Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Ikveikja við bústað Carlssons Kaupmannahöfn. Morgfunblaðið. TILRAUN til íkveikju var gerð við heimili Ing- vars Carlssons, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóð- ar, í fyrrinótt. Árvökulir nágrannar uppgötvuðu brunann, svo engan sakaði. Undanfarið hefur verið kveikt í þremur íþróttahöllum í Stokkhólmi og nágrenni og lögreglan álítur tengsl milli íkveikjunnar nú og þeirra. Samhengið væri þá hugsanlega að Carlsson er í forsvari nefndar, sem beitir sér fyrir því að fá Ólympíuleikana til Stokkhólms árið 2004. Enginn var heima þegar kveikt var í. Forsætisráðherrann fyrrverandi býr á jarðhæð í félagslegu íbúðahverfi í úthverfi Stokkhólms úns og hann hefur gert um árabil. Um þijúleyt- I varð einn nágrannanna var við að eldtungur íkveikjan talin tengjast tilraunum til að fá Ólympíuleikana til Stokkhólms léku um húsvegginn, þar sem Carlsson býr. Fljót- lega tókst að ráða niðurlögum eldsins og engan sakaði. í húsinu er öryggisgler, sem líklega varð til þess að eldurinn breiddist ekki út, því glugga- rnir sprungu ekki, þó eldtungur léku um þá. Carlsson og fjölskylda hans var að heiman. Lög- reglan segir að íkveikjuna beri að líta á sem tilraun til morðbrennu. Undanfarið hefur verið kveikt í þremur íþróttahöllum á Stokkhólms- svæðinu að næturlagi. í fyrri viku var var kveikt í einni og í tveimur aðfaranótt mánudags. Eng- inn vafi er á að um íkveikjur er að ræða. Lög- regian álítur nú að aðferðin við íkveikjuna við heimili Carlssons sé sú sama og beitt hafi við tvær af hinum íkvekjunum. Tengslin gætu þá verið að Carlsson vinnur að því að fá Olympíu- leikana til Stokkhólms 2004 og allar þessar íkveikjur beinist gegn þátttökunni, sem er mjög umdeild. Carlsson hefur ekki haft lífvörð síðan hann hætti sem forsætisráðherra fyrir rúmu ári og ekki er vitað til þess að haft hafi verið í hótunum við hann. jWjjjjBMMBi Ríkulegur staðalbúnaður er eitt af aðalsmerkjum Mitsubishi. Nú bjóðum við nokkra sérbúna Mitsubishi Lancer Royale á frábæru verði. Auk venjulegs staðalbúnaðar er girnileg ábót: ■ rMFELGUR r^VINDSKEIÐ r GEISLASPILARI 'SM ^FJARSTYRÐAR HURÐALÆSINGAR Staðalbúnaður Mitsubishi Lancer er m.a Oryggispúðar fyrir ökumann og farpega í framsæti • Samlæsingar Hreyfiltengd þjófnaðarvöm • Styrktarbitar [ hurðum Rafhituð framsæti • Aflögunarsvið að framan og aftan Rafstýrðir upphitaðir útispeglar • Hæðarstilling á framljósum Rafstýrðar mðuvindur með slysavöm • Samlitir stuðarar Vökva- og veitistýri • Þvottasprautur á aðalljóskerjum 1.460.000 iiiBm Landsalar myrtir ÍSRAELSK stjórnvöld hafa ásakað yfirmenn palestínsku sjálfstjórnarsvæðanna um að bera ábyrgð á morðum þriggja landsala. Mennirnir þrír sem allir voru milligöngumenn um sölu á palestínsku landi fund- ust myrtir eftir að dómsmála- ráðherra sjálfstjórnarinnar lýsti því yfir að þeir sem seldu gyðingum land mættu eiga von á dauðadómi yrðu þeir fundnir sekir fyrir rétti. Pal- estínsk stjórnvöld hafa vísað ásökunum Israela um beina aðild að morðunum á bug. Leitað að gulli Mobutus NÝIR valdhafar í Lýðveldinu Kongó, sem áður hét Zaire, leita nú logandi ljósi að auðæf- um sem þeir telja Mobutu Sese Seko, fyrrverandi forseta, hafa falið í svissneskum bönkum. Svissnesk bankayfirvöld segj- ast einungis hafa fundið 3,4 milljónir Bandaríkjadala, þ.e. um 240 milljónir íslenskra króna, á reikningum hans en stjórnin í Kinshasa telur upp- hæðina vera nær 7,7 milljörð- um dala, þ.e. 53 milljörðum króna. Morð á flótta- mönnum FLÓTTAMANNAHJÁLP Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt Laurent Kabila, nýjan forseta Kongó, til að grípa til aðgerða til verndar flótta- mönnum frá Rúanda eftir að fjórir flóttamenn og starfs- maður barnahjálparsamtaka voru myrtir í landinu. Atökin í Norður-Irak KÚRDAR segjast hafa fellt fjölda tyrkneskra hermanna i bardögum í Norður-írak á undanförnum vikum. And- stæðum fylkingum ber ekki saman um mannfall og vegna fréttabanns hafa engar tölur fengist staðfestar. Bæði arabaríkin og vesturlönd hafa harðlega gagnrýnt innrás Tyrkja á verndarsvæði Kúrda í Norður-írak. Skortur í írak 750 þúsund börn, 27% allra barna í írak, eru vannærð samkvæmt skýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna. í flest- um tilfellum mun skorturinn hafa varanleg áhrif á börnin, bæði líkamleg og andleg. Næringarskortur var svo til óþekktur í írak áður en Sam- einuðu þjóðirnar settu við- skiptabann á landið í kjölfar innrásarinnar í Kúveit árið 1990. Gluggatjöld hættuleg SAMKVÆMT upplýsingum, sem birtust í nýrri skýrslu um heilbrigðismál, hengdust a.m.k. 183 bandarísk börn í gluggatjaldastrengjum á árun- um 1981-1995. Flest barn- anna voru yngri en þriggja ára og létust eftir að hafa flækst í strengjunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.