Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ-1997 13 FRÉTTIR Kaup á Aburðarverksmiðjunni Deilt um þátt- töku borgar- fyrirtækja MEIRIHLUTI borgarráðs hefur samþykkt fyrir sitt leyti þátttöku veitufyrirtækja borgarinnar í kauptilboði ásamt fleirum í hlutabréf ríkissjóðs í Áburðarverksmiðjunni hf. Hlutur veitufyrirtækjanna er 21% eða rúmar 129,5 milljónir af 617 milljón króna tilboði. Borgarráðsfull- trúar Sjálfstæðisflokks bókuðu að ógjörningur væri að samþykkja til- löguna að svo stöddu, þar sem stjóm veitustofnana hafi ekki íjallað um tilboðið. Tillagan verður rædd á fundi borgarstjórnar á fimmtudag. Á fundinum var lögð fram fyrir- spurn frá borgarráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokks, þar sem óskað var upplýsinga um hvaðan heimild væri fengin til að leggja fram tilboð frá borgarfyrirtækjum í Áburðar- verksmiðjuna, þar sem ljóst væri að engar umræður hefðu farið fram í stjórn veitustofnana eða í borgar- ráði um þessa aðgerð áður en tilboð- ið var gert. Hagsmunir borgarinnar Borgarstjóri lagði þá fram til- lögu, sem borgarráð samþykkti með þremur atkvæðum gegn tveimur, um að borgarráð heimilaði þátttöku veitufyrirtækjanna í tilboðinu með vísan til þess að framtíð verksmiðj- unnar varðaði meðal annars hags- muni borgarinnar og veitufyr- Morgunblaðið/Halldór FRÁ undirritun samningsins. F.v.: Helga Thoroddsen, for- seti bæjarstjórnar, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra og Örn Kærnested, for- stjóri Álftaróss. Heilsugæsla í Mosfellsbæ irtækja. í tillögunni er bent á að vegna atvinnuástands í borginni væri mikilvægt að standa vörð um þau 100 störf, sem væru í verk- smiðjunni og að borgin hafi umtals- verða hagsmuni af því að hafa áhrif á framtíðarþróun verksmiðjunnar vegna nálægðar hennar við íbúða- byggð í Grafarvogi. Jafnframt að ákveðið hafi verið að stofna undir- búningsfélag um nákvæma könnun á hagkvæmni þess að reka vetnis- peroxíðverksmiðju hér á landi og væru borgin og Vatnsveita Reykja- víkur stærstu aðilar að verkefninu en heppilegt væri samkvæmt forat- hugun að staðsetja verksmiðjuna í Gufunesi. Þá sé mikilvægt að innan borgarmarkanna sé stór raforku- kaupandi með tilliti til framtíðar raforkuframleiðslu á Nesjavöllum. Ámælisverð vinnubrögð í síðari bókun sjálfstæðismanna er ítrekað að Stjórn veitustofnana hafi ekki komið að málinu og því sé ógjörningur að samþykkja það að svo stöddu. Fram kemur að ekk- ert benti til þess að leggja ætti nið- ur 100 störf í Áburðarverksmiðj- unni og ekkert benti til að borgin gæti ekki haft áhrif á starfsemi verksmiðjunnar án þess að eiga 21% hlut í henni. Þau vinnubrögð að sniðganga stjórn veitustofnana væru mjög ámælisverð. Tilmæli til ráðherra Þá lagði borgarstjóri fram tillögu um að borgarráð beini þeim tiimæl- um til landbúnaðarráðherra og rík- isstjórnarinnar að við sölu Áburðar- verksmiðjunnar verði höfð hliðsjón af að um atvinnurekstur innan borgarmarkanna væri að ræða, sem árlega velti milljarði króna og hefði margföldunaráhrif á aðra atvinnu- starfsemi í borginni. Jafnframt að tryggilega yrði gengið frá að þau 100 störf sem þar væru legðust ekki niður. Að síðustu segir í bókun Reykja- víkurlistans að Stjórn veitustofnana verði kynnt málið á fundi en að fullt samráð hafi verið haft við vatnsveitustjóra, hitaveitustjóra og rafmagnsstjóra áður en tilboðið hafi verið gert. Raflínur á Mosfellsheiði Jarðstrengurerum2km lengri en áður var áætlað Mosfell: .báerj ^Mosfeilsheiöi íBÍnas Sooslína H1 220 kV Geitháls •' Nesjavallavirkjun lottlínur Hengill jarðslrengir Frummat á umhverfisáhrifum Nesjavallalínu Línan fari í jarð- streng í Bringnm ATHUGUN á frummati á um- hverfisáhrifum fyrirhugaðrar lagn- ingar Nesjavallalínu 1 frá Nesja- völlum að Mosfellsdal er hafin hjá Skipulagi ríkisins. Línunni er ætlað að tengja fyrirhugað 60 MW raf- orkuver Rafmagnsveitu Reykjavík- ur á Nesjavöllum við höfuðborgar- svæðið og er stefnt að því að línan verði tilbúin til rekstrar síðari hluta árs 1998. Samkvæmt frummatsskýrslu verkfræðistofunnar Línuhönnunar felast mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdanna í lagningu jarð- strengs hluta leiðarinnar og í því að fella línuna að landslagi eftir því sem unnt er. Ennfremur hefur Landsvirkjun fallist á að rífa niður Sogslínu 1 frá Jórukleif að Korpu þegar Nesjavallalína 1 hefur verið tekin í notkun. Samkvæmt frummatsskýrslunni er áætlað að leggja línuna í jörðu frá Nesjavallavirkjun að Grafn- ingsvegi, upp með veginum við Selkleif í endamastur norðan við Sogslínu 3, í allt 2,4 km. Frá Sel- kleif er gert ráð fyrir að línan liggi samsíða Sogslínu 3 yfir Hengla- fjöllin vestur fyrir Sköflung og þaðan til norðvesturs yfir Mosfells- heiði, að þverunarpunkti Hval- fjarðarlínu og Sogslínu 1. Þaðan mun hún síðan liggja nær samsíða Sogslínu 1 niður Mosfellsbringur að eyðibýlinu Bringum. Frá Bring- um að tengivirki Rafmagnsveitu Línan felld að landslaginu eins og unnt er Reykjavíkur við Korpu er fyrirhug- að að leggja línuna í jörð meðfram þjóðveginum, alls 13 km, en upp- haflega var áætlað að línan myndi liggja ofanjarðar niður undir Gljúf- rastein og fara þar í jörðu um 11 km leið að Korpu. Umhverfisáhrif fyrst og fremst sjónræn Línan verður að mestu gerð úr stöguðum möstrum og verða burð- armöstrin úr stálprófílum og standa á steyptum undirstöðum en á Hengilssvæðinu er gert ráð fyrir frístandandi stálgrindarmöstrum. Meðalhaflengd línunnar verður um 290 metrar og meðalhæð mastra um 19 metrar. Leggja þarf malar- borna fjögurra til fimm metra breiða slóð að öllum möstrum á leiðinni. Samkvæmt matsskýrslunni lúta helstu umhverfisáhrif fram- kvæmdanna að sjónrænum áhrif- um línunnar, einkum við enda hennar í Grafningi, á Mosfellsheiði vestan við Sköflung og næst end- anum hjá Bringum í Mosfellsdal. Þá gæti framkvæmdin haft einhver áhrif á fuglalíf en tíu til tólf teg- undir varpfugla eru skráðar á vot- lendi við Geldingatjörn ofan við Bringur. Enn er ekki ákveðið hvort vegarslóði meðfram línunni yfir Mosfellsheiði frá Bringum að Sköflungi verði opinn almennri umferð, en hún gæti valdið röskun á gróðri og dýralífi. Áætluð efnisþörf fyrir slóðagerð er um 40.000-45.000 rúmmetrar af möl, sem verður tekin úr námum í Nesjalandi, í Leirvogstungulandi og hugsanlega úr eyrum Þverár hjá Hrafnhólum. Frummatsskýrsla liggur frammi til 4. júlí nk. Frummatsskýrsian var lögð fram 30. maí sl. á bæjarskrifstof- um Mosfellsbæjar, hjá oddvita Grafningshrepps, í Nesbúð á Nesjavöllum, Þjóðarbókhlöðunni og Skipulagi ríkisins og mun hún liggja frammi á þessum stöðum til 4. júlí nk. Almenningur fær þannig fimm vikur til að kynna sér fram- kvæmdina og leggja fram athuga- semdir sem skulu berast Skipulagi ríkisins eigi síðar en 4. júlí. Leitað verður umsagna frá bæjarstjórn Mosfellsbæjar, oddvita Grafnings- hrepps, Náttúruvernd ríkisins, Hollustuvernd __ ríkisins, Náttúru- fræðistofnun íslands, Þjóðminja- safni íslands, Veiðimálastjóra og Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis. Auk þess er framkvæmdin kynnt sveitarstjórn Kjósarhrepps og Veiðifélagi Leirvogsár. Úr 250 fermetr- um í 600 HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur tekið húsnæði byggingafyrirtæk- isins Álftaróss ehf. í Þverholti í Mosfellsbæ á leigu fyrir nýja heilsu- gæslustöð í Mosfellslæknisumdæmi. Samningurinn er til fimmtán ára. Jóhann Siguijónsson bæjarstjóri í Mosfellsbæ segir að samningur þessi sé endapunkturinn á talsverðri bar- áttu sveitarfélaga í Mosfellslæknis- umdæmi, þ.e. Kjalarness, Kjósar og hluta Þingvallasveitar. Heilsugæslustöðin hefur verið rekin í tengslum við starfsemi Rey- kjalundar í mörg ár í 250 fermetra húsnæði en vegna stækkunar byggð- arinnar var orðin brýn þörf fyrir stærri heilsugæslustöð. Starfsemin flyst í Þverholt og tekur heilsugæsiu- stöðin til starfa þar um næstu ára- mót í 600 fermetra húsnæði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.