Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hafnarstræti lokað til austurs HLUTI borgarráðs hefur samþykkt að loka Hafnarstræti til austurs frá Pósthússtræti að Lækjargötu. Til- lögu sjálfstæðismanna um að gatan verði opin var vísað frá. í tillögu Reykjavíkurlista segir að forsenda lokunarinnar sé sú að nú- verandi ástand skapi verulega slysa- hættu fyrir farþega SVR, sem borg- aryfirvöld telji óviðunandi. í bókun Sjálfstæðisflokksins er lýst yfir andstöðu við afgreiðslu til- lögunnar í stað þess að bíða með ákvörðun um að loka götunni þar til endurskoðað deiliskipuiag miðborg- arinnar liggi fyrir. Ljóst sé að ákvörð- un um lokun Hafnarstrætis sé tekin í andstöðu við flesta hagsmunaaðila í miðborginni og stjóm Miðbæjarsam- takanna. Engin viðhlítandi rök hafi verið færð fram fyrir lokun umferð- ar. Umferðin sé hæg og auðvelt að tryggja umferð gangandi fólks. I bókun Reykjavíkurlista segir að það sé rangt að engin viðhlítandi rök séu fyrir lokun götunnar. Þau séu augljós, talið sé hættuiegt að beina farþegum SVR yfír umferðaræð frá biðstöð yfir í strætisvagna. ítrekað er að um bráðabirgðaákvörun sé að ræða þar til endanlegar skipulagstil- lögur liggi fyrir. Andlát ÞORÐUR KRISTLEIFSSON Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ÓLAFÍA Sigurbergsdóttir með golfhatt frá Jónsmessumótinu og hanann Sigurð Svein. Að vakna við fyrsta hanagal Keflavík^ Morgunblaðið. HÚN Ólafía Sigurbergsdóttir í Keflavík vaknar á hverjum morgni við fyrsta hanagal. Hvernig skyldi nú standa á því væri næsta spurning og því er til að svara að Ólafía og eiginmaður henn- ar Gylfi Ármannsson halda nú hana sem húsdýr og hafa gert í tæplega eitt ár án teljandi vand- ræða. Haninn heitir „Sigurður Sveinn“ í höfuðið á gefandanum og segir Olafía, sem þarf að vakna snemma á morgnana, að það bregðist ekki að Sigurður Sveinn byrji að gala um fjögurleytið. Ólafía átti stórafmæli síðastliðið haust sem hún fagnaði með vinum og vinnufélögum. Vinnufélag- ar Ólafíu gáfu henni ungan hana í afmælisgjöf og var honum pakkað inn eins og hverri annarri gjöf. „Mér fannst svolítið skrýtið að lögð var áhersla á að ég opnaði þennan pakka sérstaklega og ekki varð undrun mín minni þegar lifandi hani hoppaði upp úr kassanum," sagði Ólafía í samtali við Morgunblaðið. „Það fyrsta sem mér datt í hug var að Iosa mig við hanann, en eiginmaðurinn mátti ekki heyra á það minnst og við tókum hann því með okkur heim. Gylfi bjó Sigurði Sveini siðan að- stöðu í bílskúrnum þar sem hann unir hag sínum vel.“ Staða prófessors í geðlæknisfræði við Háskóla íslands Mælt með Hannesi Péturssyni ÞÓRÐUR Kristleifs- son, menntaskóla- kennari og söngstjóri, lést 24. júní sl., 104 að aldri. Hann fæddist á Uppsölum í Hálsa- sveit en ólst að mestu leyti upp á Stóra- Kroppi, en foreldrar hans fluttu þangað þegar hann var fjög- urra ára gamall. Þórður var síðan við nám í skóla sr. Ólafs í Hjarðarholti veturna 1913-1927, næstu þrjú árin var hann stundakennari í Reykjavík, en gerð- ist síðan kennari á Laugarvatni. Þar að auki þjálfaði hann kóra víðs veg- ar um landið og gaf m.a. út söngva- safnið Ljóð og lög. Starf hans að söngmálum hafði mikil áhrif á al- þýðusöng á íslandi. Þórður Kristleifsson kenndi þýsku í menntaskóla um árabil. Hann var Slasaðist alvar- lega á handlegg MAÐUR sem slasaðist á hendi við færibandsvinnu í Járnblendiverk- smiðjunni á Grundartanga var flutt- ur með sjúkraþyrlu á Sjúkrahús Reykjavíkur í gær. Hann lenti með hendina í einum valsinum á færibandinu og fékk al- varlega áverka á handlegg. Einnig fékk hann áverka á bijóstkassa. Maðurinn var á batavegi í gær eftir að hafa farið í aðgerð. I Staðgreiðsluverð: 9.800 kr. Ármúla 44 • sími 553 2035 nemendum sínum minnisstæður sem mikilhæfur maður og kraftmikill kennari. Þórður var sonur Kristleifs Þorsteinsson- ar á Stóra-Kroppi, fræðimannsins alkunna. Hann hvatti föður sinn til starfa og gaf út rit hans, sem nú eru meðal merkustu heimilda um líf og störf Borgfírðinga seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Þórður var kvæntur Guðrúnu Eyþórsdóttur, en hún lést árið 1983. Síðustu árin dvaldi Þórð- ur Kristleifsson að Droplaugarstöð- um í Reykjavík. LÆKNADEILD Háskóla íslands hefur mælt með því við háskólarekt- or að Hannesi Péturssyni, dósent og yfírlækni á Sjúkrahúsi Reykja- víkur, verði veitt staða prófessors í geðlæknisfræði, sem auglýst var í október síðastliðnum. Mennta- málaráðherra skipar í stöðuna og er gert ráð fyrir að gengið verði frá ráðningunni fljótlega. Tómas Helgason, sem gegnt hef- ur stöðunni sl. 36 ár, hættir störfum fyrir aldurs sakir í lok þessa mánað- ar. Prófessor í geðlæknisfræði við Háskóla íslands er jafnframt for- stöðulæknir geðsviðs Ríkisspítal- anna, samkvæmt 38. grein laga um Háskóla íslands. Auk Hannesar sóttu um stöðuna Jón G. Stefánsson, dósent og yfir- læknir á Landspítalanum, og Hall- grímur Magnússon, heilsugæslu- læknir í Grundarfirði. Fjórði um- sækjandinn dró umsókn sína til baka áður en dómnefnd skilaði áliti. Þriggja manna dómnefnd, skipuð einum fulltrúa læknadeildar og ein- um fulltrúa menntamálaráðherra, sem báðir eru prófessorar við læknadeild HÍ, og einum erlendum prófessor, mat þá Jón og Hannes hæfa og því stóð val deildarfundar læknadeildar milli þeirra tveggja. Bréf til háskólarektors þess efnis að læknadeild mæli með ráðningu Hannesar var undirritað í gærmorg- un, að sögn Einars Stefánssonar, forseta læknadeildar HÍ. Skjalapakka bjargað úr ruslagámi í Osló Merkar heimildir um sögu vegagerðar á Islandi . Morgunblaðið/Arnaldur I PAKKANUM voru m.a. drög að vegakortum, skissur að brúm yfir Þjórsá og Ölfusá, blaðaúrklippur og minnisgreinar um vegamál og afrit af bréfaskiptum norska vegaverkfræðingsins Nils Olafs Hovdenak og Tryggva Gunnarssonar alþingismanns. ÞEGAR verið var að ganga frá dánarbúi manns eins í vesturbæ Óslóar í apríl síðastliðnum munaði minnstu að merk skjöl er vörðuðu upphaf sögu vegagerðar á Islandi færu forgörðum. Þar var meðal annars um að ræða safn bréfa frá Tryggva Gunnarssyni alþingis- manni, vegakort og drög að teikn- ingum af brú yfír Ölfusá og Þjórsá. Það var árvekni nágranna hins látna fyrir að þakka að skjölin fóru ekki á haugana. Að sögn Eiðs Guðnasonar, sendiherra í Ósló, hringdi granninn í sendiráðið og kvaðst hafa undir höndum gögn sem vörðuðu ísland. Hann spurði hvort hann mætti koma með gögnin í sendiráðið og var hann boðinn velkominn þang- að. „Maðurinn, sem heitir Eilif Bang, sagði mér að einn af ná- grönnum hans hefði látist nýlega. Hann hefði verið ákaflega reg- lusamur og hirðusamur maður, sem ekki henti pappírum og skjöl- um. Faðir hans, sem hét Niels Olaf Hovdenak, var verkfræðingur og hafði sem slíkur haft nokkur afskipti af vegagerð á íslandi," segir Eiður í samtali við Morgun- blaðið. Nágranni klifrar upp í ruslagám og bjargaði skjölum Hovdenak lést árið 1942 og eft- ir hans dag voru skjöl hans í vörslu sonar hans. Þegar sonurinn svo lést nýverið og farið var að skipta dánarbúinu, var hluta af því, m.a. nokkrum skjalapökkum, hent í ruslagám fyrir utan húsið. Nágranni hans, Eilif Bang, varð þess var og var smeykur um að þama væru hugsanlega söguleg verðmæti að fara forgörðum, svo hann gerði sér lítið fyrir, klifraði upp í gáminn og hirti þar m.a. skjalapakka sem var sérstaklega merktur íslandi. Þennan pakka fór hann með í íslenska sendiráðið og hefur Eiður Guðnason nú komið honum í vörslu Þjóðskjalasafnsins. „í pakkanum eru ýmis skjöl frá níunda og tíunda áratug síðustu aldar, þar á meðal bréf sem hafa farið milli eigandans og íslenskra manna, minnisgreinar og blaðaúr- klippur, drög að vegakortum, og skissur að brúm yfir íjórsá og Ölfusá," segir Guðmundur Magn- ússon, skjalavörður á Þjóðskjala- safni. Kenndi íslendingum að leggja vegi „Nils Olaf Hovdenak var fæddur árið 1854 og dáinn 1942. Hann var verkfræðingur að mennt og starf- aði lengst af hjá norsku vegamála- stofnuninni. A níunda áratug nítj- ándu aldar var hann kvaddur hing- að til lands til að vera ráðgjafi ís- lenskra stjómvalda við vega- og brúargerð. Hann er hér á landi nokkur sumur, að því er virðist fyrst 1884 og síðan næstu sumur og binst hér kunningsskap við ýmsa menn, mest þó við Tryggva Gunnarsson alþingismann, sem á þessum tíma var einn helsti fram- kvæmdamaður á íslandi. Þessi maður hefur sínar skoðan- ir á vegagerð á íslandi og fínnst lítið til koma. Hann skrifar ítarlega skýrslu um þetta til landshöfðingj- ans yfir íslandi og hún er þýdd og birt í Andvara 1885, undir titlin- um „Nokkur orð um vegagjörð á íslandi." Það hefur stundum verið sagt um þennan mann að hann hafí kennt íslendingum að leggja vegi,“ segir Guðmundur. Hann segir það ekki koma í ljós fyrr en eftir nánari rannsókn að hve miklu leyti hin nýfundnu gögn bæta við þekkinguna á sögu vega- gerðar á íslandi. „Sögu íslenskrar vegagerðar hefur ekki verið mikið sinnt, þann- ig að það er ekki til neitt yfirtits- rit um þau efni. En það er ljóst að það er fengur að þessum gögn- um og ánægjulegt til þess að vita að enn eru að koma í leitirnar skjöl frá þessum tíma.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.