Morgunblaðið - 04.06.1997, Page 44

Morgunblaðið - 04.06.1997, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson LOGI Laxdal og „Hvellurinn" sigla lygnan sjó á toppnum um þessar mundir í baráttunni um skeiðsætið í landsliðinu. Góðir tímar á Kjóavöllum HESTAR Umsjön Valdimar Kristinsson KILJAN frá Sæfelli og Guðmundur Jónsson halda sigurgöngu sinni áfram en þeir áttu góðu gengi að fagna á íþróttamóti Andvara fyrr í þessum v mánuði. Nú sigruðu þeir í B-flokki gæðinga með 8,41 í einkunn úr for- keppni og höfðu allnokkra yfirburði ef marka má einkunnir. í A-flokki var keppnin heldur jafnari þar _sem Blær frá Árbæjarhjáleigu og Jón Óiaf- ur Guðmundsson sigruðu. Á Kjóavöllum hjá Andvara hefur rikt nokkuð góð kappreiðastemmning enda völlurinn gefið góða tíma. Góð þátttaka var í skeiðinu og mættir til leiks margir fremstu vekringamir og skeiðknapar landsins. Margir þeirra eiu nú að reyna að ná lágmarkstíma í 250 metra skeiði fyrir úrtöku vegna vals á landsliði Islands. Bestum tíma á Kjóavöllum náði Sprengi-Hvellur Loga Laxdal 22,6 sek., en hann hyggst stefna með klárinn í úrtök- una. Staða þeirra er mjög sterk á þeim vettvangi, eru með langbesta tímann og þurfa aðeins að skeiða einn sprett af átta á tíma undir 23 sek. til að tryggja sér sæti. Þess má geta að þegar „Hvellurinn" hefur skilað tíma hefur hann ávallt verið undir 23 sek. með einni undantekningu. í 150 metrunum sigraði Tangó frá Lambafelli á 14,94 sek. Rétt er að koma að hér leiðréttingu á úrslitum í fjórgangi barna á íþrótta- móti Andvara. Þar var ekki farið rétt með nöfn knapa og hests sem urðu í fjórða og fimmta sæti en þar átti að vera í fjórða sæti Þórir Hannesson á Aski og í fimmta sæti Anna Gréta Oddsdóttir á Vini. Urslit A-flokkur 1. Blær frá Árbæjarhjáleigju, eig. Hlíf Sturlud. og fj., kn. Jón Ó. Guð- mundsson, 8,22. 2. Kjarkur frá Ásmúla, eig. og kn. Þórarinn Halldósson, 8,15. 3. Rimma úr Kópavogi, eig. og kn. Arnar Bjarnason, 8,08. 4. Kyndill frá Bólstað, eig. Tómas Bragason, kn. Daníel Jónsson, 8,06. 5. Hófí frá Húsatóftum, eig. Jón Guðmundsson, kn. Friðdóra Frið- riksd., 7,97. B-flokkur 1. Kiljan frá Sæfelli, eig. Þórður Kristleifsson, kn. Guðmundur Jóns- son, 8,41. 2. Gjafar frá Hofsstöðum, eig. og kn. María D. Þórarinsd., 8,23. 3. Erill frá Hrafnabjörgum, eig. og kn. Elfa D. Jónsdóttir, 8,18. 4. Tíbrá frá Vörðufelli, eig. Júlíus Sigurðss., kn. Friðdóra Friðriksd., 8,16. 5. Glanni frá Enni, eig. og kn. Sveinn G.Jónsson, 8,08. Unglingar 1. Theodóra Þorvaldsd. á Feng frá Eyrarbakka, 8,22. 2. Fannar Jónsson á Tjörva frá Syðri-Hofdölum, 7,88. 3. Þorbergur Jónsson á Kletti frá Hraunbæ, 7,59. - 4. Eiríkur L. Steinþórsson. á Drífu, y 7,70. Börn 1. Bylgja Gauksdóttir á Goða frá Enni, 8,19. 2. Þórunn Hannesdóttir á Jarli frá Steinum, 7,97. 3. Anna Gréta Oddsd. á Vini frá Kjóavöllum, 8,23. 4. Hrönn Gauksdóttir á Adam frá Ketilsstöðum, 8,14. 5. Þórir Hannesson á Aski frá Eyja- hólum, 7,92. Unghross 1. Safír frá Ögmundsstöðum, eig. Ágúst Hafsteinsson, kn. Stefán Ág- ústsson, 8,5. 2. Jara frá Jórvík, eig. og kn. Birg- ir Kristjánsson, 7,8. 3. Kolgríma frá Ketilsstöðum, eig. Gréta Boða, kn. Sveinn GJónss., 7,6. 4. Tangó, eig. og kn. Eiríkur L. Steinþórsson, 7,4. 150 metra skeið 1. Tangó frá Lambafelli, kn. Axel Geirsson, 14,49. 2. Elvar frá Búlandi, eig. og kn. Logi Laxdal, 15,30. 3. Askur frá Djúpadal, eig. Hinrik og Hulda, kn. Auðunn Kristjánss, 15,35. 250 metra skeið 1. Sprengi-Hvellur frá Efstadal, eig. og kn. Logi Laxdal, 22,6. 2. Hátíð frá Hóli, eig. Sigurbjöm Bárðar, kn. Sigurður Marínuss., 23,0. 3. Ósk frá Litladal, eig. og kn. Sigur- biörn Bárðarson, 23,0. BÁSAFELL HF. Aðalfundarboð Aðalfundur Básafells hf. verður haldinn á Hótel ísafirði fimmtudaginn 12. júní 1997 kl. 16.00. Dagskrá er skv. 18. grein samþykkta félagsins svo hljóðandi: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf skv. 18. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild til stjórnartil kaupa á eigin hlutum félagsins sbr. 55. grein hlutafélagslaga. 3. Önnur mál löglega upp borin. Stjórnin. I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Yita Hvergerð- ingar ekki að það er komið sumar? ÞEGAR ég var á ferð í Hveragerði í vikunni fannst mér eins og öllum þrifnaði hefði farið aftur. Alls staðar blöstu við opin sár eftir snjómokstur vetrarins, götur voru ekki sópaðar og greinilega enginn metnaður til að hafa fínt. Ég las það í einhveiju blaði að Hveragerðisbær væri búinn að ráða garðyrkjustjóra. Hann er kannski ekki mættur til starfa. Mér hefur fundist að Hveragerði hafi undanfarin ár verið að taka sig á. Það er leitt til þess að vita að þetta bæjarfélag blómaræktar og ferðaþjónsutu skuli vera á hraðri niðurleið. Gylfi. Tapað/fundið Dýrahald Göngustafur fannst GÖNGUSTAFUR fannst á bílastæðinu í Dýradal við Nesjavelli sunnudaginn 1. júní kl. 18. Uppl. hjá Jóni í síma 552-7873. Barnaúr fannst í Elliðaárdal BARNAÚR fannst í Ind- íánagili í Ellliðaárdal sunnudaginn 1. júní. Uppl. í síma 587-1780. Þríhjól fyrir fatlaðan ungling tapaðist STÓRT þríhjól fyrir fatlað- an ungling tapaðist frá Hraunteigi 23 mánudaginn 19. maí. Skilvís finnandi hafi samband í síma 568-1548. Tveir kettlingar þurfa heimili TVEIR sjö vikna gamlir gulir fresskettir þurfa að eignast góð heimili. Þeir eru kassavanir og gæfir. Áhugasamir dýravinir eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 551-5075. Kisa er týnd BRÚN, svört og hvít læða er týnd í Háaleitishverfi. Hún er með hvíta ól með rauðri bjöllu og merkt í eyra RSH 049. Hún er mjög mannelsk. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 568-1637. Víkveiji skrifar... MIKIÐ hefur verið rætt um samræmt próf í stærðfræði á þessu vori, gerð prófsins, lengd, stærðfræðikunnáttu íslenskrar æsku og gæði kennslunnar. Líklega er umræðan í rénun nú, eftir að blessuð börnin eru búin að sækja einkunnirnar sínar, en það gerðu þau flest einhvern tíma í síðustu viku. Víkverji er þeirrar skoðunar, að enn sé ákveðinn angi umræðunn- ar óútkljáður, en hann tekur til þáttar Rannsóknastofnunar í upp- eldis- og kennslumálum og hugsan- lega einnig til sjálfs menntamála- ráðuneytisins. xxx FYRIR næstsíðustu helgi kom Þórólfur Þórlindsson, for- stöðumaður RUM, fram í ljölmiðl- um, bæði útvarpi, sjónvarpi og dag- blöðum og lýsti þeim niðurstöðum sem hefðu fengist í stærðfræðipróf- inu og sagði það mat stofnunarinn- ar að útkoman í ár sýndi fram á að allt hefði verið í lagi með prófið. Að vísu hefðu einungis 17 nemend- ur á öllu landinu fengið 10 í eink- unn í ár, miðað við 60 nemendur í fyrra. Meðaleinkunnin var eins og kunnugt er 0,3 lægri en í fyrra, 5,1 en 5,4 í fyrra. Forstöðumaður- inn gaf til kynna að þarna væru viss óvissumörk, sem nota mætti til þess að færa upp allar einkunnir sem því næmi. Hann upplýsti ekki um hver myndi taka slíka ákvörð- un, né hvenær. XXX TRAX eftir þá helgi spurðist hins vegar út að einkunnirnar í samræmdu prófunum hefðu verið sendar út til allra grunnskólanna og gátu nemendur þegar nálgast einkunnir sínar, sumir á mánudag í síðustu viku og aðrir á þriðjudag. Um það er Víkveija kunnugt. En ef það stóð jafnvel til að hækka alla nemendurna um einhveija 0,3 eða 0,4, sem voru sögð óvissumörk- in, hvers vegna í ósköpunum voru einkunnirnar þá sendar út, áður en ákvörðun hafði verið tekin í þeim efnum? Er hugsanlegt að það hafi aðeins verið gefið til kynna að þessi leið yrði farin, til þess að róa ang- istarfull ungmennin sem biðu með öndina í hálsinum eftir einkunn- inni? Var aldrei nein alvara á bak við þessi orð forstöðumannsins? Hver getur svarað þessu - forstöðu- maðurinn eða ráðherra mennta- mála? xxx HÉR fer á eftir orðrétt tilvitnun í Björn Bjarnason mennta- málaráðherra úr viðtali sem birtist hér í Morgunblaðinu sl. miðvikudag þar sem fjallað var um skýrslu um háskólamenntun hér á landi: „Við þurfum að sjálfsögðu að taka okkur á í skólakerfinu, meðal annars varð- andi stærðfræðikennslu. Með út- tektum og alþjóðlegum samanburði er leitað að veikum hlekkjum og síðan ber að gera ráðstafanir til að styrkja þá. Hinn alþjóðlegi saman- burður leiðir í ljós að innra starfið í skólunum skiptir sköpum. Mark- mið, kröfur og agi þurfa að fara saman með metnaðarfullum hætti. Það þarf að skapa skólunum þau skilyrði að þau geti tekist á við við- fangsefni sín undir þessum for- merkjum." Undir hvert orð ráðherr- ans tekur Víkveiji, en telur að enn skorti upplýsingar um það hvaða leið á að fara og hvaða skilyrði á að skapa skólunum, til þess að markmiðinu verði náð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.