Morgunblaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D/E 123. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Eftirmaður Peres kjörinn EHUD Barak var í gær kjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins í Israel í stað Shimons Peres, ef marka má skoðanakannanir ísra- elskra sjónvarpsstöðva við kjör- staði. Kannanirnar bentu til þess að Barak fengi 56-57% atkvæð- anna og helsti keppinautur hans, Yossi Beilin, 26-28%. Barak sagði að þeir gætu báðir vel við unað yrði þetta niðurstaðan. Barak hefur líkt sér við Yitzhak Rabin, fyrrverandi for- sætisráðherra, sem var myrtur árið 1995, og þeir höfðu báðir getið sér góðan orðstír innan hersins áður en þeir hösluðu sér völl í sljórnmálunum. Barak varð innanríkisráðherra árið 1995 og síðan utanríkisráðherra eftir morðið á Rabin. Barak fagnar hér sigrinum með stuðningsmönnum sínum í gærkvöldi. Þýski seðlabankinn hefur betur í deilunni um gullforðann Stjórn Þýskalands lætur undan síga Bonn. Reuter. RIKISSTJORN Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, féll í gær frá áformum um að endurmeta gull- forða ríkisins til að bæta stöðu ríkis- fjármála strax á þessu ári. Þýski seðlabankinn, Bundes-bankinn, hafði ráðist harkalega gegn þessum áformum. Eftir að margir þing- manna Kristilega demókrataflokks- ins (CDU) tóku afstöðu með seðla- bankanum lét ríkisstjórnin undan síga. Gullforðinn verður endurmet- inn í lok þessa árs en ríkissjóður mun ekki njóta góðs af því fyrr en á næsta ári. Samkomulagið náðist á fundi Theo Waigels fjármálaráð- herra og Hans Tietmeyers seðla- bankastjóra í Bonn í gær. Heimildarmaður innan þýsku stjórnarinnar sagði við Reuters- fréttastofuna að einungis væri hægt að framkvæma áform af þessu tagi með stuðningi seðlabankans. Þessi Gullforðinn verður endurmetinn í lok ársins ákvörðun þýðir að líklega mun stjórnin neyðast til að selja ríkis- eignir, hækka skatta lítillega og skera niður ríkisútgjöld til að stand- ast skilyrði Maastricht-sáttmálans fyrir þátttöku í Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópusambandsríkj- anna (EMU). Samstarfsflokkur CDU í ríkis- stjórn, flokkur frjálsra demókrata (FDP), hefur lýst sig andvígan öll- um skattahækkunum. „Sá vægir sem vitið hefur meira“ Michael Glos, formaður þing- flokks CDU, sagði að það lítið hefði borið milli sjónarmiða stjórnarinnar og seðlabankans að ástæðulaust hefði verið að efna til opinberra átaka um málið. „Sá vægir sem vitið hefur meira,“ sagði Glos. Gullbirgðir þýska seðlabankans eru samtals 95 milljónir únsa og er verðmæti þeirra metið á 13,7 millj- arða marka í ríkisreikningum. Markaðsvirði gullsins næmi hins vegar 55 milljörðum marka. Seðla- bankinn hafði lýst því yfír að hann væri ekki andvígur endurmati en mikilvægt væri að það færi ekki fram fyrr en í fyrsta lagi eftir að ákveðið hafi verið hvaða ríki taki þátt í EMU í fyrstu lotu. Sú ákvörð- un verður væntanlega tekin í maí á næsta ári. Með samkomulaginu í gær er tryggt að endurmatið hafi ekki áhrif á það, hvort Þýskaland uppíylh Maastricht-skilyrðin á þessu ári. Kosningarnar í Kanada Kloí'ningur eftir lands- hlutum STJÓRN Frjálslynda flokksins í Kanada hélt naumlega þingmeiri- hluta sínum í kosningunum á mánu- dag, fékk alls 155 sæti af 301. Stærsta blað Kanada, The Toronto Star, bendir á í forystu- grein í gær, að úrslit kosninganna sýni að þjóðin virðist vera að klofna í pólitískar fylkingar eftir landshlut- um. Frjálslyndi flokkurinn fékk 101 af 103 þingsætum í Ontario, fjöl- mennasta fylki landsins, og Um- bótaflokkurinn, sem hlaut næstflest sæti, sækir megnið af stuðningi sín- um til vesturfylkjanna Bresku-Kól- umbíu og Alberta. ■ Demókratar og/20 Reuter Páfi hvetur til einingar Evrópu JÓHANNES Páll páfi sagði í gær að nýr múr efnahagslegrar og póli- tískrar eigingirni hefði nú tekið við af Berlínarmúrnum og ógnaði einingu Evrópu. Páfi lét þessi orð falla í ávarpi um einingu Evrópu í Gniezno, fyrstu höfuðborg Pól- lands. Um 250.000 manns hlýddu á ávarp páfa, sem hóf ellefu daga ferð um Pólland á laugardag. Myndin var tekin á fundi páfa með sjö forsetum, sem hlýddu á ávarpið, en þeir eru, frá vinstri, Roman Herzog frá Þýskalandi, Algirdas Brazauskas frá Litháen, Arpad Goenczar frá Ungverja- landi, Aleksander Kwasniewski frá Póllandi, Vaclav Havel frá Tékk- landi, Michal Kovac frá Slóvakíu og Leoníd Kútsjma frá Ukraínu. Gleðigjafi fær heilsuverðlaun Ósló. Mor(funbladiö. NORSKA gamanleikaranum Artliur Arntzen frá Trornso voru í gær veitt norsku heil- brigðisverðlaunin fyrir árið 1997. Dómnefndin gaf þá skýr- ingu að hláturinn lengdi lífið, líkt og allir vissu. í niðurstöðu dómnefndarinn- ar segir að Arntzen hafi með hlátri sínum og kímnigáfu lagt mikið af mörkum til að bæta heilsu norsku þjóðarinnar um margra kynslóða skeið. „Gott skap veldur betri liðan. Verð- launahafinn hefur glatt og breitt út menningu og þar með bætt heilsu Norðmanna,“ sagði dómnefndin. „Þetta er ótrúlegt. En ég finn til gleði og stolts, ekki síst vegna þess að með þessu eru viðurkennd áhrif kimnigáfu á heilbrigði," sagði verðlaunahaf- inn. Arntzen hefur um áratuga skeið verið einn þekktasti gam- anleikari Noregs og er þekktasta hlutverkið sem hann bregður sér í hinn norður- norski „Oluf fra Rallkattli". Sænskir jafnaðarmenn vilja að Svíar gangi ekki í EMU 1999 kostum hafnað Engum Kaupmannahöfn. Morgunblaöid. „EKKI núna, en kannski seinna“ var inntakið í yfirlýsingu Görans Perssons, forsætisráðherra Svía, í gær, þegar hann sagði stjórn Jafn- aðarmannaflokksins ieggja til að Svíar gengju ekki í Efnahags- og myntbandalag Evrópu, EMU, frá upphafi ársins 1999. Menn deila hins vegar um hvort svar hans beri að túlka sem vinsamlegt nei eða já. Persson fordæmdi ekki EMU, en lagði áherslu á að það þjónaði ekki sænskum hagsmunum að vera með, bæði vegna þess að mynt- bandalagið væri ótrygg áætlun og eins af því að almenningsálitið væri andvígt Evrópusambandinu og þá um leið EMU. Með batnandi ár- ferði sökum góðs árangurs stjórn- arinnar í efnahagsmálunum myndi þetta þó vísast breytast. Þrátt fyrir EMU-vantrú sína býst hann við að myntbandalagið hefjist samkvæmt áætlun 1999. Gætu gengið í EMU síðar Forsætisráðherrann lagði áherslu á að Svíar hefðu svigi-úm til að bregðast skjótt við breyttum aðstæðum og þá líka til að ganga í EMU. Engum dyrum væri lokað og engum kostum hafnað. Eftir kosningar, sem væntanlega verða haustið 1998, væri hægt að taka málið upp aftur. Fræðilega séð væri hægt að ganga í EMU árið 2000. Talsmenn Vinstriflokksins og Hægiáflokksins sögðu afleitt að Persson hefði ekki lýst skoðun sinni á EMU. Olof Johansson, for- maður Miðflokksins, er styður stjórnina, var mjög óánægður með tilkynningu Perssons. Jöhansson, sem er andsnúinn EMU, hefur haft í hótunum ef stjórnin hafni ekki EMU og segir nú að aðild geti hæglega verið á næsta leiti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.