Morgunblaðið - 04.06.1997, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Tóbaks-
mál kom-
ið á rek-
spöl
Miami. Reuter.
VAL kviðdómenda er hafið í
fímm milljarða dollara tíma-
mótamáli flugfreyja og þjóna
gegn níu bandarískum vindl-
ingafyrirtækjum vegna
óbeinna reykinga.
Hér er um að ræða fyrstu
hópmálshöfðun gegn banda-
ríska tóbaksiðnaðinum og jafn-
framt fyrsta mál gegn grein-
inni vegna óbeinna reykinga.
Val kviðdómenda fór hægt af
stað.
Lögfræðingar beggja aðila
lögðust gegn vali kviðdó-
manda, sem var óánægður með
takmarkanir á reykingum á
opinberum stöðum.
Robert Kaye umdæmisdóm-
ari hafnaði vali kviðdómanda,
sem líkti málshöfðun gegn tób-
aksfyrirtækjum vegna veik-
inda reykingarmanna við
kvartanir um að kjúklingastað-
ir Kentucky Fried Chicken
keðjunnar beri ábyrgð á of
miklu kólestórólmagni í æða-
kerfi viðskiptavina.
Broin gegn Philip Morris
Málið, sem nefnist Broin
gegn Philip Morris o. fl., var
höfðað fyrir hönd um 60.000
flugfreyja og flugþjóna, sem
reykja ekki og segjast hafa
fengið margs konar sjúkdóma,
þar á meðal lungnakrabba-
mein, með því að anda að sér
vindlingareyk í bandarískum
farþegaþotum.
Kaye vísaði einnig á bug
kröfu fyrirtækjanna um að
beiðni flugfreyja og þjóna um
skaðabætur yrði hafnað. Hann
vildi heldur ekki samþykkja
beiðni tóbaksiðnaðarins um
óformbundinn dóm um ásakan-
ir um að fyrirtækin hafi gerzt
sek um fjársvik og samsæri.
Bréf í tóbaksfyrirtækjum
lækkuðu í verði. Þannig lækk-
aði verð bréfa í Philip Morris
um 1,25 dollara í 42,75 og
bréf í RJR Nabsico Holdings
um 62,5. sent í 31,75 dollara í
kauphöllinni í New York.
WWestfrost
Frystikistur Staðgr.verð
HF 201 72 x 65 x 85 36.614,-
HF 271 92 x 65 x 85 40.757,-
HF 396 126x65 x85 47.336,-
HF 506 156 x 65 x 85 55.256,-
Frystiskápar
FS205 125 cm 49.674,-
FS 275 155 cm 59.451,-
FS345 185 cm 70.555,-
Kæliskápar
KS 250 125 cm 46.968,-
KS 315 155 cm 50.346,-
KS385 185 cm 56.844,-
Kæli- og frystiskápar
KF 285 155 cm 70.819,-
kælir 199 Itr frystir 80 ltr 2 pressur
KF 283 155 cm 61.776,-
kælir 199 Itr fryslir 80 Itr 1 pressa
KF 350 185 cm 82.451,-
kælir 200 Itr frystir 156 Itr 2 pressur
KF 355 185 cm 77.880,-
kælir271 Itr frystir 100 Itr 2 pressur
Faxafeni 12. Sími 553 8000 <
_ _
Samkeppnisráð vill að ATVR bjóði magnafslátt við sölu tóbaks
Telur synjun vera misnotk-
un á markaðsráðandi stöðu
Kvörtun Kaupmannasamtakanna og
Gripins og greidds tekin til greina
SAMKEPPNISRAÐ hefur ákveðið
að Áfengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins (ÁTVR) skuli bjóða viðskipta-
vinum sínum þau viðskiptakjör við
sölu á tóbaki, sem samræmast því
hagræði, sem magn viðskiptanna
gefur tilefni til. Telur ráðið að synj-
un ÁTVR um magnafslátt, þegar
það á við á grundvelli sanngjarnra
viðskiptalegra sjónarmiða, feli í sér
misnotkun á markaðsráðandi stöðu
hennar og sé til þess fallin að skaða
samkeppni á viðkomandi markaði.
í ákvörðunarorðum Sam-
keppnisstofnunar segir að viðskip-
takjör skuli vera almenn þannig
að fyrirtæki sem eigi í sams konar
viðskiptum við ÁTVR, njóti sömu
kjara. Þá er kveðið á um að upplýs-
ingar um viðskiptakjör í viðskipt-
um með tóþak skuli vera aðgengi-
legar hjá ÁTVR.
Kaupmannasamtök Islands
sendu Samkeppnisstofnun kvörtun
vegna breytinga á viðskiptakjörum
tóbaks hjá ÁTVR um síðustu ára-
mót. í henni sagði m.a. að með
öllu væri óeðlilegt að fella niður
staðgreiðsluafslátt, sem verið hefði
í gildi í rúm tuttugu ár. Óskuðu
samtökin eftir því að Samkeppnis-
stofnun beindi þeim fyrirmælum
til ÁTVR að veittur yrði magnaf-
sláttur við staðgreiðslu á tóbaki
við endursölu enda væri eðlilegra
að veita stighækkandi stað-
greiðsluafslátt miðað við það magn
sem keypt væri hvetju sinni.
Selt fyrir 289
milljónir 1996
Samkeppnisstofnun barst einnig
kvörtun frá Birgðaversluninni
Gripnu og greiddu vegna þess að
ÁTVR hafði hafnað beiðni verslun-
arinnar um að viðskiptakjör í heiid-
sölu á tóbaki samræmdust því hag-
ræði sem magn viðskiptanna gæfi
tilefni til. í erindinu kom fram að
á síðasta ári hefði sala verslunar-
innar numið um 289 milljónum
króna sem sé um 10% af tóbaks-
markaðnum á Reykjavíkursvæðinu
á heildsölustigi. Verslunin krafðist
þess _að samkeppnisyfirvöld skyld-
uðu ÁTVR til að taka upp viðskip-
takjör við tóbakssölu í samræmi
við það hagræði sem magn við-
skiptanna gefi tilefni til.
ÁTVR markaðsráðandi
fyrirtæki
í ákvörðunarbréfi Samkeppnis-
stofnunar segir m.a. að telja verði
að ákvörðun lítils eða meðalstórs
fyrirtækis, að miða ekki viðskipta-
kjör við umfang viðskipta, geti í
fæstum tilvikum haft í för með sér
skaðleg áhrif á samkeppni og gefi
ekki tilefni til afskipta samkeppnis-
yfirvalda. Öðru máli kunni að gegna
ef slík ákvörðun sé tekin af mark-
aðsráðandi fyrirtæki. „Við eðlilegar
aðstæður á markaði þar sem virk
samkeppni ríkir, tíðkast að fram-
leiðendur og dreifingarfyrirtæki
veiti endurseljendum sem kaupa
mikið magn vöm einhveija umbun,
m.a. í formi afsláttar, enda er í
flestum tilvikum augljóst hagræði
af því að afgreiða vöru í miklu
magni. .. Með því að selja vöm á
sama verði til þeirra endurseljenda,
sem kaupa vöruna í miklu jnagni
og þeirra sem kaupa lítið, er Áfeng-
is- og tóbaksverslun ríkisins að
draga úr möguleikum fyrirtækja til
að koma við verðsamkeppni."
Morgunblaðið/Golli
SIGRÍÐUR Snævarr, prótókollmeistari í utanríkisráðuneytinu,
afhenti þeim Gunniaugi Karlssyni og Einari Snorra Magnússyni,
útskriftarnemum í Tækniskóla ísiands, styrkina í móttöku í ráðu-
neytinu á laugardag.
Tækniskólanemar til
starfa í sendiráðum
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
veitti sl. laugardag tveimur nýút-
skrifuðum útflutningsmarkaðs-
fræðingum frá Tækniskóla ís-
lands styrki til starfa við sendiráð
íslands í sumar. Þeir Gunnlaugur
Karlsson og Einar Snorri Magnús-
son hlutu styrkina að þessu sinni
sem hvor er að fjárhæð 50 þúsund
krónur. Gunnlaugur heldur utan
til Kaupmannahafnar en Einar
Snorri til Lundúna og munu þeir
báðir sinna markaðsstörfum í
sendiráðunum.
Styrkirnir eru veittir sam-
kvæmt samningi sem Tækniskól-
inn og utanríkisráðuneytið und-
irrituðu í janúar á þessu ári. Er
samningurinn liður í því að
styrkja samstarf ráðuneytisins við
menntastofnanir sem leggja
áherslu á alþjóðleg samskipti og
miliiríkjaviðskipti.
Tækniskóli íslands hefur um
fimm ára skeið boðið upp á nám
í útflutningsmarkaðsfræði. Alls
útskrifuðust 10 útflutningsmark-
aðsfræðingar frá Tækniskólanum
auk annarra nema. Námið fer
fram á ensku og gerir skólanum
kleift að bjóða erlendum nemum
að taka þátt í reglubundnu námi.
Vildarkjör ehf. semja
við Gúmmívinnsluna
VILDARKJÖR ehf. hefur í kjölfar
útboðs gengið til samninga við
Gúmmívinnsluna hf. á Akureyri um
kaup á hjólbörðum fyrir áskrifendur
Vildarkjara. Um er að ræða flestar
gerðir hjólbarða fyrir bifreiðar,
dráttarvélar og landbúnaðartæki
svo og básamottur, segir í frétt.
Gúmmívinnslan hf. hefur í mörg
ár verið leiðandi fyrirtæki í innflutn-
ingi hjólbarða fyrir landbúnaðar-
tæki og innflutning básamotta.
Einnig framleiðir fyrirtækið bása-
mottur úr endurunnu gúmmíi.
Nýlega fékk Gúmmívinnslan hf.
umboð fyrir Vredestein hjólbarða
auk þess sem fyrirtækið hefur um-
boð fyrir Bridgestone hjólbarðana.
Vildarkjör ehf. er fyrirtæki, sem
býður út hvers konar vörur og þjón-
ustu fyrir áskrifendur sína. Áskrif-
endur geta allir íbúar landsbyggð-
arinnar orðið sér að kostnaðar- og
kvaðalausu. Með áskrift fá þeir
aðgang að þeim tilboðum, sem fyr-
irtækið semur um.
Greiðslujöfnuður við útlönd
Viðskiptahaltí
1,200 mitíj, þrjá
fyrstu mánuðina
1.200 milljóna króna viðskiptahalli
varð á fyrsta fjórðungi ársins sam-
kvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðla-
banka íslands á greiðslujöfnuði við
útlönd. Fjármagnsútstreymi mæld-
ist 1.400 milljónir króna og gjald-
eyrisforði Seðlabankans minnkaði
um 5,3 milljarða króna.
Á sama tímabili í fyrra var af-
gangur á viðskiptum við útlönd
og fjármagnsinnstreymi sem jók
gjaldeyrisforðann. I frétt frá
Seðlabankanum kemur fram að
vöruskiptajöfnuðurinn hafi aðeins
verið 200 milljónum króna lakari
nú en á fyrsta ársfjórðungi í fyrra
en þjónustujöfnuðurinn tæpum
tveimur milljörðum króna lakari.
Þáttatekjur nettó lækkuðu um 600
milljónir króna, aðallega vegna
minni hreinna vaxtagreiðslna til
útlanda. Að frádregnum sérstök-
um innflutningi og útflutningi
skipa og flugvéla var vöruskipta-
jöfnuðurinn mun lakari á fyrsta
fjórðungi ársins 1997 en á sama
tíma í fyrra.
Hrein skuldastaða þjóðarbúsins
við útlönd var 233 milljarðar króna
í lok fyrsta ársfjórðungs, saman-
borið við 227 milljarða króna í
árslok 1996. Stafar hækkunin að
mestu leyti af gengishækkun
Bandaríkjadollars á þessu tímabili.
Útflytjendur íslensks æðardúns
Samstarfshóp-
ur stofnaður
Áhersla á gæðamál og markaðssetningu
innan greinarinnar
ÚTFLYTJENDUR æðardúns hafa
stofnað samstarfshóp innan Sam-
taka verslunarinnar, félags ís-
lenskra stórkaupmanna. Hópnum
er ætlað að vinna að hagsmunum
dúnfyrirtækja með sérstakri
áherslu á gæðamál og markaðs-
setningu.
Alþjóðlegl samstarf?
Tólf fyrirtæki stóðu að stofnun
hópsins og að sögn Stefáns Guð-
jónssonar, framkvæmdastjóra
samtakanna, er hér um að ræða
ánægjulega viðbót við aðra sér-
hópa, sem þegar starfa innan vé-
banda þeirra. Segir hann að með
þessari viðbót séu útflytjendur inn-
an samtakanna orðnir um fimmtíu
talsins.
Hópurinn var stofnaður í tengsl-
um við ráðstefnu alþjóðasamtaka
fyrirtækja í verkun og sölu á dúni
og fiðri, sem var haldinn hér á
landi í vikunni. Segir Stefán að
þar hafi útflytjendum gefist gott
tækifæri til að hitta menn hvað-
anæva að úr skyldum atvinnu-
rekstri. „Hingað til hafa engin
formleg tengsl verið við þessi al-
þjóðasamtök en vel má vera að það
breytist eftir að samstarfshópurinn
kemst á skrið,“ segir Stefán.
Formaður hópsins er Sigtryggur
R. Eyþórsson, framkvæmdastjóri
XCO, en með honum sitja í stjórn;
Erla Friðriksdóttir, framkvæmda-
stjóri hjá íslenskum æðardúni, og
Jóhann Steinsson frá Kjötumboð-
inu.