Morgunblaðið - 04.06.1997, Page 39

Morgunblaðið - 04.06.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 39 SKÓLASLIT Stýrimanna- skólanum í Eyjum slitið í síðasta sinn 33 ára sögu skólans lokið Vestmannaeyjum - Stýrimanna- skólanum í Eyjum var slitið fyrir skömmu og voru það síðustu skólaslit í sögu skólans þar sem hann verður nú lagður niður og námið fellt inn í nám Framhalds- skólans í Eyjum. Með skólaslitun- um nú lauk því 33 ára sögu þessa skóla sem hefur frá því hann var stofnsettur útskrifað 362 nemend- ur með skipstjórnarpróf af 2. stigi. Friðrik Asmundsson, skóla- stjóri, kom víða við í skólaslita- ræðu sinni. Hann byijaði ræðu sína, eins og ávallt áður, á því að minnast þeirra sjómanna sem far- ist hafa við störf sín frá síðustu skólaslitum. Hann fjallaði síðan um þá miklu sjóskaða sem orðið hefðu undanfarna mánuði og þau verðmæti sem tapast hefðu við strand Vikartinds og þegar Dísar- fellið sökk. Friðrik sagði að því miður hefðu orðið manntjón í skipssköðum undanfarna mánuði en hann gæti ekki varist þeirri hugsun hvernig hefði farið ef sjó- setningarbúnaður gúmbjörgunar- báta, flotgallar og björgunarþyrla hefðu ekki verið til staðar. Allir sem hefðu ýtt á að nýjustu björg- unartækin væru um borð og kaup- in á þyrlunni TF-Líf ættu miklar þakkir skildar. Hann hrósaði útgerðarmönnum, sérstaklega í Vestmannaeyjum, fyrir skjót viðbrögð þegar ný björgunartæki hafa komið á mark- að en sagði aftur á móti ólíðandi hvernig starfsmenn þeirra í Reykjavík hafa barist á móti sjó- setningarbúnaði björgunarbáta, þrátt fyrir að Sigmundsbúnaður- inn hefði staðist allar kröfur sam- kvæmt prófunaraðferðum Iðn- tæknistofnunar. Hann sagði að þrátt fyrir að sjö af átta nefndar- mönnum samgönguráðuneytis sem úölluðu um þessi mál mæltu með því að Sigmundsbúnaðurinn yrði settur í allan flotann þá gerð- ist ekkert í þeim efnum þar sem ráðuneytið frestaði stöðugt að gefa út reglugerð sem fyrirskipaði að þetta björgunartæki færi um borð í alla báta. Friðrik sagði þennan seinagang enn undarlegri í ljósi þess að menn væru alltaf af og til að bjargast fyrir tilkomu þessa búnaðar og nú teldu 22 sjó- menn sig eiga lif sitt þessum bún- aði að þakka. Friðrik sagði að skólaslitin væru síðustu skólaslit Stýrimannaskól- ans í Vestmannaeyjum. Þetta væru 31. skólaslitin í 33 ára sögu skólans en starfsemi hans hefði legið niðri tvö ár eftir eldgosið 1973. Hann sagði að á þessum árum hefðu 352 nemendur lokið 2. stigi frá skólanum og rúmlega helmingur þeirra, 190, hefði komið annarstaðar að en frá Eyjum. Þessir nemendur hefðu flutt til Eyja til að hefja nám í Stýri- mannaskólanum og um 40 þeirra hefðu sest að í Eyjum er námi lauk og byggju þar enn og störf- uðu sem stýrimenn, skipstjórar eða útgerðarmenn. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson SÍÐUSTU útskriftarnemar Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum ásamt kennurum og skólastjóra. Framhaldsskólinn yfirtekur skipstj órnarnámið Friðrik fjallaði um þær breyt- ingar sem framundan væru á skipstjórnarnáminu og yfirtöku Framhaldsskólans á skipstjórn- arnáminu í Eyjum. Sagði hann að forsvarsmenn Stýrimannaskói- ans hefðu aldrei verið ánægðir með að skólinn sameinaðist Fram- haldsskólanum en nú væri búið að setja lög í þeim efnum sem fara yrði eftir. Hann sagði að breytingarnar leiddu af sumu leyti gott af sér en sá skuggi hvíldi yfir að hið eiginlega fagnám skip- stjórnar aflegðist í Eyjum í náinni framtíð. Friðrik afhenti síðan nemend- um prófskírteini sín. Fimm nem- endur luku prófi af 1. stigi. Hæst- ur varð Ólafur Ólafsson, með meðaleinkunn 9,08, sem er ágæt- iseinkunn. Annar varð Trausti R. Traustason með 8,78 í meðalein- kunn og þriðji Theodór Haralds- son með meðaleinkunn 8,61. Atta nemendur luku prófi af 2. stigi og var meðaleinkunn nem- endanna 8,08. Hæstur varð Einar Ólafur Ágústsson með meðalein- kunn 9,29, sem er ágætiseinkunn. Annar varð Bjarni Halldórsson með meðaleinkunn 9,26 og þriðji Hrafn Sævaldsson með meðalein- kunn 8,45. Ýmsar viðurkenningar voru veittar fyrir_námsárangur. Friðrik Ásmundsson, skóla- stjóri, afhenti síðan fjórum aðilum sem lengst hafa starfað við skól- ann með honum smá skilnaðar- gjöf. Þeim Hilmari Rósmundssyni og Þórði Rafni Sigurðssyni, sem lengst allra hafa setið í skóla- nefnd, Brynjúlfi Jónatanssyni, tækjakennara, en hann hefur kennt við skólann frá stofnun hans, og Sigurgeir Jónssyni sem kennt hefur við skólann frá árinu 1983 er hann lauk þar námi sjálf- ur. Sigurður Einarsson, formaður skólastjórnar Framhaldsskólans í Eyjum, tók til máls á skólaslitun- um og sagði að vel yrði tekið á móti nemendum Stýrimannaskól- ans í Framhaldsskólanum. Hann lét að því liggja að ekki væri úti- lokað að framhald yrði á skip- stjórnarnámi í Eyjum í framtíð- inni, þrátt fyrir breytt fyrirkomu- lag. Að skólaslitum loknum var gestum boðið upp á kaffi og með- læti sem konur úr slysavarna- deildinni Eykyndli sáu um að vanda. Sauðárkróki - Skólaslit Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra fóru fram laugardag- inn 24. maí sl. í hátíðarsal skólans að viðstöddu fjöl- menni. f skólaslitaræðu Jóns Fr. Hjartarsonar, skólameistara, kom fram að starf skólans hef- ur verið þróttmikið á því skóla- ári sem nú er að ljúka, en einn- ig að skólahaldið hafi í stórum dráttum verið með viðlíka sniði og undanfarin ár. Það nýmæli var, að í upphafi skólaárs var lögð viðamikil könnun fyrir nemendur varðandi þá þjón- ustu sem skólinn veitir, um kennslu, afgreiðslu og stjórn- unarstörf, og hefur þegar ver- ið unnið úr öllum niðurstöðum og munu þær nýttar til þess að bæta sem mest skólastarf allt á komandi misserum. Sagði skólameistari þetta vera lið í þeirri gæðastjórnun og þeirri viðleitni sem hver skóli sem stofnun yrði að rækja sem best og yrði hér ekki látið staðar numið. Á skólaárinu stunduðu 508 nemendur nám við skólann, þar af bjuggn 174 í heimavist, en mjög hefur á undanförnum árum verið sótt eftir að fá fjár- veitingar til þess að stækka heimavistina verulega, og ræddi skólameistari þau ný- settu lög er kvæðu á um breytta kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga varðandi þessi mál. Sagði hann þessa skipan mála veruleg vonbrigði, ekki síst fyrir þá sök að Norðurland vestra hefði um áratuga skeið búið við ósanngjarnari kostn- Morgunblaðið/Björn Bjömsson ÚTSKRIFTARNEMAR Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra ásamt skólameistara. Skólaslit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 7 7 nemendur útskrifaðir eftir þróttmikið skólaár aðarbyrði en sveitarfélög í öðr- um kjördæmum við byggingu framhaldsskóla, og nefndi það himinhrópandi misrétti. Þá gerði skólameistari grein fyrir starfsemi Farskóla Norður- lands vestra sem starfað hefur á vegum Fjölbrautaskólans, en þar hafa 748 nemendur sótt 71 námskeið af ýmsum toga, sem haldin voru á 10 stöðum í kjördæminu. 77 nemendur brautskráðir Að þessu sinni brautskráð- ust 77 nemendur frá skólanum, 45 stúdentar, en 32 nemendur af hinum ýmsu iðnfræðslu-, vélstjórnar-, uppeldis-, við- skipta- og sjúkraliðabrautum. Við skólaslitin flutti kveðjuorð nemenda Guðmundur Otti Ein- arsson nýstúdent, en Jón Egill Bragason flutti kveðju 10 ára stúdenta. Þá söng Svana Berglind Karlsdóttir nokkur lög við undirleik Rögnvalds Valbergs- sonar. í lokaorðum sínum ávarpaði Jón Fr. Hjartarson nýstúdenta sérstaklega og spurði: „í hvaða anda viljið þið lifa og starfa?“ Vitnaði hann í ræðu sinni til, meðal annars, helgra bóka, sem hann sagði þétt af heilræð- um og siðferðilegum dæmisög- um, en einnig til bókar séra Arnljóts Olafssonar Auðfræði, en þar segir: „Fyrir því verðum vér að hafa vit í kolli, hug í bijósti, þor í hjarta og bein í hendi til að verjast og reka órétt og ósannindi oss af hönd- um og út úr mannlegu samfé- lagi.“ Skólameistari bað nýstúd- enta að tileinka sér kærleikann, velja hið góða en hafna öllu því sem illt er og rækta með sér réttvísi og dyggðir. Að lokum sagði hann: „Gerið dygðirnar svo fylgispakar við ykkur og svo leiðitamar að þær gangi með ykkur út og inn í öllu sam- lífi ykkar við aðra. Veitið hinu góða á marga vegu aðgang til ykkar, bæði í gegn um skilning- inn og tilfinningamar, leyfið því að nema staðar í hjartanu, þegar þetta allt fylgist að, þeg- ar skilningur og tilfinningar laða það góða til viljans, þá verðið þið fullkomin."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.