Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1997 51
________FRETTIR_____
Stofnun Samtaka
lungnasj úkling’a
í LOK síðasta mánaðar var haldinn
stofnfundur Samtaka lungnasjúkl-
inga. Fundurinn var haldinn að
Reykjalundi í Mosfellsbæ og kom á
þann fund á annað hundrað manns.
Lög samtakanna voru lögð fram
og samþykkt og kosin var stjórn
en hana skipa: Jóhannes Kr. Guð-
mundsson, formaður, Brynja D.
Runólfsdóttir, ritari, Dagbjört The-
odórsdóttir, gjaldkeri, en með-
stjórnendur eru: Björn Magnússon,
lungnasérfræðingur, Kolbrún Guð-
munsdóttir, húsmóðir, Guðlaug
Guðlaugsdóttir, húsmóðir og Magn-
ús Karlsson, trésmíðameistari.
Markmið félagsins er að vinna
að velferðar- og hagsmunamálum
lungnasjúklinga. Markmiðum sín-
um hyggjast samtökin ná með því
m.a. að halda uppi öflugu félags-
starfi og efla þannig samkennd
lungnasjúklinga og aðstandenda
þeirra, byggja upp forvarnir hvers
konar, efla rannsóknir og koma upp
öflugri fræðslu- og upplýsingamiðl-
un. Samtökin munu halda sinn
fyrsta félagsfund í september og
leggja þá fram dagskrá vetrarins.
Félagið hyggst hefja útgáfu frétta-
bréfs í haust.
í fréttatilkynningu segir: „Mikil
og vaxandi þörf er fyrir lungna-
sjúklinga og aðstandendur þeirra
að eiga sér sterkan málsvara. Sjúkl-
ingarnir eru oft svo veikir að þeir
geta ekki talað máli sínu sjálfir.
Sjúkdómurinn sem slíkur er oft
ekki sjáanlegur og oft hnjóta
lungnasjúklilngar um þá athuga-
semd samferðarmanna að þetta sé
bara sjálfskaparvíti. Þá er átt við
reykingar. En á þessu þarf að verða
grundvallabreyting og mun stjórn
samtakanna beita sér af alefli fyrir
bótum á öllum sviðum heilsuvernd-
ar, eins og kemur fram í markmið-
um samtakanna.
Sjúkdómar í öndunarfærum hafa
aukist mikið á undanförnum árum
og er mun meiri hluti íslendinga
með lungnasjúkdóma en nokkurn
órar fyrir. Talið er að allt að 20%
reykingamanna fái langvarandi
lungnaþembu fyrir utan þá fjöl-
mörgu sem þjást af asma og of-
næmi ásamt öðrum kvillum í öndun-
arfærum. Það gefur auga leið að
hópur þessi mun ekki minnka í
framtíðinni. Auknar reykingar ungs
fólks í dag, aukin mengun og áreiti
allskonar efna í andrúmslofti munu
því miður vafalítið valda hækkun á
þessari tölu í framtíðinni."
Myndband um íslenska
náttúru og landbúnað
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
hefur í samvinnu við Bændasamtök
Islands gefið út kynningarmynd-
band fyrir ferðaþjónustuaðila um
íslenska náttúru og íslenskan land-
búnað.
Á myndbandinu, sem er um 12
mínútna langt, er íslenskur land-
búnaður og framleiðsla landbúnað-
arafurða við íslenskar aðstæður
kynntur sem einstakur. Lögð er
áhersla á samspil ómengaðrar nátt-
úru og hreinleika afurðanna. Með
frásögninni er m.a. bent á, að það
er ekki einungis ósnortin fegurð
náttúrunnar sem dregur ferðamenn
til landsins, heldur er full ástæða
til þess að heimsækja Island til að
kynnast þeim landbúnaðarafurðum
sem þar eru framleiddar.
Myndbandið er hægt að nálgast
í landbúnaðarráðuneytinu og hjá
Upplýsingaþjónustu landbúnaðar-
ins, fyrir þá sem áhuga hafa á því
að nota það við kynningarstörf.
Myndbandið hefur nú þegar verið
sent nokkrum aðilum til kynningar
og hafa Flugleiðir hf. ákveðið að
sýna myndbandið í flugvélum sín-
um, segir í frétt frá ráðuneytinu.
stctiiui m á m
TOMI í $(ImAI!
Peacock turnvél
Intel 166 mliz örgjörvi
3S mb innra minni
15" stafrænn litaskjár
1700 mb harður diskur
16 hraða geisladrif
Soundblaster 16
S5w hátalarar
Lyklaborð <Se mús
Windows '95 m/bók
U7.900
5 íslenskir nýir leikir
BT. Tölvur
Grensásvegí 3 -108 Rsykjavík
Sírni: 5885900-Fax: 5885905
Opið virka daga frá 10:00 -19:00
Blóm: Blómaval
Sundbolir: Útllff
njóta sín
betur í
sólinni!
Tími stuttbuxna, sundboia.
sandala og sumarkjóla
er að ganga í garð. Vertu
i fínu formi í sumar og
skeiitu þér á árangursríkt
og skemmtilegt fitu-
brennslunámskeið hjá
Stúdíó Ágústu og Hrafns.
Njóttu þin í sumar!
UttusktWÍ5""'
La í Sl^c6
8-vikna fitubrennslu-
nánraskeid:
• ÞJálfun 3-5x I viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• Fltumællngar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabókin „Léttlr rétUr“
150 frábænar uppskriftir
• Nýr upplýsingabæklingur:
„f forml til framtfftar"
• Mjög mitóð aðhald
• Vmníngar dregnir út
í hverri viku
• Fritt 3ja mán. kort fyrir
5 heppnar og samviskusamar
Kvöldhópar
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
Bamagæsla
Hefst 30. júní
SKEIFAN 1 101 REYKJAVÍK S. 533-3355