bf6! og svartur gafst upp, því eftir 26. - gxf6 27. exf6 - Rg6 28. hxg6 - fxg6 29. Hhl - h5 30. Hxh5+! er hann óverjandi mát. Úrslitin á mótinu urðu: 1.-3. Khalif- man, Kortsnoj og Salov 7 v. af 11 mögulegum, 4. Asejev 6’A v., 5. Se. Ivanov 6 v. 6.-7. Episín og Sakajev 5‘A v., 8. Svidler 5 v., 9. Komarov 4 'U v., 10.-12. Sosonko, Júdasín og Ma. Zeitlin 4 v. Keppendurnir tólf tefla fyrir fimm mismunandi lönd, en ólust allir upp í Sánkti Pétursborg, sem þá hét Leníngrad. Aðalfundur Skáksam- bands íslands 1997 fer fram í dag kl. 10 árdegis í húsnæði SÍ, Faxafeni 12. Guðmundur G. Þórarinsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs og _eru allar lík- ur á því að Ágúst Sindri Karlsson úr Hafnarfirði taki við. Guðmundur G. Þórarinsson hefur verið forseti SÍ undanfarin fimm ár. Hann lagði áherslu á að koma lagi á fjármál sambandsins, með ágætum árangri. Það er líklega einsdæmi að Guðmundur fór aldrei utan á kostnað sambandsins, öll stjórnarár sín! * Ast er... \U-<> 3-25 að taka heyrnartólin af ef hana langar að tala við þig. TM Rofl. U.S. Pat. Ofl — all rights reserved (C) 1997 Los Angeles Tntes Syndicate Víkveiji skrifar... VÍKVERJI neyðist til að draga til baka sumt af því hrósi, sem hann skrifaði hér fyrir hálfum mánuði um þá nýbreytni hjá ÁTVR að selja bjór í stykkjatalj. Þegar hann kom í verzlun ÁTVR í Austurstræti fyrir hvítasunnuhelg- ina og hugðist velja sér nokkra girnilega bjóra með grillmatnum kom í ljós að það er bara dósa- bjór, sem er seldur í stökum dós- um, en flöskubjórinn er ekki seldur í stykkjatali. Þegar Víkveiji spurði starfsmann ÁTVR hverju þetta sætti, svaraði hann því til að það væri svo „óskapleg brothætta" af því að selja stakar bjórflöskur. xxx TIL að byrja með kveikti Vík- veiji ekki á perunni, en svo rann upp fyrir honum ljós. Auðvit- að er ein bjórflaska miklu brot- hættari en sex bjórflöskur og ein bjórflaska er líka miklu brothætt- ari en t.d. ein rauðvínsflaska eða ein vodkaflaska úr næsta rekka í Ríkinu. Að Víkveiji skyldi ekki hafa áttað sig á þessu strax! En hann hefur líka takmarkaða þjálf- un í þeirri sérstöku tegund rö- kvísi, sem forsvarsmenn ÁTVR og bindindishreyfingarinnar hafa tamið sér. xxx ARNI Biynjólfsson skrifar Vík- veija í framhaldi af orðaskipt- um hans við fulltrúa hjá Áfengis- varnaráði síðastliðinn laugardag. Árni skrifar m.a.: „Það er landlæg- ur undirlægjuháttur gagnvart þeim sem reka öfgafenginn áróður gegn áfengi og vilja helzt gera það út- rækt, sem sennilega á stóran þátt í því að of margir kunna ekki með það að fara. Að Áfengisvarnaráð og aðrar ámóta stofnanir fari að beita sér í enn ríkari mæli að „miðl- un upplýsinga“ er ekki ráðlegt, við skulum heldur leggja þetta niður, skilja að ríki og bindisboðun - há- effa templarana. Það ætti ekki að þurfa að vera nein umræða um það hvar og hvern- ig áfengi er selt, fremur en önnur matvara, sem getur stafað hætta af ef neytt er í óhófi.“ VÍKVERJI fagnar því eindregið að breytingar hafa nú verið gerðar á leiðatöflu Strætisvagna Reykjavíkur, meðal annars í því skyni að rýmka þann tíma sem vagnstjórar hafa til að komast á milli stöðva. Hraðakstur strætis- vagna var á góðri leið með að verða eitt af helztu vandamálum í um- ferðinni í Reykjavík. Ekki er lengra en hálfur mánuður síðan Víkverji varð vitni að því að ökumanni strætisvagns á leið 5 lá svo á að komast smáspöl eftir Lækjargötu, á milli Austurstrætis og Vonar- strætis, að hann lagði á sig að gefa rækilega í og taka fram úr litlum bíl á hægri akreininni. Vagn- stjórinn sá augljóslega ekki annan lítinn bíl á vinstri akreininni og sveigði þvert i veg fyrir hann. Það var ökumanni þeirrar bifreiðar, sem snarhemlaði, að þakka, en ekki strætisvagnstjóranum, að ekki hlauzt slys af. Vonandi geta vagnstjórar á leið 5 og öðrum strætisvagnaleiðum nú tekið það rólegar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.