Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ r FRÉTTIR Leikskólakennarar boða verkfall í haust Samkeppnisráð úrskurðar um Markaðsráð kindakjöts Krafa um 34% hækk- un launa LEIKSKÓLAKENNARAR hafa samþykkt að boða til verkfalls er hefjast skuli þann 22. september nk. Meðal krafna er hækkun grunnlauna um 34% næstu 3 árin. Um 80% félaga í Félagi ís- lenskra leikskólakennara greiddu atkvæði um verkfallsboðun. 751 lýsti sig reiðubúinn til að fara í verkfall eða 96,3%. en tæp 3% höfnuðu verkfallsboðun. Björg Bjamadóttir, formaður Félags íslenskra leikskólakennara, segir ákvörðun um boðun verkfalls 1 haust miða að því að gefa við- semjendum góðan tíma og ráðrúm til að fara yfir kröfur þeirra. Sum- arið sé auk þess ekki hagstæður verkfallstími þar sem böm séu þá mikið til í leyfi frá skólunum. Krafa leikskólakennara hljóðar upp á hækkun grunnlauna í 110 þúsund til aldamóta og er það um 34% hækkun launa. -------------- Akranes Viðræður um búddamusteri FORSVARSMENN búddista áttu í gær fund með bæjarráði Akra- ness um að kaupa land bæjarins við ströndiná í Innstavogi til móts við Snæfellsjökul til að reisa búddamusteri. Gunnar Sigurðsson, forseti bæj- arstjórnar Akraness, segir vel hafa farið á með bæjarstjóra og búddist- um á fundinum í gær og að líklegt sé að gengið verði frá lóðarkaup- um. Bæði hafi búddistum litist vel á staðsetninguna og auk þess taki bærinn engin sérstök gjöld fyrir lóðina. Búddistar hyggjast veija um 60 milljónum í framkvæmdir við 3 byggingar á landinu. „Þetta göfgar mannlífið," sagði Gunnar. Endurskoða þarf fyrir- komulag niðurgreiðslna SAMKEPPNISRÁÐ hefur sent frá sér álit þess efnis að endurskoða verði fyrirkomulag niður- greiðslna Markaðsráðs kindakjöts á lambakjöti. Ráðið telur að núverandi fyrirkomulag sé til þess fallið að hafa skaðleg áhrif á samkeppni. Markaðsráð kindakjöts hefur heimild til að veita fé til sláturleyfishafa í því skyni að stuðla að verðlækkun á lambakjöti og aukinni sölu. Samkeppnisstofnun barst í fyrra erindi frá kjöt- vinnslunni Ferskum kjötvörum hf., þar sem fyr- irkomulag niðurgreiðsinanna er gagnrýnt. í áliti Samkeppnisráðs kemur fram að fyrir- komulag markaðsaðgerða þeirra, sem Mark- aðsráðið hafi umsjón með, sé með þeim hætti að ráðið veiti það fé, sem það hafi yfir að ráða í þessu skyni, til sláturleyfishafa. Ráðið ákveði hversu mikil niðurgreiðslan skuli vera, hversu mikið magn skuli niðurgreitt og á hvaða tíma. Ekki sé um lagalega skyldu að ræða hjá slátur- leyfishöfum að selja það kjöt, sem þeir fái niður- greitt. Hins vegar dreifi Markaðsráðið upplýs- ingum um niðurgreiðslurnar til verzlana og kjötvinnslna, auk þess sem tilmælum sé beint til sláturleyfishafa að selja kjöt á lækkuðu verði til viðskiptavina sinna í hlutfalli við við- skipti. Hætta á mismunun Samkeppnisráð telur að með því að fá kjöt á niðurgreiddu verði sé kjötvinnslu veitt ákveðið forskot til markaðssóknar í samanburði við kjöt- vinnslu sem ekki fái niðurgreitt kjöt. Það sé því mikilvægt að ekki eigi sér stað mismunun. Sú staðreynd, að niðurgreiðslum sé beint til slát- urleyfishafa en ekki kjötvinnslna eða verzlana bjóði hins vegar heim þeirri hættu að mismunun eigi sér stað milli sjálfstæðra kjötvinnslna og þeirra, sem sláturleyfishafar eigi. Samkeppnisráð er einnig þeirrar skoðunar að með því að notast við „viðskiptasögu“ aðila þegar niðurgreiddu kjöti sé dreift frá sláturleyf- ishöfum séu sköpuð nokkurs konar „tryggðar- tengsl“ milli sláturleyfishafa annars vegar og kjötvinnslna hins vegar, sem séu til þess fallin að draga úr samkeppni. Höft og forræðishyggja Samkeppnisráð segir loks að fyrirkomulag niðurgreiðslnanna sé til þess fallið að hafa skað- leg áhrif á samkeppni. „Þá er ekki sízt haft í huga, að stjórnkerfí landbúnaðarins, og þá fram- leiðsla og sala kindakjöts, er markað höftum og forræðishyggju þar sem opinberum afskipt- um er ætlað að hafa áhrif á neyzlu. Það ber því sérstaklega brýna nauðsyn til að þeir aðilar sem starfa innan stjómkerfis landbúnaðarins gæti réttlátra og sanngjarnra reglna þegar um aðgerðir er að ræða sem ætlað er að hafa áhrif á búvörumarkaðinn og verzlun með búvörur," segir í áliti ráðsins. Vestfjarðadeilan enn í hörðum hnút Verkbann boðað hjá Básafelli eftir viku Morgunblaðið/Golli Loftköst OFURHUGAR á hjólabrettum eru tíðir gestir á Ingólfstorgi og halda áhorfendum hugföngn- um með dirfskufullum tilþrifum sínum. Byrjunar- örðug- ^ leikar FÍ TAFIR verða til að bytja með á áætlun hins nýja Flugfélags íslands, sem tók formlega til starfa í gær. Að sögn Páls Halldórsson- ar, framkvæmdastjóra FÍ, tókst ekki að ljúka við þjálfun nýrra áhafna vélanna í tæka tíð fyrir stofnun félagsins. Sú óvissa sem lengi ríkti um það hvort af samrunanum yrði vegna skilyrða sem Sam- keppnisstofnun setti og síðan tiltölulega skjót tilurð flugfé- lagsins gæti verið skýring á röskun áætlunar. Einnig hafí orðið tafir á komu 2 nýrra flugvéla til flugfélagsins en þær séu væntanlegar innan skamms. „Fyrstu dagana í júní erum við í smá vandræðum með að halda uppsettri áætlun en ég býst við að það verði leyst nú á næstu dögum,“ segir Páll. Verið er að bæta við nýju starfsfólki en þeir sem áður störfuðu hjá innanlandsflugi Flugleiða og Flugfélagi Norð- urlands halda sínum störfum. Mál Hanes-hjónanna í héraðsdómi Lagaskilyrðum til framsals fullnægt BOÐAÐ hefur verið verkbann hjá Básafelli á ísafirði af hálfu Vinnu- málasambandsins vegna þeirra starfsmanna sem ekki eru í verk- falli. Önnur samtök vinnuveitenda hafa ekki boðað verkbann fýrir hönd félagsmanna sinna. Engin ný skref voru sjáanleg í lausn deilunn- ar í gærkvöld. Verkbannið hjá Básafelli á að ganga í gildi á miðnætti 11. júní næstkomandi. Nær það til alls 16 starfsmanna í landvinnslu hjá Bása- felli, þeirra sem eru í Verkstjórafé- lagi Vestfjarða, Vélstjórafélagi ísa- fjarðar og_ Sveinafélagi bygginga- manna á ísafirði. Verkbannið nær einnig til félaga í Baldri. „Þetta er það úrræði sem við höfum því það segir sig sjálft að það er ekki sjálfgefið að menn geti byijað vinnslu nokkrum klukku- stundum eftir að samningar takast og erum við bara að undirstrika okkar rétt án þess að ég sé að segja að það verði verulegur dráttur," segir Halldór Jónsson vinnslustjóri hjá Básafelli. Einar Jónatansson formaður Vinnuveitendafélags Vestfjarða sagði að engin ákvörðun hafi verið tekin um verkbann hjá félögum þess og sömu sögu er að segja af hálfu VSÍ en þar er málið í athug- un. Básafell er stærsta fiskvinnslu- fyrirtækið á Vestfjörðum. „Við erum svo sem ekki skelfingu lostnir en ég vona að nú fari að finnast einhver flötur á lausn deil- unnar. Báðir aðilar þurfa að fara að skoða sinn gang alvarlega því deilan er farin að hafa veruleg áhrif á allt og örugglega engum til hags- bóta hvað hún er orðin löng,“ sagði Guðmundur Þór Kristjánsson, vél- stjóri og formaður Vélstjórafélags ísafjarðar. Verkbannið hjá Bása- felli nær til fjögurra vélstjóra ef til kemur og segir Guðmundur þá að mestu hafa unnið að viðhaldsverk- efnum sem hafa orðið að bíða. Ekki gæfulegt spor Pétur Sigurðsson, forseti ASV, segir sjaldgæft að vinnuveitendur grípi til verkbanns. „Mér finnst þessi fyrstu spor Vinnumálasam- bandsins hér á Isafirði ekki gæfuleg því þetta hefur ekki verið gert áður hér,“ segir Pétur og sagði sjáanlegt að taka ætti öðruvísi á málum hjá því en gert hefur verið hjá Vinnu- veitendafélagi Vestfjarða. FELLDUR var sá dómur í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær að fullnægt væri lagaskilyrðum til framsals Hanes-hjónanna bandarísku sem þarlend yfírvöld fóru fram á vegna refsimáls sem hefur verið höfðað á hendur þeim vestra. Hafa Hanes- hjónin ákveðið að áfrýja úrskurðin- um til Hæstaréttar. Forsaga málsins er sú að banda- rísk yfirvöld óskuðu þess í bréfi til utanríkisráðuneytisins íslenska hinn 4. mars sl. að Connie Jean Hanes og Donald Hanes yrðu fram- seld til Bandaríkjanna vegna refsi- máls sem höfðað hefur verið á hend- ur þeim í Arizona-fylki. Er meint brot þeirra brottflutningur barnsins Zenith Elaine Helton frá Bandaríkj- unum til íslands en yfirvöld höfðu falið barnið í umsjá Kelly Helton. Rannsóknarlögreglu ríksins var heimilað að taka barnið úr vörslu Hanes-hjónanna og var það síðar afhent starfsliði bandaríska sendi- ráðsins og fór með móður sinni úr landi í kjölfar þess. Hanes-hjónin kröfðust úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um hvort lagaskilyrði væru fyrir hendi um framsal þeirra en framsalsbeiðnirn- ar byggjast á samningi um framsal sakamanna til Bandaríkjanna og Danmerkur frá 6. janúar 1902 og viðbótarsamningi frá 1905. Veij- andi hjónanna taldi ekki skilyrði til framsals þar sem beiðnirnar væru grundvallaðar á samningi en ekki lagaákvæðum, og taldi einnig að mannúðarástæður mæltu gegn framsali, en dómurinn féllst ekki á þessi sjónarmið. I I » I I a i i t I 5 í I .Jj

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.