Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVlK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRVM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
LAUGARDAGUR 24. MAI1997
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Njarðvík-
urmær
* varvalin
fegurst
HARPA Lind Harðardóttir, tví-
tug Njarðvíkurmær, var kjörin
fegurðardrottning Islands 1997
á Hótel Islandi í gærkvöldi, en
úrslitin voru kunngjörð á mið-
nætti.
Sólveig Lilja Guðmundsdótt-
ir, fegurðardrottning íslands
1996, krýndi arftaka sinn, en
Sólveig er einnig úr Njarðvík-
um. Svo skemmtilega vill til að
' systir Hörpu, Brynja Björk,
varð í 3. sæti í keppninni árið
1995. Foreldrar þeirra eru
Anna Sigurðardóttir og Hörður
Karlsson.
Guðný Helga Herbertsdóttir
úr Reykjavík varð í öðru sæti
og Dagmar íris Gylfadóttir,
fegurðardrottning Reykjavík-
ur, varð í þriðja sæti, og var
hún jafnframt kjörin vinsælasta
stúlkan. í fjórða sæti varð Eva
( -^.Dögg Jónsdóttir frá Akureyri
og í fimmta sæti varð Þorgerð-
ur Þórðardóttir, fegurðar-
drottning Austurlands, en hún
var jafnframt kjörin besta ljós-
myndafyrirsætan.
Hlaut bíl í verðlaun
Mikið fjölmenni var á Hótel
íslandi í gærkvöldi og var stúlk-
unum vel fagnað þegar þær
komu fram, fyrst í baðfötum
og síðan í síðkjólum. Að þessu
sinni kepptu 20 stúlkur mn titil-
inn fegurðardrottning Islands.
Morgunblaðið/Halldór
1. árs nemendur í MR
45% féllu í
stærðfræði
45% NEMENDA í 3. bekk, þ.e. á
fyrsta ári, í Menntaskólanum í
Reykjavík féllu á stærðfræðiprófi í
vor og hefur fallhlutfall í greininni
aldrei verið jafnhátt í skólanum og
nú.
Yngvi Pétursson, konrektor, seg-
ir að stór hluti hópsins muni ná
endurtekningarprófi eða standast
lokatilraun til prófs í haust.
„Fyrri gögn benda eindregið til
þess að nemendum með undir 8 á
samræmdu prófi gangi mjög illa og
það er mjög hátt hlutfall þeirra sem
þurfa að þreyta próf aftur,“ segir
Yngvi.
I Menntaskólanum við Hamrahlíð
er yfirleitt 30-40% fall í fyrsta
stærðfræðiáfanga og í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti falla 50-60%
nemenda í fyrstu stærðfræðiáföng-
um, að sögn Þorgeirs Sigurðssonar,
deildarstjóra í stærðfræði. Nemend-
ur með háa einkunn á samræmdu
prófi komi yfirleitt vel út en stórt
hlutfall nemenda sýni slakan stærð-
fræðiárangur. „Nemendur með 5
og 6 í einkunn [á samræmdu prófi]
eiga mjög erfitt með algebruna og
þessir nemendur fá fleiri kennslu-
tíma á viku í greininni,“ segir Þor-
geir.
■ Fallhlutfall aldrei jafnhátt/12
Niðurstöður samræmdra prófa
Danskan kom best út
MEÐALEINKUNN nemenda sem
tóku samræmt grunnskólapróf í
dönsku í ár var nokkru hærri en í
fyrra og kom danskan raunar best
út af samræmdu greinunum þetta
árið, að sögn Þórólfs Þórlindssonar,
forstöðumanns Rannsóknastofnun-
ar uppeldis- og menntamála.
Meðaleinkunn í ensku var heldur
lægri nú en í fyrra og sömuleiðis í
stærðfræði en íslenskueinkunnin er
svipuð, samkvæmt upplýsingum
Þórólfs. Hann leggur áherslu á að
nú fari í hönd nánari úrvinnsla á
niðurstöðum prófanna en skólarnir
fá niðurstöðurnar í næstu viku og
nemendur þar með einkunnir sínar.
Aðspurður um hugsanlega
ástæðu fyrir betri árangri i dönsku-
prófinu nú en áður nefnir Þórólfur
jákvætt andrúmsloft í kringum
dönskukennsluna að undanförnu.
„Mín tilfinning er sú að það hafi
verið verulegur kraftur í dönsku-
kennurum undanfarið og að það
hafi átt sér stað veruleg uppbygg-
ing í faginu. En að vísu veit maður
náttúrulega aldrei nákvæmlega
hvort prófin eru alveg sambærileg
frá ári tii árs,“ segir Þórólfur.
Enginn fundur boðaður vegna kj ar adeilunnar á Vestfjörðum
Deilan enn í hnút og
verkfallsátök harðna
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
VERKFALLSVERÐIR í Baldri lögðu bílum sínum á bryggjuna
í Grundarfirði til þess að koma í veg fyrir löndun.
18,5% verðlækkun
á rækju í fyrra
Tekjutap
um 4,3
milljarð-
ar króna
AFURÐAVERÐ á skelflettri
rækju lækkaði um 18,52% á
síðasta ári samkvæmt út-
reikningum Þjóðhagsstofnun-
ar. Miðað við 23.000 tonna
ársframleiðslu hefur rækju-
vinnslan í landinu því orðið
af um 4,3 milljörðum króna
vegna verðlækkananna.
Alls veiddu íslendingar um
88.638 tonn af rækju á síð-
asta ári sem er um 5.000
tonnum meiri afli en árið
áður. Alls voru flutt út um
23.500 tonn af rækjuafurðum
í fyrra, sem er mesti útfiutn-
ingur á einu ári frá upphafi.
Útflutningsverðmæti rækj-
unnar var á síðasta ári rúmir
15,9 milljarðar króna, eða um
17,2% af heildarútflutnings-
verðmæti sjávarafurða á ár-
inu. Það er um 550 milljóna
króna aukning frá árinu 1995.
■ Ársins 1996/17
TIL handalögmála kom milli lönd-
unarmanna í Grundarfírði og verk-
fallsvarða Verkalýðsfélagsins
Baldurs á ísafirði þegar reynt var
að afferma togarann Bessa ÍS í
Grundarfirði í gærmorgun. Verk-
fallsvörðum tókst að stöðva löndun-
ina og fóru löndunarmenn af
bryggju. Að sögn verkfallsvarða
eru þetta hörðustu átök sem þeir
hafa lent í frá því verkfallið hófst.
Sáttafundur hefur enn ekki verið
boðaður í deilunni en Morgunblaðið
hefur heimildir fyrir því að deilu-
aðilar hafi ræðst við án þess að
þeir sjái tilgang í að setjast á sátta-
fund.
Verkfallið er farið að hafa veru-
leg áhrif á allt athafnalíf á Vest-
fjörðum.
Óvissa um sumar-
vinnu unglinga
„Við fundum fyrir verkfaliinu í
fyrstu vikunni þegar verkefnum
snarfækkaði og nú eru þau svo
gott sem engin enda eru 95% verk-
efna okkar tengd útgerðinni,“ sagði
Valgeir Jónasson, einn af eigendum
Vélsmiðjunnar Þryms, í samtali við
Morgunblaðið á Isafirði í gær.
Nokkuð hefur dregið úr flutning-
um enda hefur stórlega dregið úr
innkaupum fiskvinnslufyrirtækja
og útgerða hjá verslunum. Þá ríkir
óvissa hjá mörgum unglingum
vestra með sumarvinnu sem hægt
hefur verið að ganga að vísri hjá
fiskvinnslufyrirtækjum.
Áslaug Álfreðsdóttir hótelstjóri
Hótels ísafjarðar kvaðst helst hafa
áhyggjur af áhrifum verkfallsins á
ímynd fólks á Vestfjörðum, að þar
væri eintómt svartnætti, sem væri
alrangt þrátt fyrir erfiðleika og
óvissu vegna verkfalls.
Pétur H.R. Sigurðsson formaður
Fjórðungssambands Vestfirðinga
segir að gífurleg uppbygging og
endurskipulagning hafi farið fram
á Vestfjörðum og segir uppbygg-
ingu verða að halda áfram þrátt
fyrir tímabundna truflun af völdum
verkfallsins.
Verkfallsverðir Baldurs voru
mættir í Grundarfirði snemma í
gærmorgun til að reyna að hindra
losun úr Bessa. Lögðu þeir bílum
sínum þannig á bryggjunni að erfitt
var að beita löndunartækjum. Var
þá híft úr togaranum og yfir bílana
en verkfallsverðir gripu þá til þess
ráðs að standa undir brettunum
þegar þau komu niður á bryggjuna.
Kom til ryskinga og handalögmála
sem stóðu í um 20 mínútur, en lög-
regla reyndi að skakka leikinn.
■ Hörðustu átök/2
■ Uppbygging haldi /32-33