Morgunblaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 MORG UNBLAÐIÐ AKUREYRI Gísli Olafsson einn stofn- enda Flugfélags Akur- eyrar fyrir 60 árum Lagði mán- aðarkaup bíl- stjóra í flug- félagið GÍSLI Ólafsson fyrrverandi yfirlögreglu- þjónn á Akureyri er að því er best er vit- að eini núlifandi stofnandi Fiugfélags Akureyrar en það var stofnað fyrir 60 árum, 3. júní 1937. Félagið varð síðar að Flugfélagi Islands sem seinna sameinaðist Loftleiðum í Flugleiðum. Hann sagði að allir helstu menn bæj- arins hefðu komið sér saman um að stofna félagið. „Eg var nú bara bílsljóri hjá hon- um Krisljáni á BSA en hann var mikill áhugamaður um stofnun flugfélagsins og lagði hart að mér að taka þátt,“ segir Gísli. „Ég lét til leiðast og lagði að mig minnir fram eitt mánaðarkaup, svona um 300 krónur." Um kvöldið þegar gengið hafði verið frá stofnun félagsins var efnt ti! kaffisamsætis á Hótel Gullfoss. Mikið flogið til Siglufjarðar Gísli var á þessum fyrstu árum Flug- félags Akureyrar bílstjóri, annar af tveim- ur sem hóf áætlunarferðir með bílum milli Akureyrar og Reykjavíkur „og í þá daga þóttumst við góðir ef við komumst suður á tveimur dögum.“ En flugið heillaði Gísla og tók hann á sínum tíma einkaflugmannspróf. Félagið keypti í upphafi tvær Waco flugvélar til að nota í áætlunarflug og var flogið til ýmissa staða að sögn Gísla. „Það þurftu margir að komast á Siglufjörð á þessum árum, enda mikið um að vera þar, allt vaðandi í síld, en svo var Iíka flogið suður til Reykjavíkur og austur og vestur á firði,“ segir Gísli, en Waco vélarnar sem fyrst voru notaðar tóku fjóra farþega. Arið 1981 tóku sig saman nokkur fyrir- tæki og einstaklingar á Akureyri og keyptu vél af þeirri tegund frá Bandaríkj- unum og er nú verið að gera hana upp. Gísli starfaði í lögreglunni á Akureyri í yfir 40 ár, lengi sem yfirlögregluþjónn. „Maður notaði frítímann í flugið, ég hafði alveg óskaplega gaman af þessu, sérstak- lega kennslunni en við keyptum á sinum tíma kennsluvélar, stofnuðum Flugskóla Akureyrar og kenndum á Melgerðismelum." FLUGFELAG ISLAND. Morgunblaðið/Kristján PÁLL HALLDÓRSSON framkvæmdastjóri Flugfélags íslands, Sigurður Aðalsteinsson flugrekstrarstjóri og Gísli Ólafsson, eini núlifandi stofnandi Flugfélags Akureyrar fyrir 60 árum að því er best er vitað. Flugfélag íslands tekið til starfa FLUGFÉLAG íslands hefur formlega tekið til starfa, en það varð til við samruna Flug- leiða innanlands og Flugfé- lags Norðurlands. Félagið hóf starfsemi þegar 60 ár voru liðin frá því fyrsta íslenska flugfélagið, Flugfélag Akur- eyrar var stofnað. Páll Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags ís- lands, kynnti starfsemi fé- lagsins á fundi á Akureyri í gær, en félagið mun stunda áætlunarflug til allra_ helstu staða innanlands. Áfanga- staðir þess eru Akureyri, Eg- ilsstaðir, Húsavik, Höfn í Hornafirði, ísafjörður, Kópa- sker, Raufarhöfn, Sauðár- krókur, Vestmannaeyjar og Þórshöfn. Þá mun félagið fljúga til Þórshafnar í Færeyj- um, Kulusuk, Narssarssuaq og Canstable Point á Græn- landi og Glasgow í Skotlandi. Auk þess verður boðið upp_ á leigu- og útsýnisflug fyrir hópa. Starfsmenn Fiugfélags ís- lands eru rúmlega 200 og eru 11 flugvélar í eigu þess. Sá hluti flotans sem nýttur verð- ur til reglubundins áætlunar- flugs er ijórar Fokker 50 vél- ar sem rúma 50 farþega hver og þtjár 19 sæta vélar af gerðinni Metro. Tvær Metro vélanna eru glænýjar, sú fyrri kemur til landsins nú í júní- byijun og hin síðari um miðj- an mánuð. Að auki hefur fé- lagið yfir að ráða nokkrum minni vélum sem notaðar verða í ýmis önnur verkefni. Nýir búningar og merki Flugfélag íslands hefur tekið í notkun nýtt merki, en það er byggt á gömlum grunni, hesturinn sem var aðaltákn hins gamla Flugfé- lags íslands er enn í aðalhlut- verki en hefur tekið nokkrum breytingum í tímans rás. Auglýsingastofan Auk hann- aði nýja merkið. María Ólafs- dóttir búningahönnuður sá um að hanna nýja búninga fyrir flugfreyjur og flug- þjóna félagsins og verða þeir sýndir 17. júní næstkomandi í fyrsta sinn. Verið er að setja fyrstu Fokker flugvél- ina í nýjan búning og kemur hún til landsins næsta föstu- dag, en hinar verða málaðar í haust. Samkepnnisráð mun að sögn Páls væntanlega birta úrskurð sinn ýmis skilyrði sem sett voru vegna samein- ingarinnar um miðjan júní og vildi hann ekki tjá sig um framhald málsins fyrr en nið- urstaða lægi fyrir. Páll Halldórsson er sem fyrr segir framkvæmdastjóri Flugfélags íslands, en starf- semin skiptist niður í fimm svið, flugrekstrarsvið sem Sigurður Aðalsteinsson stjórnar, Hlynur Elísson er yfír fjármálasviði, Thor Ól- afsson er yfir sölu- og mark- aðssviði, Viðar Hjartarson stjórnar tæknisviði og Skarp- héðinn Magnússon er yfír gæðastjórnunarsviði. Fræðslu- námskeið um ræktun og hirðingu SKÓGRÆKTARFÉLAG Eyfirðinga gengst fyrir fræðslunámskeiði um ræktun og hirðingu trjáa og runna í Gróðrarstöðinni í Kjarna næstkom- andi laugardag, 7. júní og stendur það frá kl. 10 til 15. Eitt af markmiðum félagsins er að auka fræðslu um skóg- og tijá- rækt og er námskeiðið þáttur í því, en ætlunin er á námskeiðinu að veita almenningi gagnlega fræðslu um tijá- og garðrækt. Meðai þess sem fjallað verður um er gróðursetning, klipping, val á teg- undum, skýling, áburðargjöf og fleira. Námskeiðið endar með stuttri gönguferð þar sem árangur tijá- ræktarinnar verður skoðaður. ----------.......-— 1. stig kennt áfram VERKMENNTASKÓLINN á Akur- eyri, útvegssvið á Daivík, mun á næsta skólaári bjóða upp á kennslu í I. og II. stigi skipstjórnarfræða svo sem verið hefur. Fyrirhuguð er breyting á náminu þannig að framvegis verður tveggja ára undirbúningsnám af sjávarút- vegsbraut skilyrði fyrir skipstjórn- arnámi. Þeir sem lokið hafa 6 mán- aða sigiingatíma eiga kost á að hefja nám á I. stigi samkvæmt eldra kerfi í sípasta sinn næsta haust. Áhugasamir umsækjendur þurfa að hafa snör handtök því umsóknar- frestur um þetta nám rennur út næstkomandi föstudag, 6. júní. -----» ♦ »----- Af hverju ég? í Dynheimum VEGNA fjölda áskorana verður leik- ritið Af hveiju ég? sýnt í kvöld, mið- vikudagskvöldið 4. júní og annað kvöld, fímmtudagskvöldið 5. júní kl. 20.30 í Dynheimum. Það eru ungl- ingar úr Gagnfræðaskólanum á Ak- ureyri sem leika, en Aðalsteinn Bergdal er handritshöfundur og leik- stýrir jafnframt verkinu. Framkvæmdastjóri Laxár og bæjarfulltrúi á suðurleið Ánægjulegur tími á Akureyri GUÐMUNDUR Stefánsson, fram- kvæmdastjóri fóðurverksmiðjunnar Laxár lætur af starfi sínu um mán- aðamótin ágúst-september nk. Guðmundur og íjölskylda eru á suðurleið, þar sem hann tekur við starfí hjá Bændasamtökunum á ný. Um leið hættir Guðmundur afskipt- um af bæjarmálum á Akureyri en hann er bæjarfulltrúi Framsóknar- flokksins, ritari bæjarstjórnar, situr i bæjarráði, er formaður atvinnu- málanefndar, situr í héraðsnefnd og er í stjórn lífeyrissjóðs starfs- manna bæjarins, svo eitthvað sé nefnt. Guðmundur flutti til Akureyrar árið 1986 og tók við starfí fram- kvæmdastjóra ístess hf. Fóður- verksmiðjan Laxá var stofnuð í kjölfar gjaldþrots ístess og var Guðmundur áfram við stjórnvölin. Hann hefur auk þess verið virkur í starfi Framsóknarflokksins, var Guðmundur Stefánsson varaþingmaður Norðurlandskjör- dæmis eystra á síðasta kjörtímabili og starfað í bæjarmálum fyrir flokkinn á yfirstandandi kjörtíma- bili. Guðmundur segist hafa átt mjög ánægjulegan tíma á Akureyri ásamt konu sinni og tveimur son- um. „Ég er ekki frá því að ég hafi kunnað betur að meta það að búa hér en heimamenn sem margir hafa verið ansi uppteknir af alls kyns metingi. Akureyri er ein með öllu, hér er allt til alls og íbúar þurfa ekki að sækja neitt annað. Það er sama hvar borið er niður, hér er þjónusta á hvaða sviði sem er, menning, listir, íþróttir og fjöl- breytt atvinnulíf." Heilsugæslustöðin á Akueyri Nýtt símanúmer: 460 4600 Þann 5. júní 1997 taka gildi ný símanúmer á Heilsugæslustöðinni á Akureyri. Aðalnúmer stöðvarinnar verður 460 4600, en hægt verður að hringja beint í flesta starfsmenn á símatímum þeirra. Nánari upplýsingar er að finna í bæklingi, sem dreift hefur verið til allra heimila í umdæmi stöðvarinnar. Ráðningu skólastjóra nýs grunnskóla á Suðurbrekkunni vísað til bæjarráðs Bæjarstjórn hafnar umsækjendunum SEX fulltrúar í bæjarstjórn Akur- eyrar samþykktu á fundi í gær til- lögu frá Sigurði J. Sigurðssyni, Sjálfstæðisflokki, þess efnis að hafna framkomnum umsóknum um stöðu skólagjóra nýs sameinaðs grunnskóla a Suðurbrekkunni, sem til verður úr Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar. Það var gert vegna athugasemda og sjónarmiða sem fram komu í um- sögnum og erindum frá kennara- og foreldraráðum skólanna. Málinu var vísað til bæjarráðs til frekari umfjöllunar. Þrír fulltrúar Fram- sóknarflokks greiddu atkvæði á móti tillögunni. Tveir umsækjendur voru um stöðu skólastjóra hins nýja skóla, Karl Erlendsson skólastjóri Þelamerkur- skóla og Þóra Steinunn Gísladóttir kennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri. Skólanefnd mælti með því á fundi í liðinni viku að Karl yrði ráðinn í starfíð. Fulltrúi Alþýðuflokks í nefndinni lagði til að báðum um- sækjendum yrði hafnað en núverandi skólastjórum falið að vinna að sam- runa skólanna næsta skólaár. Foreldrar og kennarar hafna umsækjendum í bréfí kennara- og foreldraráða skólanna til bæjaryfirvalda kemur fram sú skoðun að hvorugur um- sækjenda hafi að þeirra-mati nægi- lega sterkar forsendur til að glíma við hið nýja starf og er lagst gegn því að umsækjendur verði ráðnir. Lagt er til þess í stað að leitað verði til skólastjóranna, Baldvins Bjama- sonar og Benedikts Sigurðarsonar, um að þeir taki að sér að vinna að sameiningu skólanna næsta skólaár og staðan auglýst að nýju fyrir skólaárið 1998-’99. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði á fundi bæjarstjórnar í gær að skipt- ar skoðarnir væru uppi í málinu og lagði hann til að það yrði sent til bæjarráðs að nýju. Fram kom í máli Hreins Pálssonar, Alþýðu- flokki, að mikilvægt væri að ná sem allra bestri sátt um framtíðarskipan skólans meðal nemenda, foreldra og kennara. Með því að hafna umsækj- endum og skoða málið að nýju mætti fá ákveðna lendingu í málið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.