Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.06.1997, Qupperneq 36
— 36 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ rr t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN ÞÓRDÍS GÍSLADÓTTIR Ásbraut 17, (Holtagerði 67), verður jarðsungin frá Háteigskirkju á morgun, fimmtudaginn 5. júní kl. 13.30. Gísli Stefán Sveinsson, Ólöf Sveinsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Sveinbjörg Þórdís Sveinsdóttir, Hafdís Sveinsdóttir, Sveinn Anton Sveinsson, Guðrún Svava Sveinsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR STEFÁNSSON áður bóndi á Stað, Borgarfirði, Sléttuvegi 11, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 5. júní kl. 13.30. Ingibjörg Ósk Óskarsdóttir, Hörður Smári Hákonarson, Stefán Agnar Óskarsson, Ása Jónsdóttir, Guðný Ósk Óskarsdóttir, Anton Sigfússon, Pétur Ævar Óskarsson, Unnur Sigurgísladóttir, barnabörn, barnabarnaböm og aðrir vandamenn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐBJARTS FINNBJÖRNSSONAR loftskeytamanns, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, áður til heimilis á Hrannargötu 1, ísafirði. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Heimahlynningar Krabba- meinsfélags íslands og Sjúkrahúss Reykjavíkur deild 4A. Þórdís S. Friðriksdóttir, Hafþór Einar Guðbjartsson, Helgi Þór Guðbjartsson, Berglind Ólafsdóttir, Rakel Adolphsdóttir. Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRÍÐAR KRISTÍNAR KOLBEINSDÓTTUR, Sólheimum 23. Starfsfólki Heimahlynningar Krabbameins- félagsins viljum við þakka sérstaklega. Börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi. BERTEL ERLINGSSON málarameistari, lést laugardaginn 17. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sigríður Bertelsdóttir, Jón Friðþjófsson, Erlingur Bertelsson, Marga Thome, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ARNBERGS GÍSLASONAR frá Vinaminni í Borgarfirði eystra. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Garðvangs í Garði. Aðstandendur. OTTÓ SVEINSSON + Ottó Sveinsson var fæddur í Reykjavík 22. júní 1956. Hann lést 28. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Guðrún Jóhanna Eggerz, f. 29.9. 1927, bóndi á Litla Kambi, Breiðuvík- urhreppi, Snæfells- nesi, f. 29.9. 1927, og Sveinn Ferdin- andsson, vélfræð- ingur, f. 14.3. 1926, d. 7.6. var næstyngstur sjö systkina. Systkini hans eru Kristjana Heiður, Valur, Snjó- laug, Bragi, Birgir og Hjörtur. Árið 1985 giftist hann Sigrúnu Karlsdóttur, f. 17.9. 1955; sonur þeirra er Olafur Örn, f. 11.6. 1979. Fyrir átti Ottó Kolbrúnu, f. 5.6. 1977. Ottó ólst upp i Kópavogi og síðar á Gíslabæ á Hellnum á Snæfellsnesi. Ottó lauk rafsuðunámi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 1983 og vann hann við iðn sína. Ottó verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hér sit ég og ætla að reyna að skrifa nokkrar línur um bróður minn og vin Ottó Sveinsson sem lést af slysförum hinn 28. apríl. Þetta er eitthvað sem stenst ekki. Þegar svona kemur upp fer maður að horfa til baka, til æskuáranna í Kópavog- inum. Ég sé fyrir mér Ottó fjögurra ára, dökkan yfirlitum með þessi stóru brúnu augu sem heilluðu alla, síbrosandi í stuttbuxum og beran að ofan. Hann þótti óvenju fallegt bam. Ottó var rólegur, yfirvegaður og gat dundað sér tímunum saman við eigin leiki og hugsanir. Það var sama hvað við eldri systkinin reynd- um að sannfæra hann eða stríða honum, aldrei skipti Ottó skapi eða lét af sinni meiningu og stóð þvi alltaf uppi sem sigurvegari, hann bara glotti svolítið. Margt var brallað á barnmörgu heimili. Við kassabílagerðina var Ottó liðtækur en hafði jafnframt þau forréttindi að sitja í meðan við eldri ýttum. Síðar tók hann svo við af okkur og ytti Hirti, þeim yngsta í hópnum. Þegar Ottó er 10 ára flutti fjöl- skyldan að Hellnum á Snæfellsnesi og var þá kraftadella allsráðandi hjá okkur bræðrum. Ottó lét ekki sitt eftir liggja enda snemma mjög hraustur og efnilegur íþróttamaður. Ég man t.d. þegar hann, aðeins 11 ára gamall, jafnhenti 50 kg fóður- poka yfir höfuð sér. 12 ára varð hann íslandsmeistari í þríþraut gmnnskólanna í sínum aldurshópi. Snemma fór Ottó að heiman, fyrst í skóla svo að vinna bæði til sjós og lands. Þá urðu straumhvörf í lífi hans og hann kynntist Bakkusi sem varð hans eini óvinur í lífinu. Þá kynntist hann skuggahliðum mann- lífsins. En þótt Ottó hafi farið svo langt niður um tíma var hann ætíð að reyna að bijótast út úr því lífi enda stefndi hugur hans ætíð að einhveiju miklu meira. Ottó var upp- tekinn af lífínu sjálfu og þrátt fyrir sjúkdóm sinn, alkhólismann, var hann svo bjartsýnn og jákvæður. Rétt tvítugur flytur Ottó svo hing- að til Akraness en þá hafði hann kynnst ástinni í lífi sínu, Sigrúnu, sem hann mat ætíð mikils. Líf hans breyttist þá til betri vegar enda bjuggu þau sér gott heimili ásamt syni sínum, Ólafí Erni. Ottó lærði rafsuðu og þótti góður fagmaður enda var hann laginn við það sem hann tók sér fyrir hendur. Svo var einnig um bílaviðgerðir sem voru eitt af hans mörgu áhugamál- um. Ottó var mikill bókaormur og hafði gaman af að spjalla um það sem hann var að pæla í hveiju sinni. Sérfræðingar í I)lómaskreyt in”u m við öll tækifæri 1 blómaverkstæði 1 IÖINNA I SkólaNorðustíg 12, á horni Bcrgstaðastrætis, sími 551 0090 Ottó var mikill ljúflingur, hjálp- samur og mátti ekkert aumt sjá. Hann var skapgóður og ég get full- yrt að hann hafí enga óvildarmenn átt í lífinu. Vonlaust var að reita hann til reiði og ekki lagði hann í vana sinn að tala illa um fólk. Ottó var frændrækinn og í veislum var hann hrókur alls fagnaðar. Þar naut hann sín vel. Aldrei varð Ottó laus við sjúkdóm sinn, alkhólismann, og árlega komu sprungur í „edrúmennsku" hans. Sigrún hefur ætíð staðið við hlið eiginmanns síns og verið honum ómetanlegur styrkur í gegnum súrt og sætt. Eftir sitjum við hér og skiljum ekki tilganginn með lífínu. Allt virt- ist vera farið að ganga svo vel, hann var kominn í góða vinnu sem hann var ánægður með. Af hveiju hann fékk ekki að lifa lengur, hann sem var á besta aldri og átti svo margt eftir ógert? Elsku Sigrún, Óli, mamma og aðrir ástvinir, guð gefi okkur styrk og huggun í þessari miklu sorg. Minningin um góðan dreng lifír ætíð í hugum okkar. Birgir Sveinsson. Nú er höggvið skarð i okkar stóra systkinahóp, Ottó, fallegi, yndislegi bróðir okkar, með tindrandi, brúnu augun og tvíræða brosið, er látinn. Þau virðast grimm örlögin sem taka hann burt frá konu og bömum, þegar allt var svo bjart framundan, en Alfaðir ræður. Ottó var einstaklega mikið ljúf- menni, hæglátur og hávaðalaus inn- an um fyrirferðarmeiri systkini, bón- góður og barnelskur, mikill félagi konu sinnar og barna og er missir þeirra mikill. Hann var kappsfullur og viljugur, vel lesinn og skarp- greindur, elskaði lífið og tilveruna, trúði á tilvistir annarra heima og leitaði sífellt nýrra leiða í þeim til- gangi að öðlast betra líf. Hann fór ekki varhluta af skuggahliðum lífs- ins og glímdi við Bakkus á fyrri ámm með því helsi sem því fylgir en ekki bar hann erfiðleika sína eða tilfinningar á torg né fyrir allra augu, frekar faldi hann særindi eða kvalir með brosi. En nú er hann alheill og vil ég kveðja elskulegan bróður með eftirfarandi orðum: Nú heftir þig ekkert né halda nein bönd og himinsins víddir þér opnast. Já, örninn er floginn á friðarins lönd og fegurðarfjaðrirnar vopnast. Elsku Sigrún, mamma og fjöl- skylda okkar öll, ég treysti því að kærleikur Guðs umvefji okkur öll á þessari sorgarstund. Heiður. Elskulegur bróðir er dáinn, og brotið blað í tilveru okkar, þeirra sem þekktu hann og elskuðu. Okkur mun alltaf svíða um hjartarætur við að hugsa til þess að við sjáum hann ekki aftur. En hann skildi líka margt eftir sem hann gaf okkur og miðlaði til okkar með sinni hreinu fram- komu, hjálpsemi og elsku, því hann elskaði okkur og við hann, það efuð- umst við aldrei um. Lífsþorsti hans eftir allri þekkingu og hinu óþekkj- anlega var honum ávallt efst í huga og las hann allt sem hann komst í til að reyna fullnægja þeirri þörf. Hann var gáfaður, verklaginn og skapandi, alltaf tilbúinn að rétta öðrum hjálparhönd. Alltaf stutt í góða skapið hvað sem á gekk, því eins og aðrir fékk hann sinn djöful að draga. Hann hugsar ábyggilega hinum megin: Ég fékk heil íjörutíu ár til að lifa og dó ungur og falleg- ur. Við ástvinir hans sem eftir lifum kveðjum hann og þökkum honum margan vísdóminn sem hann gaf okkur. Elsku mamma, Sigrún, Óli og börn, margs er að sakna og margs er að minnast. Látum minningu hans verða okkur til heilla og ánægju, eins og hann hefði viljað sjálfur. Systkini. Kæra amma, Sigrún, Óli og börn, ég vil byija á að votta ykkur samúð mína, þetta er búið að vera svo sárt fyrir ykkur vegna fráfalls sonar, eig- inmanns og föður. Ekki óraði mig fyrir svona fráfalli, í mínum huga var allt svona fjarlægt og þetta kennir manni að sýna ættingjum og vinum meiri væntumþykju því mað- ur veit ekki hver fer næstur. í mín- um huga mun Ottó alltaf vera hjá okkur. Maður á ljúfar og skemmti- legar minningar um Ottó. Alltaf þegar maður sá Ottó var hann í góðu skapi og ef hann var í leiðu skapi þá leyndi hann því vel. Við Ottó gat maður alltaf talað um lífið og tilveruna og hann gat sagt ýmis- legt sem gat fengið mann til að hugsa um hvað lífið væri furðulegt og órannsakanlegt því mikið var til af leyndardómum sem að hann pældi mikið í. Kannski er hann búinn að finna svörin við öllum þessum leynd- ardómum nú. En það er hlutur sem við vitum ekki. Við fjölskyldan geymum minningarnar um Ottó í hjartastað. Guð blessi ykkur og varðveiti. Vala, Einar og börn. Elsku amma, Sigrún, Óli og börn. Megi Guð gefa ykkur styrk til þess að komast yfir sorg ykkar. Ég minnist þín í vorsins bláa veldi er vonir okkar stefndu að sama marki, þær týndust ei í heimsins glaum og harki, og hugann glöddu á björtu sumarkveldi. Þín sál var öll hjá fögrum lit og línum, og ljóðsins töfraglæsta dularheimi. Þú leiðst í burt frá lágum jarðarseimi, i ljóssins dýrð, á hugar vængjum þínum. Ég sakna þín, ég syrgi farinn vin, í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn, er hóf sig yfir heimsins dægur-glys. A horfna tímans horfi ég endurskin, ég heyri ennþá glaða, þýða róminn, frá hreinni sál með hárra vona ris. (Steinn Steinarr). Kveðja. Valdís og Eddie. Þegar ég kom í heiminn var vinur minn Ottó Sveinsson orðinn tæpra 6 mánaða gamall. Ottó og fjölskylda hans bjuggu í næsta húsi við hús foreldra minna í Vallargerði í Kópa- vogi. Mömmur okkar voru nágrann- ar og vinkonur og ekki var ég margra daga gamall þegar Ottó kom í heimsókn með mömmu sinni. Allar götur síðan vorum við Ottó bestu vinir. í yfir 40 ár. En nú er Ottó vinur minn dáinn. En minningamar lifa, þær eru margar og allar góðar. Einu sinni vorum við báðir með blei- ur og æfðum okkur að segja r. Mörgum árum síðar byggðum við risateygjubyssuna á Hábrautinni. En engu lík voru þau ævintýrin sem við upplifðum þau 5 sumur sem ég var í sveitinni hjá fjölskyldunni á Gíslabæ á Hellnum. Á seinni árum þegar ég kom í heimsókn á heimili þeirra Sigrúnar, Ottós og Óla sonar þeirra á Akranesi lifnuðu minning- arnar og stundum fannst okkur eng- inn tími hafa liðið. Með söknuði og trega sem er þyngri en tárum taki kveð ég þennan yndislega dreng og bið Guð að styðja hann í göngu sinni inn í heim ljóssins. Tryggvi Júlíus Hiibner.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.