Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1997 37 stærðir 39 - 46 itærðir 36-41 stærðir 36 - 46 AÐSENDAR GREINAR því að koma ferskum sjávarafurð- um daglega beint til neytenda í Bandaríkjunum, ef umrætt fiutn- ingakerfi ferðaþjónustunnar væri ekki til staðar? Hvernig gætum við tekið þátt í alþjóðlegum viðskiptum, samið um sölu á afurðum, raforku og öðru, ef við hefðum einungis þá tíðni í flugi sem heimamarkaður þarfn- ast? Frekari uppbygging Flugleiða á þessu ieiðakerfi og markaðssetn- ing þeirra og annarra samhliða því skiptir því ekki einungis ferðaþjón- ustuna í landinu miklu, heldur í reynd er það grundvöllur þess að við getum haldið áfram að auka hlut okkar í alþjóðlegum viðskipt- um og eflt enn frekar samkeppnis- hæfni okkar í útflutningi. Þetta er gert að umtalsefni hér á 50 ára afmælisári millilanda- flugsins, þar sem mér finnst oft á tíðum að mikilvægi þessarar fram- sækni frumheijanna og frekari þróun og vinnsla þeirrar hugmynd- ar í höndum Flugleiða gleymist og við Islendingar lítum á það sem sjálfsagðan hlut að við höfum þessa frábæru samgöngumögu- leika til allra átta allt árið. En það er auðvitað ekkert sjálfgefið að rekstri alþjóðaflugfélags sé haldið út frá okkar litla samfélagi. Samhliða því að þessari hug- mynd var komið í framkvæmd á sjötta áratugnum hófst sölu- og markaðsstarf í tveimur heimsálf- um. í áratugi hafa íslensk fyrir- tæki í ferðaþjónustu því starfað erlendis og byggt upp markaði. Sú vinna var frá upphafi í höndum íslenskra fyrirtækja enda áttum við íslendingar mest undir því að vel tækist til. Ég hef áður látið í ljós þá skoðun mína að við íslend- ingar eigum í vaxandi mæli að koma okkur enn betur fyrir á helstu markaðssvæðum okkar.“ í framhaidi af umræðunni um mikilvægi Keflavíkurflugvallar hlýtur það að vekja athygli að enn skuli stundum um það rætt að Leifsstöð sé fjárhagslegur baggi á þjóðinni. Fjárfesting sem var 4-5 milljarðar. Gjaldeyristekjur af er- lendum ferðamönnum frá því Leifsstöð var tekin í notkun nálg- ast nú 100 milljarða. Hvaða mögu- leika hefðum við haft til slíkra gjaldeyristekna án byggingar Leifsstöðvar? Þetta eigum við að hafa í huga nú þegar komið er að nauðsynlegri stækkun flugstöðvar- innar til næstu áratuga. Áætlanir innan ferðaþjón- ustunnar gera ráð fyrir verulega auknum umsvifum áfram. Gangi þessar áætlanir eftir munu hér á Islandi verða til a.m.k. 100 millj- arða viðbótargjaldeyristekjur á næstu 10 árum. Ég er að tala um viðbót miðað við að umsvif í ferða- þjónustu hér á landi hefðu skilað 20 milljörðum árlega næstu 10 árin, eða því sama og á síðasta ári. Þannig að gjaldeyristekjurnar verði ekki 200 milljarðar heldur a.m.k. 300 milljarðar á næsta ára- tug. Og segja má að hin stórfelldu fjárfestingaráform Flugleiða hafi gert þessa spá enn raunhæfari. Það hlýtur að vekja athygli að ein atvinnugrein kynni áform um yfir 100 milljaraða viðbótargjaldeyris- tekjur á næsta áratug sem skapi þúsundir nýrra starfa. Nú þarf að tryggja að stjórnvöld fyrir sitt leyrti tryggi þessa gjaldeyrisaukn- ingu og atvinnusköpun enda eru þeirra hagsmunir mestir þar sem gera má ráð fyrir að gangi þetta eftir muni a.m.k. 20-30 viðbótar- milljarðar af þessari aukningu renna beint í ríkissjóð á næsta áratug. Ákvörðun Flugleiða er enn frekri staðfesting á vaxtarmögu- leikum íslenskrar ferðaþjónustu. Mikilla annarra fjárfestinga er þörf í uppbyggingu í landinu til að tryggja að við náum settum markmiðum. Það þarf að tryggja að aðrar ákvarðanir um nauðsyn- legar fjárfestingar í atvinnugrein- inni verði teknar með því sama hugarfari að tryggja aukna arð- semi og samkeppnishæfni. Hér þarf m.a. fjárfestingar á áfangastöðunum, hvort sem að- dráttarafl þeirra er vegna ein- stakrar náttúru, menningar eða tengt sögu okkar. Þá er ekki síður þörf á stórauknum fjárfestingum í öllu okkar markaðsstarfi. Þar þarf að mínu mati að koma til enn frekari samvinnu allra aðila en nú er og enn meiri sókn okkar íslendinga sjálfra í sölu- og mark- aðsmálum. Ef rétt er að unnið er ekkert sem bendir til annars en við séum að tala um ferðaþjónustu sem eina af undirstöðum íslensks efnahagslífs á næstu öld. Höfundur er ferdamálíistjóri. toppgrindur og burðarbogar Eigum mikið úrval af farangurskössum, toppgrindum og burðarbogum á flestar gerðir bifreiða. Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar í sima 588 2550. BílavörubúSin FJÖDRIN I famrbroddi SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVIK SÍMI 588 2550 verð áður 2.490 kr. á Kringlukasti 1.490 kr. á Kringlukasti 2.490 kr. 'V. a Kringlukasti 1.490 kr. a Kringlukasti 790 kr. á Kringlukasti 990 kr. verð áður 1.490 kr. á Kringíukasti í 790 kr. a Kringlukasti 1.290 kr. verð áður 1.690 kr. á Kringlukasti 990 kr. ; ' -P/ / .• / J ^ 7 verð áður 11.790 kr. a Kringlukasti 790 kr. a Kringlukasti 4.990 kr. a Kringlukasti **■ J'm 5.990 kr. <-r a Kringlukasti *ss» 1.290 kr. - á Kringlukasti 2.990 kr. SENDUM í PÓSTKRÖFU r verð áður 10.990 kr. ART skór 4 litir á Kringlukasti 4.990 kr. LAUGAVEGI 67. SIMI 551 2880
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.