Morgunblaðið - 04.06.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1997 23
LISTIR
Bandamenn gera víðreist með Amlóðasögu
A leið til Kanada,
Noregs og Suður-Kóreu
BANDAMENN efna til tveggja
sýninga á Amlóðasögu á Litla sviði
Borgarleikhússins annað kvöld kl.
20 og á föstudag á sama tíma, en
leikhópurinn er nú á leið til Kanada
þar sem sýningin verður sett upp
á leiklistarhátíðinni Northern Enco-
unters í Toronto. í haust verða
Bandamenn síðan á ferð í Noregi
og Suður-Kóreu.
Amlóðasaga var frumsýnd á
Helsingjaeyri í mars á síðasta ári
og hefur farið víða um lönd síðan
en síðasti áningarstaðurinn var
Eistland. Er verkið nú sýnt öðru
sinni hér á landi en Bandamenn
gengust fyrir tíu sýningum í Borg-
arleikhúsinu fyrir ári.
Leikurinn byggist á elstu heim-
ildum um goðsagnapersónuna Am-
lóða en er í rauninni dæmisaga
fyrir nútímann, svo sem Sveinn
Einarsson, leikstjóri og höfundur,
upplýsir. „Amlóði kemur til dæmis
mikið fyrir í íslenskri bókmennta-
hefð og er nafns hans sennilega
fyrst getið í íslenskri heimild, vísu
eftir tíundualdarskáldið Snæbjörn.
Þá þegar táknar nafnið aukvisi eða
fífl og hefur sú merking haldist
fram á okkar dag.“
Bandamenn voru stofnaðir vorið
1992 til þess að flytja leikgerð
Sveins Einarssonar af Banda-
mannasögu á Listahátið það ár en
í framhaldi af því var leikhópnum
boðið að sýna verkið á Norðurlönd-
um, í Bretlandi og Þýskalandi.
„Við bytjuðum í fullkominni hæ-
versku og óraði aldrei fyrir þessu
ferðaævintýri,“ segir Sveinn en
Kanadaferðin verður ellefta utan-
landsferð hópsins. Bandamenn
munu nú vera sá leikhópur íslensk-
ur sem víðast hefur farið til að
kynna íslenska leiklist allt frá því
Inúk-hópur Þjóðleikhússins var á
ferðinni fyrir tveimur áratugum.
Leikhús þjóðanna
Þar með er reyndar ekki öll sag-
an sögð því í september næstkom-
andi hefur Bandamönnum verið
boðið að sýna Amlóðasögu á hinni
virtu leiklistarhátíð Leikhúsi þjóð-
anna í Seoul í Suður-Kóreu og setja
þar upp leiksmiðju til að kynna
vinnuaðferðir sínar. A leiðinni aust-
ureftir mun leikhópurinn koma við
á hátíð í Þrándheimi, auk þess sem
borist hafa fyrirspurnir um sýning-
ar árið 1998 sem ekki hefur verið
HULDA Stefánsdóttir, nemandi í málaradeild MHÍ, tekur við
styrknum úr hendi Böðvars Magnússonar, útibússljóra Búnaðar-
bankans við Hlemm.
Fékk listastyrk
TÓLF útskriftanemar Myndlista-
og handíðaskóla Islands hafa á
skólaárinu sýnt listaverk í sýn-
ingarglugga Búnaðarbankans
við Hlemm.
Dregið var út nafn eins lista-
mannsins sem sýnt hefur í lista-
glugganum í vetur; Huldu Stef-
ánsdóttur, og hlaut hún styrk frá
bankanum. Við sama tækifæri
var undirritaður nýr samningur
milli nemendafélags MHÍ og
Búnaðarbankans fyrir skólaárið
1997 til 1998.
um, Guðni Franzson, stórt hlutverk
þverkinu. Tæknimaður hópsins er
Ólafur Örn Thoroddsen. Búninga
fyrir Amlóðasögu hefur Elín Edda
Arnadóttir hannað en grímur gerði
Helga Steffensen. David Walters
var ábyrgur fyrir lýsingu en Nanna
Ólafsdóttir aðstoðaði við hreyfing-
ar.
Ljósmynd/María Guðmundsdóttir
FRÁ æfingu á Amlóðasögu i Helsinki, þar sem verkið var sýnt
nokkrum sinnum á síðasta ári.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bandamenn verða á ferð í
Borgarleikhúsinu annað kvöld
og á föstudag. Á myndina
vantar Borgar Garðarsson.
tekin afstaða til ennþá. Af öðrum
verkefnum Bandamanna má nefna
að hópurinn leiklas Álf í Nóatúnum
eftir Jónas Hallgrímsson og skóla-
félaga hans á Bessastöðum í Lista-
klúbbi Leikhúskjallarans í fyrravet-
ur og Mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna á hátíðasam-
komu vegna 50 ára aðildar Islands
að samtökunum.
En er eitthvað í bígerð? „Við
erum með hugmynd að nýju verki
en framhaldið veltur hins vegar á
því hvort einhver vill styrkja okk-
ur,“ svarar Sveinn og bætir við að
sem fyrr verði efniviðurinn sóttur
í þjóðararfínn, ef til þess kemur.
„Við leggjum hins vegar áherslu
á, að það sem við setjum upp höfði
jafnframt til útlendinga, þótt ekki
komi til greina að leika á öðru
máli en „heimsmálinu" íslensku."
Bandamenn eru átta og hinir
sömu og fyrr. Sveinn hefur þegar
verið kynntur til sögunnar en
leikarar eru Borgar Garðarsson,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Jak-
ob Þór Einarsson, Stefán Sturla
Siguijónsson og Felix Bergsson en
auk þeirra leikur tónskáldið í hópn-
Samlitir stuðarar.
B8.L, Suðurlandsbraut 14 & Ármúla 13, Sími: 568 1200, Beinn simi: 553 1236
Fax: 568 8675, Email: bl@bl.is, Internet: www.bl.is